Morgunblaðið - 15.02.2014, Blaðsíða 36
36 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2014
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjón-
usta í kapellu kl. 11. Prestur er sr.
Sunna Dóra Möller. Félagar úr Kór Ak-
ureyrarkirkju syngja. Organisti er Petra
Björk Pálsdóttir. Sunnudagaskóli í
Safnaðarheimilinu kl. 11. Umsjón sr.
Svavar Alfreð Jónsson og Hjalti Jóns-
son. Paramessa kl. 20.00. Prestur er
sr. Hildur Eir Bolladóttir. Parið Fjóla
Björk Gunnlaugsdóttir og David Nyo-
mobo Lukonge tala. Sigríður Ásta
Hauksdóttir fjölskyldumeðferðarfræð-
ingur flytur hugvekju. Lára Sóley Jó-
hannsdóttir og Hjalti Jónsson annast
tónlistina.
AKURINN | Samkoma kl. 14, í Núpal-
ind 1, Kópavogi. Ræðumaður er Jógv-
an Purkhús. Söngur, bæn og biblíu-
fræðsla.
ÁRBÆJARKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. Kristján Valur Ingólfsson vígslu-
biskup Skálholtstiftis vísiterar söfn-
uðinn og prédikar. Prófastur Gísli Jón-
asson og prestar safnaðarins þjóna
fyrir altari. Kirkjukórinn leiðir almenn-
an safnaðarsöng. Organisti Kristina
Kalló Szklenár. Sunnudagaskólinn á
sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar
í umsjón Díönu og Fritz.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
11. Kristný Rós Gústafsdóttir djákni
annast samveru sunnudagaskólans.
Séra Sigurður Jónsson sóknarprestur
prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Ás-
kirkju syngur, organisti Magnús Ragn-
arsson. Fermingarbörnin bjóða upp á
meðlæti með kirkjukaffinu eftir
messu.
ÁSTJARNARKIRKJA | Sunnudaga-
skóli kl. 11. Leikhúsið Tíu fingur sýnir
leikritið um Mjallhvíti í umsjá Hólm-
fríðar S. Jónsdóttur og Bryndísar Svav-
arsdóttur. Gospelmessa kl. 20. Kór
Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn
Matthíasar V. Baldurssonar, tónlistar-
stjóra kirkjunnar, sem annast undirleik
ásamt Friðriki Karlssyni á gítar og Þor-
bergi Ólafssyni á trommu. Prestur er
sr. Kjartan Jónsson.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudaga-
skóli í Brekkuskógum 1 kl 11. Umsjón
með stundinni hafa Fjóla, Finnur og
Þórunn Ágústa.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl.
11. Sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar
fyrir altari, sr. Toshiki Toma prédikar.
Félagar úr kór Breiðholtskirkju syngja,
organisti er Örn Magnússson. Sunnu-
dagaskóli á sama tíma í umsjá Stein-
unnar Leifsdóttur. Kaffi og djús í safn-
aðarheimili á eftir.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl.
11. Bára og sr. Árni Svanur leiða
stundina. Jónas Þórir leikur af fingrum
fram á flygilinn. Allir krakkar og vinir
þeirra eru velkomnir. Guðsþjónusta kl.
14. Hólmfríður Ólafsdóttir djákni pré-
dikar, sr. Árni Svanur Daníelsson þjón-
ar fyrir altari. Sungnir verða nýir sálmar
og öllum er boðið kl. 13.30 til að læra
þá. Messuþjónar lesa lestra og leiða
bænagjörð. Jónas Þórir situr við org-
elið og félagar úr kór Bústaðakirkju
leiða sönginn. Molasopi eftir messu.
DIGRANESKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Prestur sr.
Magnús B. Björnsson. Organisti Sól-
veig Sigríður Einarsdóttir. Kór Digra-
neskirkju. Súpa í safnaðarsal eftir
messu. Helgistund kl. 15. Prestur sr.
Magnús B. Björnsson. Hugleiðing,
vitnisburðir og fyrirbænir Tónlist: Tríó
Gunnars Böðvarssonar.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr.
Karl Sigurbjörnsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Sönghópurinn Boudoir
syngur undir stjórn Julian Hewlett, org-
anista. Barnastarf á kirkjuloftinu á
sama tíma í umsjón Ólafs Jóns og Sig-
urðar Jóns. Æðruleysismessa kl. 20.
Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir og sr. Karl
Matthíasson þjóna. Þórir leikur á flyg-
ilinn.
EYRARBAKKAKIRKJA | Messa kl.
11. Barnakór syngur undir stjórn Kol-
brúnar Huldu Tryggvadóttur. Organisti
Haukur A. Gíslason.
FELLA- og Hólakirkja | Messa kl.
11. Séra Guðmundur Karl Ágústsson
prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti
Guðný Einarsdóttir sem einnig stjórnar
kór kirkjunnar, er leiðir safnaðarsöng.
Meðhjálpari Jóhanna Freyja Björns-
dóttir. Sunnudagaskóli á sama tíma í
umsjá Hreins og Péturs. Að þessu
sinni er tónlistardagur hjá þeim.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Kvöldguðsþjónusta
kl. 20. Kór og hljómsveit kirkjunnar
leiðir sönginn undir stjórn Arnar Arn-
arsonar. Skarphéðinn Þór Hjartason
leikur á píanó, Guðmundur Pálsson á
bassa og Rúnar Matthíasson á tromm-
ur. Prestur er Sigríður Kristín Helga-
dóttir.
FRÍKIRKJAN Kefas | Í dag verður
sunnudagaskóli kl. 11. Við heyrum
góða fræðslu, syngjum og fáum létta
hressingu í lokin. Kl. 13.30 verður svo
almenn samkoma. Prédikun og lof-
gjörð, kaffi og kex í lok stundar auk
þess sem verslun kirkjunnar verður
opin.
GAULVERJABÆJARKIRKJA |
Messa kl. 14. Organisti Haukur A.
Gíslason.
GLERÁRKIRKJA | Hátíðarmessa kl.
14 í tilefni 70 ára afmælis Kórs Gler-
árkirkju. 12. febrúar fagnað sér-
staklega. Sóknarfólk og aðrir velunn-
arar eru hvattir til að mæta og
samfagna kórnum. Fyrrverandi kór-
félagar eru sérstaklega boðnir vel-
komnir til hátíðarmessunnar og munu
sumir þeirra taka þátt í að leiða söng-
inn. Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Kross-
bandið leiðir söng. Persónulegar fyr-
irbænir. Sr. Gunnlaugur Garðarsson
þjónar.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðs-
þjónsuta kl. 11. Séra Guðrún Karls
Helgudóttir prédikar og þjónar fyrir alt-
ari ásamt messuþjónum og ferming-
arbörnum. Kór kirkjunnar syngur. Org-
anisti: Hákon Leifsson.
Sunnudagaskóli kl. 11 á neðri hæð
kirkjunnar. Séra Vigfús Þór Árnason.
Umsjón hefur Þóra Björg Sigurð-
ardóttir. Undirleikari: Stefán Birkisson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl.
10, bænastund kl. 10.15. Messa kl.
11. Barnastarf í umsjón Lellu o.fl. Alt-
arisganga. Samskot til Unicef. Messu-
hópur þjónar. Félagar úr Kirkjukór
Grensáskirkju syngja. Organisti er Árni
Arinbjarnarson. Prestur sr. Ólafur Jó-
hannsson. Molasopi eftir messu.
Hversdagsmessa með Þorvaldi Hall-
dórssyni á fimmtudag kl. 18.10.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheim-
ili | Guðsþjónusta í umsjón Félags fyrr-
um þjónandi presta klukkan 14 í há-
tíðasal Grundar. Séra Einar
Sigurbjörnsson, prófessor guð-
fræðideildar, þjónar fyrir altari. Ásdís
Magnúsdóttir stud. theol prédikar.
Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn
Kristínar Waage organista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Guðsþjónusta og barnastarf í Guðríð-
arkirkju sunnudaginn 16. febrúar kl:
11. Prestur sr. Sigríður Guðmarsdóttir,
organisti Ester Ólafsdóttir og kór Guð-
ríðarkirkju syngur. Barnastarf í umsjá
Aldísar R. Gísladóttur og Ruth Rúnars-
dóttur. Meðhjálpari Kristbjörn Árna-
son. Kirkjuvörður Lovísa Guðmunds-
dóttir. Kaffisopi eftir messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa
og sunnudagskóli kl 11. Prestur sr.
Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Guð-
mundur Sigurðsson. Félagar í Barböru-
kórnum syngja. Sunnudagskólinn
hefst í kirkjunni en síðan fara börnin
með Arnóri og Önnu Elísu inn í safn-
aðarheimlið. Kaffisopi eftir stundina.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
hópi messuþjóna. Félagar úr Mót-
ettukór Hallgrímskirkju syngja. Org-
anisti er Hörður Áskelsson. Umsjón
barnastarfs Inga Harðardóttir. Eftir
messu er opnun á sýningu Ingu Þór-
eyjar Jóhannsdóttur myndlistarmanns,
í forkirkjunni, á vegum Listvinafélags
Hallgrímskirkju.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Barnastarf í umsjá Arnars, Hákonar og
Öllu Rúnar. Kirkjukór Háteigskirkju
syngur. Organisti Kári Allansson.
Prestur sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir,
héraðsprestur.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Halldór Reynisson
þjónar. Félagar úr Kór Hjallakirkju
syngja undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðs-
sonar organista. Sunnudagaskóli kl.
13.
HJÚKRUNARHEIMILIÐ Ás | Guðs-
þjónusta kl. 15.
HRAUNGERÐISKIRKJA í Flóa |
Guðsþjónusta kl. 13.30. Prestur sr.
Óskar Hafsteinn Óskarsson og org-
anisti Ingi Heiðmar Jónsson. Söngkór
Hraungerðis- og Villingaholtssókna
leiðir sönginn.
HVERAGERÐISKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Samkoma kl. 11. Vörður Leví Trausta-
son prédikar. Kaffi og samfélag eftir
samkomu. Samkoma á ensku í Al-
þjóðakirkjunni kl. 14. English speaking
service. Kvöldsamkoma kl. 18.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sam-
koma kl. 13.30. Friðrik Schram predik-
ar. Lofgjörð og fyrirbænir. Barnastarf í
aldurskiptum hópum á sama tíma.
Kaffi og samfélag eftir stundina. Allir
velkomnir.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjón-
usta og barnastarf kl. 11. Sr. Erla Guð-
mundsdóttir leiðir barnastarfið ásamt
Systu, Esther og Önnu Huldu. Sól-
mundur Friðriksson leiðir tónlistina í
guðsþjónustunni. Messuþjónar lesa
texta og sjálfboðaliðar bera fram veit-
ingar að messu lokinni. Prestur er sr.
Sigfús B. Ingvason.
KOTSTRANDARKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 14.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópa-
vogskirkju syngur undir stjórn Lenku
Mátéová, kantors kirkjunnar. Sunnu-
dagaskólinn hefst í kirjunni en heldur
eftir ritningarlestra í safnaðarheimilið
Borgir. Umsjónarmenn sunnudaga-
skólans eru Þóra Marteinsdóttir og
Sólveig Anna Aradóttir.
KVENNAKIRKJAN | Afmæl-
isguðþjónusta í Neskirkju við Hagatorg
klukkan 14. Athugið breyttan messu-
tíma. Séra Arndís G. Bernhardsdóttir
Linn prédikar. Hvers vegna er ég í
Kvennakirkjunni? Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir. Berta Dröfn Ómarsdóttir syng-
ur einsöng. Kór Kvennakirkjunnar leið-
ir söng við undirleik Aðalheiðar
Þorsteinsdóttur. Kaffi á eftir í safn-
aðarheimilinu.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Guðbjörg
Jóhannesdóttir þjónar ásamt messu-
þjónum og kirkjuverði, Jóhanna Gísla-
dóttir og Snævar Andrésson stýra
sunnudagaskólanum. Söngdeild Gra-
dualekórs Langholtskirkju syngur und-
ir stjórn organista kirkjunnar, Jóns
Stefánssonar. Söngdeildin verður
einnig með stutta tónleika í kirkju-
kaffinu. Kaffi á könnunni eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA | Að leggja
grunn að góðu lífi. Fjallað um fornvarn-
argildi trúariðkunar í prédikun. Messa
og barnstarf kl. 11. Stella Rún Stein-
þórsdóttir leiðir söng, organisti Að-
alheiður Þorsteinsdóttir og prestur sr.
Sigurvin Lárus Jónsson. Sameiginlegt
upphaf með barnastarfi. Messa kl. 13
í Hátúni 12. Umsjón: Guðrún K. Þórs-
dóttir djákni ásamt organista og presti
Laugarneskirkju. Meðhjálpari Kristinn
Guðmundsson. Bænastund í hádegi
miðvikudaginn 20. febrúar. Tónlist,
ritningarorð, stutt hugvekja og bæna-
stund. Létt máltíð á kostnaðarverði í
safnaðarheimilinu á eftir. Prestur sr.
Sigurvin Lárus Jónsson og tónlist Að-
alheiður Þorsteinsdóttir.
LÁGAFELLSKIRKJA | TAIZE guðs-
þjónusta í Lágafellskirkju kl. 20. Berg-
lind Stefánsdóttir leikur á þverflautu.
Kirkjukór Lágafellssóknar. Organisti:
Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Prestur: Sr.
Skírnir Garðarsson. Sunnudagaskól-
inn í Lágafellskirkju kl. 13.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli í Lindakirkju og í Boðaþingi
kl. 11.
Guðsþjónusta í Lindakirkju kl. 20. Kór
Lindakirkju syngur undir stjórn Óskars
Einarssonar. Sr. Guðni Már Harðarson
þjónar.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar
úr Háskólakórnum leiða safn-
aðarsöng. Organisti Hilmar Örn Agn-
arsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédik-
ar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur,
brúður og gleði í barnastarfinu. Um-
sjón Ása Laufey, Katrín og Ari. Sam-
félag og kaffisopi á Torginu eftir
messu.
SALT kristið samfélag | Samkoma
kl.14 í Grensáskirkju. Ræðumaður
Ragnar Gunnarsson.
SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Messa kl.14. Ferm-
ingarbörn lesa lestra. Organisti Rögn-
valdur Valbergsson. Kaffisopi á eftir.
Prestur Sigríður Gunnarsdóttir.
SELFOSSKIRKJA | Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Prestur sr. Óskar Haf-
steinn Óskarsson og organisti Jörg
Sondermann. Kirkjukórinn syngur.
Súpa og brauð. Sjá nánar selfoss-
kirkja.is
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Bryn-
dís Malla Elídóttir prédikar og þjónar
fyrir altari. Kór Seljakirkju leiðir safn-
aðarsöng. Organisti: Tómas Guðni
Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðs-
þjónusta og sunnudagaskóli kl. 11.
Sóknarprestur þjónar. Gunnar Kvaran
leikur á selló og les eigin ljóð. Org-
anisti er Friðrik Vignir Stefánsson. Fé-
lagar úr Kammerkór kirkjunnar leiða al-
mennan safnaðarsöng. Kaffiveitingar.
Fræðslumorgunn kl. 10.
,,Mannlíf á Seltjarnarnesi fyrr á tíð.
Sigurður Pétursson háskólakennari
segir frá fólki og viðburðum.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Messa
kl 11. Kór kirkjunnar leiðir almennan
safnaðarsöng undir stjórn Sigurbjargar
Kristínardóttur organista. Nú tökum
við upp þá nýbreytni að kenna einn
sálm í hverri messu og verður hann
svo sunginn síðar í messunni. Sr. Sig-
ríður Rún Tryggvadóttir prédikar og
þjónar fyrir altari og meðhjálpari er Jó-
hann Grétar Einarsson. Eftir messu er
boðið upp á kaffi í safnaðarheimili
kirkjunnar.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Messunni verður út-
varpað. Sr. Friðrik J. Hjartar prédikar
og þjónar fyrir altari. Kór Vídalínskirkju
syngur undir stjórn organistans, Jó-
hanns Baldvinssonar. Sunnudagaskól-
inn starfar með leiðtogum sínum í
yngri og eldri deild. Molasopi og djús í
safnaðarheimilinu að messu lokinni.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Messa kl. 11. Kór Víðistaðasóknar
syngur undir stjórn Helgu Þórdísar
Guðmundsdóttur. Prestur: Sr. Bragi J.
Ingibergsson. Sunnudagaskólinn kl.
11. Fjölbreytt dagskrá fyrir börn á öll-
um aldri, fer fram uppi í suðursal kirkj-
unnar.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Kór Njarðvík-
urkirkna syngur undir stjórn Stefáns
Helga Kristinssonar organista. Með-
hjálpari Ástríður Helga Sigurðardóttir.
Verkamenn
í víngarði.
Matt. 20.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Svalbarðskirkja, Svalbarðsströnd.
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Álmholt 6, 208-2551, Mosfellsbæ, þingl. eig. Ketill Guðmundsson,
gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., fimmtudaginn 20.
febrúar 2014 kl. 14:00.
Laxatunga 61, 233-1161, Mosfellsbæ, þingl. eig. Ingunn Baldursdóttir,
gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og Mosfellsbær, fimmtudaginn 20.
febrúar 2014 kl. 13:30.
Skógarás 17, 204-6619, Reykjavík, þingl. eig. Arnar Bragi Ómarsson,
gerðarbeiðandi Bílaumboðið Askja ehf., fimmtudaginn 20. febrúar
2014 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
14. febrúar 2014.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Klapparstígur 13, 200-3209, Reykjavík, þingl. eig. Grétar Kristjánsson,
gerðarbeiðendur Klapparstígur 13, húsfélag, og Orkuveita Reykjavík-
ur-vatns sf., miðvikudaginn 19. febrúar 2014 kl. 13:30.
Laugavegur 39, 200-4769, Reykjavík, þingl. eig. AnnaTheodóra
Rögnvaldsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Orkuveita
Reykjavíkur-vatns sf., Reykjavíkurborg,Tollstjóri ogTrygginga-
miðstöðin hf., miðvikudaginn 19. febrúar 2014 kl. 14:00.
Sóleyjargata 23, 200-7389, Reykjavík, þingl. eig. Kjartan Jón Bjarna-
son, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., miðvikudaginn 19. febrúar
2014 kl. 14:30.
Þórðarsveigur 4, 226-0587, Reykjavík, þingl. eig.Tryggvi Þórhallsson
og Ellen Dögg Sigurjónsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður,
miðvikudaginn 19. febrúar 2014 kl. 10:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
14. febrúar 2014.
Raðauglýsingar