Morgunblaðið - 29.05.2014, Side 12
Byltingarkennd lækkun
á farsímakostnaði
í USA og Kanada
Vafraðu um netið í Bandaríkjunum og Kanada fyrir 99% lægra gjald
og hringdu eða sendu SMS á mun hagstæðara verði. Móttekin símtöl
eru 0 kr. og einungis 990 kr. daggjald.
Skráðu þig núna í Vodafone USA Traveller með
því að senda sms-ið „USA“ í 1414.
Vodafone
Góð samskipti bæta lífið
reynt að halda því fram að við höfum fengið félagið nánast gef-
ins“. Hún bendir meðal annars á í því samhengi að Skeljungur
hafi þurft að taka á sig umtalsvert meiri skuldir en um var samið
vegna þess að Íslandsbanki taldi lóðir í Örfirisey, þar sem olíu-
tankar Skeljungs standa, ekki lengur vera „söluvænlega“ eign.
Í tölvupóstsamskiptum Svanhildar og starfsmanns fyr-
irtækjaráðgjafar bankans þann 11. febrúar 2009, sem Morgun-
blaðið hefur undir höndum, segir hún að „verið [sé] að setja meiri
skuldir á okkur þar sem þið verðmetið Örfirisey lægri í dag en
þegar þið gerðuð samninginn. Mér finnst frekar ósanngjarnt að
það eigi allt að lenda á okkur.“ Starfsmaður Íslandsbanka svarar
því til að hann geti „ekki bent á margt í viðskiptum með eign-
arhald Skeljungs síðastliðið 1,5 ár sem ég tel sanngjarnt. Þetta
kann að hljóma kaldlynt, en þannig er það í dag að bankakerfið á
Íslandi er ekki sanngjarnt.“
Þáttaskil með ráðningu Einars
Með ráðningunni á Einar Erni, nokkrum mánuðum síðar, urðu
hins vegar þáttaskil í samskiptum þeirra við Íslandsbanka, að
sögn Svanhildar. Hún lýsir aðdraganda ráðningarinnar þannig:
„Á þessum tíma sátu tveir fulltrúar Íslandsbanka í stjórn Skelj-
ungs, Ríkharð Ottó Ríkharðsson og Hörður Felix Harðarson, og
þar var rætt um áform okkar að vilja ráða nýjan forstjóra til
félagsins. Nafn Einars kom þó aldrei þar til umræðu – og við leit-
uðum til annarra aðila til að byrja með um að taka að sér starfið.
Í aprílmánuði sendi ég því tölvupóst til Einars, á persónulegt
netfang hans, þar sem opnað er á þennan möguleika í fyrsta
skipti og settar fram hugmyndir að launakjörum. Strax morg-
uninn eftir, áður en hann hefur haft færi á því að svara tölvupóst-
inum, er hann kallaður inn á skrifstofu Birnu Einarsdóttur
bankastjóra þar sem hún segist hafa haft af þessu spurnir – en á
þessum tíma höfðu þetta aðeins verið samskipti okkar á milli í
tölvupósti og engin ákvörðun verið tekin um að ráða hann sem
forstjóra.“ Í kjölfarið er Einari umsvifalaust sagt upp störfum og
hefur Íslandsbanki sagt ástæðuna vera „trúnaðarbrest“.
Með sölu á olíufélaginu Skeljungi í upphafi þessa árs lauk fimm
ára eignarhaldi hjónanna Svanhildar Nönnu Vigfúsdóttur og
Guðmundar Arnar Þórðarsonar á félaginu. Óhætt er að segja að
kaup þeirra á Skeljungi af Glitni – og síðar Íslandsbanka – séu
ein umtöluðustu viðskipti eftirhrunsáranna. Ráðning Einars
Arnar Ólafssonar sem forstjóra Skeljungs í maí 2009 átti eftir að
hafa mikil eftirmál fyrir öll samskipti eigenda Skeljungs við Ís-
landsbanka en hann hafði sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaráð-
gjafar bankans haft umsjón með söluferli félagsins sumarið áður.
„Frá þeirri stundu ákvað Íslandsbanki að við yrðum óvinir við-
skiptabankans okkar,“ segir Svanhildur. Í ítarlegu viðtali við
Morgunblaðið segja þau frá þeim átökum sem áttu sér stað bak-
við tjöldin – en sem viðskiptabanki Skeljungs og veðhafi í félag-
inu vegna seljendaláns sem bankinn veitti hjónunum við kaupin í
ágúst 2008 var Íslandsbanki með talsverð ítök í Skeljungi.
Þótt fyrir liggi að þau hafi hagnast umtalsvert á nýafstaðinni
sölu Skeljungs, þau segjast „mjög sátt“ en vilja ekki nefna neinar
upphæðir, þá rifja þau upp að staða þess hafi verið allt annað en
góð þegar þau keyptu 51% hlut fyrir um þrjá milljarða. „Þegar
við fáum félagið afhent í ársbyrjun 2009 er það með um 10 millj-
örðum hærri nettó vaxtaberandi skuldir á bakinu heldur en um
var samið. Það er engum blöðum um það að fletta að Skeljungur
var í raun gjaldþrota á þessum tíma,“ segir Svanhildur.
„Bankakerfið ekki sanngjarnt“
Í framhaldinu taka við um níu mánuðir þar sem eigendur
Skeljungs eiga í viðræðum við Íslandsbanka um að skuldirnar
verði lækkaðar til samræmis við kaupsamkomulagið við Glitni.
Það gengur ekki eftir. „Við höldum því fram að það sé ekki búið
að afhenda okkur fyrirtækið eins og um hafði verið samið. Bank-
inn viðurkennir það að hluta til – nettóskuldirnar verða að lokum
5 milljörðum hærri – en stendur fast á því að hann muni ekki
ganga alla leið. Værum við ósátt við það þá sagði bankinn okkur
að fara í málaferli,“ segir Guðmundur.
Svanhildur nefnir sérstaklega að í „öllu þessu ferli hafi enginn
„Urðum óvinir
viðskipta-
bankans okkar“
Hörður Ægisson hordur@mbl.is
Eftir fimm ára eignarhald seldu hjónin Svanhildur og Guðmundur Skeljung og hleypur hagnaður
þeirra af einum umtöluðustu viðskiptum síðustu ára á milljörðum. Í viðtali við Morgunblaðið segja
þau frá „fjandsamlegum“ samskiptum við Íslandsbanka þar sem reynt var að fá þau til að gang-
ast undir samkomulag um að „leppa“ hlut bankans í Skeljungi – og um leið brjóta samkeppnislög.
Með ráðningu á Einar Erni
sem forstjóra Skeljungs
segja hjónin Guðmundur og
Svanhildur að umskipti hafi
orðið í öllum samskiptum
þeirra við Íslandsbanka.
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014VIÐTAL