Morgunblaðið - 29.05.2014, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 29.05.2014, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014SJÁVARÚTVEGUR J A N Ú A R Kynntu þér kosti Flotaleigunnar og fáðu allar nánari upplýsingar á lysing.is Lýsing hf. Ármúla 1 108 Reykjavík Sími 540 1500 lysing.is lysing@lysing.is Viltu skipta um gír á markaðnum? Með Flotaleigu Lýsingar geturðu lágmarkað kostnað við rekstur bílaflota fyrirtækisins Bílafloti er stór kostnaðarliður í rekstri margra íslenskra fyrirtækja. Flotaleiga Lýsingar er nýr kostur ámarkaðnum sem gerir fyrirtækjum kleift að leigja bílaflota í stað þess að kaupa. Þannig má auka hagkvæmni, halda ófyrirséðum kostnaði í algjöru lágmarki og gera allar fjárhagsáætlanir fyrirtækisins áreiðanlegri. KLASASAMSTARF Stækkun skrifstofurýmis Húss Sjávarklasans, sem tekið var í notk- un í janúar, er nú fullnýtt. Í húsinu starfa tæplega 40 fyrirtæki af mörg- um stærðum og gerðum. Eva Rún Michelsen, framkvæmdastjóri Húss Sjávarklasans, segir í tilkynningu að útleiga sé komin vel á veg í þriðja stækkunarfasanum, en hann verður tekinn í notkun í október. Hús Sjávar- klasans stækkar í október Þorski landað á Íslandi 2013 2014 Heimild: Marko Partners Vika 1 Vika 21 120.000 100.000 80.000 60.000 40.000 20.000 0 107.209 1.821 109.099 709 Þorski landað í Noregi 2013 2014 Heimild: Marko Partners Vika 3 Vika 20 350.000 300.000 250.000 200.000 150.000 100.000 50.000 0 278.695 31.743 305.690 21.485 Verðhækkanir á ufsa og ýsu í Noregi gætu gefið vísbendingar um hækk- anir á íslenskum fiski á næstunni, að sögn Jóns Þránd- ar Stefánssonar, forstöðumanns greiningardeildar Markó Partners. Norsku fisksölu- samtökin Råfisklaget hækkuðu lág- marksverð á ufsa og ýsu um 4-8% þann 5. maí en lágmarksverð á þorski var óbreytt. Jón Þrándur segir að lágmarks- verð á Íslandi og í Noregi sé ekki ákvarðað með sama hætti. Munurinn felist í því að verðlagsstofuverð á Ís- landi sé verð sem notað er í uppgjöri á aflahlut sjómanna í beinum við- skiptum og sé í raun einhvers konar samningur á milli útgerðarmanna og sjómanna um hvert verðið eigi að vera við ákvörðun á kaupum og kjör- um. Aftur á móti sé norska verðið lág- marksverð á markaði. Í Noregi sé út- gerð og fiskvinnsla aðskilinn rekstur, en sú starfsemi sé á sömu hendi hjá stærstu íslensku útgerðunum. Noregur atkvæðamikill Hann segir að verðið í Noregi geti haft áhrif á heimsmarkaðsverð vegna þess að um sé að ræða eina um- svifamestu fiskveiðiþjóð í heimi. Þar sé landað um þriðjungi af öllum þorski í heiminum. Samanlagt ráða Rússar og Norðmenn yfir næstum 70% af kvót- anum. Íslenskur þorskkvóti sé um 40% af hinum norska. Auk þess sé norski ýsukvótinn næstum þrisvar sinnum meiri en hinn íslenski. Jón Þrándur segir að markaðurinn sé alla jafna fljótur að bregðast við lækkunum hjá norsku sölusamtök- unum. „En hann er ef til vill ekki jafn snöggur að hækka verð og samtökin. Samt sem áður er fylgni á milli lág- marksverðs hjá Råfisklaget og heimsmarkaðsverðs,“ segir Jón Þrándur. Seinni hluta ársins 2012 ákváðu samtökin að lækka verðið um 25% eftir mikla framboðsaukningu í Bar- entshafi. Það hratt af stað verðlækk- unum, sem náðu meðal annars til ís- lensks þrosks. Verð á þroski hefur verið lágt frá síðari hluta 2012 og lengst af á árinu 2013. Nú virðist markaðurinn vera að „hressast“ og nú horfir svo við „að við gætum farið að sjá fram á einhverjar verðhækkanir“. Norsku sölusamtökin Råfisklaget hafa samkvæmt lögum, að grunni til frá 1938, einkarétt á að selja fisk sem landað er á því svæði í Noregi þar sem fiski er einna helst landað. Þau ákvarða því að miklu leyti verðið þar í landi. Markó Partners veitir fjármála- ráðgjöf til sjávarútvegsfyrirtækja og gefur út með reglulegu millibili Sea- food Intelligence Report sem inni- heldur greiningu á ýmsu er varðar framboð og eftirspurn á hvítfiski. Hækkanir á lágmarks fiskverði í Noregi gætu siglt til Íslands Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Fylgni er á milli lágmarks- verðs á fiski hjá norsku sölusamtökunum Råfisklaget og heims- markaðsverðs, segir sér- fræðingur. Morgunblaðið/Ómar Hugmyndafræðin um lágmarksverð á fiski í Noregi og á Íslandi er ekki sú sama. Á Íslandi er það notað við uppgjör á aflahlut sjómanna. Lágmarksverð á fiski í Noregi Lágmarksverð fyrir ýsu í norskum krónum Línuv. ýsa yfir 0,8 kg 11,5 4% Togarav. ýsa yfir 0,8 kg 9,25 5% Undir 0,8 kg 6,5 8% Lágmarksverð fyrir ufsa í norskum krónum Yfir 2,3 kg 9,5 5% Á milli 1,2 - 2,3 kg 8 6% Undir 1,2 kg 6 8% Jón Þrándur Stefánsson ÞRÓUN KORTLÖGÐ SKIPAHÖNNUN Skipaverkfræðistofan Navis hef- ur samið við franska útgerð um hönnun á rúmlega 100 metra frysti- togara. Þetta er líklega í fyrsta skipti sem íslenskir skipahönnuðir koma að svo stóru erlendu verkefni frá byrjunarstigi „Verkefnið er nokkuð umfangs- mikið á íslenskan mælikvarða,“ seg- ir Hjörtur Emilsson, framkvæmda- stjóri Navis, í tilkynningu og nefnir að rúmlega helmingur fyrirtækisins sé nú helgaður þessu tiltekna verk- efni. Navis sér um fyrirkomulagsteikn- ingar á skipinu, kerfisteikningar, klassateikningar og stálteikningar. Þar að auki er franska útgerðin í viðræðum við íslensk fyrirtæki um smíði vinnslubúnaðar í skipinu. Navis er stærsta skipahönnunar- og ráðgjafarfyrirtæki landsins, en þar starfa ellefu tækni- og verk- fræðingar. Fyrirtækið var stofnað árið 2003, en stærstur hluti tekna kemur frá útlöndum. „Þetta er mjög sérhæft skip og krefst því mikillar hönnunarvinnu. Skipið verður gert út frá Frakk- landi af útgerð sem tengist Sam- herja, en það verður helming ársins að vinna surimi úr kolmunna og hinn helminginn að vinna flök út bolfiski,“ segir Hjörtur. Hann segir að verkefni sem þetta sé mikilvæg hliðarafurð erlendra umsvifa ís- lensku útgerðarfyrirtækjanna. Íslensk tæknifyrirtæki á sviði sjávarútvegs hafa vaxið um 10-15% á ári síðastliðin ár, samkvæmt greiningum Íslenska sjávarklasans. Samanlögð ársvelta þeirra nemur um 70 milljörðum króna um þessar mundir. Hanna 100 metra franskan frystitogara Ljósmyndari/Lárus Karl Ingason Hjá Navis, stærsta skipahönnunarfyrirtæki landsins, starfa ellefu tækni- og verkfræðingar. Helmingur fyrirtækisins sinnir verkefninu í Frakklandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.