Morgunblaðið - 03.11.2014, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2014
Hólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.isSkútan
www.veislulist.is
jólahlaðborð okkar á
Pantanir fyrir veislur þurfa
að berast tímalega.
Þú getur lesið allt um
Nú fer að líða að jólum þá er gott að
panta tímanlega jólahlaðborðin.
Starfsfólk okkar leggur sig fram um að gera
stundina fallega með góðum veitingum og
persónulegri og góðri þjónustu.
Öll þjónusta er innifalin í verði veitinga.
...tímanlega!
Panta
ðu
Bandaríski tæknirisinn Google hefur
gefið íslenska sprotafyrirtækinu
MURE VR vilyrði fyrir samstarfi
um prófanir á hugbúnaði fyrir Ocu-
lus Rift-sýndarveruleikatæknina.
ViðskiptaMogginn sagði frá
MURE VR í sumar en fyrirtækið
vinnur að gerð hugbúnaðar sem
skapar eins konar vinnustöð í sýnd-
arveruleika. Oculus Rift er tæki sem
hefur verið í þróun vestanhafs um
nokkurt skeið og þykir bjóða upp á
mjög fulkomna sýndarveruleikaupp-
lifun. Hugbúnaðarfyrirtæki víða um
heim vinna að lausnum sem nýta eig-
inleika þessarar nýju tækni og er
MURE VR eitt þeirra.
Tók MURE VR þátt í Startup
Reykjavík-verkefninu í sumar og er
nú til húsa hjá Nýsköpunarmiðstöð.
Hittust á ráðstefnu
Diðrik Steinsson er einn stofn-
enda MURE VR og segir hann sam-
starfið við Google vera afrakstur
ráðstefnu sem hann sótti í Banda-
ríkjunum. „Þangað var boðið fulltrú-
um þeirra fyrir-
tækja sem eru að
þróa hugbúnað
fyrir Oculus Rift.
Átti ég þar fund
með fulltrúum frá
Google, nánar til-
tekið frá þeirri
deild fyrirtækis-
ins sem ber
ábyrgð á að skapa
starfsmönnum
sem besta vinnuaðstöðu.“
Að sögn Diðriks felur samstarfið í
sér að tækni MURE VR verður
reynd á starfsliði Google. „Google
mun nálgast þessar prófanir á ítar-
legan og vísindalegan hátt og gefa
okkur mjög verðmæta endurgjöf.
Um leið mun nafn Google vafalítið
greiða lausninni okkar leið inn í fleiri
fyrirtæki, ef vel tekst til.“
Diðrik segir von á nothæfri prufu-
útgáfu af MURE VR þegar líða tek-
ur á næsta sumar, að því gefnu að
fjármögnun gangi vel. Segir hann
fjárfesta sýna fyrirtækinu vaxandi
áhuga og fjármögnun þróunarvinn-
unnar framundan sé á réttri leið.
Í úrslitaslag á netinu
„Hefur m.a. aukið mjög á sýnileika
okkar að komast í átta liða úrslit í
keppni Investor Challenge þar sem
leitað er að áhugaverðasta hugbún-
aðinum fyrir Oculus Rift. Netkosn-
ing stendur enn yfir og 25.000 dalir í
verðlaun fyrir fyrsta sætið, en
stærstu verðlaunin eru þó sýnileik-
inn og greinilegt að margir fjárfestar
nota þessa keppni til að sjá hvað það
er sem hinn almenni notandi er
áhugasamastur um. Er MURE VR
eina fyrirtækið utan Bandaríkjanna í
hópi þeirra átta fyrirtækja sem nú
etja kappi.“
Síðar í þessum mánuði halda
fulltrúar MURE VR á finnsku ráð-
stefnuna Slush, sem haldin er í Hels-
inki. „Er um að ræða risavaxinn við-
burð þar sem þúsundir sprota og
fjárfesta eru leiddar saman. Af 2.500
þátttakendum hefur MURE VR ver-
ið valið í hóp 100 teyma sem fá að
taka þátt í nokkurs konar kynning-
arkeppni,“ segir Diðrik.
ai@mbl.is
Google vill nota íslenska tækni
Samkomulag um prófanir á íslensk-
um hugbúnaði sem býr til vinnustöð í
sýndarveruleikatækinu Oculus Rift
Diðrik
Steinsson
Afköst Mynd sem gefur hugmynd um hvernig sýndarvinnustöð MURE VR blasir við notandanu.
Hlutabréfavísitölur í Evrópu styrkt-
ust töluvert á föstudag. Stoxx 600
vísitalan hækkaði um 1,8% og endaði
í 336,80 stigum með 2,9% hækkun yf-
ir vikuna.
MarketWatch greinir frá að þetta
sé mesta vikuhækkun Stoxx 600 síð-
an í desember á síðasta ári.
Stoxx 600 samanstendur af fyrir-
tækjum í öllum geirum í 18 Evrópu-
löndum.
Breska FTSE 100 vísitalan
styrktist einnig á föstudag, bætti við
sig 1,3% og endaði í 6.564,57 stigum
með 2,5% hækkun yfir vikuna.
Sömuleiðis styrktist franska CAC 40
vísitaan um 2,2% og þýska DAX 30
vísitalan bætti við sig 2,33% eftir við-
skipti föstudagsins.
Jákvæði tónninn á evrópskum
hlutabréfamörkuðum er rakinn til
frétta frá seðlabanka Japans um að
aukinn kraftur verði settur í aðgerð-
ir til að örva japanska hagkerfið.
Bankinn hefur dælt 50 milljörðum
jena árlega inn í hagkerfið en mun
auka innspýtinguna upp í 80 millj-
arða.
Japanska Nikkei 225 vísitalan
hækkaði um 4,83% við fréttirnar en
japanska jenið veiktist mjög gagn-
vart bandaríkjadal á sama tíma.
ai@mbl.is
Stoxx 600 vísitalan tekur kipp
Markaðir brugðust vel við fréttum frá seðlabanka Japans
Eins og Morgunblaðið greind frá á
laugardag hefur íslenska hugbún-
aðarfyrirtækið DataMarket verið
selt bandaríska viðskiptagreindar-
fyrirtækinu Qlik.
Í tilkynningu sem send var mörk-
uðum vestanhafs kemur fram að
kaupverðið er 13,5 milljónir dala,
janvirði um 1,6 miljarða króna á
gengi helgarinnar.
Á heimasíðu sinni segir Hjálmar
Gíslason, stofnandi og fram-
kvæmdastjóri DataMarket, að þjón-
usta við íslenska viðskiptavini muni
haldast óbreytt og fyrirtækið stefni
á frekari uppbyggingu hérlendis.
Fjallar hann jafnframt um að gjad-
eyrishöftin hafi verið stærsti
flækju- og áhættuþátturinn í sölu-
ferlinu, kallað á mikla yfirlegu, ráð-
gjöf og kostnað fyrir bæði kaup-
anda og seljanda.
„Fjárfestar eru allir að fá mjög
góða ávöxtun á sitt fé og eru
ánægðir með árangurinn,“ segir
hann jafnframt. „Þetta er meira að
segja nóg til að hreyfa nálina pínu-
lítið í einhverjum hagstærðum, sem
er umhugsunarvert. Að 15 manns
sem setjast niður við Klapparstíg
með svolitla fjármögnun, kaffi og
aðgang að internetinu geti búið til
slík verðmæti í formi hugverka.“
ai@mbl.is
Kaupverð Data-
Market rösklega
1,6 milljarðar króna
Morgunblaðið/Kristinn
Verðmæti Hjálmar Gíslason segir á
vefsíðu sinni að gjaldeyrishöftin
hafi aukið kostnað, flækjur og
áhættu við söluna.
Fjölmiðlafyrirtækið Kjarninn miðl-
ar ehf. tilkynnti á sunnudag að nýir
fjárfestar hefðu komið inn í
eigendahóp fyrirtækisins og lagt
rekstrinum til aukið fjármagn.
Í tilkynningunni kemur fram að 2.
október sl. hafi Kjarninn kynnt til
leiks nýjan fréttavef sem sinnir dag-
legri fréttaþjónustu. Samhliða því
hófst útgáfa daglegs fréttabréfs
Kjarnans auk þess að hlaðvarps-
útgáfa var efld. Verða sex ólíkir
hlaðvarpsþættir á dagskra Kjarn-
ans í hverri viku í nóvember.
Fjárfestahópurinn sem nú bætist
við Kjarnann er leiddur af Hjálmari
Gíslasyni, stofnanda DataMarket,
og verður hann nýr formaður
stjórnar Kjarnans. Stofnendur og
starfsmenn Kjarnans munu áfram
eiga rúman meirihluta í félaginu
eða 67%.
Stærstu eigendur Kjarnans að
lokinni hlutafjáraukingu eru Vil-
hjálmur Þorsteinsson, með 13,7%,
Magnús Halldórsson með 13%,
Þórður Snær Júlíusson með 13%
Ægir Þór Eysteinsson með 11,5%,
Gísli Jóhann Eysteinsson með 11,5%
og Hjalti Harðarson með 11,5%.
Fimm aðrir aðilar eiga minni hluti.
ai@mbl.is
Fleiri bætast í
eigendahóp Kjarnans