Morgunblaðið - 08.11.2014, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 08.11.2014, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014 Jón William Magnússon forstjóri andaðist á Landspítalanum við Hringbraut 7. nóv- ember, 73 ára að aldri. Hann fæddist á Strand- götu 17 í Ólafsfirði 16. desember 1940, sonur hjónanna Magnúsar Jónssonar sjómanns frá Kálfsá og Guðlaugar Helgu Jóhannesdóttur húsmóður frá Grund, bæði frá Ólafsfirði. Jón William stundaði nám við Iðnskólann á Ólafsfirði árin 1956- 1958 er hann flutti suður til Keflavík- ur, þá 17 ára að aldri, þar sem hann starfaði hjá Vélsmiðju Olsen og lauk þar sveinsprófi í vélvirkjun árið 1963. Jón William lauk síðan meistaraprófi í pípulögnum árið 1967. Hann stofn- aði í kjölfarið fyrirtækið Rörlagnir ásamt samstarfsmönnum og var for- maður félags íslenskra pípulagninga- manna í nokkur ár frá árinu 1971. Jón William var mikill brautryðj- andi í atvinnurekstri og hafði sem slíkur mikil áhrif á sam- félagið allt á Suður- nesjum. Jón William stofnaði Ofnasmiðju Suðurnesja 13. febrúar 1972. Var fyrirtækið rekið af fjölskyldu Jóns til ársins 2005 þegar það var selt eftir far- sælan rekstur í 33 ár en Ofnasmiðja Suðurnesja var í fararbroddi í framleiðslu ofna hér- lendis frá stofnun. Jón William var einnig frumkvöðull í ferða- þjónustu og stofnaði Hótel Keflavík 17. maí 1986 ásamt fjölskyldu sinni og vann að uppbygg- ingu þess til dánardags. Eiginkona Jóns William var Unnur Ingunn Steinþórsdóttir húsmóðir, fædd 13. febrúar 1942, látin 6. sept- ember 2010. Þau eignuðust fjögur börn, Magnús, Steinþór, Guðlaugu Helgu og Davíð. Útför Jóns Williams fer fram frá Keflavíkurkirkju 18. nóvember og hefst athöfnin klukkan 13. Andlát Jón William Magnússon Þrír hafa boðið sig fram til for- mennsku í Lands- sambandi hesta- mannafélaga (LH) fyrir fram- haldsaðalfund sem haldinn verð- ur í dag. Þrettán bjóða sig fram til aðalstjórnar og átta í varastjórn. Landsþingi LH var frestað á dög- unum þegar formaður sambandsins sagði af sér í kjölfar deilna um stað- setningu næsta landsmóts og öll stjórnin lýsti í kjölfarið því yfir að hún myndi einnig segja af sér. Framhaldsþingið hefst klukkan 9 í dag. Aðalmál þingsins er að kjósa for- mann og stjórn. Þeir þrír sem bjóða sig fram til for- mennsku eru Kristinn Hugason, Lár- us Ástmar Hannesson og Stefán G. Ármannsson. Þeir fá tækifæri til að kynna sig á fundinum. Þrettán bjóða sig fram í aðalstjórn. Þau eru: Hrönn Kjartansdóttir, Andrea Þorvaldsdóttir, Sigurður Ævarsson, Þorvarður Helgason, Jóna Dís Bragadóttir, Ólafur Þóris- son, Eyþór Gíslason, Stella Björg Kristinsdóttir, Haukur Baldvinsson, Sigurður Ágústsson, Gunnar Dungal, Steingrímur Viktorsson og Jónas Vigfússon. helgi@mbl.is Þrír í fram- boði til for- mennsku í LH Óvissa Enn er deilt um landsmót. Rúmlega 300 kindur voru teknar af bónda í Suðurumdæmi og þær sendar til slátrunar í fyrradag. Matvælastofnun (MAST) svipti bóndann fénu vegna „óviðunandi aðbúnaðar og umhirðu“ eins og segir í frétt stofnunarinnar. Um ítrekuð brot var að ræða og var ekki orðið við kröfum Matvæla- stofnunar um úrbætur. Óskað var eftir því að lögregla væri viðstödd þegar fénu var smal- að og það var sótt á bæinn, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. Matvælastofnun hefur haft af- skipti af búinu undanfarin ár vegna ófullnægjandi aðbúnaðar og um- hirðu. Síðastliðinn vetur var húsa- kostur á bænum ófullnægjandi en tryggja þarf viðeigandi húsnæði samkvæmt lögum um velferð dýra. Matvælastofnun gaf lokafrest til 15. september til að bæta úr ástandinu og til að tryggja full- nægjandi aðstöðu dýra í vetur. Ekki var orðið við þeim kröfum. „Með dýravelferðarlögum hefur Matvælastofnun heimild til að framkvæma vörslusviptingu á dýr- um þegar dýraeigendur fylgja ekki reglum um velferð dýra og virða ekki tilgreinda fresti sem þeim eru gefnir,“ segir í frétt stofnunarinn- ar. Nýju lögin um velferð dýra gengu í gildi 1. janúar 2014. Mat- vælastofnun hefur m.a. eftirlit með aðbúnaði búfjár. Hægt er að til- kynna Matvælastofnun um illa meðferð á dýrum. gudni@mbl.is Bóndi sviptur rúm- lega 300 kindum • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 Vertu vinur okkar á Facebook 20% afsláttur af Lokadagur Kjólar, buxur, tunikur, toppar... Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 H a u ku r 1 0 .1 4 Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hrl. lögg. fasteignasali, sigurdur@kontakt.is Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is • Stórt og rótgróið fyrirtæki í framleiðslu matvæla. Er nú með 14 eigin verslanir og hratt vaxandi sölu og hagnað. Ársvelta um 700 mkr. og Ebitda 135 mkr. • Rótgróið innflutningsfyrirtæki með kælitæki, viftur, blásara og skyldar vörur. Ársvelta er vaxandi, nú 140 mkr. og afkoma góð. Eigandi vill hætta vegna aldurs en er til í að starfa eitthvað áfram með nýjum eiganda, ef þess er óskað. • Ein þekktasta ísbúðakeðja landsins. Mjög góð afkoma og miklir stækkunarmöguleikar. • Stór innflutningsverslun með vörur fyrir byggingariðnaðinn. Ársvelta 700 mkr. • Mjög fallegt 15 herbergja notalegt “boutique” hótel í góðum rekstri á frábærum stað í miðbæ Reykjavíkur. • Rótgróin lítil heildverslun með snyrtivörur. • Stórt og vinsælt hostel á góðum stað í miðbæ Reykjavíkur. Góð velta og afkoma. • Lítið fyrirtæki með álagningarháar vörur sem það flytur sjálft inn. Hentar vel aðilum sem eru með dreifingu á eigin vörum í stórmarkaði. • Ferðaskrifstofa með bílaleigu. Góð fyrirtæki sem bjóða upp á spennandi ferðir allt árið á eigin bílum. Velta 300 mkr. og vaxandi. Ágæt afkoma. • Ein elsta og þekktasta verslun landsins með vandaðan kvenfatnað. Markhópur verslunarinnar eru konur 30 ára og eldri. Góð umboð. gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Gull eða silfur Flottir toppar Verð kr. 10.900 | Str. 36-52 Opið 10-16 í dag 20% AFSLÁTTUR 7.-15. NÓV BASIC DRAGTIN ALLTAF KLASSÍK ALLTAF FLOTT FRÁBÆR GLÆSIDRAGT JAFNT Í VEISLUNA SEM VINNUNA MÖRG SNIÐ STÆRÐIR 36-48 laxdal.is Laugavegi 63 • S: 551 4422 Rafhitarar í skip, hús og sumarhús Ryðfríir neysluvatnshitarar með 12 ára ábyrgð Hitöld (element), hitastillar, hitastýringar og flest annað til rafhitunar Við erum sérfræðingar í öllu sem Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði Sími: 565 3265 rafhitun@rafhitun.is • www.rafhitun.is viðkemur rafhitun. Aukablað alla þriðjudaga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.