Morgunblaðið - 24.01.2014, Side 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ
Þ
orrabjórarnir sem koma í Vínbúðirnar fyrir þorr-
ann í ár eru átta talsins og veit undirritaður ekki
til þess að jafnmargir þorrabjórar hafi komið út
áður. Bragð, litur og áferð er mismunandi frá ein-
um til annars enda bjórstílarnir sem um ræðir
margvíslegir. Í úrvalinu í ár er að finna jafn ólíkar tegundir
og imperial stout, bock, bitter og síðast en ekki síst er
mjöður þeirra á meðal.
Hvalreki á fjörur bjórunnenda?
Brugghúsið Steðji kynnir í fyrsta sinn til leiks sérbrugg-
aðan þorrabjór og nefnist hann einfaldlega Hvalur. Óhætt
er að segja að Steðji komi með látum inn á markaðinn en
eins og talsvert hefur verið fjallað um í fréttum er bjórinn
bruggaður með hvalmjöli í samstarfi við Hval hf. Ekki er
tiltakanlega mikið af hvalmjöli í bjórnum, eða um 500 gr í
hverjum þúsund lítrum, en samt sem áður hefur staðið all-
nokkur styr um framleiðsluna. Hafa til að mynda erlendir
aðilar haft samband við Dagbjart Ingvar Arilíusson, fram-
kvæmdastjóra Steðja, og jafnvel haft í hótunum við hann.
Þá hefur Heilbrigðiseftirlit Vesturlands viljað stöðva fram-
leiðsluna þar eð Steðji hafi ekki starfsleyfi til framleiðslu á
mjöli til matvælaiðju. Framleiðendur benda aftur á móti á
að drykkurinn sé heilnæmur enda sé hvalmjölið mjög pró-
teinríkt og nánast engin fita í því. Hvalbragðið kemur fram
í undirtóni bjórsins og einnig vel í eftirbragðinu. Bjórinn er
með 5,2% áfengismagn og er hann síaður og gerilsneyddur.
Bitter á breska vísu
Frá Vífilfelli koma tveir ólíkir bjórar sem eru bjór-
áhugamönnum að góðu kunnir. Það eru Einiberja Bock og
Þorraþræll. „Þorraþræll er mjög skemmtilegur bjór í
breskum stíl sem nefnist Extra Special Bitter,“ útskýrir
Hreiðar Þór Jónsson, markaðsstjóri áfengis hjá Vífilfelli. „Í
hann er notað sérstakt breskt pale ale malt, breskt ölger og
East Kent Golding humlar sem gefa bjórnum einstakt yfir-
bragð.“ Extra Special Bitter bjórar eru yfirleitt frá 4,8% og
uppúr í styrkleika og Þorraþrællinn fellur akkúrat á neðri
mörkin, að sögn Hreiðars. Þorraþræll er fyrsti íslenski
bitter bjórinn. Hann bendir á að þrátt fyrir heitið, Extra
Special Bitter, sé Þorraþræll ekki mjög beiskur. „Þvert á
móti er jafnvægið gott og bjórinn mjög bragðgóður – sér-
staklega er hann góður með mat.“
Úrvals Einiberja Bock
Í Svíþjóð og Finnlandi tíðkast að brugga sérstakan bjór
með einiberjum og slíkur bjór þykir mikill heilsudrykkur,“
segir Hreiðar Þór. „Í náttúrulækningum hafa einiber verið
notuð við ýmsum kvillum. Þau örva nýrun og hafa þvagræs-
andi áhrif og virka vel gegn ýmsum bólgum og vökvasöfn-
um í liðum auk þess að hafa góð áhrif á meltinguna og
vinna gegn brjóstsviða og þembu. Einnig eru þau örveru
hemjandi og hafa verið notuð gegn þrálátum þvagrásarsýk-
ingum, húðvandamálum og ýmsum öðrum kvillum.“
Vegna alls þessa þótti tilvalið að þróa nýjan bjór með
einiber sem krydd. Ákveðið var að
brugga sterkan lagerbjór í Bock
stíl þar einber eru notuð að
nokkru leyti í stað humla til að
gefa karakter. „Til að fá mýkri
áferð og aukna fyllingu eru notaðir
hafrar og hveitimalt en grunn-
urinn er Munich malt sem gefur
dekkri lit og ríkulega maltað
bragð.“ Einiberja Bock er sjötti
bjórinn sem kemur frá Íslensku úrvals-fjölskyldunni, að því
er Hreiðar Þór útskýrir. „Samkvæmt sögunni notuðu vík-
ingar fyrr á öldum einiber í mjöðinn sinn og því má segja
að Baldur bruggmeistari sé að halda á lofti heiðri Víking-
anna með þessari nýjung í íslenskri bjórgerð,“ bætir hann
við.
Kraftmikill Þorra Kaldi
Bruggsmiðjan á Árskógssandi hefur um árabil lagt áherslu
á árstíðabundna bjóra og hefur Þorra Kaldi notið hylli rétt
eins og aðrir sérbruggaðir bjórar sem bera nafn Kalda.
Þorra Kaldi er koparlitaður lager bjór með mikilli beiskju
og ríkri humlalykt. „Í bjórnum eru notaðar þrjár tegundir
af tékknesku malti, ásamt tékkneskum og nýsjálenskum
humlum,“ segir Agnes Sigurðardóttir hjá Bruggsmiðjunni.
Þorra Kaldi er 5,6% að áfengismagni og er sá sterkasti
sem framleiddur er í Bruggsmiðjunni. Bjórinn er nokkuð
beiskur með góðu eftirbragði, og froðan er þétt og falleg á
litinn. „Þorra Kaldi hentar því einstaklega vel með þorra-
matnum, og ekki síður einn og sér,“ bætir Agnes við.
Brúnn og sætur Gæðingur
Í ár sendir brugghúsið Gæðingur frá sér þorrabjór í þriðja
sinnið. „Stíllinn sem þorrabjórinn okkar er bruggaður í er
brúnöl, eða brown ale, og það er ósíað,“ segir Árni Hafstað
hjá Gæðingi. „Bjórinn er tæp sex prósent að áfengis-
innihaldi og auðdrekkanlegur af brúnöli að vera. Bjórinn er
nokkuð matarmikill og með góðu „boddíi“ eins og maður
segir á vondri íslensku. Við getum sagt að ég hefði ekkert á
móti því að hitta konu með sama lit og sama boddí,“ bætir
Árni við og hlær. „En án gamans þá er það svo með jóla-
bjóra og þorrabjóra, að mér finnst þeir helst eiga að vera í
takt við það sem [Silvio] Berlusconi sagði um Bandaríkja-
forseta, að hann sé brúnn og sætur.“ Árni bendir á að mal-
tgrunnurinn sé sá sami og í fyrra en humlarnir séu aðrir í
ár. „Við notum willamette humla að þessu sinni í stað cas-
cade, sem við notuðum í fyrra. Það gerir það að verkum að
þorrabjórinn er aðeins vinalegri í ár og auðdrekkanlegri.
Hann stingur mann ekki svo mjög en skilur þeim mun
meira eftir.“
Helhumlaður Surtur nr. 23
Fyrir þorrann 2014 er væntanlegur þriðji Surturinn frá
Borg og er hann í bjórstílnum Imperial Stout að venju, 10%
að áfengismagni. Að sögn sérfræðinga Borgar liggur sér-
staða Surtsins í ár fyrst og fremst í
dágóðri þurrhumlun að amerískum
hætti. „Humlarnir gera það að
verkum að ölið er ótrúlega auð-
drekkanlegt, þrátt fyrir mikla
bragðupplifun og áfengisinnihald.“
Surtirnir frá Borg hafa vakið um-
talsverða athygli, bæði hér heima
og erlendis. Mbl.is greindi meðal
annars frá netgrein eftir hinn
heimsþekkta bjórsérfræðing, Adrian Tierrey-Jones, þar
sem hann dásamar Surt nr. 8.1, sem leit dagsins ljós á sein-
asta þorra. Óhætt er að segja að ekki hafi verið beðið eftir
nokkrum bjór með jafn mikilli eftirvæntingu undanfarin ár
og mynduðust til að mynda raðir fyrir utan stærstu Vínbúð-
irnar á bóndadagsmorgun á seinasta ári – eitthvað sem ekki
hefur sést síðan 1. mars. 1989.
Surtur er þykkt og þolgott öl, dekkri en sjálft Ginn-
ungagap. Undir þykkri froðunni kraumar bragðið af eld-
ristuðu korni og brenndum sykri í anda Eddukvæðanna, í
bland við dökkt súkkulaði, rammsterkt kaffi og lakkrístóna.
Mjöðurinn Kvasir er ekki bjór
Þau tímamót verða á þorranum í ár að einn þorrabjórinn er
alls ekki bjór – heldur mjöður. Nefnist hann Kvasir nr. 22
og kemur frá Borg brugghúsi. Til að byrja með er því best
að leiðrétta algengan misskilning. Mjöður er ekki bjór, eins
og Sturlaugur Jón Björnsson, bruggmeistari hjá Borg
brugghúsi, útskýrir. „Mjöður er hunangsvín, gerjað, vatns-
blandað hunang.“ Til áréttingar skal útskýrt að bjór er
vatn, maltað bygg, humlar og ger. Mjöður er aftur á móti
vatn, hunang og ger. Mjöður er því í reynd nær léttvíni en
bjór, merkilegt nokk. Hugmyndir fólks um íslenska víkinga
og aðra vaska menn þambandi mjöð eru því líkast til ekki í
takt við raunveruleikann. Á Íslandi hefur ekki verið hun-
angsrækt og hunang hefur alla tíð verið dýr munaðarvara
sem tæpast hefur ratað hingað til lands. Ennfremur var það
tæplega verkamannavíkingurinn sem drakk mjöð erlendis
þar sem þetta var konunga- og höfðingjadrykkur sökum að-
fangaverðs. En hvað kom þá til að þeir Borgarar afréðu að
ráðast í mjaðarbrugg? „Sem bruggari, bjórnörd og áhuga-
maður um sagnfræði þá blundaði þetta nú alltaf í manni,“
segir Sturlaugur. „Það var því lag að hræra í mjöð fyrir
þorrann í ár og gefa fólki kost á að bragða á þessum spenn-
andi drykk.“
Dimmt glóir Gullið
Þorragullið kemur í vínbúðirnar í þriðja sinnið í ár. Sem
fyrr er þar um að ræða lagerbjór með 5,6% áfengismagn,
unnin úr ómöltuðu byggi, með mildri beiskju og humlakeim.
Þar sem Þorragullið er bruggað með íslensku byggi er bjór-
inn sérstaklega þjóðlegur og um leið auðdrekkanlegur, að
sögn sérfræðinga Ölgerðarinnar. Þó kveður við nýjan tón að
einu leyti. Liturinn er mun dekkri en undanfarin ár og hef-
ur það með bygguppskeruna að gera. jonagnar@mbl.is
Þjóðlegt Þorrasopinn er bæði magnaður og
margslunginn í ár. Bjórstílarnir eru margvíslegir og
nú hefur meira að segja mjöður bæst við flóruna.
Aldrei fleiri þorrabjórar
Árstíðabundnir og sérbruggaðir bjórar eru í sífelldri sókn hér á landi og þorrabjórar eru þar jafnan fyrsta sérlögun ársins. Margt áhuga-
verðra bjóra er í boði á þorra í ár og eru þar góðkunningjar á ferðinni í bland við nýja og spennandi bjóra – og einn mjöð að auki.
Bragð, litur og áferð er mismunandi
frá einum til annars enda bjórstílarnir
sem um ræðir margvíslegir. Í úrvalinu
í ár er að finna jafn ólíkar tegundir og
imperial stout, bock, bitter og síðast
en ekki síst er mjöður þeirra á meðal.