Morgunblaðið - 28.06.2014, Síða 1
L A U G A R D A G U R 2 8. J Ú N Í 2 0 1 4
Stofnað 1913 150. tölublað 102. árgangur
TEKUR
MYNDIR Á
VOTPLÖTUR
LEITAR AÐ
LJÓSGLÆTU Í
SORGINNI
KÆRLEIKSDISKUR LABBA 46MEÐ AUGUM FORTÍÐAR 10
Nú þegar Rússar eru farnir að
gera sig gildandi á nýjan leik hef-
ur þeim fjölgað sem óttast að hin-
ar nýju áherslur sem NATO hefur
haft eftir fall Sovétríkjanna hafi
dregið tennurnar úr bandalaginu,
en verkefni sambandsins breyttu
um eðli eftir kalda stríðið og urðu
borgaralegri en fyrr. Bjartsýni um
þróun alþjóðamála ríkti, og mörg
aðildarríkjanna drógu úr vígbún-
aði sínum. Spurningin nú er því
hvort bandalagið muni duga ef á
reynir. »24
Skortir NATO trú-
verðugleikann?
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Áætla má að ákvarðanir HB Granda
um fjárfestingar í ár og á síðustu ár-
um nemi yfir 15 milljörðum. Auk
þess hefur fyrirtækið greitt niður
skuldir fyrir svipaða upphæð á síð-
ustu fimm árum. Vilhjálmur Vil-
hjálmsson, forstjóri HB Granda,
segir að nú sé góður tími fyrir félagið
til fjárfestinga. Nýlega var ákveðið
að ganga til samninga við tyrkneska
skipasmíðastöð um smíði á þremur
ísfisktogurum og eru þeir væntan-
legir 2016-17. Á næsta ári koma tvö
uppsjávarskip til HB Granda frá
sömu stöð. Áætlaður kostnaður við
smíðarnar er 14 milljarðar. Vilhjálm-
ur segir að verkefnaþurrð hafi verið
víða í skipasmíðaiðnaði síðustu ár.
Með nýju skipunum batni aðbúnaður
áhafnar og vinnuaðstaða, sem leiði til
betri afurðar. Orkunýting verði betri
og umhverfisáhrif minni.
Fyrirtækið hefur jafnframt endur-
nýjað búnað og byggt upp nýjar ein-
ingar í starfsstöðvunum á Akranesi,
Vopnafirði og í Reykjavík og keypt
fyrirtæki í tengdum rekstri. »16
Fjárfest fyrir 15 milljarða
Samningar um smíði fimm skipa fyrir HB Granda í Tyrk-
landi Skuldir greiddar niður Breytingar á starfsstöðvum
Morgunblaðið/Einar Falur
Hreiður Hvorki má selja egg frið-
aðra né ófriðaðra fugla úr landi.
Júlía Margrét Alexandersdóttir
julia@mbl.is
„Það er búið að benda okkur á eggja-
söluna og við erum með málið í skoð-
un. Fyrst var okkur bent á síðuna en
síðan var maður staðinn að verki í vot-
lendinu fyrir ofan Eyrarbakka, í frið-
lendinu þar, þar sem hann var að tína
egg ofan í bakpoka. Þá var farið í hús-
leit heim til hans og fundust þar fleiri
egg,“ segir Elís Kjartansson, lög-
reglufulltrúi hjá lögreglunni á Sel-
fossi, sem er með eggjasölu á eBay
inni á sínu borði. Samkvæmt lögum er
bannað að flytja fugla, egg, eggja-
skurn og hreiður úr landi nema með
undanþágu frá Umhverfis-
ráðuneytinu en bannið tekur þó
hvorki til rjúpna né alifugla.
Í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins
er fjallað um löglegar og ólöglegar söl-
ur á eBay sem tengjast Íslandi. Núna
er þar til sölu verk sem eignað er Þór-
arni B. Þorlákssyni og er það verðlagt
á um 3 milljónir. Ólafur Ingi Jónsson,
deildarstjóri forvörsludeildar Lista-
safns Íslands, segir ekkert benda til
þess að verkið sé eftir Þórarin, bæði
handbragð þess og stærð séu úr öllu
samhengi miðað við önnur verk hans.
Vafasöm egg og málverk á eBay
Lundaegg selt á eBay fyrir 17.000
krónur Falsað listaverk á 3 milljónir
Sólheimajökull er vinsæll áfangastaður ævintýragjarnra ferða-
manna. „Jökullinn verður vinsælli með hverju árinu. Náttúru-
fegurðin er mikil og mörg undur er að finna á jöklinum. Þessi
veröld er fjölbreytileg og vekur forvitni margra,“ segir Bene-
Sólheimajökull hefur verið vinsælt rannsóknarefni jarð- og
jöklafræðinga og fylgst er grannt með hreyfingum hans. Bene-
dikt segir að varasamt sé að fara á jökulinn án viðeigandi bún-
aðar, hann sé mjög hreyfanlegur og áhrifagjarn fyrir veðrum.
dikt Bragason, leiðsögumaður á Sólheimajökli.
Sólheimajökull er skriðjökull sem skríður úr Mýrdalsjökli og
er þakinn sprungum, hryggjum, jökuldrýlum og svelgjum.
Jökullinn hopar sífellt og breytist því ásýnd hans frá ári til árs.
„Þessi veröld er fjölbreytileg og vekur forvitni margra“
Morgunblaðið/RAX
Hluthöfum fjögurra af
þeim sjö félögum sem
skráð voru í Kauphöll Ís-
lands frá hruni bankanna
til ársloka 2013 fækk-
aði um 21%–26% á
fyrsta viðskiptadegi
eftir skráningu. Um
er að ræða hlutafjár-
útboð Haga, VÍS, TM og N1.
Þetta kemur fram í nýrri MS-
ritgerð Svövu Hildar Steinars-
dóttur í fjármálum fyrirtækja
frá Háskóla Íslands.
Páll Harðarson, forstjóri
Kauphallarinnar, segir æski-
legt að byggð verði upp hlut-
hafamenning þannig að
langtímasjónarmið verði
ráðandi í fjárfestingum.
Það eigi alls ekki að vera
lögmál að hluthöfum
fækki á fyrstu vikum eftir
skráningu.
Hluthöfum TM fækkaði sér-
staklega mikið í kjölfar hlutafjár-
útboðs félagsins í apríl í fyrra, um
43% á einum mánuði. »20
Greina spákaupmennsku í fjórum
hlutafjárútboðum frá hruni til 2013