Morgunblaðið - 05.02.2014, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
✝ Ingibjörg Mar-grét Kristjáns-
dóttir, Donna,
fæddist á Brúsa-
stöðum í Vatnsdal,
A-Hún. 4. október
1926. Hún lést á
hjúkrunarheim-
ilinu Eir 18. janúar
2014.
Foreldrar henn-
ar voru Kristján
Sigurðsson. f. 27.8.
1883, d. 10.8. 1970, og Margrét
Sigríður Björnsdóttir Blöndal,
f. 29.2. 1884, d. 15.10. 1968.
Systkini Ingibjargar voru:
Gróa, f. 12.5. 1915, d. 22.8.
2007, og Björn Blöndal, f.
10.11. 1916, d. 18.7. 1996.
Hinn 28. apríl 1946 giftist
Ingibjörg Guðmundi Eyberg
Helgasyni, f. 14.11. 1924, d.
26.5. 1979. Foreldrar hans voru
Jónína María Pétursdóttir, f.
11.6. 1905, d. 31.3. 1985, og
Helgi Benediktsson, f. 29.10.
1893, d. 12.12. 1975. Fósturfor-
eldrar Guðmundar voru Þórð-
veig Jósefína Jósefsdóttir, f.
30.5. 1901, d. 1.6. 1980, og Dav-
íð Þorgrímsson, f. 9.11. 1891, d.
skóla í Hrútafirði og var einn
vetur í Kvennaskólanum á
Blönduósi. Ingibjörg og Guð-
mundur bjuggu á Ytri-
Kárastöðum, Vatnsnesi, V-Hún.
á móti fósturforeldrum Guð-
mundar Þórðveigu og Davíð.
Foreldrar Ingibjargar, Margrét
og Kristján, fluttu til þeirra og
bjuggu þau hjá þeim til ævi-
loka. Eftir 18 ára búskap flutti
fjölskyldan suður, bjó um skeið
á Akranesi en settist svo að í
Mosfellssveit. Þar starfaði Ingi-
björg við umönnunarstörf á
Reykjalundi og Guðmundur var
ullarmatsmaður á Álafossi þar
til hann lést langt um aldur
fram 1979. Ingibjörg bjó eftir
andlát Guðmundar áfram í
Mosfellsbæ um nokkurt skeið
en flutti síðan til Reykjavíkur
og starfaði á Vinnustofunni Ási
til sjötíu ára aldurs. Árið 1994
kynntist hún sambýlismanni
sínum, Árna St. Hermannssyni,
f. 28.7. 1929, d. 25.4. 2013. Árni
var ekkjumaður, hann átti átta
börn og fjölmarga afkomendur.
Þau ferðuðust mikið saman,
bæði innanlands og utan, og
áttu góða daga saman. Síðustu
þrjú árin bjuggu þau á Hjúkr-
unarheimilinu Eir við gott at-
læti og góða umönnun.
Jarðarför Ingibjargar fór
fram í kyrrþey 29.1. 2014 að
hennar eigin ósk að Lágafelli,
Mosfellsbæ.
11.12. 1977. Börn
Ingibjargar eru: 1)
Margrét Sigríður,
f. 1946, maki Þor-
geir Sæmundsson
og eiga þau þrjár
dætur. 2) Kristján.
f. 1948, maki
Helga Jörunds-
dóttir og eiga þau
sex börn. 3) Davíð
Þór, f. 1950, d.
2012, maki Hrafn-
hildur Þorleifsdóttir og eiga
þau þrjár dætur, ein þeirra lést
árið 1990. 4) Bjarni Rúnar, f.
1952, maki Ragnheiður Aust-
fjörð og eiga þau sjö börn. 5)
Ásgeir Pétur, f. 1954, maki
Ásthildur Jónsdóttir og eiga
þau tvö börn. 6) Örlygur Atli, f.
1962, maki Hólmfríður G.
Magnúsdóttir og eiga þau tvö
börn. 7) Nína Hrönn, f. 1968,
maki Tjörvi Dýrfjörð Birgisson
og eiga þau fimm börn. Auk
þess átti Ingibjörg stóran hóp
langömmubarna og langalang-
ömmubarna.
Ingibjörg ólst upp á Brúsa-
stöðum í Vatnsdal. Hún lauk
gagnfræðaprófi frá Reykja-
Langt er nú liðið frá þeim
fagra haustdegi 4. október 1926
er móðir mín fæddist. Foreldrar
mínir kynntust ung að árum og
voru alla tíð miklir vinir og sálu-
félagar og eignuðust þau alls sjö
börn. Faðir okkar lést 1979.
Seinni sambýlismaður hennar
hét Árni Stefán Hermannsson,
mikill öndvegismaður er reyndist
móðir okkar afar vel sem og okk-
ur öllum. Ein af mínum fyrstu
æskuminningum eru frá þeim
tíma er við bjuggum á Akranesi,
ég hef trúlega verið þá fjögurra
eða fimm ára, þá var mamma að
skúra gólfið, hafði sett alla stóla
upp á borð og mig með. Síðan
hækkaði hún útvarpið í botn og
skúraði og dansaði og söng af
mikilli innlifun. Skemmtilegt er
einnig að minnast þeirra stunda
er við áttum saman, fjölskyldan,
með móður minni og Árna er við
bjuggum í Noregi en þau heim-
sóttu okkur þangað í tvígang.
Setið var og grillað í kvöldsól-
inni, siglt um Óslóarfjörðinn,
eins leigðum við okkur bústað úti
í norskum sveitum og skelltum
okkur á ekta norskt sveitaball
þar sem þau dönsuðu langt fram
á nótt og það skein af þeim lífs-
gleðin og hamingjan. Ljúft er að
minnast alls þessa og allra þeirra
yndislegu stunda er við áttum
saman bæði fyrr og síðar. Alla tíð
vorum við mjög náin, ég og móð-
ir mín, og fór ávallt afar vel á
með okkur, og þó svo að hún hafi
átt erfitt með mál síðustu árin
sökum heilablóðfalls áttum við
ekki í neinum vandræðum með
að tjá okkur og skilja hvort ann-
að. Móðir mín var vel gefin og
listræn kona og hafði mikið yndi
af tónlist og dansi og útvarpið
var gjarnan hátt stillt eða þá að
einhver geisladiskur eða plata
ómaði er maður kom í heimsókn.
Hún las einnig mikið og hafði
yndi af ferðalögum. Hún var ein-
staklega jákvæð, létt í lund og
gamansöm og með gott og mikið
jafnaðargeð. En hún gat einnig
verið föst fyrir og fylgin sér ef á
þurfti að halda. Hún var okkur
afkomendum og öðru samferða-
fólki mikil og góð fyrirmynd, hún
var sterk manneskja og sýndi oft
mikið æðruleysi þrátt fyrir þung
og erfið áföll í lífinu. Hún sá feg-
urðina og gleðina í tilverunni og
hið góða í náunganum og var öll-
um ljúf og einstaklega greiðvik-
in. Nú hefur myndast stórt og
mikið tómarúm við fráfall henn-
ar, þó að ljóst væri hvert stefndi.
Hún var orðin lasburða undir
það síðasta og þróttlítil, en þó
fann maður alltaf fyrir þessari
jákvæðu orku hennar og góðlát-
legt brosið, lífsneistinn og glettn-
in í augunum og hlýlegt viðmótið
vék aldrei.
Móðir mín kenndi okkur
margt, m.a. að halda ávallt
ótrauð áfram og horfa fram á
veginn en jafnframt njóta lífsins
hér og nú og augnabliksins. Hún
fylgdist vel með öllu, og var afar
umhugað um sína mörgu afkom-
endur og vildi þeim ávallt hið
besta. Donna, eins og hún var
gjarnan kölluð, er farin í ferða-
lagið mikla. Sagt hefur verið að
lífið sé eins og straumhörð á og
að öll sameinumst við í henni og
stefnum saman í átt að eilífðinni,
og nú hefur móðir mín náð niður
að lygnum vogum þar sem gott
er að hvílast í faðmi ástvina er á
undan hafa gengið. Við lútum
höfði, fjölskyldan, í auðmýkt og
þakklæti fyrir allar þær góðu
stundir er við áttum saman og
fyrir þá blessun að hafa átt þig
að og hafa verið hluti af lífi þínu
og notið þinnar einstöku nær-
veru. Þú varst okkar besti og
kærasti vinur og munt lifa áfram
í okkur og með okkur um aldur
og ævi.
Guð blessi þig og geymi elsku-
leg móðir mín, amma og tengda-
mamma.
Örlygur Atli Guðmundsson,
Hólmfríður G.
Magnúsdóttir,
Tinna Eyberg Örlygsdóttir,
Atli Eyberg Örlygsson.
Þá er elskuleg tengdamóðir
mín búin að fá hvíldina eftir löng
og ströng veikindi. Hún lést í
faðmi stórfjölskyldunnar 18. jan-
úar síðastliðinn. Við vorum bún-
ar að þekkjast í rúm 43 ár, eða
síðan ég kom 19 ára stelpuskotta
í Hlíðartún, yfir mig ástfangin af
Kidda syni þínum, og endist það
nú enn. Þú tókst mér alltaf opn-
um örmum þrátt fyrir stórt og
erilsamt heimili. Aldrei man ég
eftir því að okkur hafi orðið
sundurorða, eða skugga bæri á
öll þessi ár. Þú varst einstök, ríf-
andi dugleg, léttlynd og léku allir
hlutir í höndunum á þér. Þú
tókst hlutunum eins og þeir
komu fyrir og þú kenndir mér að
lifa lífinu lifandi og njóta augna-
bliksins. Það hefur komið sér vel
í lífsins ólgusjó.
Það myndast stórt tómarúm í
hjarta mínu nú þegar þú ert far-
in en ég veit að núna líður þér
vel.
Guð blessi þér heimkomuna
og blessi alla eftirlifandi ætt-
ingja.
Þín tengdadóttir,
Helga Jörundsdóttir.
Elsku amma Donna.
Takk fyrir allar góðu stund-
irnar. Ég mun alltaf sakna þess
að geta ekki komið aftur í heim-
sókn til þín. Þú varst æðisleg og
góðhjörtuð kona, það var alltaf
svo gaman að koma til þín. Þú
verður alltaf í hjarta mínu og ég
trúi því að ég muni hitta þig aft-
ur.
Ég sakna þín alveg rosalega
mikið og ég elska þig mest og
best.
Láttu nú ljósið þitt,
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
(Höf. ókunnur)
Knúsukveðja, þín
Ciara Margrét Eyberg
Hudson.
Ingibjörg Margrét
Kristjánsdóttir
Alveg frá því ég
man eftir mér hefur móðursystir
mín, Kristín Eiríksdóttir, verið
einn af máttarstólpunum í mínu
lífi. Á æskuárunum voru heim-
sóknir til hennar tíðar og á milli
okkar myndaðist fljótt vinátta
sem átti eftir að dýpka og
styrkjast með árunum. Í umróti
unglingsáranna átti ég athvarf
hjá Stínu frænku og eftir að ég
eignaðist sjálf fjölskyldu og
börn nutu þau nærveru hennar
og umhyggju.
Stína frænka var mikill lista-
maður í höndunum, en hún var
bæði vefnaðar- og smíðakennari.
Allt lék í höndum hennar og bar
heimili hennar og Guðjóns í
Kristín
Eiríksdóttir
✝ Kristín Eiríks-dóttir fæddist
29. september 1925
á Sandfelli í Öræfa-
sveit. Hún lést á
Landspítalanum
15. janúar 2014.
Jarðarför Krist-
ínar fór fram frá
Háteigskirkju 28.
janúar 2014.
Blönduhlíð því
glöggt vitni. Milli
þeirra hjóna ríkti
einstakt traust og
samheldni og þau
báru djúpa virðingu
fyrir sjálfstæði
hvort annars og
ólíkum skoðunum.
Saman mynduðu
þau sterka heild
sem varð mér fyr-
irmynd um gott og
traust fjölskyldulíf.
Stína var mikil nútímakona.
Hún vann úti mestan hluta æv-
innar og á heimili þeirra Guð-
jóns ríkti meira jafnræði en hjá
mörgum hjónum af sömu kyn-
slóð. Þannig skiptu þau húsverk-
unum milli sín enda var Stína
frá unga aldri afhuga matar-
gerð. Á heimilinu var það því
Stína sat við eldhúsborðið og
lagði kapal á meðan Guðjón
matreiddi.
En fyrst og síðast var Stína
mikill húmanisti og nálgaðist
hvert verkefni af áhuga og for-
dómaleysi. Þess vegna var ætíð
svo gott að leita til hennar og
eiga hana að vini. Hún fylgdist
vel með þjóðfélagsmálum, las
mikið, ekki síst eftir yngri kyn-
slóð rithöfunda, naut tónlistar,
var sífellt opin og leitandi. Til
marks um það sótti hún á síð-
ustu misserum námskeið í skap-
andi skrifum og hafði sérstakt
yndi af því að spreyta sig á því
sviði.
Stína var sjálfstæð kona og
naut þeirrar gæfu að geta haldið
andlegri getu og sjálfstæði nán-
ast til dauðadags. Núna þegar
komið er að kveðjustund
streyma fram ljúfar minningar
um yndislega frænku og vin-
konu sem verður sárt saknað.
Bryndís Emilsdóttir.
Það er alltaf sárt að kveðja
góða vini, við Kristín kynntumst
vegna sameiginlegs áhuga á
hundum og hundarækt. Hún var
einstök í umgengni við dýr og ef
eitthvað lýsir innri fegurð fólks
þá er það ást dýra á því.
Þegar Kristín missti hund
sem hún hafði átt og dekrað í
sautján ár kom hún til mín og
leitaði eftir því hvort ég gæti að-
stoðað hana með að finna hund
sem passaði henni. Hún gat alls
ekki hugsað sér lífið án þessara
tryggu vina, hafði aldrei verið
hundlaus og ætlaði aldrei að
verða það.
Sumt fólk er svo fallega gert
að allir vilja allt fyrir það gera,
ég lét hana hafa Sólina mína,
átta ára uppáhaldshund. Það var
ekki að því að spyrja að þær
urðu óaðskiljanlegar og með
naumindum að ég gæti fengið
hana dag og dag til að fara með
hana á sýningar. Sólin varð svo
sannarlega sól í lífi Kristínar
sem umgekkst hana eins og
drottningu og dekraði í fangi
sér.
Það varð gæfa mín að ljá
henni Sólina því með því náði ég
að kynnast vel þessari yndislegu
konu sem ég hefði ekki viljað
missa af að kynnast eins vel og
raun varð á. Hún var vakandi
yfir velferð allra og mátti ekkert
aumt sjá án þess að reyna að
bæta þar úr
Elsku Kristín, þú vissir að
þinn tími væri kominn og knús-
aðir mig og Sólina þína bless að-
eins nokkrum dögum áður enn
þinni jarðvist lauk.
Sólin þín verður í góðum
höndum hjá mér.
Við finnum svo oft þegar klukkurnar
kalla
að klökkvi um huga manns fer.
Bið ég Guð föður og englana alla að
annast og vaka yfir þér.
Aðstandendum öllum votta ég
innilega samúð mína.
Sigurbjörg og Sól.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
tengdadóttir, amma og langamma,
ELÍN SIGURÐARDÓTTIR,
Ártúni 15,
Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
þriðjudaginn 28. janúar.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn
7. febrúar kl. 13.30,
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Selfosskirkju.
Birgir Jónsson,
Ari Birgisson, Súsanna Valsdóttir,
Jón Þór Birgisson, Kathrina Andersen,
Aðalheiður Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir mín og systir okkar,
INGA DÓRA GUÐJÓNSDÓTTIR,
Garðbraut 85,
Garði,
lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi
föstudaginn 31. janúar.
Útförin fer fram frá Útskálakirkju föstudaginn
7. febrúar kl. 11.00.
Hilmar Þór Sigurðsson,
Pálína Ester Guðjónsdóttir,
Sigfríður Sigurðardóttir, Kjartan Másson,
Kjartan Reynis Sigurðsson, Elva Björk Valdimarsdóttir.
✝
SISSA LLOYD
lést fimmtudaginn 30. janúar í Bretlandi.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna
láts systur minnar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þorgeir Ísfeld Jónsson.
✝
Minn ástkæri sambýlismaður og fóstri,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLL SIGURJÓNSSON,
lést miðvikudaginn 15. janúar á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameinsdeildar 11E og
líknardeildar Landspítalans fyrir góða umönnun og hlýtt viðmót.
Anna Helen Sveinbjörnsdóttir,
Guðrún Lilja og Arnar Daði,
Sigurjón Pálsson, Dóra Margrét Bjarnadóttir,
Magnús Pálsson, Helga Þóra Ragnarsdóttir,
Guðmundur Fr. Pálsson, Ólöf Þorgerður Þorgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
STEFÁN HALLGRÍMSSON
rafeindavirkjameistari,
Kringlumýri 2,
Akureyri,
er lést að heimili sínu þriðjudaginn 21. janúar
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 7. febrúar kl. 13.30.
Guðmundur Stefánsson, Sunna Jaroensuk,
Guðrún Hörn Stefánsdóttir, Sverrir Þór Kristjánsson,
Tómas Bergmann, Halla Pálsdóttir,
Hallgrímur Stefánsson.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi,
GUÐJÓN JÓSEFSSON,
Víðivöllum 9,
Selfossi,
lést á Fossheimum sunnudaginn 2. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Vilborg Sigurðardóttir,
Gunnar Guðjónsson,
Vilborg Jóna Gunnarsdóttir,
Guðfinna Þórdís Gunnarsdóttir.