Morgunblaðið - 08.11.2014, Page 1

Morgunblaðið - 08.11.2014, Page 1
 „Hér hefur hljóðbóka- markaðurinn, líkt og raf- bókamark- aðurinn, verið svelt- ur en við höfum reynt að bæta úr því. Það mættu vera fleiri titlar í boði og þeir þurfa að koma á sama tíma og prentaða bókin til að fleiri líti á hljóðbókina sem raunverulegan valkost,“ segir Stefán Hjörleifsson, eigandi eBóka, sem selja raf- og hljóðbækur. Hljóðbókaútgáfa hefur verið metnaðarfull en enn er markaður- inn agnarsmár, segir Bryndís Loftsdóttir hjá Félagi íslenskra bókaútgefenda. »16 L A U G A R D A G U R 8. N Ó V E M B E R 2 0 1 4 Stofnað 1913  262. tölublað  102. árgangur  Royal Tryggir öruggan bakstur Íslensk framleiðsla BJÖRGVIN BESTUR OG ÆTLAR ÚT GÓLFIÐ DÚAR AIRWAVES 46ÍÞRÓTTIR HANDBOLTI Skorið Hjartaaðgerð á Landspítalanum.  Ómega-3-fitusýrur virðast auka hættuna á gáttatifi, sem er algeng hjartsláttartruflun, eftir hjarta- skurðaðgerð. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem íslenskir læknar og vísindamenn gerðu. Niðurstaðan kom rannsakendum í opna skjöldu enda bjuggust þeir við þveröfugum áhrifum, það er að ómega-3-fitu- sýrurnar myndu gagnast sjúkling- unum. Vísindamennirnir segja þetta glöggt dæmi um mikilvægi þess að framkvæmdar séu vandaðar rann- sóknir á ávinningi ákveðinnar með- ferðar áður en farið er að beita henni. Nánar um rannsóknina í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Ómega-3-fitusýrur virðast auka hættu á gáttatifi Rannsóknarsvæðið » HS Orka er með rannsókn- arleyfi á þessu tiltekna svæði, í nágrenni Krýsuvíkurskóla. » Viðræður munu ekki snúast um rannsóknir á hverasvæðinu í Seltúni. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Við höfum fyrir löngu aflað okkur rannsóknarleyfis á svæðinu og erum með samkomulag við Hafnarfjarðar- bæ um að vinna að þessu. Bréfið var sent núna til að halda viðræðum áfram,“ segir Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, en fyrirtækið óskaði nýverið eftir viðræðum við Hafnarfjarðarbæ um rannsóknir á jarðhitasvæði í Krýsuvík, sem gætu leitt til orkuvinnslu. Ásgeir telur möguleika á að hægt sé að vinna 50-100 MW afl í jarð- varma á þessu tiltekna svæði, sem er í nýtingarflokki rammaáætlunar. HS Orka vill einnig kanna mögu- leika á afleiddri starfsemi orku- vinnslu, sem og ferðaþjónustu. Bæjarráð hefur samþykkt að fela Haraldi L. Haraldssyni bæjarstjóra að fara í viðræðurnar við forsvars- menn HS Orku. Haraldur sagði ekki meira um málið að segja af hálfu bæjarins er Morgunblaðið náði tali af honum í gær. Svipaða sögu hafði Rósa Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs, að segja. Málið væri á frumstigi. MViðræður um orkuvinnslu »6 HS vill virkja í Krýsuvík  HS Orka í viðræður við Hafnarfjarðarbæ um orkuvinnslu í Krýsuvík  Umrætt svæði er í nýtingarflokki rammaáætlunar  Möguleikar eru á 50-100 MW virkjun Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skógur Vísindamenn telja dauða trjáa á Reykjum gefa merkar vísbendingar. Fjölmörg stór tré í skóginum við Reyki í Ölfusi hafa fallið á síðustu misserum þar sem heitt vatn úr sprungu sem myndaðist í jarð- skjálftunum vorið 2008 hefur komist í rótakerfi þeirra og drepið. Land þarna, þar sem fjöldi nýrra hvera opnaðist í skjálftunum, breytist stöðugt. Það hefur vakið athygli vís- indamanna víða að úr veröldinni sem koma á staðinn í rannsóknarskyni. „Rætur trjánna soðna. Þetta er einsdæmi á heimsvísu,“ segir Guð- ríður Helgadóttir hjá Landbúnaðar- háskóla Íslands á Reykjum. Upp eftir fjallshlíðinni má sjá tugi fallinna trjáa. Mælingar sem þarna hafa verið gerðar gefa vísindafólki innsýn í þróun á lífi örvera og smá- dýra við hækkandi jarðvegshita. Hefur til dæmis mælst 60 gráða hiti á 10 cm dýpi, segir Guðríður Helga- dóttir. „Hér má finna staði þar sem hitastigið er stöðugt 5-10°C heitara en venjulega og eru það staðir sem vísindamönnum þykja sérstaklega spennandi, enda í takt við þá hlýnun sem kannski mætti búast við á jörð- inni á næstu áratugum.“ sbs@mbl.is »12 Soðnar rætur einsdæmi á heimsvísu  Heit jörð á Reykjum vekur athygli Í dag er baráttudagur gegn einelti haldinn í fjórða sinn. Víða var gærdagurinn notaður til að huga að þessu málefni, ekki síst í skólum lands- ins. Í Kópavogi gengu tæplega 8.000 leik- og grunnskólabörn gegn einelti í öllum hverfum bæjarins, ásamt kennurum og öðru starfsfólki skólanna. Markmið göngunnar var að stuðla að jákvæðum samskiptum, vekja athygli á einelti sem ofbeldi og að það sé aldrei liðið. Mörg barnanna gengu með skilti þar sem mátti sjá ým- is slagorð gegn einelti en gangan á að efla sam- stöðu barnanna og skólastarfið. Leik- og grunnskólabörn í Kópavogi gengu gegn einelti Morgunblaðið/Ómar Baráttudagur gegn einelti haldinn í fjórða sinn Hljóðbók verði raun- verulegur valkostur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.