Morgunblaðið - 05.02.2014, Side 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
Ég fer í mæðraskoðun og hlusta á hjartsláttinn í kröftugumgutta. Það er ansi góð afmælisgjöf, þó ég skáli ekki í kampa-víni í ár,“ segir Signý Sif Sigurðardóttir sem er 36 ára göm-
ul í dag. Hún segir annars lítið planað á miðvikudegi í febrúar því
ekki sé um stórafmæli að ræða. Hins vegar mun hún eflaust borða
góðan kvöldmat með litlu fjölskyldu sinni en hún er í sambúð og á
eina tveggja ára stelpu. Þá stendur til að skemmta sér í góðra vina
hópi um helgina. Enda þykir henni fátt skemmtilegra en að vera
með fjölskyldu og vinum.
„Ég legg nú almennt ekki mikið upp úr afmælinu mínu eða hlakka
sérstaklega til en það er alveg lítil afmælisstelpa þarna einhvers-
staðar undir niðri sem brýst svo út á afmælisdaginn. Þetta er alltaf
sérstakur dagur og lúmskt gaman þegar fólk veit að maður á af-
mæli og óskar manni til hamingju - treysti fastlega á að þetta viðtal
skili mér nokkrum aukakveðjum í dag,“ segir hún glaðlega.
Strákurinn er væntanlegur í maí og hlakkar Signý til að spóka sig
um bæinn með barnavagn ef allt gengur að óskum. „Þetta ár lofar
góðu. Síðasta ár var alveg svakalega skemmtilegt. Ég treysti á að
þetta ár verði líka stórkostlegt. Ég kvíði því ekki að eldast. Ég kann
alltaf betur að meta lífið og fólkið sem ég á. Ég þakka fyrir það.“
Signý hefur þó oftast haldið upp á afmælin sem bera upp á tugum
og hálfum tugum. Í fyrra hélt hún skemmtilegt vinkonupartý þegar
hún varð 35 ára. thorunn@mbl.is
Signý Sif Sigurðardóttir er 36 ára í dag
Með fjölskyldunni Arnar Freyr og Signý Sif ásamt Freyju Stefaníu.
Hlustar á hjartslátt
í litlum dreng
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Vestmannaeyjar Tómas Elí fæddist
10. maí. Hann vó 4.250 g og var 52 cm
langur. Foreldrar hans eru Tómas
Bjarki Kristinsson og Arna Dís Krist-
insdóttir.
Nýir borgarar
Reykjavík Dalrós María fæddist
14. maí kl. 14.15. Hún vó 3.814 g og var
50 cm löng. Foreldrar hennar eru
Þórdís Stella Erlingsdóttir og Tryggvi
E. Mathiesen.
B
olli fæddist í Reykjavík
5.2. 1954 og hefur átt
þar heima alla tíð utan
námsára erlendis.
Fyrstu æviár hans voru
á Þórsgötu. Þaðan flutti fjölskyldan í
Skaftahlíð og loks inn í Fossvog á
unglingsárum Bolla: „Hlíðahverfið
var þá talsvert frábrugðið hverfinu í
dag. Þá var stutt í óbyggð svæði og
umferðin á Miklubraut ekki nema
bíll á stangli. Við lékum okkur mest í
kringum húsið heima „Sigvalda-
blokkina“ svokölluðu (eftir Sigvalda
Thordarson arkitekt) en fórum mik-
ið í könnunarleiðangra í Öskjuhlíð og
í Kringlumýri.“
Bolli var í Ísaksskóla, Hlíðaskóla,
lauk landsprófi frá Gagnfræðaskóla
Austurbæjar og stúdentsprófi frá
MH „þjóðhátíðarvorið“ 1974: „Í end-
urminningunni eru árin í MH sam-
felldur sælutími skapandi viðfangs-
efna og vaxandi þroska á öllum
sviðum. Ég fékk félagsmálabakteríu
á yngri árum og hef starfað í nokkr-
um stjórnmálaflokkum. Ég var for-
seti Nemendaráðs MH 1973-74 og
formaður Stúdentaráðs 1978-79.
Auk þess hef ég verið í stjórnum ým-
issa annarra samfélagsbætandi fé-
laga. Er m.a. formaður Samtaka
fjárfesta (samtaka sparifjáreigenda)
og sat í stjórn Euroshareholders í
Brüssel 2009-2013.“
Bolli stundaði nám í fjölmiðlafræði
við Westfälische-Wilhelms Universi-
tät í Münster í Westfalen og Lud-
wig-Maximillian Universität í Münc-
hen 1974-76. Hann útskrifaðist af
þjóðhagskjarna Viðskiptadeildar HÍ
1981 og lauk framhaldsnámi frá Uni-
versity of Rochester í Rochester,
New York 1989.
Bolli var blaðamaður á Dag-
blaðinu (DB) við stofnun þess 1975
og í fríum frá námi. Hann var frétta-
maður á Sjónvarpinu 1981-82, hag-
fræðingur Farmanna- og fiski-
mannasambandsins 1982-86,
efnahagsráðgjafi ríkisstjórna Stein-
gríms Hermannssonar 1986-87 og
Bolli Héðinsson hagfræðingur – 60 ára
Fjölskyldumynd Bolli og Ásta, ásamt börnum, tengdadætrum og sonasonum sínum, fyrir nokkrum árum.
Að lifa í sátt við aðra
Systkinin Bolli með Böðvari, bróður sínum, og systrunum, Lilju og Sigríði.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is