Morgunblaðið - 13.01.2014, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 13.01.2014, Qupperneq 21
21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2014 Vetrarmjöll Það var vetrarlegt við Árbæjarsafnið í gær og greinar trjánna voru fagurlega hlaðnar lausamjöll eftir að snjó kyngdi niður í höfuðborginni á föstudaginn var. Ómar Umræðan um raun- hæfa valkosti í hús- næðismálum, þ.e. að til staðar verði stór og sterk íbúðaleigufélög, hefur varað í áratugi á Íslandi. Hún hefur átt sér stað á öllum svið- um í íslensku þjóð- félagi, hjá almenningi, stéttarfélögum, í póli- tíkinni, atvinnulífinu o.s.frv. „Eftir hrun“ náði umræðan nýrri vídd og leit út fyrir um tíma að einhver myndi gera eitthvað. Fyrir þau okkar sem hafa reynt það á eigin skinni að búa í hentugri leiguíbúð í langtímaleigu, í eigu fasteignafélaga í Skandinavíu, þá er mjög erfitt að skilja af hverju er ekki hægt að bjóða upp á þennan valkost hér. Það er tiltölulega ein- falt að koma á fót sterku húsnæðis- leigufélagi sem myndi leigja út til almennings leiguíbúðir af ýmsum gerðum og stærðum. Það þarf einungis að tala minna en gera meira. Það sem gera þarf er eftirfarandi: Opinberir aðilar hafi frumkvæðið að því að lífeyr- issjóðir leggi fram viljayfirlýsingu um lánsfé til sérstaks íbúðaleigu- félags sem yrði í dreifðri eignarað- ild hagsmunaaðila, s.s. lífeyrissjóða, stétt- arfélaga, sveitarfélaga og mögulega annarra opinberra aðila. Lán mega ekki bera hærri raunvexti en 3-3,2%. Lánshlutfall verði a.m.k. 85% af fjárfest- ingunni. Lán verði verðtryggð, t.d. með jöfnum afborgunum til 40 ára, með þaki á verðtryggingu, t.d. 2% á ársgrundvelli. Skuld- ari verði íbúðaleigu- félagið, veð verði í leigusamningum og fasteignum. Með þessum hætti yrði eignamyndun í félaginu nokk- uð hröð. Fyrrnefndir hags- munaaðilar myndi með sér samtök sem hafi það hlutverk að standa að leigufélaginu, setja saman sam- þykktir, hluthafasamkomulag o.s.frv. Samtökin leggi félaginu til loforð um eigið fé, a.m.k. 15% af heildarfjárfestingum og vilyrði um rekstrarframlag fyrstu árin meðan tekjuflæði er að byggjast upp. Stofna félag og setja því stjórn. Stjórn móti stefnu félagsins og setji því ítarleg rekstrarmarkmið. Það má virkja markaðinn til að halda utan um félagið og rekstur þess, t.d. fá eitt af stóru fasteignafélög- unum á markaðnum til að stýra og halda utan um fjárreiður og yf- irstjórn félagsins. Ráða, á grunni þjónustusamninga, eitt eða tvö af stærri leigufélögunum til að annast daglegan rekstur, umsýslu eigna og samskipti við leigutaka, s.s. útleigu. Þetta eru t.d. félögin Búseti, Fé- lagsbústaðir og Búmenn. Þessum samningum má ná með útboði eða samkeppni í einhverju formi. Næsta skref er að kaupa eignir til útleigu og leigja út. Ekki byggja sjálf, fullt af verktökum sem kunna það. Beita aðferðum markaðarins og bjóða út eða kaupa beint af verktökum. Nokkrir punktar svo dæmið geti gengið upp: Íbúðaleigufélag af þessari stærðargráðu, með þeirri fjárþörf og því nauðsynlega „lágri“ vaxtarkröfu á fjármagn, verður aldrei til nema með breiðri sátt og þátttöku hagsmunaaðila. Félagið þarf að vera stórt svo það geti orðið sjálfbært. Sennilega þarf eignasafnið að verða mjög fljótt (á 3-7 árum) yfir 50-60.000 m.kr eða nálægt 2.500 íbúðir. (Fé- lagsbústaðir eiga nú um 2.200 íbúð- ir.) Tekjur þurfa að vera ca. 350 m.kr. á mánuði eða um 140.000 kr. að meðaltali á íbúð m.v. 100 fer- metra. Leiga á litlum 2-3 herbergja íbúðum ætti að geta orðið undir 80.000 þús. kr. Leigusamningar verði verðtryggðir en með þaki á mestu mögulegu hækkun vísitölu yfir árið, t.d. 2%. Íbúðir geta verið af mismunandi stærðum, staðsetningu og gæðum. Þetta þurfa þó að vera einingar en ekki einstaka eignir, t.d. heilar blokkir eða raðhúsalengjur. Varast þarf einsleitni í uppbyggingu svæða og eininga innan þess. Mikilvægt er að opna fyrir breyt- ingar á nýrri byggingareglugerð en hún er mikill þröskuldur og aft- urför í eðlilegri þróun hvað varðar byggingu hagkvæms húsnæðis. Sveitarfélög þurfa að koma að þessu verkefni sem skipulagsvald og mögulega með því að leggja til ódýrar lóðir. Það er hægt að koma á fót sterku leigufélagi á skömmum tíma, t.d. 2-3 árum. Tækifærin eru til staðar, þau voru sérstaklega hag- stæð eftir hrun og eru það enn en hafa breyst hratt og munu breytast hraðar. Lóða- og íbúðaverð er ekki hátt, mikið af eignum í eigu fjár- málastofnana og opinberra aðila sem selja má inn í félagið, bygg- ingamarkaður tiltölulega hagstæður byggjendum og kaupendum. Vextir þokkalega hagstæðir í sögulegu samhengi. Það er einnig mjög mikilvægt að huga að aðalatriðunum í þessu máli, en þau eru: A. hver er tilbúinn að lána til þessa verkefnis á „eðlileg- um“ kjörum, t.d. raunvöxtum 3- 3,2% með þaki á vísitölu og B. hver er tilbúinn að leggja til eigið fé á „eðlilegri ávöxtunarkröfu“? Fyrsta skrefið er ekki að byggja. Í framtíðinni (3-5 ár) má síðan selja félag sem þetta til einhvers af „stóru“ fasteignafélögunum en mögulega verða til þrjú skráð fast- eignafélög á markaði innan fárra ára. Stórt, vel fjármagnað og vel rekið eignasafn leiguíbúða myndi falla vel að eignasafni eins og „stóru“ fasteignafélögin eiga nú. Þetta er módel sem er þekkt í Skandinavíu. Ef það er vilji okkar að venjuleg- ir Íslendingar geti búið í venjulegu leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði og án þess að eiga von á uppsagn- arbréfi um næstu mánaðamót þá þurfum við að vinna í því. Ekki bara tala um það. Eftir Helga S. Gunnarsson » Það er tiltölulega einfalt að koma á fót sterku húsnæðisleigu- félagi sem myndi leigja út til almennings leigu- íbúðir af ýmsum gerð- um og stærðum Helgi S. Gunnarsson Höfundur er forstjóri fasteignafélags- ins Regins hf. en Reginn er annað stærsta fasteignafélag landsins og það eina sem er skráð í Kauphöll. Hversu lengi á að tala um íbúðaleigufélög?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.