Morgunblaðið - 28.06.2014, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.06.2014, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2014 STUTTAR FRÉTTIR ● Lánshæfismat Kópavogsbæjar hækkar um tvo flokka í nýju mati Reit- unar á lánshæfi bæjarins. Matið hækkar í i.A2 úr i.BBB1. Í fréttatilkynningu segir að þessi hækkun sé tilkomin vegna minni áhættu sveitarfélagsins, sterkari efnahags þess og jákvæðra horfa í efnahagsmálum. Gangi áætlanir og væntingar sveitar- félagsins eftir ætti lánshæfi Kópavogs- bæjar að geta styrkst enn frekar, að því er segir í matinu. Þar kemur jafnframt fram að gengisáhætta sé nú hverfandi eftir uppgreiðslu nánast allra gengis- bundinna lána sveitarfélagsins. Reitun hækkar lánshæf- ismat Kópavogsbæjar ● Handbært fé frá rekstri ríkissjóðs var jákvætt um 18,2 milljarða króna fyrir fyrstu fimm mánuði ársins. Það er 31,4 milljarða króna bati frá sama tímabili í fyrra, þegar handbært fé var neikvætt um 13,2 milljarða. Innheimtar tekjur hækkuðu um 43,6 milljarða milli ára en greidd gjöld jukust um 12,9 milljarða á sama tíma. Þetta kemur fram í greiðsluuppgjöri ríkis- sjóðs, en það gefur upplýsingar um af- komu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. Greiðsluafkoma ríkis- sjóðs batnar Páll Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands, vildi ekki tjá sig um niður- fellingar áskrifta upp á um 774 millj- ónir króna í hlutafjárútboði HB Granda í apríl þegar eftir því var leit- að. Áskriftirnar voru ekki greiddar af hálfu tilboðsgjafa, en útboðið var í umsjón Arion banka. Útboðsgengi var 27,7 krónur á hlut og stóð gengið nánast í stað á fyrsta viðskiptadegi eftir skráningu bréfanna á aðallista Kauphallarinnar. Tilboð í 5,7% hlutafjár í HB Granda voru ekki greidd á eindaga og felldi bankinn kröfur á viðkomandi fjárfesta niður. Stærsti hlutinn var vegna ógreiddra áskrifta í B-bók út- boðsins, sem ætluð var fagfjárfestum. Í lýsingu útboðsins var tekið fram að allar áskriftir væru bindandi og að fjárfestar hefðu hvorki haft rétt til að afturkalla né breyta áskriftum. Í svari Haraldar Guðna Eiðs- sonar, forstöðumanns samskipta- sviðs Arion banka, við fyrirspurn Viðskiptablaðsins kom fram að það hefði haft lítil eða engin áhrif á endanlegt útboðsgengi ef áskriftun- um hefði verið eytt áður en úthlutað var í útboðinu. kij@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Kauphöll Sumir fjárfestar greiddu ekki bindandi tilboð í útboði HB Granda. Áskriftir í útboði felldar niður  Forstjóri Kauphallar vill ekki tjá sig FRÉTTASKÝRING Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Í kjölfar hlutafjárútboða fjögurra af þeim sjö félögum sem skráð voru í Kauphöll Íslands frá hruni bankanna til ársloka 2013 fækkaði hluthöfum um 21%–26% á fyrsta viðskiptadegi. Um er að ræða hlutafjárútboð versl- unarfyrirtækisins Haga, trygginga- félaganna VÍS og TM og loks elds- neytisfélagsins N1. Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, segir æskilegt að byggð verði upp hluthafamenning þannig að langtímasjónarmið verði ráðandi í fjárfestingum. Það eigi alls ekki að vera lögmál að hluthöfum fækki á fyrstu vikum í viðskiptum. Í nýrri MS-ritgerð Svövu Hildar Steinarsdóttur í fjármálum fyrir- tækja frá Háskóla Íslands kemur fram að viðskipti með hlutabréf í ofangreindum fjórum félögum hafi verið mun meiri á fyrsta viðskipta- degi en með hlutabréf hinna félag- anna. Alls hafi veltan verið á bilinu 529 til 1.464 milljónir króna. Mest var veltan með hlutabréf VÍS en minnst með bréf Fjarskipta (Vodafone). Í ritgerðinni lagði Svava Hildur mat á það hvort hægt væri að greina spákaupmennskuhegðun, eins og hún orðar það, í hlutafjárútboðum á ár- unum 2011 til 2013. Það var gert með því að meta þróun á fjölda hluthafa frá skráningardegi. Páll segir að yfirleitt taki einhverj- ir þátt í útboðum með það í huga að selja og innleysa hagnað við fyrsta tækifæri, þó svo að flestir hafi hug á að halda hlutabréfum sínum til lengri tíma. „Því er ekki að leyna að ekki má búast við því að allir fjárfesti á sömu forsendum. Það getur líka verið styrkleiki að fólk nálgist markaðinn frá mismunandi sjónarhornum. En okkur finnst æskilegt að hluthafa- menningin sé þess eðlis að fólk hafi langtímasjónarmið að leiðarljósi,“ segir hann í samtali við Morgunblað- ið. „Við höfum tekið eftir aukinni þátttöku í útboðunum og reiknum með, þegar langtímaþróun í hlut- hafafjöldanum verður skoðuð að nokkrum árum liðnum, að hluthöfum muni fjölga. En okkur þykir það svo sannarlega ekki vera lögmál að hlut- höfum fækki eftir útboðin, nema síð- ur sé.“ Páll segir jafnframt að svokallaðar kennitölusafnanir geti að hluta til skýrt þessa miklu fækkun hluthafa á fyrstu vikum viðskipta. Í hlutafjár- útboðum hefur borið á því að fjár- festar skrái sig fyrir kaupum á hlut á nokkrar mismunandi kennitölur. Hömlur eru á því hve marga hluti einstakir fjárfestar geta keypt í út- boðum, sér í lagi eftir því sem umframeftirspurnin er meiri, og því hefur borið á því að bréf séu keypt á kennitölum vina og vandamanna. Hluthöfum TM fækkaði mjög Athygli vekur að hluthöfum TM fækkaði sérstaklega mikið í kjölfar hlutafjárútboðs félagsins í apríl í fyrra. Um sjö þúsund manns skráðu sig fyrir bréfum í félaginu en eftir fyrsta viðskiptadag voru hluthafarn- ir orðnir 5.182 talsins. Í lok árs 2013 voru þeir síðan 2.397 talsins. Yfir áttatíuföld umframeftirspurn var eftir bréfum TM í útboðinu og voru dæmi um að fjárfestar skráðu sig fyrir miklu hærri fjárhæðum en þeir voru borgunarmenn fyrir, eins og Morgunblaðið greindi frá. Svava Hildur skoðaði einnig hvort hægt væri að sjá greinanlegan út- boðsafslátt við skráningu félaga. Út- boðsafsláttur er munur á útboðs- gengi félags og gengi þess í lok fyrsta viðskiptadags. Í ljós kom að slíkur afsláttur var veittur í öllum út- boðunum nema í útboði Regins. Að meðaltali nam afslátturinn 13,38% hjá félögunum sjö, en Svava Hildur bendir á að það sé nokkuð minni afsláttur en tíðkast hafi í öðr- um löndum. Mestur var afslátturinn í tilviki TM. Útboðsgengi var 20,10 krónur á hlut en gengi í lok fyrsta viðskiptadags var 26,7 krónur á hlut. Afslátturinn var því 32,84%. Seðlabanki Íslands hefur bent á að útboðsafslátturinn hafi farið þverr- andi og að það sé til marks um minnkandi óvissu á hlutabréfa- markaði. Skýr merki um spákaup- mennsku í fjórum útboðum  Hluthöfum fjögurra félaga fækkaði á bilinu 21-26% á fyrsta degi eftir skráningu Breyting á fjölda hluthafa eftir fyrsta viðskiptadag á markaði 20% 15% 10% 5% 0% -5% -10% -15% -20% -25% -30% -8,50% 13,17% 3,76% 6,20% -21,20% -25,97% -23,40% Hagar hf. Reginn hf. Eimskip hf. VÍS hf. TM hf. N1 hf. Fjarskipti hf. Spákaupmennska » Í ritgerðinni reynir Svava Hildur að greina spákaup- mennskuhegðun fjárfesta í hlutafjárútboðum. » Það er skilgreint sem hegð- un fjárfesta sem taka þátt í út- boðunum en selja bréf sín á fyrsta viðskiptadegi. » Hún segir að þegar litið sé til fjárfestinga einstaklinga gæti slík hegðun falið í sér kaup á hlutabréfum með von um skjótan gróða án þess að farið sé í greiningu á viðkom- andi félagi og án greinargóðrar þekkingar á fjárfestingunni.                                      ! "!# $ $% $"" "#$ "" #%% % # &'()* (+(    ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 ! "%" !%# "!"$ $  #" " $   #   %$%  " !!" "!$$ $ $% ## "$ # #%! % "$ "!!! Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.