Morgunblaðið - 25.09.2014, Side 4

Morgunblaðið - 25.09.2014, Side 4
4 | MORGUNBLAÐIÐ V ið höfum selt öll laus sýn- ingarpláss að þessu sinni og Íslenska sjávarútvegs- sýningin 2014 er um 5% stærri en sýningin sem haldin var síðast,“ segir Marianne Rasm- ussen-Coulling. „Mikill áhugi sýn- enda er vafalítið til marks um aukna bjartsýni í atvinnugreininni. Við finnum að andrúmsloftið er annað núna en fyrir þremur árum, þegar óvissa um mögulegar breyt- ingar á umgjörð fiskveiðikerfisins virtist fæla fyrirtæki í sjávarútvegi frá því að leggjast í fjárfestingar á nýjum tækjum og skipum.“ Marianne stjórnar sýningunni í ár en hún hefur verið viðriðin sjávarútvegssýninguna síðan 1996 og er sýningin í ár því sú sjöunda sem hún vinnur við. Hefur Mari- anne gegnt ýmsum hlutverkum á sýningunni í gegnum tíðina og byrjaði sem sölumaður. Sýningin nú er sú fyrsta undir hennar stjórn. „Ég gantast stundum með þetta og segist eiga þrjú börn: syni mína tvo og svo Íslensku sjáv- arútvegssýninguna. Í hvert skipti hefur mér þótt gríðarlega ánægju- legt að taka þátt í þessu stóra og krefjandi verkefni og vinna með ís- lenskum samstarfsaðilum að því að láta viðburðinn ganga upp.“ Gengur upp á endanum Marianne vinnur fyrir breska út- gáfu- og viðburðastjórunarfyr- irtækið Mercator Media. Gefur Mercator út tímarit um skip og sjávarútveg og heldur utan um ýmsar sýningar, þar á meðal þá ís- lensku. „Á hverjum stað gerast hlutirnir með sínum hætti og í fyrstu þótti mér svolítil áskorun að skilja viðhorf og skipulagsaðferðir Íslendinga,“ segir hún glettin. „En síðan þá hef ég lært að þótt hlut- irnir gerist oft á síðustu stundu á Íslandi þá gerast þeir samt, og sýningin verður opnuð hnökralaust á réttum tíma.“ Sýnendur eru rúmlega 500 að þessu sinni og deila með sér 250 básum. Óvenjumikið er af nýjum sýnendum sem og erlendum. „Við fáum t.d. nýja sýnendur frá Taív- an, Svíþjóð, Hollandi, Bretlandi og Bandaríkjunum, Belgíu, Kína, Jap- an og Póllandi. Ekki aðeins eru sýnendurnir alþjóðlegir heldur vit- um við af hópum gesta sem vænt- anlegir eru frá öllum heims- hornum. Þannig hafa hópar frá Bangladess, Íran, Hollandi og Noregi boðað komu sína og eflaust fjöldi hópa til viðbótar sem við vit- um ekki um.“ Fyrirmenni og fallbyssa Sýningin spannar þrjá daga; frá fimmtudegi til laugardags. Til við- bótar við básasýningarnar í íþróttahöllinni Smáranum verða haldnir fróðlegir fyrirlestrar um ýmis efni. „Sýningin er formlega sett á fimmtudag við hátíðlega at- höfn að viðstöddum forseta Ís- lands, sjávarútvegsráðherra og bæjarstjóra Kópavogs. Verður sýningin sett með því að ráð- herrann hleypir skoti af 150 ára gamalli fallbyssu sem Landhelg- isgæslan og Reykjavíkurborg skaffa. Sama dag verða íslensku sjávarútvegsverðlaunin afhent við athöfn í Gerðarsafni. Verðlaunin eru veitt í sautján flokkum og þar af eru þrír flokkar fyrir bestu sýn- ingarbásana á hátíðinni,“ útskýrir Marianne. Af fyrirlestrum og málstofum nefnir Marianne erindi um notkun úrgangs úr fiskvinnslu til verð- mætasköpunar, um frumkvöðla- starf og nýsköpun í sjávarútvegi og um hlutskipti fiskveiði- samfélaga við Norður-Atlantshaf. Þessir viðburðir eru m.a. haldnir í samstarfi við Háskóla Íslands og Matís. „Einnig stöndum við fyrir svo- kölluðum „matchmaking“-viðburði þar sem markmiðið er að leiða saman fyrirtæki í greininni til að vinna að áhugaverðum verkefnum. Við komum innlendum og erlend- um aðilum í samband við rétta fólkið og hjálpum vonandi til að gera nýjar vörur og viðskipti að veruleika.“ Sýna sig og sjá aðra Að sögn Marianne er Íslenska sjávarútvegssýningin mikilvægur viðburður á marga vegu. Þar fái fyrirtæki einstakt tækifæri til að sýna sig og sjá aðra og reikna má með að fjöldamargir sölusamn- ingar verði undirritaðir á sýning- unni eða strax í kjölfar hennar. „Við heyrum það iðulega frá sýn- endum að þeir selja ekki bara öll þau tæki sem þeir höfðu til sýnis á básnum sínum heldur fá pantanir fyrir mörgum gámum af alls kyns tækjabúnaði og annarri vöru frá jafnt innlendum sem erlendum kaupendum.“ Viðburðurinn gefur líka fyr- irtækjum ákveðinn tímaramma ut- an um þróunarvinnu sína. „Þrjú ár á milli sýninga er hæfilegur tími til að vinna að nýrri tækni og full- koma eldri lausnir. Sýnendur hafa því allir eitthvað nýtt og spennandi fram að færa og gestir sömuleiðis eitthvað áhugavert og nýtt að skoða.“ Sú nýbreytni er á skipulagi há- tíðarinnar í ár að Íslenska sjávar- útvegssýningin 2014 hefur tekið samfélagsmiðlana í sína þjónustu. „Við höfum gert hátíðina sýnilega á Facebook, Twitter og LinkedIn, til viðbótar við að halda úti sér- stöku bloggi. Er hugmyndin þar ekki bara að miðla upplýsingum um sýninguna í ár heldur líka að skapa samskiptavettvang fram að næstu sýningu árið 2017.“ ai@mbl.is Stefnumót við blómlega atvinnugrein Stjórnandi Íslensku sjávarútvegssýningarinnar 2014 segir viðburðinn vettvang fyrirtækja til að sýna nýjar vörur og efna til arðbærra viðskiptatengsla. Fjöldi nýrra sýnenda í ár og mikil fjölgun erlendra sýnenda og gesta sem ferðst sumir yfir hálfan hnöttinn. Morgunblaðið/Ómar Morgunblaðið/Sigurgeir S Upplifun Frá sýninguni árið 2011 þar sem mátti meðal annars finna stýrishús í fulri stærð gert úr laufléttu trefjaplasti. Verkefni „Ég gantast stundum með þetta og segist eiga þrjú börn: syni mína tvo og svo Íslensku sjávarútvegssýninguna,“ segir Marianne Rasmussen Coulling. „Við fáum t.d. nýja sýn- endur frá Taívan, Svíþjóð, Hollandi, Bretlandi og Bandaríkjunum, Belgíu, Kína, Japan og Póllandi.“ Hlíðasmára 14 sími 588 2122 www.eltak.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband líðas ára 14 Sí i 588 2122 .eltak.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.