Morgunblaðið - 29.05.2014, Page 6
Gjaldþrotum fækkar en
nýskráningum fjölgar
EFNAHAGSMÁL
Gjaldþrot fyrirtækja síðustu tólf
mánuði hafa dregist saman um
17% samanborið við tólf mánuði
þar á undan. Á sama tíma hefur
nýskráningum einkahlutafélaga
hins vegar fjölgað um 7% en alls
voru nýskráningar 1.956 talsins.
Flest félög voru stofnuð í fjár-
mála- og vátryggingarstarfsemi,
eða 322 talsins.
Þetta kemur fram í tölum frá
Hagstofu Íslands. Samtals voru
879 fyrirtæki tekin til gjald-
þrotaskipta, flest í bygging-
arstarfsemi og mannvirkjagerð,
eða 167 talsins.
Morgunblaðið/Þorvaldur
Flest gjaldþrot í mannvirkjagerð.
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014FRÉTTIR
Félag í eigu Róberts Guðfinnssonar,
sem stendur fyrir viðamikilli upp-
byggingu á Siglufirði, kom með 473
milljónir króna í gegnum fjárfest-
ingarleið Seðlabankans í maí.
Fyrirtækið heitir Staðarhóll. Róbert
segir að fjármagnið fari í að byggja
Hótel Sunnu á Siglufirði. Og lætur
þess getið að það væri „mjög ólík-
legt“ að hann hefði ráðist í þessa
miklu uppbyggingu á Siglufirði ef
ekki væri fyrir fjárfestingarleiðina.
Fjárfestingarleið Seðlabankans
gengur út á að fjárfestar komi með
erlendan gjaldeyri til landsins,
skipti honum í krónur og fjárfesti
hér til lengri tíma, en gulrótin fyrir
fjármagnseigendur er að krónurnar
eru um 20% ódýrari en ef þær hefðu
verið keyptar með hefðbundnum
hætti.
1,4 milljarða hótel
„Hótelið mun kosta 1.400 milljónir
króna,“ segir hann í samtali við
Morgunblaðið. Uppbyggingin sé fjár-
mögnuð jafnóðum, áður hafi verið
sótt fjármagn í framkvæmdirnar og
það eigi eftir að sækja meira fé.
Hann vill ekki gefa upp hve miklu
fjármagni hafi verið varið í uppbygg-
ingu hótelsins nú þegar, en segir að
verkefnið sé fjármagnað með hlutafé
og lánsfé frá móðurfyrirtækinu.
„Þetta er fjármagnað innan sam-
stæðunnar,“ segir Róbert.
Fram hefur komið í Morgun-
blaðinu að það verði 68 herbergi hjá
Hótel Sunnu og stefnt sé að því að
það verði opnað í maí á næsta ári.
Róbert og félagar hans hafa staðið
fyrir umfangsmiklum umbótum á
Siglufirði. Undir merkjum félagsins
Rauðku hafa byggingar á hafnar-
svæðinu verið endurbyggðar. Þar
eru nú veitinga- og matsölustaðirnir
Hannes boy, Kaffi Rauðka og Bláa
húsið. Róbert er jafnframt í forystu
fyrir líftæknifyrirtækinu Genis sem
er með starfsemi á Siglufirði og í
Reykjavík.
Fjárfestingarleiðin lykillinn
Róbert segir að fjárfestingarleið
Seðlabankans geri það að verkum að
hægt sé ráðast í uppbyggingu á borð
við þá sem hann er í. Með henni sé
hægt að gera minni ávöxtunarkröfu
vegna þess að hann fái fleiri krónur
fyrir dollara en annars. Hann segir
að það sé „mjög ólíklegt“ að það
hefði verið ráðist í þessa miklu upp-
byggingu á Siglufirði ef ekki væri
fyrir fjárfestingarleiðina. Hann seg-
ir að í gegnum fjárfestingarleiðina
hafi einnig runnið 300 milljónir í
sjálfseignarfélag sem haldi utan um
skíðasvæði og golfvöll.
Róbert nefnir að sumir hafi gagn-
rýnt að fjárfestar sem fóru fjárfest-
ingarleiðina séu að keppa við aðra á
markaði. En hann bendir á að á
Siglufirði „höfum við ekki verið að
keppa við neinn“ um fjárfestingar.
„Það er alveg ljóst í mínu tilfelli að
fjárfestingarleiðin hefur gefið tæki-
færi til að fara mýkri leiðir í fjárfest-
ingum,“ segir hann og útskýrir að
það þýði, að hann þurfi þá ekki að
gera jafn mikla arðsemiskröfu.
Róbert með 500 milljónir í
gegnum fjárfestingarleiðina
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Róbert Guðfinnsson hefur
staðið fyrir viðamikilli upp-
byggingu á Siglufirði. Það
sé „mjög ólíklegt“ að hann
hefði ráðist í þessa upp-
byggingu ef ekki væri fyrir
fjárfestingarleiðina.
Morgunblaðið/Ómar
Róbert Guðfinnsson hefur til að mynda staðið fyrir því að gæða byggingar í miðbæ Siglufjarðar nýju lífi.
BANKAR
Hrein ný útlán til heimila og fyr-
irtækja að frádregnum upp-
greiðslum og umframgreiðslum
námu 40,4 milljörðum króna í apr-
ílmánuði. Það er um helmingi hærri
fjárhæð en á öllum fyrsta fjórðungi
ársins. Þetta kemur fram í nýjum
tölum frá Seðlabanka Íslands um út-
lán í bankakerfinu. Það vekur eft-
irtekt að gengistryggð lán voru tæp-
lega helmingur hreinna nýrra
útlána, eða 17,7 milljarðar í apríl.
Samtals námu ný útlán í mán-
uðinum 159,8 milljörðum króna sem
er ríflega 50 milljarða króna aukning
frá marsmánuði. Verðtryggð lán
voru 36 milljarðar, óverðtryggð lán
71,8 milljarðar, gengisbundin lán 47
milljarðar og eignarleigusamningar
5 milljarðar.
Sé aðeins litið til heimila þá voru
ný útlán um 13,5 milljarðar. Ef tekið
er tillit til upp- og umframgreiðslna
þá námu útlánin 4,2 milljörðum, þar
af 2,5 milljarðar í óverðtryggðum
lánum.
Ný lán 160
milljarðar
Morgunblaðið/Golli
Hrein ný útlán til fyrirtækja í apríl
námu 36 milljörðum króna.
EFNAHAGSMÁL
Vísitala neysluverðs miðuð við
verðlag í maímánuði hækkaði um
0,07% frá fyrra mánuði. Tólf mánaða
verðbólga mælist því 2,4% en var
2,3% í apríl.
Þetta kemur fram í nýjum hag-
tölum frá Hagstofu Íslands. Án hús-
næðis lækkaði vísitala neysluverðs
um 0,08%. Síðustu tólf mánuði hefur
vísitalan án húsnæðis hækkað um
1,1%.
Flugfargjöld höfðu mest áhrif til
lækkunar vísitölu neysluverðs í maí-
mánuði en þau lækkuðu um 8,1%.
Kostnaður vegna búsetu í eigin hús-
næði hækkaði hins vegar um 0,9%.
Verðbólgan eykst
lítillega í maímánuði
Morgunblaðið/Ernir
Flugfargjöld lækkuðu um 8,1% í maí
frá fyrra mánuði að mati Hagstofu.
Ólafur Jóhannsson
Rekstrarfræðingur
Löggiltur leigumiðlari
Löggiltur fasteignasali
534 1023 / 824 6703
olafur@jofur.is
534 1020
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
Allar nánari upplýsingar veitir:
TIL LEIGU
Laugavegur 77, 101 Reykjavík
Verðmætageymslur fyrir skjöl,
listmuni eða gagnaver
Til leigu 284 fm. rými með þremur rammgerðum og rúmgóð-
um hvelfingum. Hýsti áður bankahólf og listaverkasafn
Landsbankans. Gott aðgengi bæði frá bílastæði norðan
megin og í gegnum aðgangsstýrða lyftu úr anddyri hússins.
Ágæt aðstaða fyrir starfsmenn. Hentar prýðilega sem
listaverka- og skjalageymsla. Gæti verið aðstaða fyrir
gagnaver þar sem tveir ljósleiðarar eru inn í húsið og ágætar
rafmagnstengingar. Húsið er að öðru leyti fullútleigt.