Morgunblaðið - 13.01.2014, Page 27

Morgunblaðið - 13.01.2014, Page 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2014 hélt sinni eigin persónu til hlés en beindi ljósgeislanum þeim mun meir með faglegri tækni að því myndefni eða þeirri persónu sem sat fyrir hjá honum. Alla tíð var hann mikill leiðbeinandi í faginu og miðlaði öðrum af þekkingu sinni. Sjónarhorn hans á þjóðlífinu og atburðum liðinna áratuga sýnir best hversu næmur hann var á myndefnið og hversu vel hann komst að því að festa það niður til sýnis og forða því frá gleymsku. Þessi faglega út- færsla hans á verkefninu lýsir best hversu vandaður maður hann var. Maður sem hafði með þrotlausu starfi þroskast í list sinni og veitt samferðafólki sínu skerf af því innsæi sem hann hafði áunnið sér í sínu faglega starfi. Þessa fagmennsku á sviði list- arinnar útfærði hann í allri sinni framkomu gagnvart fjölskyldu sinni og samstarfsfólki og ekki síst barnabörnum sínum. Það var einstök gæfa að fá tækifæri til að kynnast slíkum einstaklingi. Þess hefur fjöl- skylda hans notið ríkulegar en nokkrir aðrir. Innileg samúð til fjölskyldunnar. Blessuð sé minn- ing hans. Hjörtur Þórarinsson. Látinn er góður vinur og fé- lagi, Leifur Þorsteinsson. Mig langar að minnast hans með nokkrum orðum því við átt- um gott samstarf í Ljósmynd- arafélagi Íslands. Reyndar vor- um við hjónin í nokkrum tengslum við þau hjón, Rikku og hann, sem hófust með því að þegar þau komu heim frá námi og ég nýlega útskrifaður frá meistara hér heima, þá vorum við hjónin leigjendur hjá föður Rikku að Lundi við Nýbýlaveg og var það okkar fyrsta heimili. Seinna áttum við Leifur eftir að eiga gott samstarf í félaginu og kom hann nær daglega við hjá mér á Njálsgötuhorninu þegar hann fór í pósthúsið beint á móti stofunni og þá var margt skrafað um það, sem var verið að gera og þurfti að gera og þá m.a. um norræna samstarfið og það sem verið var að reyna að fá fram í framþróun menningar- mála stéttarinnar en hann tók þau mál mjög að sér meðan ég sinnti frekar félagsmálapakkan- um. Minnisstætt er mér m.a. þeg- ar við fórum með ágætum hópi norrænna starfssystkina okkar í Þórsmörk þar sem gist var í stórum skála og farið í göngu- ferðir og þá tóku formaðurinn og varaformaðurinn að sér að grilla á veröndinni við skálann og þar fengum við að finna fyrir íslensku veðurfari og þvílíkt rok og rigning og man ég eftir því hvað hlegið var að okkur Leifi þegar við vorum í hreinustu vandræðum með að kveikja ekki í kótelettunum en þá var brugð- ið á það ráð að rétta þær aðeins út fyrir þakskeggið til að slökkva í þeim. Eins og áður sagði tók Leifur að sér menningarmálin og var því að sjálfsögðu fyrstur til að kenna við deildina okkar í Iðn- skólanum og fórst það vel úr hendi og var því sá sem mest reyndi á við að koma fagkennsl- unni á laggirnar og verður hon- um seint fullþakkað fyrir það uppbyggingarstarf. Margs er að minnast og þakka ég honum fyrir hvað við áttum annars gott samstarf, sem aldrei bar nokkurn skugga á og sama var að segja um samskipti okkar Sonju við þau hjónin, sem við minnumst með sérstökum hlýhug og vottum Rikku og fjöl- skyldu okkar innilegustu samúð við fráfall Leifs. Megi minningin lifa um góðan dreng og þykist ég vita að undir þau orð myndu allir taka í Ljós- myndarafélagi Íslands. Þórir H. Óskarsson, ljósmyndari. ✝ SigmundurGeir Sig- mundsson var fæddur í Fjarð- arhorni í Gufudals- sveit 23. ágúst 1930. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hólmavík 28. des- ember 2013. Sigmundur var þriðja barn hjónanna Geirríðar Ásu Þórólfs- dóttur, f. 17. júlí 1907, d. 20. apr- íl 1998, og Sigmundar Guð- mundssonar, f. 7. júní 1889, d. 14. september 1930. Áður hefði þeim hjónum fæðst Valgeir 30. apríl 1927, dáinn 23. júní sama ár, og Sólveig, f. 20. apríl 1929. Sigmundur átti tvo hálfbræður, þá Sigurgeir E. Ágústsson, f. 19. júlí 1937, d. 20. október 1991, og Gunnar Þórarinsson, f. 31. des- ember 1946. Einnig átti hann tvo fósturbræður, þá Albert Þorbjörnsson, f. 23. maí 1925, d. 23. mars 1998, og Sigurð Þor- björnsson, f. 9. maí 1927. son, f. 2. desember 1958. Kona, Jóhanna María Karlsdóttir, f. 12. nóvember 1958. Börn þeirra eru fjögur. Barnabarnabörn þeirra eru fjögur. Þórólfur Sig- mundsson, f. 15. ágúst 1960. Á hann eitt barn. Sigríður Sig- mundsdóttir, f. 15. júlí 1961. Börn hennar eru fjögur. Barna- börn Sigríðar eru fimm. Stefán Aðalsteinn Sigmundsson, f. 12. desember 1963. Börn hans eru þrjú. Barnabarnabörn Stefáns eru fimm. Sigmundur var valinn til ým- issa félagsstarfa. Var um tíma í forsvari fyrir búnaðarfélag og ræktunarsamband sveitarinnar, einnig fulltrúi jarðarnefndar og fulltrúi fyrir Norður-Ísafjarð- arsýslu í Stéttarsambandi bænda. Hann sat í stjórn Mjólk- ursamlags Ísfirðinga og í stjórn Kaupfélags Ísfirðinga. Var í sveitarstjórn og héraðsnefnd, var um skeið oddviti Reykja- fjarðarhrepps og varð fyrsti oddviti nýstofnaðs Súðavík- urhrepps eftir sameiningu þriggja hreppa. Sigmundur sagði sig frá sveitarstjórn- armálum sem og öðrum fé- lagsmálum vorið 1995, eftir frá- fall Huldu. Útför Sigmundar Geirs fór fram frá Ísafjarðarkirkju 6. jan- úar 2014. Árið 1954 flyst Sigmundur að Látrum ásamt unn- ustu sinni, Huldu Kristjánsdóttur, f. 26. mars 1938, d. 16. janúar 1995. Þau keyptu jörðina árið eftir og hófu búskap þar. Á næstu árum þar á eftir byggðu þau Sigmundur og Hulda jörðina Látur nýju íbúð- arhúsi og nýjum gripahúsum. Einnig ræktuðu þau ný tún. Þau bjuggu á Látrum af mikilli snyrtimennsku og myndarskap. Þau hjónin eignuðust sjö börn: Ragnhildur, f. 28. mars 1955. Á hún eitt barn. Kristján Bjarni, f. 28. febrúar 1956. Kona, Ragn- heiður Baldursdóttir, f. 6. nóv- ember 1958. Börn þeirra eru tvö og átti hann tvö börn áður. Barnabarnabörn Kristjáns eru sex. Margrét, f. 10. apríl 1957. Börn hennar eru þrjú. Barna- barnabörn Margrétar eru fimm. Sigmundur Hagalín Sigmunds- Við systkinin ólumst upp að Látrum í öruggum og tryggum römmum fjölskyldunnar. Höfum við systkinin alltaf haft öruggt bakland heima hjá foreldrum okk- ar og getað komið til þeirra ef svo bar við. Urðum við þeirrar gæfu aðnjótandi að læra að vinna undir leiðsögn foreldra okkar og búum við að því lífið út. Það eina sem er öruggt við lífið er að því lýkur með dauða. Ekkert okkar var þó búið undir að við þyrftum að kveðja pabba núna milli hátíðanna. En erum þakklát fyrir að hafa haft hann hjá okkur þó þessum árum lengur en mömmu. Börn Sigmundar og Huldu frá Látrum. Elsku afi minn. Ég vil byrja á að segja að ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að vera hjá ykkur ömmu sem barn, og að fá að alast upp í svona góðum og hlýjum faðmi sem þið veittuð mér. Betri stað er ekki hægt að hugsa sér. Ég fékk allt til alls, endalausa ást og umhyggju. Ég segi alltaf full af stolti frá því að hafa búið hjá ömmu og afa á Látrum. Þegar ég sest niður og hugsa til baka, og rifja upp allar góðu stundirnar sem ég hef átt með þér fara tárin að streyma niður kinn- arnar. Þú passaðir alltaf svo vel upp á mig, að sumum þótti nóg um. „Elsku litla stúlkan“, það var ég, ég var alltaf litla stúlkan hans afa, mér fannst ég alltaf skipta mestu máli og gat alltaf fundið skjól hjá þér. Þú meira að segja hitaðir postulínssetuna fyrir mig. Endalaus þolinmæði þín að taka mig með í hin ýmsu verk, ósjaldan heimtaði ég að þú vektir mig til að ég gæti komið með þér í fjósið á morgnana, svo komst þú mér bara vel fyrir í fóðurbætishjólbörunum og þar svaf ég þar til mjaltirnar voru búnar. Tilbúinn að snúast með mig, ef mér leiddist þá stökkst þú til og fórst í bíltúr með mig, sagðir mér endalaust af sög- um, kenndir mér svo margt. Ef þú þurftir að erinda eitthvað í kaup- stað komstu alltaf færandi hendi til baka, sama hvað það var, þá var það fullkomið, það var frá afa. Aldrei kem ég til með að líta eins mikið upp til nokkurs manns og ég hef gert til þín. Og ég mun sennilega aldrei koma til með að sakna nokkurs manns eins og ég sakna þín. En ég get þó huggað mig við það að þú ert kominn á góðan stað, í faðm Huldu ömmu sem fór alltof snemma frá okkur. Þið hafið hvort annað aftur og ég á fullt af góðum minningum sem ég geymi vandlega í hjartanu. Takk fyrir mig. Hulda Lind Stefánsdóttir. Elsku afi minn, ég þakka þér samverustundirnar og alla sólar- geislana er færðir þú mér. Ég hef átt með þér margar góðar og skemmtilegar stundir. Allt frá því ég nýfædd kom að Látrum með móður minni og fram að þeim degi er þú kvaddir þennan heim. Það var mér kært að geta verið hjá þér á þessari síðustu stundu. En ég sé þig nú ganga um himnanna grundir og á móti þér tekur hún amma mín. Ég sakna þín sárt en minningin lifir um einstakan mann. Bið ég þess að drottinn vaki þér yfir og sendi þér bænina mína. Sólveig Sigurgeirsdóttir. Sigmundur Geir Sigmundsson ✝ Ólafur OddgeirMagnússon fæddist á Hellis- sandi hinn 13. ágúst 1926. Hann lést á Hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 30. des- ember 2013. Foreldrar hans voru hjónin Magnús Ólafsson útgerð- arbóndi, f. á Kirkju- felli á Snæfellsnesi 19.9. 1890, d. í Reykjavík 31.2. 1969, og Ásta Gilslaug Cýrusdóttir, f. á Önd- verðarnesi á Snæfellsnesi 16.4. 1890, d. í Reykjavík 31.7. 1968. Alsystkini: 1. Hallbjörn, f. 20.9. 1916, d. 16.10. 1916. 2. Hall- fríður, f. 30.8. 1918, d. 27.4. 2001, gift Benedikt Hannessyni. 3. Kristmundur, f. 11.7. 1922, d, 11.7. 2006, kvæntur Ágústu Guðnadóttur. 4. Gestur Berg- ili í Reykjavík en flutti í maí 1968 í Kópavoginn þar sem hjónin bjuggu það sem eftir var ævinn- ar. Ólafur var vélstjóri að mennt og var lengi sjómaður á tog- urum, síldar- og loðnu- veiðiskipum. Eftir að í land kom starfaði hann lengst af hjá Slát- urfélagi Suðurlands. Þau hjónin og flest systkini Ólafs byggðu sér sumarbústað í Hlíðarbyggð í Ei- lífsdal í Kjós og þegar á ævina leið lögðust hjónin í flakk og ferðuðust vítt og breitt um Evr- ópu, einkum með Bændaferðum. Ólafur var söngelskur og söng árum saman í Samkór Kópavogs. Hann samdi einnig mikinn fjölda sönglaga og texta við þau, sem kórinn frumflutti mörg hver. Ólafur skar út í tré, batt inn bæk- ur og útbjó glerlistaverk, svo eitthvað sé upptalið. Hann greindist með alzheimer sem ágerðist hratt og varð þess vald- andi að hann þurfti að flytjast á Sunnuhlíð, og þangað fylgdi eig- inkona hans honum rétt rúmu ári síðar vegna sinna veikinda. Útför Ólafs fór fram í kyrrþey 10. janúar 2014 frá Fossvogskap- ellu. mann, f. 18.9. 1928, d. 2005, kvæntur Guðbjörgu Guðna- dóttur. 5. Ester, f. 18.9. 1929, d. 16.4. 2009, gift Alexand- er Alexanderssyni. 6. Sýrus Guðvin, f. 18.9 1918, d. 11.7. 2006, kvæntur Matthildi Jóns- dóttur. 7. Hrefna, f. 24.6. 1935, gift Skúla Alexanderssyni. Sam- mæðra eru Hlöðver Þórðarson, f. 1910, d. 1966, og Guðrún Þórð- ardóttir. Ólafur kvæntist hinn 9. nóvember 1954 Sigurjónu Soffíu Þorsteinsdóttur, f. á Stóru- Brekku á Höfðaströnd í Skaga- firði 17.5. 1924. Þeim varð eins sonar auðið, Magnúsar, f. 28.1. 1955. Fjölskyldan bjó sér fyrst heim- Sönglist og samspil hljóma sálu hans veitti frið. Dáði þá unaðsóma sem upphefja líf úr dróma og setja á hærra svið. Ei skal um andlát þylja, enginn flýr dauða sinn; þó oft reynist illt að skilja örlagadóm og vilja farðu vel, vinur minn. (Kr. Ben) Elsku pabbi. Ég er þér þakk- látur fyrir hversu umhyggjusam- ur og skilningsríkur faðir þú varst mér ávallt. Ég á þér svo óumræðilega margt að þakka. Gakktu á guðs vegum til móts við eilífðina og hvíldina þar. Þú átt hana svo sannarlega skilið. Magnús. Ólafur Oddgeir Magnússon Elsku afi. Við minnumst þín á þessari stundu með sökn- uði. Við barnabörnin áttum margar skemmtilegar stundir með þér og ömmu Jónu. Til dæmis kartöfluuppskeran á Vatnsenda. Þar var amma Jóna með pönnukökur á boðstólum með rjóma og heimalagaðri rabarbarasultu. Við minnumst líka hvað það fór vel um mann að vera hjá þér og ömmu Jónu yfir hátíðarnar. Við áttum saman nokkra Hannes Þorkelsson ✝ Hannes Þor-kelsson fæddist í Reykjavík 23. júlí 1935. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Grund 16. desem- ber 2013 og var út- förin gerð frá Há- teigskirkju 7. janúar 2014. ökutúra, sem þú nýttir til að kaupa gjafir. Þá hafðir þú skipulagt nákvæm- lega hvaða búð skyldi fara í, því oft var það sérvara sem ekki fékkst í hvaða búð sem er. Það var alltaf ein- hver hugsun og saga á bakvið hverja gjöf. Nú ert þú búinn að kveðja okkur, afi minn. Nú ertu kom- inn á annan stað með ömmu Jónu. Börn Ástu, Hannes Bergmann Eyvindsson, Andri Bergmann Eyvindsson, Guðrún Bergmann Eyvindsdóttir, Svandís Bergmann Eyvindsdóttir. Elsku Aðalbjörg. Við munum ávallt minnast þess góða tíma sem við áttum saman, með þér og þinni fjöl- skyldu, af kærleika og hlýhug. Ég vaknaði af djúpum dvala við dýrlegan hörpuóm. Sál mína dreymir síðan sólskin og undarleg blóm. Ég fann hvernig foldin lyftist Aðalbjörg Jónsdóttir ✝ AðalbjörgJónsdóttir fæddist í Gröf í Þorskafirði 28. október 1926. Hún lést á Landspít- alanum 4. janúar 2014. Útför Að- albjargar var gerð frá Fossvogskirkju 10. janúar 2014. og fagnandi tíminn rann, með morgna,sem klettana klifu, og kvöld, sem í laufinu brann. Nú veit ég, að sumarið sefur í sál hvers einasta manns. Eitt einasta augnablik getur brætt ísinn frá brjósti hans, svo fjötrar af huganum hrökkva sem hismi sé feykt á bál, uns sérhver sorg öðlast vængi og sérhverri gleði fær mál. (Tómas Guðmundsson) Guð varðveiti þig og minningu þína. Þóra, Kristrún Auður, Þór, Gunnar, Siggi og Brynja Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fædd- ist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Minningargreinar Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma SVEINBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR, Álfheimum 26, Reykjavík, lést hinn 27. desember sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Karl F. Sigurðsson, Svala B. Jónsdóttir, Kristín Þormar, Andrea Þormar, Atli M. Jósafatsson, Ólafur Þormar, Sveinbjörn Þormar, Kristín Þórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls okkar ástkæra ÆVARS Í ENNI Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi, Deildar B6 og Gjörgæslu í Fossvogi. Ingibjörg Jósefsdóttir, Halldóra Ingimundardóttir, Guðni Eðvarðsson, Jósteinn Ingimundarson, Fjóla Ævarsdóttir, Guðmundur Guðbergsson, Ingibjörg Ingimundardóttir, Fjóla Kristjánsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og systkini.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.