Morgunblaðið - 05.02.2014, Blaðsíða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
Þegar ofanritaður var tíuára, árið 1984, naut þó-nokkurra vinsælda kvik-myndin Electric Dreams
en sú segir af samskiptum ungs
manns við PC-tölvu sína, Edgar,
sem býr yfir gervigreind. Ungi
maðurinn verður ástfanginn af ná-
grannakonu sinni og verður tölvan
Edgar þá afbrýðisöm og fer að
keppa við eigandann um hylli ná-
grannakonunnar. Síðan eru liðin
30 ár og enn velta menn fyrir sér
hvað framtíðin ber í skauti sér
hvað varðar gervigreind, m.a. leik-
stjórinn og handritshöfundurinn
Spike Jonze.
Í nýjustu kvikmynd Jonze, Her,
segir af Theodore nokkrum
Twombly sem hefur þann merki-
lega starfa að rita persónuleg bréf
fyrir ókunnugt fólk, ástarbréf eða
önnur tilfinningaþrungin fyrir ætt-
ingja og ástvini. Twombly er
einkar lunkinn í að miðla tilfinn-
ingum fólks í bréfaformi en á erf-
iðara með að miðla eigin tilfinn-
ingum. Þar sem myndin gerist í
ekki svo fjarlægri framtíð þarf
hann aðeins að tala við vinnutölvu
sína sem ritar jafnóðum bréfin. Og
þannig er með öll önnur tæki, þeim
er stjórnað með rödd notenda sem
veldur því að allir eru síblaðrandi
við tæki og tól hvert sem farið er,
eins og líklega verður raunin í fyr-
irsjáanlegri framtíð. Twombly er
félagslega einangraður, nýskilinn
við eiginkonu sína og eyðir frí-
stundum sínum heima hjá sér í
gerviheimi tölvuleikja. Dag einn
vekur forvitni hans nýtt stýrikerfi
sem býr yfir gervigreind, lagar sig
að þörfum notandans og er í stöð-
ugri þróun og festir hann kaup á
einu slíku. Kerfið ávarpar hann
með seiðandi kvenmannsrödd og
velur sér nafnið Samantha. Sam-
antha heillar Twombly upp úr
skónum, er sannkölluð drauma-
kona í formi stýrikerfis. Twombly
og Samantha verða ástfangin og
þróar stýrikerfið með sér mann-
legar þarfir og langanir sem reyn-
ist ansi spaugilegt í myndinni og á
Af ástum manns
og stýrikerfis
Einmana Joaquin Phoenix í hlutverki Theodore Twombly, bréfaritara sem
er næmur á mannlegar tilfinningar en félagslega einangraður og einmana.
köflum fáránlegt. En spurningin
er hvort slík ást eigi einhverja
framtíð fyrir sér og jafnframt
hvort mannleg samskipti séu í
raun orðin óþörf þegar tæknin er
annars vegar og orðin þetta full-
komin.
Efni myndarinnar er bæði
spaugilegt og dramatískt og Jonze
varpar fram áleitnum spurningum
um það í hvaða átt við erum að
þróast. Miðað við þá hröðu þróun
sem orðið hefur í forritun er gervi-
greind á borð við þá sem fjallað er
um í myndinni ekki svo fáránleg
eða fjarlæg. Munu tæki uppfylla
nær allar þarfir okkar í framtíð-
inni og hversu mikilvæg verða þá
mannleg samskipti? Hversu mikill
munur verður á mannlegum sam-
skiptum og samskiptum manna og
véla ef vélarnar fara að hugsa og
tjá sig eins og við? Og ef við grein-
um vart lengur muninn á manni og
vél, hvert erum við þá komin?
Þurfum við ekki alltaf á mann-
eskjum að halda með sínum kost-
um og göllum? Það stofnar enginn
fjölskyldu með stýrikerfi, svo mik-
ið er víst. Jonze veitir í raun ekk-
ert svar við spurningunni hvort
hin háþróaða tækni sé góð eða
slæm en niðurstaðan er þó sú að
ekkert samband sé fullkomið, ekki
einu sinni samband manns og
stýrikerfis sem á þó að vera full-
komið.
Twombly er ágætlega leikinn af
Joaquin Phoenix og ekki er hlut-
verkið auðvelt. Phoenix er í mynd
nær allan tímann og stóran hluta
myndar situr hann á tali við Sam-
önthu í gegnum þráðlaust heyrn-
artæki. Phoenix dregur upp mynd
af manni sem orðinn er sljór af
ástarsorg og einangrun, líður í
gegnum viðburðasnauða daga sína
líkt og í draumi. Hann er hins veg-
ar afar næmur á mannlegar tilfinn-
ingar og á auðvelt með að tjá þær
fyrir fólk sem virðist hafa glatað
þeim hæfileika. Johansson er
hreint afbragð, miðlar marg-
slungnum tilfinningum stýrikerf-
isins með röddinni einni, kyn-
þokka- og gáskafull á stundum og
á öðrum full örvæntingar yfir hlut-
skipti sínu, að vera stýrikerfi en
ekki manneskja.
Jonze dregur snilldarlega upp
myndir af tímalausu umhverfi, gef-
ur áhorfendum fíngerðar vísbend-
ingar um að þeir séu staddir í
framtíðinni með kostulegum
klæðnaði leikara (fatatískan virðist
hafa farið í nokkra hringi og stað-
næmst á sjötta áratug síðustu ald-
ar) og hátækniapparötum. Það eru
sem betur fer engir fljúgandi bílar
eða önnur slík vitleysa.
Eins ágæt og Her er þá er hún
ekki gallalaus. Hægagangurinn í
henni reynir á þolrifin, atriði eiga
það til að teygjast óþarflega á
langinn og mann fer að syfja við að
horfa á syfjulegan Pheonix ræða
við ósýnilega Johansson í löngum
atriðum. En sá er kannski tilgang-
urinn, að sljóvga áhorfandann líkt
og gerviheimur tækninnar sljóvgar
aðalpersónuna og dregur úr hæfni
hennar til mannlegra samskipta.
Kannski verðum við öll svefn-
genglar í framtíðinni eins og Theo-
dore Twombly, hlekkjuð við tæki
sem eru milljón sinnum greindari
en við og hugsa fyrir okkur? Ef
nútíminn er trunta með tóman
grautarhaus, eins og segir í laginu,
hvernig verður þá framtíðin?
Smárabíó, Háskólabíó og
Borgarbíó
Her bbbbn
Leikstjóri og handritshöfundur: Spike
Jonze. Aðalleikarar: Joaquin Phoenix,
Scarlett Johansson, Amy Adams, Roo-
ney Mara og Chris Pratt. Bandaríkin,
2013. 126 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Svala Björgvinsdóttir og félagar í
hljómsveitinni Steed Lord hafa sent
frá sér smáskífuna Curtain Call, þá
fyrstu af 12 sem gefnar verða út á
árinu. Steed Lord mun gefa út nýtt
lag í hverjum mánuði á árinu og
enda með útgáfu breiðskífunnar
The Prophecy pt. 2. Hægt er að
hlusta á Curtain Call á vefnum
Soundcloud á slóðinni soundcloud.-
com/steedlord/curtain-call.
12 smáskífur
gefnar út á árinu
Útgáfa Þríeykið Steed Lord.
Bono, söngvari U2, segir
hljómsveitina hafa verið
undir áhrifum hljóm-
sveitanna Ramones og
Kraftwerk við gerð
væntanlegrar plötu sinn-
ar sem ber vinnutitilinn
Insecurity, eða Óöryggi.
Þetta kom fram í viðtali
við Bono á Radio 1, út-
varpsstöð BBC, í byrjun
vikunnar. Bono sagði í
viðtalinu að liðsmenn U2
hefðu í upptökuferlinu
velt fyrir sér stöðu
hljómsveitarinnar, hvort
einhver eftirspurn væri
eftir nýrri plötu með sveitinni. Þeir
hefðu komist að þeirri niðurstöðu
að þeir ættu sitthvað eftir ógert. Þá
hefðu þeir leitað aftur í ræturnar
og hlustað á tónlistina sem veitti
þeim innblástur í upphafi, tónlist
hljómsveita á borð við Ramones og
Kraftwerk.
Áhrif frá Ramones og Kraftwerk
Óöruggir? U2 hlaut Golden Globe-verðlaun í ár fyrir
besta frumsamda lagið í kvikmynd, lagið „Ordinary Love“.
AFP
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Mið 5/2 kl. 19:00 aukas Fös 7/2 kl. 19:00 aukas Sun 9/2 kl. 13:00 lokas
Fim 6/2 kl. 19:00 aukas Lau 8/2 kl. 13:00 aukas
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Síðustu sýningar!
Hamlet (Stóra sviðið)
Sun 9/2 kl. 20:00 Lau 15/2 kl. 20:00 Lau 22/2 kl. 20:00
Fös 14/2 kl. 20:00 Fös 21/2 kl. 20:00 Fös 28/2 kl. 20:00
Frægasta leikrit allra tíma. Ný kynslóð, nýjir tímar, nýr Hamlet.
Óskasteinar (Nýja sviðið)
Lau 8/2 kl. 20:00 aukas Fös 21/2 kl. 20:00 12.k Fim 6/3 kl. 20:00 aukas
Sun 9/2 kl. 20:00 5.k Lau 22/2 kl. 20:00 13.k Fös 7/3 kl. 20:00 aukas
Þri 11/2 kl. 20:00 6.k Sun 23/2 kl. 20:00 14.k Lau 8/3 kl. 20:00 20.k
Mið 12/2 kl. 20:00 aukas Þri 25/2 kl. 20:00 15.k Sun 9/3 kl. 20:00 21.k
Fim 13/2 kl. 20:00 7.k Mið 26/2 kl. 20:00 aukas Fim 13/3 kl. 20:00
Fös 14/2 kl. 20:00 aukas Fim 27/2 kl. 20:00 aukas Fös 14/3 kl. 20:00
Lau 15/2 kl. 20:00 8.k Fös 28/2 kl. 20:00 16.k Lau 15/3 kl. 20:00
Sun 16/2 kl. 20:00 9.k Lau 1/3 kl. 20:00 aukas Sun 16/3 kl. 20:00
Þri 18/2 kl. 20:00 10.k Sun 2/3 kl. 20:00 17.k Mið 19/3 kl. 20:00
Mið 19/2 kl. 20:00 11.k Þri 4/3 kl. 20:00 18.k Fim 20/3 kl. 20:00
Fim 20/2 kl. 20:00 aukas Mið 5/3 kl. 20:00 19.k Fös 21/3 kl. 20:00
Glænýtt verk eftir Ragnar Bragason. Grátt gaman með ógæfufólki á leikskóla
Bláskjár (Litla sviðið)
Lau 8/2 kl. 20:00 frums Sun 16/2 kl. 20:00 3.k Fös 28/2 kl. 20:00
Mið 12/2 kl. 20:00 aukas Fim 20/2 kl. 20:00 4.k Lau 1/3 kl. 20:00
Fim 13/2 kl. 20:00 2.k Sun 23/2 kl. 20:00 5.k
Nýtt íslenskt verk eftir ungskáldið Tyrfing Tyrfingsson
Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið)
Mið 12/2 kl. 10:00 Fim 13/2 kl. 13:00 Þri 18/2 kl. 11:30
Mið 12/2 kl. 11:30 Mán 17/2 kl. 10:00 Sun 23/2 kl. 20:00
Mið 12/2 kl. 13:00 Mán 17/2 kl. 11:30 Sun 30/3 kl. 20:00
Fim 13/2 kl. 10:00 Mán 17/2 kl. 13:00
Fim 13/2 kl. 11:30 Þri 18/2 kl. 10:00
Fræðandi uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í
ÍD: Þríleikur (Stóra sviðið)
Lau 8/2 kl. 20:00 frums/2.k Sun 23/2 kl. 20:00 4.k Sun 9/3 kl. 20:00
Sun 16/2 kl. 20:00 3.k Sun 2/3 kl. 20:00 5.k
Íslenski dansflokkurinn sýnir þrjú ný verk á kvöldinu Þríleikur
Óskasteinar – „Verulega góð kvöldskemmtun”
– SA, tmm.is
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is ÓVITAR – „Kraftmikil og litskrúðug sýning.“ JVJ Fréttablaðið
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Fim 6/2 kl. 19:30 70.sýn. Fim 13/2 kl. 19:30 72.sýn. Sun 23/2 kl. 19:30 74.sýn
Fös 7/2 kl. 19:30 71.sýn. Fös 14/2 kl. 19:30 73.sýn
Veilsa aldarinnar - leikrit ársins 2013.
Þingkonurnar (Stóra sviðið)
Lau 8/2 kl. 19:30 lokasýning
Síðustu sýningar!
SPAMALOT (Stóra sviðið)
Fös 21/2 kl. 19:30 Frums. Fös 28/2 kl. 19:30 4.sýn Mið 12/3 kl. 19:30 7.sýn
Lau 22/2 kl. 19:30 2.sýn Fim 6/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 13/3 kl. 19:30 8.sýn
Mið 26/2 kl. 19:30 Aukas. Fös 7/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 14/3 kl. 19:30 9.sýn
Fim 27/2 kl. 19:30 3.sýn Lau 8/3 kl. 19:30 Aukas. Lau 15/3 kl. 19:30 10.sýn
Dásamleg, fáránleg della - óbærilega fyndinn nýr söngleikur!
Pollock? (Kassinn)
Lau 8/2 kl. 19:30 34.sýn Lau 15/2 kl. 19:30 35.sýn
Skemmtilegt leikrit með framúrskarandi leikurum. Síðustu sýningar.
ÓVITAR (Stóra sviðið)
Sun 9/2 kl. 13:00 29.sýn Sun 16/2 kl. 13:00 30.sýn
Kraftmikil og litskrúðug sýning, þar sem börn á öllum aldri fara á kostum!
Karíus og Baktus (Kúlan)
Sun 9/2 kl. 16:00 Sun 16/2 kl. 16:00
Karíus og Baktus bregða á leik.
Áfram Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 6/2 kl. 20:00 12.sýn Fös 7/2 kl. 22:30 14.sýn
Fös 7/2 kl. 20:00 13.sýn Lau 8/2 kl. 20:00 15.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
★★★★ – SGV, Mblamlet
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Lúkas (Aðalsalur)
Fös 7/2 kl. 20:00 Síðustu
sýningar
Lau 8/2 kl. 20:00 Síðustu
sýningar
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
Horn á höfði (Aðalsalur)
Sun 9/2 kl. 14:00 Sun 23/2 kl. 13:00
Sun 16/2 kl. 14:00 Sun 23/2 kl. 15:00
Eldklerkurinn (Aðalsalur)
Sun 9/2 kl. 20:00 Lau 15/2 kl. 20:00
Ástarsaga úr fjöllunum (Aðalsalur)
Lau 22/2 kl. 14:00 Lau 1/3 kl. 14:00
Fyrirgefðu ehf. (Aðalsalur)
Fös 14/2 kl. 20:00 Frumsýning Fös 21/2 kl. 20:00 Fös 28/2 kl. 20:00
Sun 16/2 kl. 20:00 Lau 22/2 kl. 20:00
Dansaðu fyrir mig (Aðalsalur)
Fim 20/2 kl. 20:00 Lau 1/3 kl. 20:00
Sun 23/2 kl. 20:00 Sun 2/3 kl. 20:00