Morgunblaðið - 25.09.2014, Page 16

Morgunblaðið - 25.09.2014, Page 16
16 | MORGUNBLAÐIÐ K ári Borgar Ásgrímsson er einn af þessum mönnum sem virðast fæddir til að stunda sjóinn. Hann var á níunda ári þegar hann fyrst fór í túra með föður sínum og frá fjórtán ára aldri hefur Kári starfað óslitið sem sjómaður. Hann rær nú á línubátnum Glettingi NS-100 en gerir út tvo báta til viðbótar frá Borgarfirði eystri og er með sex til sjö manns á launaskrá. Segist hann vilja nota tækifærið og auglýsa eftir skipstjóra á nýjasta bátinn. „Okkur vantar ungt og duglegt fólk hingað og tækjum vel á móti því.“ Kári fagnaði fimmtugsafmæli sínu á dögunum og eru árin á sjónum því komin yfir þriðja tug. „Strax sem barn var ég ákveðinn í að stunda sjó- inn. Ég vissi alla tíð að ég myndi verða sjómað- ur,“ segir Kári og upplýsir að hann hafi lítið fengist við önnur störf, nema þá helst í sjálf- boðavinnu. Truflunin meiri á togurum Kári kveðst aldrei hafa orðið þreyttur á starfinu og gæti hugsað sér fátt betra en að stunda fisk- veiðar þangað til hann geispar golunni. „Ég held það séu frekar þeir sem starfa á stóru skipunum sem þreytast fyrr á sjómennskunni, því þar eru túrarnir lengri og álagið af öðrum toga. Að veiða á trillu þýðir minni truflun á heimilislífinu og vinnudagurinn oft þægilegri. Er siglt af stað árla morguns, kannski um klukkan sex, og svo komið aftur að landi síðdegis, um þrjú-fjögurleytið.“ Ekki er heldur að heyra á Kára að hann óttist hafið eða veðurguðina og breytir þar engu um að þegar hann var ungur snáði missti hann föður sinn í sjóslysi. „Ég held ég hafi oftar komist í hann krappan í landi en úti á sjó,“ segir hann. Talið berst út í öryggismál og tækniframfar- irnar sem Kári hefur orðið vitni að á löngum ferli. Hans fyrsti bátur var þriggja tonna trébát- ur þar sem áttaviti og dýptarmælir voru einu siglingatækin, en Kári stýrir í dag fimmtán tonna hraðfiskibát með öflugum og nýtískulegum tækj- um sem tala við gervihnetti og vakta bæði veður- far og sjávarbotninn. „Það liggur við að báturinn sé ósökkvandi og tæknin léttir mjög starfið.“ Þessi misserin er dóttir Kára honum til halds og trausts við veiðarnar. Heyra má að þau feðg- inin eru samhent um borð og þar ganga hlutirnir snurðulaust fyrir sig. Dóttirin er Steinunn, fædd 1990, en að auki á Kári soninn Óttar Má með konu sinni Helgu Björgu. Segir Kári að í veiðitúrum skiptist á vinnutarn- ir og rólegar stundir. Dagurinn hefst á því að hífa um borð veiðarfærin, því næst er haldið á miðin og línurnar lagðar eftir kúnstarinnar reglum. „Þá er yfirleitt róleg stund og þykir mér gott að nota tímann til að fá mér blund eða lesa í bók.“ Blundur meðan beðið er Um fjóra til fimm tíma tekur svo að draga lín- urnar aftur um borð með aflanum. Þegar komið er í land þarf að afhenda fiskinn og eins koma línunum í hús til beitingar. Á eðlilegum degi seg- ist Kári getað reiknað með að veiða um fjögur tonn af fiski. „Heilt yfir eru tekjurnar ágætar, og ekki til að kvarta yfir, þótt vitaskuld skili ekki allt söluverð aflans sér beint í vasann og ýmis kostnaður fylgi veiðunum.“ Stundum setur veðrið strik í reikningin og er þá ekkert vit í að róa. Þá dagana tekur Kári til hendinni í skemmu sem hann á, dyttar að bátum og vélbúnaði og dundar sér jafnvel við bíla- viðgerðir. En er vinnan ekkert lýjandi, eftir þessi þrjá- tíu ár? „Sem betur fer er maður stundum þreyttur eftir góðan róður, en annars er held ég mesta vinnan hjá mér að berjast við aukakílóin, eftir að ég fékk svona góðan bát,“ svarar hann kankvís. Enginn skortur á ýsu Blaðamaður fiskar eftir því hvort eitthvað geri starfið ergilegt. Er kannski kvótakerfið í ólagi? Kári æsir sig ekki yfir kvótamálum. Honum þykir kerfið þokkalega stöðugt á meðan vinstri- flokkarnir koma hvergi nærri og skapa ágæta umgjörð um starfsemina, þótt lengi megi deila um smáatriði í kerfinu. „Í síðasta túr veiddum við t.d. þónokkuð af ýsu með þorskinum, en mið- að við aflaheimildir á þessi ýsa eiginlega ekki að vera til.“ Það ergir Kára meira að þurfa að glíma við Samgöngustofu, áður Siglingamálastofnun. „Þar er á ferð batterí sem er alveg skelfilegt að eiga við, ekki vegna þess að reglurnar séu ósann- gjarnar eða erfiðar, heldur virðist þar hafa val- ist erfitt fólk til starfa og fólk sem vantar alla þjónustulund.“ Á móti ergelsinu koma sælustundir úti á hafi sem eru nánast ljóðrænar. „Ég á örugglega eftir að ylja mér á minningunni um þær sælustundir sem ég hef átt þegar legið er fyrir föstu undan Skálum á Langanesi í norðvestanroki. Það er dásamlegt að liggja í koju og hlusta á vind- gnauðið og hvininn í kabyssunni og þá sefur maður líka eins og ungbarn, með hreina sam- visku.“ ai@mbl.is Byrjaði á trébát með áttavita og dýptarmæli Sumir virðast vera sjómenn af guðs náð. Kári Borgar hefur sótt sjóinn í þrjá áratugi og unir sér hvergi betur en um borð. Óstöðvandi „Sem betur fer er maður stundum þreyttur eftir góðan róður, en annars er held ég mesta vinnan hjá mér að berjast við aukakílóin, eftir að ég fékk svona góðan bát,“ segir Kári Borgar. Hlíðasmára 14 sími 588 2122 www.eltak.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband líðas ára 14 Sí i 588 2122 .eltak.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.