Morgunblaðið - 15.02.2014, Blaðsíða 40
40 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2014
Andrés Andrésson hjá vátryggingafélaginu Verði er 63 ára ídag. Hann segist ekki hafa haldið upp á afmælið síðan hannvar fimmtugur og ekki standi neitt sérstakt til í dag en þó
geti verið að hann borði með börnunum og fjölskyldum þeirra í til-
efni dagsins.
Frá 1978 hefur Andrés starfað við vátryggingar. „Þetta er mjög
áhugavert starf,“ segir hann. „Þegar Ólafur B. Thors réð mig í
vinnu fyrir tæplega 36 árum sagði hann mér að það skemmtilega við
vátryggingarnar væri að maður lærði alltaf eitthvað nýtt á hverjum
degi og það eru orð að sönnu. Starfið snýr líka að hagsmunum fólks
og mannlegum samskiptum.“
Andrés heldur sér í formi með því að ganga reglulega og fara út
með hundana. Hann hefur alla tíð tengst boltanum á einn eða annan
hátt. Spilaði lengi fótbolta í KR og var öflugur framherji en varð að
leggja skóna á hilluna vegna meiðsla. Börn hans kepptu fyrir Val og
Víking og á meðan þau stunduðu keppnisíþróttir var hann virkur á
hliðarlínunni og í félagsstarfinu. Þeim kafla er nú lokið. „Þegar ég
fer á völlinn fer ég á KR-leiki. Kolbeinn Pálsson, frændi konunnar
minnar heitinnar, reyndi lengi að gera mig áhugasaman um körfu-
bolta og Bjarni Halldórsson, minn nánasti vinur, dró mig á körfu-
boltaleik KR og Snæfells fyrir skömmu. Svo ótrúlega sem það
hljómar hafði ég aldrei farið á körfuboltaleik, en það var svo gaman
að vonandi geri ég það aftur.“ steinthor@mbl.is
Andrés Andrésson 63 ára
Morgunblaðið/Eva Björk
Afmælisveislubókin Gústaf Gústafsson, Andrés Andrésson og
Kjartan Kjartansson fögnuðu útgáfunni sem dætur Gústafs komu að.
Lærir eitthvað nýtt
á hverjum degi
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Akranes Heiðdís Þórðardóttir fædd-
ist 24. maí kl. 10.31. Hún vó 3710 g og
var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru
Agnes Ásgeirsdóttir og Þórður Fann-
ar Rafnsson.
Nýir borgarar
Akranes Urður Freyja fæddist 27.
mars kl. 0.35. Hún vó 4100 g og var 56
cm löng. Foreldrar hennar eru Elsa
María Antonsdóttir og Bjarni Már
Stefánsson.
A
lfreð fæddist í Reykjavík
15.2. 1944 og ólst þar
upp, við Skúlagötuna.
Hann var í Austurbæj-
arskóla og stundaði
nám við KÍ um skeið.
Alfreð var blaðamaður við dag-
blaðið Tímann 1962-77 og var for-
stjóri Sölu varnarliðseigna 1977-
2003. Hann var varaborgarfulltrúi
fyrir Framsóknarflokkinn 1970-71,
borgarfulltrúi 1971-78, varaborg-
arfulltrúi 1986-94 og borgarfulltrúi
1994-2006, sat í borgarráði 2002-
2006, var formaður borgarráðs 2003-
2004 og var forseti borgarstjórnar
2005-2006.
Alfreð sat í ýmsum nefndum borg-
arinnar, s.s. fræðsluráði, heilbrigð-
isráði, stjórn Innkaupastofnunar og
var formaður hennar 1994-98, sat í
umferðarnefnd, var formaður stjórn-
ar Veitustofanna 1994-99 og stjórn-
arformaður Orkuveitu Reykjavíkur
1999-2006, formaður fjarskiptafyr-
irtækisins Línu-Nets 1999-2005, sat í
stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna
Reykjavíkurborgar 2006-2010 og
formaður hans 2007 og 2008-2010.
Alfreð æfði og keppti í knatt-
spyrnu með yngri aldursflokkum
Alfreð Þorsteinsson, fyrrv. borgarfulltrúi og forstjóri – 70 ára
Sumarblíða í Biskupstungum Alfreð með dóttur sinni, Lilju Dögg, á góðviðrisdegi við fossinn Faxa.
Orkuveita Reykjavík-
ur varð til á hans vakt
Ungur íþróttafréttamaður Alfreð fylgist með knattspyrnuleik á Laugardals-
velli í byrjun sjöunda áratugarins, ásamt m.a. Sigurði Sigurðssyni á Útvarp-
inu, Atla Steinarssyni á Morgunblaðinu og Thorolf Smith á Útvarpinu.
SMELLT
EÐA SKRÚFAÐ,
VIÐ EIGUM BÆÐI
Þú getur verið afslappaður og öruggur
við grillið með AGA gas. Öruggur um
að þú ert að nota gæðavöru og að
þú fáir góða þjónustu þegar þú þarft
áfyllingu á gashylkið, hvort sem þú
nýtir þér heimsendingarþjónustu á
höfuðborgarsvæðinu eða þegar þú
heimsækir söluaðila AGA.
Farðu á www.gas.is og finndu
nálægan sölustað eða sæktu
öryggisleiðbeiningar og fáðu
upplýsingar um AGA gas.
www.GAS.is
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is