Morgunblaðið - 25.09.2014, Side 6

Morgunblaðið - 25.09.2014, Side 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ Hlíðasmára 14 sími 588 2122 www.eltak.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband líðas ára 14 Sí i 588 2122 .eltak.is M ikil tækifæri kunna að vera í veiðum á vannýttum teg- undum í efnahagslögsögu Íslands. Velheppnaðar til- raunaveiðar á hörpuskel og túnfiski leiða huga manna í þá átt. „Veiðar og möguleg fullvinnsla ýmissa nýrra tegunda getur skapað verðmæti í sjávarklasanum. Til að svo megi verða þarf að auka hvata til til- raunaveiða, vinnslu og markaðs- setningar nýrra afurða,“ segja þeir Haukur Már Gestsson og Bjarki Vig- fússon hagfræðingar í nýrri grein- ingu Íslenska sjávarklasans. „Já, það er lítið vitað um stærð sumra þessara tegunda og erfitt að segja til um bæði stærðina á mörgum þeirra og hvort hugsanlega geti verið markaðir fyrir þær. Það er auðvitað ekki nóg að veiða tegundirnar og búa til vöru úr þeim, það þarf líka að leggja mikið á sig til að skapa þeim einhvern grundvöll á markaðnum, selja þær. Það er erfitt auðvitað að koma inn á hann með nýja vöru en það er alveg hægt,“ segir Bjarki í samtali við Morgunblaðið. Í greiningunni fyrrnefndu kemur fram, að í lögsögunni sé nokkur fjöldi vannýttra tegunda. Auk túnfisks megi þar nefna sæbjúgu, kúfskel, krækling, smokkfisk, gaddakrabba og gulldeplu. Stofnstærðir flestra þessara tegunda séu smærri en þeirra sem nú séu verðmætastar í ís- lenskri útgerð og eðli máls sam- kvæmt ríki óvissa um arðsemismögu- leika í veiði flestra þeirra. Þá yrði að taka tillit til þess að sumar tegundir sem nú teldust lítið nýttar flakki tals- vert inn og út úr lögsögunni og stöð- ugleiki í veiði þeirra því lítill. Engu að síður væru hér nokkur tækifæri sem vert væri að kanna betur. Hvata skortir til tilraunaveiða Bjarki segir að hvata skorti til að hefja tilraunveiðar. Stóru útgerð- irnar hafi getuna en kannski ekki mikinn áhuga á þeim og smærri að- ilar hefðu færri tækifæri vegna skorts á fjármagni til þróunarstarfs. „Smærri aðilarnir eiga mjög erfitt með að hasla sér völl á þessu sviði. Það er rosalega dýrt að vera í til- raunaveiðum og þróunarstarfi úti á sjó. Sjóðirnir sem þeir geta sótt í eru að veita of lítinn pening í það. Þeir gera ráð fyrir að þetta eigi að vera rannsóknir meðan í rauninni þyrfti frekar að leggja áherslu á þróun- arstarf og tilraunaveiðar. Það sem ég á við með því að það þurfi að búa til gagnsætt og betra kerfi kringum þetta allt er það, að komi eitthvað upp úr tilraunastarf- semi litlu aðilanna geti stóru að- ilarnir komið inn af miklum krafti og veitt mikið á skömmum tíma og þannig skapað sér svolítið sterka stöðu gagnvart því að fá eitthvað út- hlutað í þeim tegundum þegar þær eru síðan settar inn í kvótakerfið síð- ar meir. Þetta snýst bara um að skapa einhvern vettvang, eitthvert kerfi sem er gagnsætt og hjálpar þessum litlu aðilum að tryggja sér einhvern nýtingarrétt að þróun- arstarfinu loknu. Að þeir fái að njóta afrakstursins og fái þannig tækifæri og hvata til að vera við veiðar í þess- um vannýttu tegundum. Ef til vill hefur skort nokkuð á að nægilega sterkir hvatar séu til staðar til að hefja öflugt þróunarstarf í veiðum vannýttra tegunda. Þær veiðar eru ekki frábrugðnar annarri þróun- arstarfsemi og nýsköpun að því leyti að sá sem fyrstur veiðir tegundirnar og kemur þeim á markað á hag- kvæman hátt, uppsker líklega ekki jafnvel og þeir sem koma að borðinu eftir að búið er að sannreyna hag- kvæmni veiðanna,“ segir Bjarki. Frumkvöðlar njóti afrakstursins Í fyrrnefndri greiningu Íslenska sjávarklasans segja þeir Haukur Már að helsti hvati sjávarútvegsfyr- irtækja til veiða á ókvótabundnum tegundum hafi verið sá að veiði- reynsla hafi veitt þeim veiðiheimildir eftir að takmörk hafi verið sett á veiðarnar. Engin trygging væri þó fyrir því að það væri gert og ekki heldur með hvaða hætti að því væri staðið hverju sinni. Þetta fyr- irkomulag hafi stundum stuðlað að tímabundnum ólympískum veiðum á tegundum sem búist var við að sett yrði inn í aflamarkskerfið. „Til að hvetja til veiða á vannýttum teg- undum væri skynsamlegt að koma á einhvers konar skipulagi í kringum þær sem felur í sér sanngjarna hvata til að hefja tilraunaveiðar og vinnslu. Þannig yrði tryggt að þeir frum- kvöðlar sem leggja í áhættusamar til- raunaveiðar njóti afraksturs erfiðis- ins með sanngjörnum hætti í einhvern tíma áður en öðrum er hleypt að. Að mörgu er hyggja við uppbyggingu slíks regluverks en það þarf alls ekki að vera flókið eða þungt í vöfum. Aðalmálið er að tryggja þeim frumkvöðlum sem leggja út í áhættusamt þróunarstarf sérstakan nýtingarrétt í hæfilega langan tíma á afmörkuðum svæðum. Samhliða því væri það íslenskum sjávarútvegi til heilla að það mikla rannsóknarstarf sem lagt hefur verið í undanfarin ár og áratugi verði nýtt í meira þróun- arstarf, þ.e. tilraunaveiðar, tilrauna- vinnslu og markaðssetningu nýrra afurða sem úr þeim tilraunum kunna að skapast,“ segir þar. Uppteknir af makrílnum Bjarki segir að menn renni að ein- hverju leyti blint í sjóinn með hvaða hagsmunir kunni að leynast í djúp- unum. „Í raun er fyrir margra hluta sakir erfitt að segja til um það. Ég myndi segja að ein athyglisverðasta tegundin sem við bendum á er gull- deplan. Búnaður til að veiða hana er til, það þarf ekki að breyta miklu til að hefja þær veiðar. Og hugsanlega væri hægt að fá dálítið mikið af henni og þar af leiðandi yrðu veiðarnar hagkvæmar. Kannski hafa menn bara verið of uppteknir í makrílnum á síðustu árum til að kanna gulldepl- una betur. Það sást mikið af henni við suðurströnd landsins 2008 og 2009. Minna hefur sést af gulldeplu á allra síðustu árum en hugsanlegt er að stofninn komi inn í lögsöguna í nægjanlegu magni til að hagkvæmt reynist að veiða hann. Ýmsar próf- anir hafa verið gerðar til að laga veið- arfæri til loðnuveiða að gull- depluveiðum og einstaka sjávarútvegsfyrirtæki hafa náð góð- um árangri í tilraunaveiðum. Á fisk- veiðiárinu 2008/2009 veiddust 38 þús- und tonn af gulldeplu og fór sá afli allur til bræðslu. Telja má víst að verðmætari nýtingarmöguleikar séu fyrir hendi. Þannig hafa fyrstu rann- sóknir Matís á einangrun lífvirkra efna úr gulldeplu skilað áhugaverð- um niðurstöðum, svo dæmi sé tekið,“ segir Bjarki Vigfússon að lokum. agas@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Vannýttar fisktegundir gætu reynst gjöfular Í framhaldi af velheppnuðum túnfiskveiðum Vísis í Grindavík beinist athygli Íslenska sjávar- klasans að öðrum vannýttum tegundum. Gullnáma Íslenskar útgerðir hafa upgötvað hve mikil verðmæti geta verið fólgin í tegundum á borð við túnfiskinn. Morgunblaðið/Golli Verðmæti „Ég myndi segja að ein athygl- isverðasta tegundin sem við bendum á er gulldeplan. Kannski hafa menn bara verið of uppteknir í makríln- um á síðustu árum til að kanna gulldepluna betur,“ segir Bjarki Vig- fússon. Með á mynd- inni er Haukur Már.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.