Morgunblaðið - 15.02.2014, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2014
» Venjuleg ársfundarstörf
» Önnur mál
Sjóðfélagar og lífeyrisþegar sjóðsins eiga rétt til setu á
ársfundinum. Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Reykjavík, 23. janúar 2014
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
verður haldinnmánudaginn 17. mars
kl. 18 á Grand Hótel Reykjavík.
Ársfundur 2014
DAGSKRÁ FUNDARINS
live.is Síðustu sýningar!
„Ólafur Darri sýnir margar
hliðar Hamlets af snilld”
Sigurður G. Valgeirsson, -mbl.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
VIÐTAL
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Ökumenn kannast vel við þær hætt-
ur sem geta skapast af djúpum hjól-
förum á vegum og ekki síst þegar ís-
ing myndast og vatn í hjólförunum
frýs. Birkir Hrafn Jóakimsson,
byggingarverkfræðingur hjá Verkís,
varði nýlega meistaraprófsritgerð
sína við Háskóla Íslands þar sem
hann tók fyrir hjólför í íslensku mal-
biki og hvernig mætti þróa spálíkan
um hjólfaramyndun vegna nagla-
dekkja.
Slíkt spálíkan hefur verið þróað
hjá Vegtæknistofnun Svíþjóðar, VTI,
en þar vinnur annar leiðbeinenda
Birkis í lokaverkefninu, Sigurður
Erlingsson, í hlutastarfi. Sigurður er
jafnframt prófessor í umhverfis- og
byggingafræðideild HÍ. Hinn leið-
beinandi Birkis var Þorsteinn Þor-
steinsson, aðjunkt í vegagerð og
samgöngufræðum við sömu deild.
Birkir segir það einmitt hafa verið
Sigurð sem hafi bent sér á að þetta
viðfangsefni hefði ekki verið tekið
fyrir hér landi. Var Birkir í samstarfi
við Vegagerðina, sem styrkti verk-
efnið, og einnig Nýsköpunarmiðstöð
Íslands þar sem hann gerði prófanir
á steinefnum.
Slit vegna nagladekkja
Hjólför í malbiki hafa verið nokk-
urt vandamál á vegum og götum hér
á landi. Myndast þau vegna slits ann-
ars vegar og deigra formbreytinga
hins vegar. Að sögn Birkis má rekja
slitið til umferðar bíla á nagladekkj-
um og formbreytingarnar, einkum
skrið, er tengt við umferð þungra
ökutækja.
„Eitt meginviðfangsefnið var að
geta vitað hvenær hjólförin eru orðin
það mikil og djúp að framkvæma
þarf lagfæringar, ekki síst þegar þau
eru farin að valda ökumönnum
óþægindum og draga úr umferðarör-
ygginu,“ segir Birkir en spálíkan af
þessu tagi er talið geta bætt hönnun
á vegum og gerð slitlags.
„Helstu niðurstöður mínar eru
þær að það eru komnar aðferðir til að
spá fyrir um hjólfaramyndun. Svíar
eru þeir einu sem hafa þróað aðferðir
til að spá fyrir um nagladekkjaslit.
Formbreytingar eru hugsanlega
ekki eins litlar og menn héldu á árum
áður. Með hlýnandi veðurfari hafa
þessar breytingar aukist. Malbikið
hitnar meira á sumrin og verður
mýkra. Niðurstaðan er sú að þetta er
eitthvað sem þarf að skoða nánar og
kvarða betur við íslenskar aðstæður
svo að hægt sé að gera spár af ör-
yggi. Tíminn þarf svo að leiða í ljós
hvort þær spár gangi upp. Þetta er
bara byrjunin,“ segir Birkir.
Segir hann Vegagerðina hafa sýnt
áhuga á að mælingar haldi áfram til
að hægt verði að þróa spálíkanið enn
betur.
„Það gekk ágætlega að heimfæra
líkanið yfir á íslenskar aðstæður.
Hins vegar þarf að fara í markvissar
mælingar á hjólförum. Veðurað-
stæður eru aðrar hér á landi en í Sví-
þjóð og jarðfræðin er önnur þegar
kemur að fylliefnum í malbikinu,“
segir Birkir.
Steinefnin skipta máli
Hann skoðaði eingöngu malbikið
sem notað er á götum í þéttbýli eins
og á höfuðborgarsvæðinu og á þjóð-
vegum í nágrenni þess. Aðspurður
segir Birkir fylliefnin í malbiki og
styrkleiki þeirra skipta miklu máli,
að rétta steinefnið sé valið hverju
sinni, með tilliti til umferðarþunga og
ökutækja sem fara um. Þar sem mal-
bikið er hvað ljósast, einkum á um-
ferðarþyngstu götunum, er stein-
efnið innflutt. Birkir segir álíka góð
efni til staðar hér á landi, bara
dekkri.
Hann hefur undanfarin sjö ár
starfað hjá Verkís, eða síðan hann
lauk BS-prófi í byggingaverkfræði. Í
fyrstu vann hann við hönnun virkj-
ana en starfar nú við veghönnun og
almenna jarðtækni. „Ég hef verið
mjög heppinn með vinnuveitanda.
Verkís hefur stutt mig vel í að klára
meistaraverkefnið,“ segir Birkir að
endingu.
Spáð fyrir um hjólför í malbiki
Birkir Hrafn Jóakimsson skrifaði meistaraprófsritgerð um hjólför í malbiki Vaxandi vandamál í
umferðinni Naut aðstoðar Vegagerðarinnar Líkan frá Svíþjóð þróað hér Bætir hönnun vega
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hjólför Birkir Hrafn Jóakimsson við gatnamót Lönguhlíðar og Miklubrautar, þar sem hjólför hafa myndast í mal-
bikið. Þarna er umferð mikil og með reglulegu millibili þarf að fræsa malbikið og leggja nýja klæðningu.
Meistaraverkefni
» Birkir Hrafn Jóakimsson
varði meistaraprófsritgerð
sína í byggingarverkfræði við
Háskóla Íslands í janúar sl.
» Leiðbeinendur voru Sig-
urður Erlingsson prófessor og
Þorsteinn Þorsteinn aðjunkt.
» Vegagerðin og Nýsköp-
unarmiðstöð Íslands studdu
lokaverkefni Birkis, auk þess
sem hann fékk m.a. gögn frá
malbikunarfyrirtækjum.
„Vegakerfið er hverju samfélagi
mikilvægt. Malbik er mikilvægur
hluti vegbyggingar, sérstaklega á
þéttbýlli svæðum. Malbik er dýrt
efni og unnið úr náttúruauðlind
sem er endanleg. Því ber okkur að
leitast við að bæta hönnunarað-
ferðir til að draga úr kostnaði og
minnka sóun á þeim náttúru-
auðlindum sem eru okkur svo mik-
ilvægar,“ ritar Birkir Hrafn Jóa-
kimsson í inngangi meistaraprófs-
ritgerðarinnar.
Þar bendir hann á að stórum
fjárhæðum sé árlega varið í vega-
gerð og viðhald vega. Í samgöngu-
áætlun 2011-2022 sé áætlað að á
tímabilinu 2011-2014 verði varið
nærri 20 milljörðum króna í við-
hald vega.
Það kemur því ekki á óvart að
Vegagerðin hafi ákveðið að styðja
við verkefni af þessu tagi. Þar á
bæ hefur fjármagn í viðhald vega
verið skorið niður og því mikið í
húfi að vegirnir endist betur.
20 milljarðar í viðhaldið
MIKIÐ Í HÚFI AÐ HALDA VEGUNUM GÓÐUM