Morgunblaðið - 13.01.2014, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 13.01.2014, Qupperneq 20
SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Atlantshafshryggurinn, semliggur m.a. gegnum Ísland,er fullur af verðmætummálmum að sögn Norð- manna sem hafa verið að rannsaka hverastrýtur á hafsbotni, svokallaða Black smokers, sem skila af sér málmum. Jarðhitakerfið á Reykjanesi er eina rekjarðhitakerfið á Atlants- hafshryggnum sem er ofansjávar og hefur dr. Vigdís Harðardóttir jarð- efnafræðingur rannsakað málm- myndun í borholulögnum hjá Hita- veitu Suðurnesja. Hún segir heilmikil verðmæti myndast í útfellingum í lögnunum. „Í vökvanum á Reykjanesi mælist tíu sinnum meira gull heldur en hingað til hefur mælst á Atlants- hafshryggnum. Það finnst mjög mikið magn gulls hér, það mesta sem hefur fundist á hryggnum er í þessum leiðslum á Íslandi,“ segir Vigdís. Hvernig myndast þessar málm- útfellingar í lögnunum? „Þegar jarðhitavökvinn, sem er sjór að uppruna, kemur upp borhol- una byrjar hann að sjóða vegna þrýstingslækkunar og útfellingarnar falla út innan í holunni og festast inn- an á borholuveggnum. Svo heldur þetta áfram á leiðinni upp, þá fella þeir þrýstinginn aftur og svokölluð önnur suða á sér stað og þá fellur út gífurlegt magn af þessum útfellingum sem eru í rauninni þéttur grjót- massi,“ útskýrir Vigdís. 5 kg af silfri og 1 kg af gulli Hvað er í þessum útfellingum? „Þetta er nær eingöngu málmur, aðallega sínk, svo er kopar, járn og blý og smá ókristallaður kísill og fullt af gulli og silfri. Ég skoðaði útfelling- arnar sem mynduðust yfir eitt ár, frá 2006 til 2007, í lögnum hjá þeim og yf- ir þann tíma mynduðust 900 kg af hreinu sínki, um 300 kg af hreinum kopar, 200 kg af járni, 22 kg af blýi, 5 kg af silfri og tæpt 1 kg af gulli. Þetta voru reyndar háþrýstingsholur svo þrýstingurinn á holutoppunum var gífurlega mikill og málmarnir féllu út þegar þrýstingurinn var felldur. Síð- an hefur kerfið hjá þeim aðeins breyst, þrýstingurinn er ekki eins mikill núna á holutoppunum og það hefur minna fallið út þó að það falli enn mikið út í lögnunum,“ segir Vig- dís sem hefur m.a. látið búa til skart- gripi fyrir sig úr útfellingunum sem til hafa fallið úr rörunum. Útfellingarnar minnka þvermál lagnanna og því þarf að skipta reglu- lega um búta hér og þar. Rörbút- unum hefur hingað til verið hent en Vigdís stakk upp á að útfellingunum yrði safnað saman og málmarnir unn- ir seinna meir. „Magnið sem féll út 2007 hefði verið um níu milljónir ísl. króna að verðmæti ef það hefði verið selt. Það hefði reyndar þurft að koma því í bræðslu svo það kæmi kostnaður á móti. Ef við værum með fullt af bor- holum til þess að ná jarðhitavökv- anum upp gætum við alveg nýtt þetta en eins og er í dag er kannski ekki nægilega margar borholur til þess.“ Námur framtíðarinnar Vigdís segir hverina á sjávarbotni vera námur framtíðarinnar. Búið sé að rannsaka svörtu hverina í nokkur ár en það taki tugi ára að koma slík- um námum af stað. „Það er fullt af fyrirtækjum í dag sem eru að byrja að rannsaka þetta, t.d. Norðmenn og Nýsjálendingar en það hefur mælst mikill gullstyrkur í jarðhitalögnum á Nýja-Sjálandi.“ Gæti slíkar námur verið að finna víðar á Íslandi en á Reykjanesinu? „Reykjanesið er eini staðurinn í heiminum sem er með svona svarta hveri uppi á landi. Við vitum að þetta er ekki á Hengilsvæðinu eða í Kröflu en það má finna málma í jarðhita- kerfum á fáeinum svæðum, eins og í Esjunni, Þormóðsdal og Lóni fyrir austan.“ Námur framtíðarinnar á Reykjanesinu? Morgunblaðið/Árni Sæberg Jarðefnafræðingur Vigdís Harðardóttir segir mikið gull á Reykjanesinu. 20 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Tvennt eraugljóst.Annað er að Ísland getur ekki haldið áfram aðlögunarviðræð- unum að Evrópu- sambandinu með ríkisstjórn og stjórnarmeiri- hluta á þingi sem eru andvíg aðild Íslands að sambandinu. Hitt sem er augljóst er að í síðustu þingkosningum kusu landsmenn til valda þá flokka sem voru eindregið á móti að- ild að Evrópusambandinu og sá flokkur sem hafði það mál sem sitt aðalmál galt afhroð. Þegar af þessum ástæðum eru umræður um að ríkis- stjórnin eigi að láta viðræð- urnar við Evrópusambandið halda áfram, eða halda sér- staka atkvæðagreiðslu um hvort þeim skuli haldið áfram, öldungis fjarstæðu- kenndar. Þetta sjá allir sem velta því fyrir sér, en ákefð aðildarsinna er slík að þeir halda áfram að hamra þetta járn hvað sem tautar og raul- ar og vinna með því að áfram- haldandi sundrungu og óstöðugleika. Þeir geta ekki sætt sig við úrslit kosning- anna og þeir geta ekki sætt sig við að vera í litlum minni- hluta og beita þess vegna öll- um brögðum til að halda lífi í dauðum viðræðum. Umfjöllun Ríkisútvarpsins í gær var liður í þessari bar- áttu minnihlutans að halda lífi í viðræðunum, en þar var rætt við forsætisráðherra og leiðtoga stjórnarandstöð- unnar um mögulega þjóðar- atkvæðagreiðslu um fram- hald viðræðnanna. Áróðurinn um framhald viðræðnanna gengur allur út á að Ísland og ESB hafi átt í „samningaviðræðum“ og þar með að um eitthvað hafi verið að semja, þegar staðreyndin er sú að viðræðurnar eru að- lögunarviðræður þar sem ekki er um neitt að semja. Þær snúast um það eitt hvernig Ísland ætlar að laga regluverk sitt að regluverk- inu í Brussel. Ekki hvort Ís- land ætlar að laga sig að því regluverki og þaðan af síður hvort Brussel ætlar að laga regluverk sitt að því ís- lenska. Ábending forsætisráð- herra um að hér kalli aðild- arsinnar sig viðræðusinna hittir ágætlega í mark og ætti að vekja menn til um- hugsunar um þann blekking- arleik sem stund- aður hefur verið í tengslum við aðildar- umsóknina. Ákaf- ir aðildarsinnar hér á landi vita að aðild á ekki upp á pallborðið hjá Íslendingum og þess vegna grípa þeir til þess lævíslega bragðs að leggja áherslu á baráttuna fyrir viðræðum um aðild eins og þar sé eitthvað annað á ferðinni en barátta fyrir að- ild. Þessi blekkingarleikur hélt áfram í viðtölum Rík- isútvarpsins við forystumenn stjórnarandstöðunnar í gær þar sem þeir kvörtuðu undan því að ríkisstjórnin léti ekki kjósa um framhald viðræðn- anna, eins og það er kallað. Þetta er sama fólkið og þvingaði fram aðildarumsókn og þær aðlögunarviðræður sem fylgdu í kjölfarið án þess að ljá máls á að þjóðin yrði spurð álits. Þeim fannst meira að segja sjálfsagt að snúið væri upp á hendur þingmanna sem voru and- snúnir aðild til að knýja í gegn að aðlögunarferlið færi af stað. Þetta er líka sama fólkið og reyndi að koma í veg fyrir að almenningur fengi að kjósa um Icesave-samningana, þannig að hvatningar þess til að haldin sé þjóðaratkvæða- greiðsla nú hljómar í meira lagi ósannfærandi. Ekki hljómar síður ósann- færandi þegar þessir sömu forystumenn saka núverandi ríkisstjórn um óljósa stefnu hvað varðar aðildarumsókn- ina. Þeir eru sjálfir nýkomnir úr ríkisstjórn sem sótti um aðild en sagðist ekki styðja aðild og hafði ekki fullnægj- andi stuðning innan eigin raða fyrir aðild. Gagnrýni af þessu tagi og sífelldar umræður munu hins vegar elta þá ríkisstjórn sem nú situr á meðan hún tekur ekki af skarið og slítur við- ræðunum. Þangað til munu aðildarsinnar segjast við- ræðusinnar og gera allt sem þeir geta til að halda um- ræðunni gangandi, viðræð- unum lifandi og þvælast fyrir öðru starfi ríkisstjórn- arinnar. Þennan vanda er auðvelt fyrir ríkisstjórnina að leysa og þar með er óþarfi fyrir hana að láta hann þvælast fyrir sér. Forsætisráðherra benti réttilega á sérkennilegan málflutning ákafra aðildarsinna} Aðildarsinnar í gervi viðræðusinna E in af fréttum liðinnar viku fjallaði um þjónustukönnun Capacent Gallup, þar sem í ljós kom að Reykjavík veitir íbúum sínum laka þjónustu miðað við önnur sveitarfélög, sérstaklega Garðabæ og Seltjarn- arnes. Viðbrögð meirihlutans voru athyglisverð í meira lagi, en segja má að forystumenn hans hafi nánast verið undrandi á niðurstöðunum, því að Reykjavík hefði gert sína eigin könnun þar sem borgin liti miklu betur út. Nema hvað. En hvað ætti að hafa komið svona á óvart? Umhirða borgarinnar og grassláttur eru í lág- marki á sumrin, snjóruðningur og söltun (eða söndun öllu heldur) í lágmarki á veturna. Ef lit- ið er út fyrir 101 Reykjavík sjást hvarvetna óánægðir foreldrar með ráðstafanir í grunn- og leikskólamálum. Í skipulagsmálum virðist reglan vera sú að byggja fyrst og spyrja svo, og kalla það svo samráð við íbúa þegar ein hæð er sneidd af margra hæða húsi, sem reist er í þröngu og lágreistu íbúðarhverfi, án nokkurra bílastæða. Að ógleymdum flugvellinum, sem á að fara, þó að stór meirihluti borgarbúa og landsmanna allra sé mótfallinn því. Stórfelldum fjármunum er sól- undað í að þrengja götur þar sem aldrei hefur verið vanda- mál með umferð, og að flytja myndastyttur af gam- algrónum stalli sínum úr „úthverfunum“ og inn í miðborgina. Hvað er það nákvæmlega við þjónustu Reykjavíkurborgar sem við eigum að vera ánægð með? Að minnsta kosti sé fólkið sem ber ábyrgð á þessu fyndið? En gamanið kárnar heldur hratt þegar litið er á peningahliðina. Skuldir borgarinnar hafa aukist á þessu kjörtímabili um 17 milljarða króna, og verða um 67 milljarðar á þessu ári. Það eru nálega tíu krónur á hvern einasta jarð- arbúa. Aðhald í fjármálum borgarinnar er næstum því ekkert, en útgjöldunum hefur ver- ið mætt með því að hækka útsvarið í botn. Enda er það ríkjandi stefna á Íslandi í dag að engin útgjöld séu svo drjúg að ekki megi reyna að mæta þeim með þeirri óþrjótandi auðlind sem nefnist skattfé almennings. Grínið verður því á endanum á kostnað borgarbúa, sem munu þurfa að borga reikninginn með einum eða öðrum hætti. Borgað er meira fyrir minni þjónustu, eins og þá ánægju að láta fólk fara í gegnum rusl í leit að pappír. Þær eru margar falleinkunnirnar sem hægt er að útdeila þeim sem eiga að fara með málefni okk- ar Reykvíkinga. Hofsvallagatan, skipulagsmálin, skóla- málin, umhirðan. En kannski ætti stærsta falleinkunnin að lenda á fulltrúum minnihlutans. Hvar voru þeir á meðan allt þetta var að gerast? Jú, oftar en ekki voru þeir, með nokkrum undantekningum, með sérstaka bókun um að þeir væru kannski ekki alveg fyllilega sammála, en þeim þætti heildarafstaða meirihlutans svo góð að þeir myndu ekki setja sig á móti henni. Vissulega eru átök í sveit- arstjórnarmálum ekki jafnmikil og á Alþingi, en hvenær hætti það að vera hlutverk andstöðunnar að veita and- stöðu? sgs@mbl.is Stefán Gunnar Sveinsson Pistill Falleinkunnin STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Vigdís vinnur hjá Íslenskum orkurannsóknum, ÍSOR. Hún vann doktorsritgerð um jarð- hitakerfið á Reykjanesi frá há- skólanum í Ottawa í Kanada 2011. Hún tók m.a. sýni úr þrem- ur borholum af jarðhitavökv- anum á Reykjanesi árið 2007 og hefur fylgst með útfellingar- myndunum úr þeim síðan. „Ég fylgist með þessu og á að skila skýrslu fljótlega um ástandið. HS Orka er að leitast við að leysa þetta útfellingarvandamál, þeir vilja ekki hafa útfellingarnar enda draga þær úr rennsli vökv- ans sem þeir þurfa á að halda til að framleiða rafmagnið.“ Fylgist með ástandinu DOKTORSVERKEFNI Málmar Lögn úr holu RN-11 full af útfellingum. Opið er um 15 cm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.