Morgunblaðið - 05.02.2014, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
www.kia.com
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
4
-0
1
3
7
7 ára ábyrgð á öllum
nýjum Kia bílum
Með augu í hnakkanum
Kia Sportage Xtra með glerþaki, leiðsögukerfi og bakkmyndavél
Sportage 2,0 dísil, beinskiptur 6 gíra, 4wd
Verð frá 5.990.777 kr.
Aðeins 50.635 kr. á mánuði í 84 mánuði*
*M.v. 3.000.000 kr. útborgun eða uppítökubíl að sambærilegu verðmæti og bílasamning ERGO í 84 mánuði. 9,55% óverðtryggðir vextir. Árleg hlutfallstala kostnaðar 11,16%. Nánari upplýsingar á ergo.is.
Kia Sportage Xtra – í ábyrgð til 2021
Eigum nokkra sérútbúna Kia Sportage með glæsilegum aukahlutapakka á frábærum
kjörum. Glerþak, leiðsögukerfi með íslenskri götuskrá, bakkmyndavél og vandaðra
hljóðkerfi. Aukahlutapakkinn kostar aðeins 300.000 kr. en listaverð er 600.000 kr.
Kia Sportage hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga. Hann er öflugur og
tilbúinn í allar aðstæður og eyðir þó aðeins frá 5,7 l/100 km í blönduðum akstri.
Að sjálfsögðu er 7 ára ábyrgð á nýjum Kia Sportage, svo hún gildir til ársins 2021.
Komdu við í sýningarsal Öskju að Krókhálsi 11 eða hjá umboðsmönnum okkar
á Akranesi, Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og í Reykjanesbæ og kynntu þér
þennan framúrskarandi bíl. Við tökum vel á móti þér.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
SYN, sem er í stórri skoðun í Nor-
egi hefur nú verið máluð í nýjum
áberandi lit.
Fram kemur á vef Landhelgis-
gæslunnar að til standi að allar
þyrlur stofnunarinnar verði í þess-
um lit í framtíðinni. Landhelgis-
gæslan telji að liturinn hæfi betur
björgunarþyrlunum þar sem hann
sé mjög áberandi og auðkennandi
fyrir björgunartæki.
Algengt sé að björgunarþyrlur
og flugvélar, sérstaklega á norð-
urslóðum, séu málaðar í áberandi
litum.
TF-SYN er væntanleg til Íslands í
lok mars.
Björgunar-
þyrlur fá
nýjan lit
TF-SYN í stórri
skoðun í Noregi
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Nýr litur Þyrlan TF-SYN hefur
fengið nýjan áberandi rauðan lit.
Heimsóknum erlendra seglskútna
til Reykjavíkur hefur fjölgað á und-
anförnum árum. Árið 2012 komu 55
útlendar skútur til Reykjavíkur en
síðastliðið ár voru þær 60 talsins,
samkvæmt upplýsingum Faxaflóa-
hafna.
Flestar eiga skúturnar heima-
höfn í Evrópu en ein og ein heim-
sækir Ísland frá Norður-Ameríku.
Í fyrra komu ellefu skútur frá
Bretlandi, tíu frá Frakklandi og níu
frá Þýskalandi en sumir siglinga-
menn hafa viðkomu í Reykjavík
tvisvar yfir sumarið og þá sér-
staklega ef ferðinni er heitið til
Grænlands.
Brokey, Siglingafélagi Reykja-
víkur, sér um viðlegu og aðstöðu
fyrir seglskútur við Ingólfsgarð í
Reykjavíkurhöfn. Áki Ásgeirsson,
formaður Brokeyjar, segir á heima-
síðu Faxaflóahafna að fjölgunina
undanfarin ár megi meðal annars
rekja til þess að óróleiki hafi verið í
Miðjarðarhafinu og að minni ís við
Grænland hafi einnig haft sitt að
segja. Áki segir þá að fyrirspurnir
um vetrarsetu í Reykjavík aukist
ár frá ári en vandamálið sé að að-
staða til að geyma skútur á landi sé
ekki fyrir hendi.
Áki er bjartsýnn á framtíðina og
telur að með betri aðstöðu við Ing-
ólfsgarðinn eigi útlendum skútum
eftir að fjölga í Reykjavík.
Skútukomum hefur fjölgað
Morgunblaðið/Ernir
Í Reykjavíkurhöfn Hið rússneska Sedov er næststærsta seglskip í heimi.
Í fyrra komu 60 útlendar skútur til Reykjavíkur Óróleiki
á Miðjarðarhafinu hefur áhrif Skortur er á geymslurými
Hæstiréttur hef-
ur staðfest
gæsluvarðhalds-
úrskurð Héraðs-
dóms Reykjavík-
ur yfir manni sem
grunaður er um
að hafa haldið
barnsmóður sinni
og tveggja ára
dóttur nauðugum í Mosfellsbæ á
jólanótt og beitt konuna grófu of-
beldi. Maðurinn mun sæta gæslu-
varðhaldi til 27. febrúar nk. Rík-
issaksóknari hefur málið til
meðferðar.
Í úrskurði Héraðsdóms Reykja-
víkur kemur m.a. fram að konan hafi
boðið barnsföður sínum að dvelja hjá
sér og dóttur þeirra að kvöldi að-
fangadags þar sem hann átti enga
að. Upp komu deilur um kærasta
konunnar og reif ákærði í kjölfarið í
hár konunnar, margkýldi hana í and-
lit, síðu og hnakka og sagðist ætla að
lemja hana til dauða, ef hún við-
urkenndi ekki að hafa sofið hjá vini
hans. Í læknisvottorðum kemur m.a.
fram að konan hafi verið með
áverkamerki víða um líkamann í
formi marbletta og húðblæðinga.
Konunni tókst að sleppa og kalla
eftir aðstoð og sérsveit ríkislögregl-
unnar, vopnuð rifflum, yfirbugaði
manninn eftir um þriggja klukku-
stunda umsátur.
Grunaður um
gróft ofbeldi