Morgunblaðið - 28.06.2014, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2014
Nánari upplýsingar á www.heilsa.is
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum
Oft er talað umMagnesíum sem„anti –stress“ steinefni
því það róar taugarnar og hjálpar okkur að slaka á. Magnesíum stjórnar og virkir um
300 ensím sem gegna mikilvægum hlutverkum í eðlilegri virkni líkamans. Það er
nauðsynlegt fyrir frumumyndun, efnaskipti og til að koma á jafnvægi á kalkmyndun
líkamans og fyrir heilbrigða hjartastarfsemi. Magnesíum er líka afar hjálplegt við
fótaóeirð út af vöðvaslakandi eiginleikum þess. Mjög gott er að taka magnesíum í
vökvaformi fyrir svefn til að ná góðri slökun og vakna úthvíldur.
Magnesium vökvi
• Til að auka gæði svefns
• Til slökunar og afstressunar
• Hröð upptaka í líkamanum
• Gott til að halda
vöðvunummjúkum
Virkar strax
Fyrirtæki og verslanir
Sumarleikföng í úrvali
www.danco.is
Heildsöludreifing
Fötur
Sápukúlur
Boltar
45cm boltar
Flottir á trampólín
Vatnsbyssur
YooHoo
Kútar
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Írak hefur undanfarið þurft að þola uppreisnir og
hörð átök í kjölfar þeirra. Margir óttast að Afgan-
istan muni feta sömu slóð þegar herlið NATO fer
þaðan. Leiðtogi herliðs Breta í Afganistan, John
Lorimer, telur þó að aðstæður í löndunum tveimur
séu öldungis ólíkar. Segist hann fullviss um að
landið verði áfram öruggt eftir að alþjóðlegt herlið
fari þaðan, þar sem öryggissveitir Afgana séu bet-
ur vopnum búnar og þjálfaðar til að eiga við upp-
reisnarmenn.
„Ég held að það sé ekki gagnlegt að bera saman
ástandið í Írak og Afganistan,“ segir Lorimer.
„Aðstæðurnar eru alls ekki þær sömu. Það er
mikilvægt að hafa í huga að í Afganistan er ríkur
vilji til þess að hafa alþjóðlegt herlið áfram í land-
inu, til að halda áfram að þjálfa innlendar öryggis-
sveitir,“ bætir hann við.
Ýmissa úrbóta þörf hjá öryggissveitunum
Hann segir að herlið Afgana hafi staðið sig vel
við að tryggja öryggi í aðdraganda forsetakosn-
inganna sem haldnar voru 14. júní síðastliðinn.
„Það er ýmislegt sem þarf að bæta en þeir vita
sjálfir af því og við erum að vinna saman að því að
fylla í eyðurnar,“ segir Lorimer.
Alþjóðasamfélagið hefur skuldbundið sig til að
styrkja stjórnvöld í Afganistan um átta milljarða
Bandaríkjadala á ári til ársins 2017 til að tryggja
öryggi í landinu til frambúðar. Barack Obama
Bandaríkjaforseti tilkynnti hinn 27. maí síðast-
liðinn að hernaðaraðgerðum Bandaríkjamanna
myndi ljúka í desember. Tíu þúsund hermenn
verða þá eftir í landinu.
Óttast ný átök í Afganistan
Styttist í að alþjóðlegt herlið yfirgefi landið Öryggissveitir betur búnar en í
Írak Átta milljarðar dala renna á hverju ári í landið til uppbyggingar
AFP
Olía á eldinn Pakistanskur hermaður kveikir í eiturlyfjum sem voru gerð upptæk á landamærum rík-
isins. Afganistan er stærsti ópíumframleiðandi heims og fer nærri helmingur þess um Pakistan.
Breytingartillaga
sem fylgir nýju
fjárlaga-
frumvarpi
Virginíuríkis í
Bandaríkjunum
leggur til að götu-
heiti kínverska
sendiráðsins í
höfuðborginni
Washington verði
breytt. Ef tillagan
fær samþykki mun sendiráðið standa
við Liu Xiaobo-torg, í höfuðið á
nóbelsverðlaunaskáldinu sem af-
plánar nú ellefu ára fangelsisdóm í
Kína.
Í tilkynningu frá kínverska utan-
ríkisráðuneytinu segir að tillagan að
breytingunni sé algjör farsi. „Banda-
ríkjamenn hafa notað svokölluð
mannréttindi og Xiaobo-málið til að
réttlæta þessa tilgangslausu breyt-
ingu,“ segir talsmaður ráðuneytisins.
Höfundar tillögunnar segja að
nafnbreytingin myndi senda skýr
skilaboð til umheimsins þess efnis að
Bandaríkin standi vörð um mann-
réttindi alls staðar í heiminum. Liu
Xiaobo hlaut nóbelsverðlaunin árið
2010, m.a. fyrir baráttu sína fyrir lýð-
ræði í Kína.
BANDARÍKIN
Nafnbreyting götu
til höfuðs Kínverjum
Minnismerki í
Washington
Leiðtogar aðildarríkja Evrópusam-
bandsins tilnefndu í gær Jean-
Claude Juncker, fyrrverandi for-
sætisráðherra Lúxemborgar, í emb-
ætti forseta framkvæmdastjórnar
ESB.
Tilnefningin er álitin mikið áfall
fyrir David Cameron, forsætis-
ráðherra Bretlands, sem hafði lagst
gegn henni vegna þess að hann telur
Juncker of hallan undir aukin pólit-
ískan samruna ESB-ríkja.
26 ríki af 28 samþykktu tilnefn-
inguna og aðeins Bretland og Ung-
verjaland greiddu atkvæði gegn
henni. Búist er við að Evrópuþingið
staðfesti hana.
Cameron sagði að leiðtogum ESB
hefðu orðið á mikil mistök með til-
nefningunni. „Þetta er slæmur dag-
ur fyrir Evrópusambandið,“ sagði
hann. „Þetta ferli hefur styrkt mig í
þeirri trú að nauðsynlegt sé að
breyta Evrópusambandinu.“
Leiðtogar ESB
tilnefna Juncker
Álitið áfall fyrir David Cameron
AFP
Verðandi forseti Jean-Claude Juncker (t.h.) ræðir við fréttamenn í Brussel.