Morgunblaðið - 13.01.2014, Qupperneq 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2014
Mér kæmi ekki á óvart að það yrði farið á Grillmarkaðinn umkvöldið, í góðra vina hópi. Þar mun Gulli yfirkokkur eflauststjana við okkur, enda einn af okkar frábæru veiðimönnum
sem eru snilldarkokkar,“ segir Óskar Páll Sveinsson, lagahöfundur
og laxveiðimaður með meiru, sem fagnar 47 ára afmæli í dag.
Undanfarin tvö ár hefur hann starfað í markaðsdeildinni hjá Marel
og ber þar titilinn sjónvarpsstjóri. Óskar Páll segist hafa ákveðið að
taka sér smá hvíld frá tónlistinni, en hann hefur unnið við upptökur
og lagasmíðar í rúm 20 ár, samdi t.d. lagið Is it true? sem Jóhanna
Guðrún söng í Eurovision árið 2009 og endaði í 2. sæti.
Óskar Páll er þó áfram í upptökunum, bara á sjónvarpsefni fyrir
Marel í tengslum við fundi fyrir starfsmenn og viðskiptavini fyrirtæk-
isins. Þannig heldur hann utan um beinar sjónvarpsútsendingar á eig-
in stöð Marels á fundum fyrir allt að 700 sölumenn um heim allan. Um
gagnvirkt sjónvarp er að ræða þar sem sölumenn geta komið með
spurningar til baka til starfsmanna Marels.
Óskar Páll er mikill veiðimaður og tekur t.d. nokkrar vikur á sumr-
in undir leiðsögumennsku í laxveiðum, einkum í Hofsá og Selá í
Vopnafirði. Einnig er hann vel liðtækur í fluguhnýtingm og hnýtir yf-
irleitt sínar flugur sjálfur.
En aðspurður útilokar Óskar Páll ekki innkomu í tónlistina á nýjan
leik. „Mér kæmi ekki á óvart að fjaðurstafur yrði tekinn upp síðar
meir og kannski lag sent inn í Eurovision,“ segir hann að lokum.
bjb@mbl.is
Óskar Páll Sveinsson 47 ára
Veiðimaður Óskar Páll Sveinsson í Norðurá síðasta sumar með einn
vænan lax, um 13 pund, sem var síðan sleppt út í frelsið á ný.
Lagasmíðar í pásu
og laxveiðin heillar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Síle Gabriella Björk fæddist 14.
september 2012 kl. 18.06. Hún vó 13
merkur og var 50 cm löng. Foreldrar
hennar eru Carla Torrico og Unnþór
Torfason.
Nýir borgarar
Njarðvík Hrafnhildur Embla fæddist
3. janúar kl. 13.58. Hún vó 3.305 g og
var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru
Bryndís Jóna Rúnarsdóttir og Ægir
Örn Gunnarsson.
G
uðmundur fæddist í
Reykjavík 13.1. 1944 og
ólst þar upp. Auk þess
var hann allmörg sum-
ur í sveit á Brekkum II
í Mýrdal: „Þarna var ég við gott at-
læti hjá systkinum stjúpömmu
minnar, afskaplega góðu fólki. Þau
voru hins vegar farin að draga úr
umsvifum við búskapinn.
Þegar ég heimsótti staðinn löngu
síðar fannst mér allt þarna minna í
sniðum en það hafði verið í minning-
unni. Ég átti þá erfitt með að átta
mig á því hvernig við komumst
þarna fyrir.“
Þá æfði Guðmundur og keppti í
knattspyrnu með Fram um skeið.
Guðmundur sótti grunnskóla í
Æfingadeild Kennaraskólans. Hann
stundaði nám við MR, lauk þaðan
stúdentsprófum 1964, stundaði nám
í lögfræði við HÍ, lauk embættisprófi
í lögfræði 1969 og fékk réttindi hér-
Guðmundur Malmquist, fyrrv. forstjóri Byggðastofnunar – 70 ára
Fjölskyldan Guðmundur Malmquist og Sigríður, kona hans, ásamt börnum, tengdabörnum og barnabörnum.
Spilar nú golf eftir
erilsamt embættisstarf
Hjónin Guðmundur og eiginkona hans, Sigríður, en hún var lengi bankaritari.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isStilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is | stilling@stilling.is
30%afsláttur
á Gabriel
höggdeyfum