Morgunblaðið - 25.09.2014, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ | 15
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími 415 4000
Opnunartímar: Mánudag - fimmtudag kl. 8:00-17:30, föstudaga kl. 8:00-17:00
MIKIÐ ÚRVAL AF SMUREFNUM OG
OLÍUM FYRIR SJÁVARÚTVEGINN
KOMDU VIÐ Í BÁSNUM OKKAR E20 OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ
SMUROLÍUR
OG SMUREFNI
notar svokallað vaxblek til að prenta
beint á hvers kyns yfirborð. Fyrir við-
skiptavininn hefur þetta töluvert hag-
ræði borið saman við að merkja kass-
ana með límmiðum. Þessi tækni þýðir
að minna þarf af vélbúnaði við pökkun
og rekstrarkostnaður er lægri þegar
sleppa má límmiðunum.“
Umhverfisvænir og sterkir
Framfarir eiga sér líka stað í umbúð-
unum og kössunum sjálfum. „Þróunin
hefur verið mjög áhugaverð í kössum
úr polypropylene-efni og CoolSeal-
kassarnir koma þar mjög sterkt inn.
Upphaflega voru þessir kassar hann-
aðir sérstaklega með ferskfisk í huga
en komið hefur í ljós að þeir henta
mjög vel undir önnur matvæli. Eru
kassarnir úr endingargóðu efni sem
er einnig endurvinnanlegt. Þetta eru
léttir kassar, taka ekki mikið pláss, og
halda vel eiginleikum sínum þótt inni-
haldið sé blautt og frosið.“
Tækniframfarir þýða líka að æ auð-
veldara og ódýrara verður að gera um-
búðirnar fallegar og frambærilegar.
Segir Guðmundur alveg óþarft í dag að
fyrirtæki pakki vörunni sinni í litlausar
og ljótar umbúðir. „Það styttist í að
hægt verði að prenta í litum beint á
pakkningarnar, en þangað til reynist
stafræn prentun vel til að gera fallega
límmiða og pökkunarfilmur í öllum
regnbogans litum. Við aðstoðum við-
skiptavini við hönnunina ef þess er
óskað og hjálpum þeim að gera um-
búðir sem eftir er tekið.“
Lítið upplag enginn vandi
Stafræna prentunartæknin kemur
sér alveg sérstaklega vel fyrir smærri
framleiðendur. „Umbúðaprentun
með gamla laginu var mjög kostn-
aðarsöm nema prentað væri í mjög
stóru upplagi. Með stafrænni prentun
er hægt að framleiða umbúðir og
merkingar á hagkvæman hátt í mun
minna magni.“
Guðmundur nefnir jafnframt að
framleiðendur matvæla verði að gæta
þesss að vanda valið á umbúðum.
„Kröfurnar eru stöðugt að aukast um
að hvert einasta skref í ferlinu frá
veiðum til neytanda sé samkvæmt
viðurkenndum ferlum með vottuðum
vörum. Gildir það líka um umbúð-
irnar, sem verða helst að hafa tilhlýði-
legar vottanir svo varan sé gjaldgeng
á erlendum mörkuðum.“ ai@mbl.is
Morgunblaðið/Þórður
Innpakkað Brettavafningslína hjá HB Granda. Sjálfvirk tæki pakka öllu rækilega og inn og á regulegan hátt, verndar vöruna og sparar mörg handtök.