Morgunblaðið - 19.06.2014, Side 8
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags
atvinnurekenda, segir að hið íslenska vöru-
gjaldakerfi sé ósanngjörn skattheimta sem mis-
muni vöruflokkum og atvinnugreinum. Hann
segir kerfið vera úrelt og að stjórnmálamenn
verði nauðsynlega að sýna kjark og afnema tolla
og vörugjöld á öllum sviðum.
„Vörugjalda- og tollakerfin er ótrúlega flókin
og því miður eru þau til þess fallin að skapa tor-
tryggni gagnvart því að verið sé að umbuna inn-
lendri framleiðslu á óeðlilegan hátt,“ segir hann í
samtali við Morgunblaðið. Sú spurning vakni
hvort kerfið sé flókið til þess eins að verja sjálft
sig.
Félag atvinnurekenda hefur unnið að því að
grisja frumskóg tolla- og vörugjalda, en félagið
vill efla vitund landsmanna um það sem það seg-
ir vera ósanngjarnt og flókið kerfi sem hefur
verið við lýði hér á landi um margra ára skeið.
Almar segir að það hafi lengi verið eitt helsta
baráttumál félagsins að berjast gegn vernd-
arhyggju íslenskra stjórnvalda. „Í sjálfu sér er
þetta eldgamalt mál. Við höfum lengi, áður en
félagið skipti um nafn og hét Félag íslenskra
stórkaupmanna, barist gegn þessum sömu skað-
legu vörugjöldum og tollum,“ segir hann og bæt-
ir við að félagið hafi jafnframt lagt mikla áherslu
á þennan málaflokk undanfarin fimm ár, eða frá
því að stjórnvöld lögðu á hinn umdeilda syk-
urskatt sumarið 2009.
Hann segir það skýrt í sínum huga að afnám
tolla og vörugjalda á öllum sviðum sé afar mik-
ilvægt mál sem myndi skila miklum þjóðhags-
legum ábata, aukinni samkeppni sem og bættum
hag neytenda. Gjöldin gera
það meðal annars að verkum
að allt verð skekkist. Og það
þekkja það allir sem hafa les-
ið hagfræði að þá myndast
ákveðin sóun og afleiðing-
arnar eru mjög alvarlegar.
Það fer auðvitað eftir að-
stæðum á mörkuðum, en á
ákveðnum mörkuðum getur
þetta gert það að verkum að einokun eða fá-
keppni viðhelst því það verður svo erfitt fyrir
nýliða að koma inn. Síðan er þetta auðvitað stór-
mál fyrir neytendur sem hafa hagsmuni af öfl-
ugri samkeppni, en vilja einnig hafa almennt
frelsi til að velja,“ segir Almar.
Kerfin skapa tortryggni
Hann bendir enn fremur á mikilvægi þess að
tollaumhverfi, vörugjöld og skattar séu einföld-
uð. Almenningur eigi rétt á að skilja þau kerfi
sem séu við lýði. „Vörugjalda- og tollakerfin er
ótrúlega flókin og því miður eru þau til þess fall-
in að skapa tortryggni gagnvart því að verið sé
að umbuna innlendri framleiðslu á óeðlilegan
hátt. Sú spurning vaknar hvort kerfið sé flókið
til þess eins að verja sjálft sig. Það er afleit staða
því það er auðvitað hinn íslenski neytandi sem
borgar fyrir það á endanum,“ segir Almar.
Það sé þess vegna hagur allra að kerfin séu
einfölduð og engir tollar og engin vörugjöld
verði að meginreglu. Einnig þurfi að taka um-
ræðuna um þá hvort og á hvaða sviðum gera eigi
undanþágur frá meginreglunni. Undanþágurnar
verði þá að sjálfsögðu að byggjast á málefna-
legum sjónarmiðum.
Eins og áður sagði hefur Félag atvinnurek-
enda margsinnis bent á þá annmarka sem fylgja
gjaldtöku í formi vörugjalda. Félagið segir að
gjaldtakan einkennist af ógagnsæi og misræmi
þar sem einstakir vöruliðir beri mun hærra gjald
en aðrir, án þess að málefnalegar ástæður liggi
fyrir þeirri mismunun. Það sé jafnframt stór
galli á þessu fyrirkomulagi að vörugjöld séu
ósýnileg endanlegum kaupanda og geri því verð-
lagningu ógagnsærri, sem að endingu getur leitt
af sér sóun.
Kerfið þvingar embættismenn
Sem dæmi um misræmi í kerfinu bendir Al-
mar á að sjónvarpsskjár ber 7,5% verðtoll og
25% vörugjöld en tölvuskjár ber hvorki toll né
vörugjöld. Vegna örrar tækniþróunar hafa
mörkin þarna á milli orðið sífellt óskýrari og er
nú svo komið að tölvuskjáir hafa flesta þá tengi-
möguleika sem sjónvarpsskjáir hafa, en það er
einmitt sá þáttur sem hefur meðal annars verið
látinn ráða tollflokkun á skjám.
Félagið telur að vörugjöld og tollar eigi engan
rétt á sér í þessu tilviki. Um sé að ræða neyslu-
stýringu sem hafi þau sérkennilegu áhrif að
ódýrara sé að horfa á sjónvarpsútsendingar í
gegnum tölvu heldur en í gegnum sjónvarp.
„Kerfið þvingar embættismenn til að taka
mjög erfiðar ákvarðanir. Þeir eiga að framfylgja
valdi og það þýðir meðal annars að þeir þurfa að
skilgreina hvaða vörur eigi við í hvaða toll-
flokkum,“ segir Almar.
Vilja afnema tolla og vörug
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Félag atvinnurekenda segir
gjaldtöku í formi vörugjalda
einkennast af ógagnsæi og
misræmi þar sem einstakir
vöruliðir beri hærra gjald en
aðrir. Endurskoðunar sé þörf.
Félag atvinnurekenda
telur að afnám vöru-
gjalda yrði mikil búbót
fyrir matvöruverslanir.
Almar
Guðmundsson
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 2014FRÉTTASKÝRING
Vodafone RED Pro
fyrir öll fyrirtæki
Ótakmarkaðar mínútur og SMS í alla farsíma
og heimasíma á Íslandi óháð kerfi fyrir þitt starfsfólk
Skiptu yfir í Vodafone RED Pro
Fáðu upplýsingar hjá firma@vodafone.is eða hringdu í 599 9500
Vodafone
Góð samskipti bæta lífið