Morgunblaðið - 28.06.2014, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 28.06.2014, Qupperneq 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2014 F A S TU S _H _3 2. 06 .1 4 Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16 - 2.hæð. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is Veit á vandaða lausn Resource Senior Active Sérhannaður drykkur fyrir aldraða sem þurfa næringarviðbót og fá ekki uppfyllt orku- og næringarþörf sinni úr fæðunni Heildstæður næringardrykkur sem er ríkur af: • Hitaeiningum (orkuefnum) • Kalsíum • Próteinum • D-vítamínum • Omega3 fitusýrum Notist samkvæmt ráðleggingum læknis og/ eða næringarfræðings Jarðarber Karamella Vanilla 200ml 300 kcal 3g trefjar 1000 IU D3 vítamín 20g prótín Næringarvörur eru í samningi við Sjúkratryggingar Íslands Þessar vörur fást í verslun Fastus og í flestum apótekum Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er hætt við að viðskipti gangi brösuglega í dag. Kannski tekur gamall vin- ur upp á einhverju stórskrýtnu. Hann hefur komið auga á betri vinnuaðferðir og vill ger- bylta kerfinu. 20. apríl - 20. maí  Naut Forðastu átök í lengstu lög en verði ekki hjá þeim komist skaltu berjast drengi- lega. Ekki eyða tímanum í samviskubit yfir því að hafa ekki lagt nóg af mörkum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Tvíburar gleyma því oft að gera áætlanir og trúa því að næsta skref komi af sjálfu sér. Og þegar alvarlegri ákvarðanir banka upp á, ertu meira en tilbúinn fyrir þær. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Einhver vill gefa þér uppbyggileg ráð í dag. Gömul hugmynd leitar á þig og þú ættir að gefa henni tækifæri. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert opin/n fyrir fegurðinni í kring- um þig. Getur yfirmaður beðið um meira? Vonandi færðu verðug verkefni til þess að glíma við því þau gera þér kleift að láta ljós þitt skína. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ábyrgðin sem hvílir á þér heima fyrir gæti íþyngt þér dálítið í dag. Notaðu daginn og farðu í leikhús, á íþróttaviðburð eða í bíó. 23. sept. - 22. okt.  Vog Öll samskipti fjölskyldunnar ættu að ganga vel í dag. Njóttu líðandi stundar betur og ekki reyna að halda í neitt. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Eitt og annað drífur á dagana og það svo, að þér kann að finnast nóg um. Reyndu að sjá hlutina í réttu ljósi áður en þú lætur til skarar skríða. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er hætt við að spenna sem hefur verið að safnast upp í þér að undan- förnu brjótist fram í dag. Mundu að flas er ekki til fagnaðar. Brosið þitt verður upp- spretta gleðinnar – ekki öfugt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Ein stærð passar alls ekki öllum. Gerðu ekki lítið úr málflutningi þeirra, sem nálgast viðfangsefnin úr annarri átt en þú. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þeir eru margir sem vilja ræða málin við ykkur. Hann er fullur viðkvæmni í garð yngri kynslóðarinnar þessa dagana. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú trúir heitt á þínar sannfæringar, en hefur enga þörf fyrir að sannfæra aðra. Varastu því að ganga of langt gagnvart þeim sem viðkvæmir eru. Gæluverkefni keyrir þig áfram. Fyrir viku var gátan eftir Hörpuá Hjarðarfelli: Lítil fleyta á lygnum sæ, löngum snýst hann nið́r í bæ. Ómissandi á ýmsum tækjum, undir rúmið hann við sækjum. Og hér sendir Harpa lausnina: Litla báta kalla koppa. Koppar snúast hjólum með. Smyrja þarf í smurningskoppa Smeygt var koppnum undir beð. Helgi R. Einarsson lætur ekki sitt eftir ligga: Koppar litlir sigláum sjá, snúast vítt um landið, ýmsum vinnuvélum á, volgt í þá fer hlandið. Þessi er lausn Helga Seljans: Bátskopp sé ég öldum á, oft ég hjólkopp líka sá. Um smurkopp helzt ég hugsa um sinn. Hlandkopp undir rúmi finn. Guðmundur Arnfinnsson segir í bréfi til mín: „Síðastliðinn laug- ardag birtist frá mér gáta, sem ég sendi vísnahorninu. Harpa á Hjarð- arfelli og Helgi R. Einarsson réðu þessa gátu á glæsilegan hátt og kom hann á framfæri viðbót- armerkingu til þín. Aðeins út af því: Gagnrýninn við gátu brást, glappaskotsins saknaði, en undanskot honum yfir sást og ei til fulls því vaknaði. Vísnagátu úr fórum Hörpu ræð ég þannig: Í koppalogni koppi ræ, koppar snúast niðri í bæ, sumir hafa kopp í kinn, kopp ég undir rúmi finn. Að vísu skipti ég út smurnings- koppi fyrir spékopp. Síðan er glæný gáta, sem varla er á færi nema Karlsins á Laugaveginum að ráða! Guðhræddir þar krjúpa á kné, að kenninafni hefur P, Matthías það í Mogga reit, á máluðum fleti blett ég leit.“ Vel er kveðið og mun ég gera sér- stakar ráðstafanir til þess að karl- inn á Laugaveginum frétti af vísna- gátunni. Hann hefur verið upptekinn við annað: Gigtveik og hölt og skökk en ung í anda áttum við stefnumót í skjóli þar; vorbjarta nótt við gengum út á Granda sú gamla fann stein og fleytti kerlingar. Halldór Blöndal halldórblöndal@simnet.is Vísnahorn Vísnagátan og rölt með kerlingu út á Granda Í klípu „OKKUR VANTAR BARA SKJÓTA LAUSN Á MÁLINU. ÞAÐ BAÐ ÞIG ENGINN AÐ FINNA UPP HJÓLIÐ AFTUR.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „EF ÞÚ BARA VISSIR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að láta efasemdar- raddir sem vind um eyru þjóta. BRÚÐKAUPS- AFMÆLIÁRA HEIMILIS- MATUR ÍÞRÓTTIR HAFA ALLTAF SKIPAÐ STÓRAN SESS Í MÍNU LÍFI. AÐALLEGA AÐ VERA LÉLEGUR Í ÞEIM. JAMM. Nú virðast tónlistarhátíðir sprettaupp eins og gorkúlur hér yfir sumartímann. Skyldi engan undra því fátt er skemmtilegra en að viðra sig í sumrinu og hlýða á fagra tóna í góðum hópi vina. En það er samt eitt sem Víkverji veltir fyrir sér og það er hvort ekki mætti samnýta betur þá aðstöðu sem hefur verið byggð upp á tilteknum stöðum. Til að mynda er landsmót hestamanna framundan á Gaddstaðaflötum á Hellu. Þar rísa tvö stór tjöld og ann- að verður með „parketi“. Þar verður vægast sagt gott rými fyrir alla verslun og matsölu sem verður á svæðinu sem og gott dansiball sem verða á kvöldin. x x x Tjöldin eru reist rétt fyrir mótið ogverða tekin niður fljótlega eftir það. Vinnan við að koma þeim upp er talsverð. Væri því ekki kjörið að halda vegalega útihátíð í þessum sömu tjöldum eftir mótið? Nýta þetta aðeins betur – bara hugmynd. x x x Víkverji dáist að öllum hjólreiða-köppunum sem þeysast nú um landið þvert og endilangt. En það er ekki pláss fyrir alla þessa spandex- klæddu hjólreiðamenn nema á þjóð- veginum þar sem þeir skapa mikla hættu. Víkverji var nýverið á hring- veginum og þar fylgdu bílar ein- staklingum sem voru í hjólreiða- keppni. Þar af leiðandi óku þeir hægar og myndaðist því góð bílaröð fyrir aftan þá. Þetta skapaði mikla hættu. Víkverji gerir sér grein fyrir því að hjólarar vilja hjóla en það þarf að tryggja öryggi allra, jafnt hjól- andi sem akandi umferðar. x x x Í fyrirmyndarríkinu Íslandi værihringvegurinn það öruggur að all- ir gætu verið á honum hjólandi og gangandi en eins og ávallt er þetta spurning um peninga. x x x En að öðru – HM í fótbolta. Vík-verji sér fegurðina í þessu þrátt fyrir að vita ekki hvað rangstaða er. HM er allt annað en annar fótbolti, hraði og snerpa eru við völd og hrífa með sér. víkverji@mbl.is Víkverji Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða. (Markúsarguðspjall 13:31)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.