Morgunblaðið - 28.06.2014, Page 31
sama tímanum kl. 20, afi var
nefnilega mjög vanafastur á tíma
og vildi hafa allt í föstum skorð-
um. Ég fór að syngja fyrir hann
og elskaði afi það, sérstaklega
þegar ég breytti textunum og
setti hann inn í þá. T.d „Sofðu
unga ástin mín“ varð „Sofðu ungi
afi minn“, það fannst honum frá-
bært. Við hlustuðum líka mikið á
tónlist. Söngur og tónlist er svo
gott fyrir Alzheimers-sjúklinga.
Afa fannst alltaf gaman þegar ég
hrósaði honum, sagði ég oft við
hann að hann væri bráðmynd-
arlegur og vel gefinn og þá hló
hann alltaf og var sammála mér.
Við föndruðum líka mikið,
bjuggum t.d. til báta, hatta,
blóm, froska og svani sem við
gerðum í alls konar litum. Einn
báturinn var blár og fannst afa
hann mjög sérstakur og kallaði
hann „Flakkarann“, þá skelltum
við bara höttunum á okkur og
fórum í sjóaraleik.
Þessi tími með afa er búinn að
vera ógleymanlegur og er ég
ótrúlega þakklát að hafa fengið
þennan tíma með honum og stytt
honum stundir í veikindum hans.
Get ekki lýst með orðum hversu
mikils virði afi var mér. Hann
var ekki bara afi minn heldur
líka besti vinur minn.
Veit þú fylgist með mér.
Elsku sterki og flotti afi minn,
takk fyrir allar góðu og ógleym-
anlegu stundirnar. Sakna þín
ótrúlega mikið. Veit það verður
tekið vel á móti þér. Þín
Þóra Regína.
Elsku afi okkar, Guðmundur,
lést sunnudaginn 15. júní sl.
Mikið söknum við hans. Afi hafði
alltaf tíma fyrir okkur og lét
okkur alltaf vita hversu mikils
virði við værum.
Elsku afi okkar, takk fyrir allt
það góða sem þú kenndir okkur
og allar stundirnar sem við átt-
um með þér.
Vitum að vel verður tekið á
móti þér.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þínir afastrákar,
Guðmundur Freyr
og Arnar Freyr.
Kær bróðir minn, Guðmundur
Freymóður Árnason, er látinn.
Guðmundur var 13 ára og Har-
aldur Reynir 12 ára þegar ég
fæddist. Foreldrar okkar voru
búsett á Ólafsfirði. Misstu sitt
fyrsta barn í fæðingu, dreng.
Síðan kom Guðmundur, þá
Reynir og Jóhanna Guðrún sem
deyr eins og hálfs árs. Og síðast
kem ég, en þá voru þau flutt til
Siglufjarðar.
Ég minnist Guðmundar á góð-
an og viðkvæman hátt. Hann var
ljúfur og góður bróðir en Reynir
var fjörkálfurinn. Guðmundur
hafði marga hæfileika og oft
mikið glens í gangi. Þeir áttu
mörg áhugamál. Höfðu gaman af
að dansa, syngja, spila og vera í
íþróttum. Fyrir utan tónlistina
og saxófón hjá Guðmundi. Einn-
ig átti hann grammófón sem ég
og Rósa frænka mín fengum að
trekkja og spila uppáhaldslagið
okkar. Guðmundur var knatt-
spyrnumaður og góður skíða-
maður og varð síðar Íslands-
meistari í skíðastökki og Reynir
í frjálsum og sýndi fimleika. Ég
var hreykin af bræðrum mínum
og fannst þeir fallegir og flottir.
Einnig voru þeir miklir veiði-
menn og berjatínslumenn. Guð-
mundur kenndi okkur ungling-
unum í skólanum að spila vist.
Þegar Guðmundur var svo farinn
að vinna á pósthúsinu á Sigló
fannst mér svo gaman að koma
til hans. Hann bauð mér alltaf
innfyrir að spjalla smá. Hann
fylgdist með hvernig mér gekk í
skólanum og hrósaði mér þegar
ég var dugleg. Hann sagði að
hann sæi hverjir færu vel með
peninga. Maður ætti að hafa þá
slétta í veskinu en ekki vöðla
þeim í vasann. Oft kom hann við
hjá okkur mömmu með eitthvað
gott með kaffinu. Hann kenndi
mér að borða hákarl, hákarls-
bitar ofan á seytt rúgbrauð var
toppurinn. Eftir að ég flutti suð-
ur fengum við oft pakka í póst-
inum sem lyktaði vel, reyktur
lax, og ég átti að ná í pakkann í
hvelli.
Ég ólst upp í pólitískri um-
ræðu. Mamma var mjög pólitísk
og Guðmundur var formaður
ungra jafnaðarmanna um tíma.
Þannig að ef ég þurfti á aðstoð
að halda um að taka ákvörðun
um ýmis málefni hringdi ég í
Guðmund og hann ráðlagði mér.
Ekki samt endilega um pólitík.
Ég hafði alltaf teiknað mikið
með blýanti og þegar ég teiknaði
mína fyrstu pennateikningu tók
hann upp veskið og sagði: „Ég
ætla að kaupa þessa mynd.“ Nú
hef ég átt heima á Siglufirði í
hálft annað ár. Ég hef leitt hug-
ann að því að hefði ég ekki
kynnst sambýlismanni mínum
væri ég ekki búandi á Sigló. Og
hefði þar með ekki getað heim-
sótt og verið svona mikið hjá
bróður mínum í hans veikindum.
Og ég þakka honum samfylgdina
í þessu lífi. Þetta er almættið
sem stjórnar og ég er þakklát
fyrir það.
Innilegar samúðarkveðjur til
Regínu eiginkonu hans og dætr-
anna Þóru og Helenu og fjöl-
skyldna þeirra frá okkur Stefáni
og sonum mínum og fjölskyldum
þeirra.
Brynja Árnadóttir.
Gagnfræðaskóli Siglufjarðar
var til húsa á kirkjulofti Siglu-
fjarðarkirkju un langt árabil.
Þar hlaut margt ungmennið
þekkingu og þroska í góðum fé-
lagsskap kennara og nemenda.
Siglufjarðarkirkja var á þessum
árum sannkölluð mennta- og
menningarmiðstöð, eins og ís-
lenzk kirkja var um aldaraðir –
og er enn. Á þessum árum var
mikill æskuþróttur undir kirkju-
þakinu og fjölbreytt félagslíf,
auk hefðbundins náms.
Það var haustið 1942, í miðri
heimsstyrjöld, sem undirritaður
og nokkrir tugir siglfirzkra og
aðkominna unglinga hófu gagn-
fræðanám í Siglufjarðarkirkju.
Meðal þeirra voru tveir einstak-
lingar, piltur og stúlka, sem urðu
síðar hjón og mætir borgarar í
Siglufjarðarkaupstað: Guðmund-
ur Árnason, afreksmaður í skíða-
íþróttum og stöðvarstjóri Pósts
og síma, og Regína Guðlaugs-
dóttir, lengi íþróttakennari í
Siglufirði.
Við Guðmundur áttum tölu-
vert saman að sælda þegar á
unglingsárum, fyrst og fremst
vegna sameiginlegs áhuga
beggja á íþróttum. Við æfðum
saman frjálsar íþróttir, sem áttu
vinsældum að fagna í bænum um
þessar mundir. Við vórum í sigl-
firzku keppnisliði, sem sótti heim
Ísfirðinga og Þingeyinga. En það
var í skíðaíþróttum, sem Guð-
mundur gerði garðinn frægan,
einkum í skíðastökki, en hann
var Íslandsmeistari í þeirri grein
árin 1952 og 1954. Hann bjó yfir
ríkum keppnisanda og vilja til að
gera allt, sem hann tók sér fyrir
hendur, eins og hann bezt gat
með sem mestum árangri.
Síðar spiluðum við saman
brids, bæði í heimaklúbbi og inn-
an Bridsfélags Siglufjarðar.
Leiðir okkar lágu einnig saman í
Lionsklúbbi Siglufjarðar og víð-
ar í félagsstarfi. Guðmundur var
góður félagi, hreinn og beinn,
glaður á góðri stundu, hjálpsam-
ur og vildi öllum vel.
Sem fyrr segir hóf hópur ung-
menna gagnfræðanám í Siglu-
fjarðarkirkju haustið 1942, fyrir
72 árum. Mikið vatn hefur runn-
ið til sjávar frá þeim haustdög-
um. Heimurinn og heimabyggðin
hafa breytzt ótrúlega mikið. En
eitt er óbreytt: Vináttubönd
ungs fólks, sem voru traustlega
knýtt á kirkjuloftinu heima í
miðri heimsstyrjöldinni síðari.
Einn úr hópnum, Guðmundur
Árnason, er í dag kvaddur í
þessari sömu kirkju, genginn inn
í þá framtíð, sem okkar allra bíð-
ur, þar sem birtan, fegurðin og
kærleikurinn ráða ríkjum. Hann
dó inn í sumarið, sem vekur ís-
lenzkt lífríki til nýs lífs, lita og
fegurðar.
Ég og fjölskylda mín þökkum
Guðmundi og Regínu áratuga
vináttu. Megi genginn, gamall
vinur eiga góða heimkomu.
Stefán Friðbjarnarson.
Látinn er á Siglufirði vinur
minn og félagi, Guðmundur
Árnason, fyrrverandi stöðvar-
stjóri Pósts og síma á Siglufirði.
Guðmundi kynntist ég fyrst
ungur drengur þegar ég var
sendill á kjördögum milli kjör-
staðar og Borgarkaffis, skrif-
stofu og félagsheimilis okkar
jafnaðarmanna í gamla, góða Al-
þýðuflokknum. Þar uppi á lofti,
alltaf í sama herbergi og nánast
alltaf í sama sætinu, sat Guð-
mundur á kjördag og tók við
nafnalistum frá skrifurum
flokksins á kjörstað og merkti
inn í kjörskrá við nöfn þeirra
sem höfðu kosið. Síðan sátu
menn við „að deila“ þeim sem
höfðu kosið niður á hina ýmsu
flokka og telja saman. Þetta var
á þeim tíma sjálfsagður þáttur í
kosningastarfi og úrslitin oft
nokkuð ljós áður en talið hafði
verið upp úr kössunum.
Fyrir kjördag var Guðmundur
alltaf búinn að margfara yfir
kjörskrána og kalla til ýmsa
flokksmenn til að fá sem bestar
upplýsingar og gera sér grein
fyrir stöðunni. Alltaf notaði hann
vel yddaðan blýant og merkti
samviskusamlega fjögur lóðrétt
strik og síðan eitt skáhallt yfir
og tók svo saman hvern tug.
Þegar kjörstað hafði verið lokað
settust flokkshestarnir niður og
töldu saman og sögðu fyrir um
úrslitin.
Ég byrjaði í bæjarpólitíkinni á
Siglufirði í kosningunum 1986 og
Regína kona Guðmundar skipaði
annað sætið. Þegar búið var að
loka kjörstað sagði Guðmundur
að við myndum fá 311 atkvæði
en við fengum 318. Slík var ná-
kvæmni hans og helstu trúnað-
ar- og forystumanna.
Eins og hér hefur komið fram
var Guðmundur mikill jafnaðar-
maður og alla tíð mjög virkur í
starfi eins og Regína kona hans.
Þau hjón hafa verið með trygg-
ustu og bestu stuðningsmönnum
jafnaðarmanna á Siglufirði, bæði
á tímum Alþýðuflokksins og svo
Samfylkingarinnar.
Ég átti því láni að fagna að
eiga Guðmund að sem einn öfl-
ugasta stuðningsmann minn
bæði í prófkjörum og kosning-
um. Hann var einnig góður og
tryggur álitsgjafi sem gott var
að leita til og fá skoðun hans á
hinum ýmsu þjóðmálum.
Fyrir þetta þakka ég Guð-
mundi sérstaklega og einnig fyr-
ir allar samverustundir bæði á
heimili þeirra hjóna og á skrif-
stofu hans í símstöðinni á Siglu-
firði.
Guðmundur var mjög virkur í
hinum fjölmörgu félagasamtök-
um á Siglufirði og eftirsóttur í
framvarðasveitir. Í Skíðafélagi
Siglufjarðar, Skíðaborg, var
hann einn af forystumönnum og
alltaf til staðar á skíðamótum.
Þar sem annars staðar nutu
menn góðs af vandvirkni hans
við útreikninga, eins og t.d. á
stökkmótum en þar var hann
einn af fremstu stökkdómurum
okkar og leiðbeindi mörgum
ungum mönnum við þá iðju.
Að lokum viljum við Oddný
þakka Guðmundi Árnasyni
margra ára samfylgd, vináttu og
stuðning. Við sendum eiginkonu
hans Regínu Guðlaugsdóttur og
afkomendum þeirra hjóna okkar
innilegustu samúðarkveðjur. Ég
veit að ég mæli hér fyrir munn
allra flokksfélaga okkar og jafn-
aðarmanna á Siglufirði.
Blessuð sé minning heiðurs-
manns, jafnaðarmanns og vinar.
Kristján L. Möller.
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2014
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
önnumst við alla þætti
þjónustunnar
Þegar
andlát ber
að höndum
Með virðingu og umhyggju að leiðarljósi
Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is
Við þjónum allan sólarhringinn
Elín Sigrún Jónsdóttir
framkvæmdastjóri
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Þorsteinn Elísson
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Jón G. Bjarnason
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
✝
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
ERLENDS BJÖRNSSONAR,
Hvoli,
Álftanesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 2B,
Landspítala, Fossvogi.
Auður Aðalsteinsdóttir,
Guðný Steina Erlendsdóttir,
Björn Erlendsson, Steinunn Guðbjörnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar eigin-
konu minnar, móður, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
HREFNU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Frostaskjóli 13,
Reykjavík.
Ólafur Einarsson,
Sigríður Ólafsdóttir, Jens Sigurðsson,
Þórhildur Ólafsdóttir, Þorsteinn M. Gunnsteinsson,
Hólmfríður Jensdóttir, Óli Halldór Konráðsson,
Hrefna Jensdóttir,
Hildur Hrönn Þorsteinsdóttir, Bragi Már Ottesen,
Sigrún Jensdóttir, Gísli Viðar Oddsson,
Bryndís Þorsteinsdóttir
og langömmubörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, systir, amma og langamma,
ERLA HELGADÓTTIR,
Fornastekk 5,
lést þriðjudaginn 24. júní á Landspítalanum.
Jarðsungið verður frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 3. júlí kl. 13.00.
Haraldur Gísli Eyjólfsson,
Óskar Smári Haraldsson, Una S. Rögnvaldsdóttir,
Örn Helgi Haraldsson, Ása Þorkelsdóttir,
Einar Birgir Haraldsson, Sigrún Árnadóttir,
Kristín Huld Haraldsdóttir, Hallgrímur Jónsson,
Oddný Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
STEFÁN GUNNAR HARALDSSON,
Víðidal,
Skagafirði,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 24. júní.
Aðstandendur.
✝
Móðir okkar,
GUÐRÚN RAGNHEIÐUR GÍSLADÓTTIR
THORLACIUS
frá Saurbæ á Rauðasandi,
lést á Landspítalanum, Fossvogi, fimmtudaginn 26. júní.
Útför verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hólmfríður Margrét, Pétur, Sólveig
og Hrefna Sumarlína Ingibergsbörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GRÉTA RUNÓLFSDÓTTIR,
Lönguhlíð 11,
Reykjavík,
sem lést miðvikudaginn 18. júní, verður
jarðsungin frá Háteigskirkju mánudaginn
30. júní kl. 15.00.
Einar Örn Stefánsson, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
Orri Guðjohnsen, Halldóra Eyrún Bjarnadóttir,
Kristinn Þór Jóhannesson,
barnabörn og barnabarnabörn.