Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.09.2014, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2014
Tilboð/útboð
Gagnaveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
www.or.is/utbod
Gagnaveita Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í verkið:
Innanhússlagnir 2014-2015
Verk þetta nær til vinnu við innanhússlagnir á heimilum
nýrra viðskiptavina verkkaupa. Í því felst uppsetning
endabúnaðar ljósleiðarakerfis á heimilum, lagning
þjónustulagna og tenging ljósleiðara í tengistöð.
Verkið er nánar skilgreint í útboðsgögnum GRV 2014/08.
Samningstími er frá undirskrift samnings til 31. desember
2015.
Útboðsgögnin er hægt að sækja án greiðslu á vefsíðu OR
https://www.or.is/um-or/utbod frá og með mánudeginum
8. september 2014.
Tilboð verða opnuð hjá Gagnaveitu Reykjavíkur Bæjarhálsi 1,
110 Reykjavík, þriðjudaginn 23. september 2014, kl. 11:00.
GRV 2014/08 06.09.2014
ÚTBOÐ
Útboð nr. 20158
Þeistareykjavirkjun
Stálpípur og tengistykki
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í stálpípur
og tengistykki samkvæmt útboðsgögnum
nr. 20158 „Steel Pipes and Fittings „ fyrir
jarðvarmavirkjun á Þeistareykjum í Þingeyjar-
sveit.
Verkið felst í framleiðslu og afhendingu á
stálpípum og tengistykkjum fyrir Þeista-
reykjavirkjun.
Stálpípur og tengistykki skal afhenda fyrir
9. júní 2015.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahags-
svæðinu og útboðsgögn eru á ensku.
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef
Landsvirkjunar http://utbod.lv.is frá og
með þriðjudeginum 9. september 2014.
Tilboðum skal skila til Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, fyrir klukkan 12:00
miðvikudaginn 29. október 2014 þar sem þau
verða opnuð kl. 14:00 sama dag og lesin upp
að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess
óska.
Kennsla
Löggildingarnámskeið
fyrir mannvirkjahönnuði
Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem
óska löggildingar Mannvirkjastofnunar til að
gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25.
og 26. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010,
verður haldið í nóvember 2014, ef næg
þátttaka fæst. Námskeiðið mun hefjast
mánudaginn 3. nóvember 2014. kl. 09:00 –
17:00 og standa dagana 3 - 7. nóvember og
lýkur með prófi laugardaginn 15. nóvember.
Námskeiðsgjald er 95.000.- kr. og 60.000.- kr.
fyrir þá sem sækja námskeiðið til endur-
menntunar án prófs.
Upplýsingar og umsóknareyðublað fást hjá
IÐUNNI - fræðslusetri, Vatnagörðum 20,
Reykjavík eða vefsetrinu www.idan.is.
Umsóknum skal skilað til IÐUNNAR útfylltum
ásamt 1) afriti af prófskírteini umsækj-
anda, 2) vottorði frá atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneyti um réttindi til
starfsheitis, 3) vottorði/um um 3 ára
starfsreynslu, sbr. 1. mgr. 26. gr. laga
um mannvirki, eigi síðar en mánudaginn
20. október 2014.
Nánari upplýsingar í síma 590 6434.
Mannvirkjastofnun,
Skúlagötu 21,
101 Reykjavík.
Tilboð í stangveiðirétt
Veiðifélag Varmá og Þorleifslækjar Ölfusi
auglýsir eftir eftir tilboðum í stangveiðirétt í
Varmá og Þorleifslæk til næstu 3 ára.
Fyrirspurnir másenda á hsver@simnet.is eða
hringja í síma 892 0367.Tilboð berist fyrir
27. september 2014 og sendist á eftirfarandi
heimilisfang merkt:
Varmá/Þorleifslækur
Hraun II, 816 Ölfus
Reykjavíkurborg
Innkaupadeild
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Sími 411 1042 / 411 1043
Bréfsími 411 1048
Netfang: utbod@reykjavik.is
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Árbæjarlaug – endurnýjun á vatnsrennibraut 2014,
útboð nr. 13314
• Klór fyrir sundstaði og íþróttamannvirki,
útboð nr. 13304
• Baðsápa fyrir sundstaði og íþróttamannvirki,
útboð nr. 13305
• Skammdegislýsing, endurbætur á frisbeevelli og
leiksvæði Klambratúni. Endurbætur á tjarnarbakka
og umhverfi höggmyndar í Hljómskálagarði,
útboð nr. 13315
ÚTBOÐ
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
Uppboð
Próf í verðbréfaviðskiptum 2014-2015
Prófnefnd verðbréfaviðskipta stendur fyrir prófum í verðbréfaviðskiptum veturinn 2014-2015 sem hér segir:
Próf í I. hluta verða haldin 1, 5. og 8. nóvember 2014, próf í II. hluta 24., 28. og 31. janúar 2015 og próf í III.
hluta 6., 9., 13. og 16. maí 2015. Um prófin fer samkvæmt reglugerð nr. 633/2003 um próf í verðbréfa-
viðskiptum, með áorðnum breytingum. Vakin er athygli á að próf í verðbréfaviðskiptum verða ekki haldin
nema að a.m.k. 10 manns hafi skráð sig í próf, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 633/2003 um próf í verðbréfa-
viðskiptum. Sama á við um haustpróf 2015. Öllum er heimilt að skrá sig til verðbréfaviðskiptaprófs.
Prófnefnd verðbréfaviðskipta tekur ákvörðun um efni sem prófað er úr á verðbréfaviðskiptaprófi og semur
prófsefnislýsingu, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 633/2003. Í prófsefnislýsingu greinir jafnframt upplýsingar um
leyfileg hjálpargögn í prófum o.fl., en lýsinguna má nálgast á vefsíðu fjármála- og efnahagsráðuneytis,
www.fjr.is. Lengd hvers prófs er allt að 4 klukkustundir. Um undanþágur frá töku prófa fer skv. 4. gr.
reglugerðar nr. 633/2003. Einkunnir í einstökum prófum eru gefnar í heilum og hálfum tölum frá 0 til 10.
Til þess að standast verðbréfaviðskiptapróf þarf próftaki að hljóta a.m.k. 7,0 í meðaleinkunn úr þeim prófum
sem hann hefur þreytt og skal próftaki hafa lokið öllum nauðsynlegum prófum með fullnægjandi árangri
innan þriggja ára frá því að hann tók fyrsta prófið. Próftaki telst ekki hafa staðist einstök próf hljóti
hann lægri einkunn en 5,0. Nánari upplýsingar um verðbréfaviðskiptapróf má nálgast á fyrrgreindri vefsíðu
prófnefndar.
Próftökum verður tilkynnt um nákvæmari tíma- og staðsetningu er nær dregur prófunum, sem þreytt verða í
húsakynnum á vegum Opna háskólans í Háskólanum í Reykjavík.
Skráning í prófin fer fram á vefsíðu Opna háskólans: http://www.ru.is/opnihaskolinn/prof-i-verdbrefamidlun/.
Próftakar verða að hafa skráð sig og greitt prófgjald minnst einni viku fyrir sérhvert próf.
Prófgjald verður auglýst síðar á heimasíðu prófnefndar á vefsíðu fjármála- og efnahagsráðuneytis
http://www.fjarmalaraduneyti.is/raduneytid/nefndir/nr/16884.
Reykjavík, 6. september 2014
Prófnefnd verðbréfaviðskipta
Veiði
Námskeið til undirbúnings prófi
til að öðlast réttindi til að vera
héraðsdómslögmaður
Prófnefnd samkvæmt reglugerð nr. 1095/2007
um próf til að öðlast réttindi til að vera
héraðsdómslögmaður, sbr. lög nr. 77/1998 um
lögmenn og lög nr. 93/2004, hefur ákveðið að
halda námskeið haustið 2014.
Stefnt er að því að kennsla á fyrri hluta fari
fram dagana 29. september til 10. október
2014. (Tímar frá 09:15-12:00 og frá 13:15 eða
14:15-17:00 eða 18:00) Jafnframt er stefnt að
því að próf í fyrri hluta námskeiðsins verði
haldin á tímabilinu 17. til 31. október 2014.
Nánari upplýsingar um fjölda kennslustunda og
fyrirkomulag kennslu verða kynntar síðar. Þá er
stefnt er að því að kennsla í síðari hluta fari
fram dagana 5. til 14. nóvember 2014 og að
próf í síðari hluta námskeiðsins verði haldin á
tímabilinu 17. til 21. nóvember 2014.
Gjald fyrir þátttöku á fyrri hluta prófraunar er
kr. 300.000 og greiðist við skráningu. Gjald
fyrir síðari hluta verður ákveðið síðar.
Prófgjald er innifalið í námskeiðsgjaldi.
Skráning fer fram í gegnum rafrænt
skráningarkerfi á heimasíðu Lögmannafélags
Íslands á slóðinni www.lmfi.is Við skráningu
skal leggja fram afrit prófskírteinis til
staðfestingar því að umsækjandi hafi lokið
fullnaðarnámi í lögfræði með embættis- eða
meistaraprófi. Hægt er að senda þær
upplýsingar með tölvupósti á netfangið:
hjordis@lmfi.is
Frestur til að skrá sig á námskeið er til og með
22. september 2014.
Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna
á vef innanríkisráðuneytisins á slóðinni:
www.innanrikisraduneyti.is
Innanríkisráðuneytið,
5. september 2014.
Kennsla
Tilkynningar