Morgunblaðið - 25.09.2014, Side 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ
Á
því fiskveiðiári sem hófst 1.
september voru 376.026
þorskgildistonn til skipt-
anna en um 378.828 tonn á
síðasta ári. Breytingar á milli ára
eru því ekki miklar. Á vefsetri Fiski-
stofu sem hefur umsjón með kvóta-
málum og sinnir stjórnsýslu og eft-
irliti með sjávarútvegi, stendur
úthlutun í þorski nánast í stað.
Eykst um 600 tonn og nemur rúm-
lega 171.800 tonnum. Ýsukvótinn
dregst enn saman úr 30 þúsund
tonnum í fyrra í rúm 24 þúsund tonn
í ár.
Fimmtíu stærstu fyrirtækin fá út-
hlutað sem nemur um 86% af því
aflamarki sem úthlutað er. Eru þær
tölur á líku róli og í fyrra. Alls fá 459
fyrirtæki eða lögaðilar úthlutað
veiðiheimildum nú eða um þrjátíu
færri en í fyrra.
Mest fær HB Grandi, líkt og í
fyrra, eða 10,7% af heild. Næst kem-
ur Samherji með 6% og þá Þorbjörn
hf. með 5,5%. Þetta er sama röð
efstu fyrirtækja og undanfarin ár.
Togurum fækkar
Mestan kvóta í þorskígildistonnum
fá skip með heimahöfn í Reykjavík
eða 13,0% af. Grindavíkurskip eru í
öðru sæti og eru með 10,5% af heild-
inni. Hlutur þeirra eykst lítið eitt
milli ára, sem dugar þó til þess að
fella Vestmannaeyjaskip úr öðru
sæti, en Eyjar hafa um langt skeið
verið 3. kvótahæsti staðurinn.
Smábátar með aflamark og króka-
aflamark sem fá úthlutað aflamarki
eru nú 393 en voru 441 áður. Skipum
í aflamarkskerfinu fækkar um 24
milli ára og eru nú 258. Togurum
fækkar um 5, eru nú 50 og fá tæp
200 þúsund tonn af því heildar-
aflamarki sem úthlutað var að þessu
sinni. Aflamarksskip fá 190 þúsund
tonn. sbs@mbl.is
Reykjavík og Grindavík í efstu sætum
Alls 376.026 þorskgildistonn voru til skiptanna á fiskveiðiárinu sem hófst 1. september. Í bolfiski eru heimildir í ýsunni minni en
þorskkvótinn nánast sá sami og í fyrra. Fimmtíu stærstu fyrirtækin fá úthlutað um 86% af því aflamarki sem úthlutað er.
Útgerð: 4.022.201
Heimahöfn: Hnífsdalur
Þorskígt. kg: 4.022.201
Páll Pálsson ÍS
Útgerð: Steinunn ehf.
Heimahöfn: Ólafsvík
Þorskígt. kg: 1.084.622
Steinunn SH
Útgerð: Birnir ehf.
Heimahöfn: Bolungarvík
Þorskígt. kg: 143.996
Valbjörn ÍS
Útgerð: HB-Grandi
Heimahöfn: Reykjavík
Þorskígt. kg: 5.274.772
Ásbjörn RE
Útgerð: Útgerðarfélagið Guð-
mundur ehf.
Heimahöfn: Ólafsvík
Þorskígt. kg: 11.960
Guðmundur Jensson
SH
Útgerð: Dala-Rafn ehf.
Heimahöfn: Hraðfrystihús
Hellissands hf.
Þorskígt. kg: 1.330.140
Rifsnes SH
Útgerð: Dala-Rafn ehf.
Heimahöfn: Vestmannaeyjar
Þorskígt. kg: 1.491.564
Dala-Rafn VE
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sigling Skinney-Þinganes er er stórt sjávarútvegsfyrirtækjum. Hér sést eitt af skipum félagsins, Skinney SF, taka stímið
Skinney SF
Útgerð: Skinney-Þinganes
Heimahöfn: Höfn
Þorskígt. kg: 2.682.674