Morgunblaðið - 08.11.2014, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014
Karl Ásgeir Sigurgeirsson
Hvammstanga
Félag sem hjónin Tómas
Kristjánsson og Sigrún Guð-
mundsdóttir eru í forsvari fyrir
hefur fest kaup á Laugarbakka-
skóla í Miðfirði af Húnaþingi
vestra.
Um er að ræða skólahús með
kennslustofum, heimavist, mötu-
neyti, íþróttahúsi og íbúðum, auk
einbýlishúss og íbúðaparhúss.
Heildarflatamál fasteignanna er
tæpir 4.000 fermetrar. Kaupverð
er ekki gefið upp, en unnið er nú
að stofnun formlegs eignarhalds-
og rekstrarfélags um eignina.
Síðastliðið vor var starfsemi
Laugarbakkaskóla lögð niður og
fluttist kennsla í haust til
Hvammstanga. Undanfarin ár
hefur Hótel Edda rekið sum-
arhótel á Laugarbakka og rennur
leigusamningur út í ágústlok
2015. Húsnæðið verður afhent
nýjum eigendum hinn 1. október
2015.
Endurbæta þarf húsnæðið
Tómas og Sigrún koma úr
Reykjavík. Þau hafa unnið þar að
veitingarekstri. Að sögn Tómasar
er stefnt að umfangsmiklum
endurbótum á húsnæðinu með
það að markmiði að gera eignina
heppilegri til hótelrekstrar auk
þess að standsetja fjölnotahús,
sem nýst getur fyrir alls kyns ráð-
stefnur og uppákomur.
Stefnt er að rekstri heilsárshót-
els með þriggja stjörnu gæðum,
allt að fimmtíu herbergjum með
snyrtingu og sturtu. Stefnt er að
opnun hótelsins vorið 2016.
Gera má ráð fyrir að með
rekstri þess skapist sex til átta
heilsársstörf í héraðinu og allt að
sextán störf á háannatíma.
Guðný Hrund Karlsdóttir, sveit-
arstjóri Húnaþings vestra, er
ánægð með þessa sölu. Segir hún
mikinn kraft og metnað í Húna-
þingi vestra í uppbyggingu af-
þreyingar og þjónustu við ferða-
menn. Með fjölgun gistiherbergja
og auknum gæðum í þjónustu sem
í boði er nýtast núverandi fjárfest-
ingar ferðaþjónustuaðila í sveitar-
félaginu enn betur og ný tækifæri
skapast í kjölfarið fyrir sveitarfé-
lagið allt.
Laugarbakkaskóli
fær nú nýtt hlutverk
Einstaklingar kaupa húsnæðið og byggja upp heilsárshótel
Morgunblaðið/Karl Ásgeir
Laugarbakkaskóli Skólinn er mikið mannvirki. Skólahúsnæðið og aðrar
byggingar eru samtals um 4.000 fermetrar að flatarmáli.
Laugarbakkaskóli
» Skólinn var byggður af ríki
og sveitarhreppum í Vestur-
Húnavatnssýslu. Elsti hlutinn
var byggður á árunum 1970 til
1991.
» Með sameiningu sveitar-
félaga í héraðinu í Húnaþing
vestra árið 1998 var skóla-
rekstur einnig sameinaður
undir hatti grunnskóla Húna-
þings vestra.
Ármúla 38 | Sími 588 5010 | hljomsyn.comOpið: virka daga 11-18, laugard. 12-14
BROT AF ÞVÍ BESTA...
Allroom Air One þráðlausir hátalarar
„Superior performance“
Audio Test, Austria 5-13
„The best wireless speaker we
have heard in its class“ Lyd &
Bilde, Norway, 2-2014
Best AirPlay Speaker £400+
2013!What HiFi?, oct-13
„Impressively high fidelity
audio... fashionable
package.“ Technology Tell
5 stars and Group Test
Winner!What HiFi!, UK
„A triumph"HiFi & Musik
„Looks great, sounds brilliant“
TAP! magazine
„You won't believe your
ears!“ Video Magazine audiopro.com
Stereo hátalari 100w leðurklæddur rautt, hvítt og svart
Fjarstýring/Optical in / Line in /Sub out
Hanna Birna Kristjánsdóttir innan-
ríkisráðherra og Dagur B. Eggerts-
son borgarstjóri tóku fyrstu skóflu-
stungu að stækkun flugstjórnar-
miðstöðvarinnar við Reykjavíkur-
flugvöll í gær. Starfsemi alþjóðaflug-
þjónustu Isavia fer nú fram á fjórum
stöðum í Reykjavík. Stækkun flug-
stjórnarmiðstöðvarinnar gerir kleift
að sameina starfsemina undir einu
þaki og mun rýmkast um hana. M.a.
verður flugfjarskiptadeild, sem nú er
í Sóleyjarrima, flutt í flugstjórnar-
miðstöðina.
Framkvæmdin kostar um einn
milljarð króna. Kostnaðurinn dreif-
ist á tvö næstu ár og verður greiddur
af notendum þjónustunnar.
Um þriðjungi allrar flugumferðar
yfir Norður-Atlantshaf er stjórnað
úr flugstjórnarmiðstöðinni sem tek-
in var í notkun 1994. Flugstjórnar-
svæðið er um 5,4 milljónir km2 og
nær að norðurpólnum. Umsvifin
hafa aukist ár frá ári og var orðið
löngu tímabært að stækka húsnæðið.
Í fyrra flugu rúmlega 116 þúsund
flugvélar nærri 170 milljónir kíló-
metra um íslenska flugstjórnar-
svæðið. Það sem af er árinu hafa 112
þúsund flugvélar farið um svæðið og
stefnir í að flug um það aukist um
15% á þessu ári. Mest er um yfirflug
sem Isavia sinnir samkvæmt samn-
ingi við Alþjóðaflugmálastofnunina.
gudni@mbl.is
Ljósmynd/Isavia/Guðni Sigurðsson
Fyrsta skóflustunga tekin Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkis-
ráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri munduðu skóflurnar.
Flugstjórnarmið-
stöðin stækkuð
Starfsemi sameinuð undir einu þaki