Morgunblaðið - 21.11.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Framkvæmdum við nýtt móttökuhús Fjölskyldu-
og húsdýragarðsins í Laugardal er um það bil að
ljúka. Þar verður miðasalan til húsa og minja-
gripir seldir. Tómas Óskar Guðjónsson, for-
stöðumaður garðsins, segir að húsinu verði lokið
að utanverðu í næsta mánuði og opnað fyrir
gesti fyrri hluta næsta árs. Móttökuhúsið er 100
fermetrar að stærð og leysir það af hólmi 8 fer-
metra skúr sem notast hefur verið við. Jöfn og
góð aðsókn er að Fjölskyldu- og húsdýragarð-
inum. Gestir eru um 170 til 200 þúsund á hverju
ári. Eru Íslendingar í miklum meirihluta.
Nýtt móttökuhús í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal að verða tilbúið
Morgunblaðið/Ómar
Sala aðgöngumiða og minjagripa verður í nýja húsinu
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þrjár af helstu þjónustugreinum
ferðaþjónustunnar voru í örum vexti
á fyrstu átta mánuðum ársins og er
veltan á tímabilinu farin að nálgast
100 milljarða í fyrsta sinn.
Aukningin í veltu hjá veitingastöð-
um, hótelum og gististöðum og bíla-
leigum á fyrstu átta mánuðum hvers
árs frá árinu 2008 er sýnd hér til
hliðar. Virðisaukaskattur er gerður
upp á tveggja mánaða fresti og eru
tölurnar fyrir júlí og ágúst nýjar.
Á verðlagi hvers árs
Sé veltan á árinu 2009 lauslega nú-
virt, miðað við breytingar á vísitölu
neysluverðs frá ágúst 2009 til ágúst
2014, má sjá raunaukningu í veltu í
þessum þremur greinum. Veltan í
veitingasölu og -þjónustu fyrstu átta
mánuði ársins 2009 er þá 32,3 millj-
arðar, borið saman við 42,96 millj-
arða þessa mánuði í ár og er það 33%
aukning.
Velta hótela og gistiheimila þessa
mánuði 2009 er núvirt 18,95 milljarð-
ar og hefur því aukist um 66% síðan.
Velta bílaleiga á þessu tímabili 2009
er núvirt 7,88 milljarðar og hefur
hún því aukist um tæp 43% síðan.
Öll er þessi veltuaukning langt
umfram hagvöxt á tímabilinu.
Um 5% af landsframleiðslu
Samanlögð velta þessara þriggja
greina á þessu ári er sem fyrr segir
93,6 milljarðar króna og er það nærri
tvöföldun frá árinu 2010 sé horft til
veltu á verðlagi hvers árs.
Til að setja 93,6 milljarða króna í
samhengi eru það um 5% af vergri
landsframleiðslu í fyrra sem er áætl-
uð 1.873 milljarðar.
Athygli vekur að velta bílaleiga
eykst um 28,8% milli ára, fer úr 14,85
milljörðum í 19,13 milljarða, sem er
umtalsvert undir fjölgun nýrra
seldra bíla til bílaleiga. Þannig seld-
ust 4.357 nýir bílar til bílaleiga á
fyrstu 45 vikum ársins en 2.972 í
fyrra, samkvæmt greiningu Brim-
borgar, og er það 46,6% aukning.
Mætti túlka það sem vísbendingu
um að bílaleigur vænti enn meiri
vaxtar á næstunni og hagi innkaup-
um á bílum í samræmi við það.
Óbeinn mælikvarði á ganginn í
hótelgeiranum er fjöldi atvinnu-
lausra í þeirri grein og þjónustu,
samkvæmt skilgreiningu Vinnu-
málastofnunar.
Alls voru í október 514 skráðir at-
vinnulausir sem höfðu starfað í gist-
ingu og þjónustu en 597 í október í
fyrra og er það 13,9% fækkun. Til
samanburðar voru þeir 787 í október
2010 og 816 í október 2011 og er at-
vinnuleysi í þessum greinum því á
hröðu undanhaldi.
13 milljarða aukning milli ára
Veitingastaðir, hótel og bílaleigur veltu samtals 93,6 milljörðum króna á fyrstu 8 mánuðum ársins
Veltan hefur nær tvöfaldast frá árinu 2010 Velta bílaleiga eykst hægar en fjölgun bílaleigubíla
Veltuaukning í ferðaþjónustugreinum
Ímilljónum króna á verðlagi hvers árs í janúar til ágúst 2008 til 2014*
*Undir veitingasölu- og þjónustu heyra veitingastaðir,
veisluþjónusta og krár, kaffihús og dansstaðir.
Hótel og
gistiheimili
Leiga á bifreiðum
og léttum,
vélknúnum
ökutækjum
Samtals
2008
26.270
45.394
5.842
13.282
Veitingasala og
-þjónusta*
Grein
28.215
51.582
7.293
16.075
2010
26.495
48.492
6.460
15.537
2009
30.825
59.676
9.484
19.367
2011
38.451
80.779
14.845
27.483
2013
42,964
93.614
19.130
31.519
2014
4.513
12.835
4.286
4.036
Aukning
milli ára
33.718
68.616
12.027
22.871
2012
Heimild: Hagstofa Íslands
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Samningafundi samninganefndar
sveitarfélaganna og Félags tónlist-
arskólakennara (FT) lauk hjá ríkis-
sáttasemjara undir kvöld í gær. Sig-
rún Grendal Jóhannesdóttir,
formaður FT, segir að á fundinum
hafi verið rætt um gagntilboð FT við
tilboði samninganefndar sveitarfé-
laganna frá því á mánudag. Boðað
hefur verið til annars fundar í dag
klukkan hálftíu. „Menn eru að ræða
þetta hver í sínu lagi. En því miður
höfum við upplifað það áður og höf-
um þurft að segja það í gegnum allar
þessar kjaraviðræður að við höfum
ekki upplifað þetta sem eiginlegar
samningaviðræður. Ég ætla að leyfa
morgundeginum að líða en við erum
eiginlega að komast á þann stað aft-
ur,“ segir Sigrún.
Hún segir að eftir morgundaginn
muni samninganefndin upplýsa fé-
lagsmenn um stöðu mála. Fyrr sé
ekki hægt að ræða nánar einstök at-
riði viðræðnanna. „Það sem þó hefur
verið jákvætt í þessari viku er að
menn hafa ekki unnið með sama
hætti í kjaraviðræðunum og áður.
Þetta hefur verið efnisleg vinna og
það er breyting frá því sem var. En
það breytir því ekki að eftir því sem
liðið hefur á vikuna þá efast maður
um að hugur fylgi máli,“ segir Sig-
rún.
Rætt um gagntilboð Félags
tónlistarskólakennara
Enn ekki eiginlegar kjaraviðræður í gangi að mati FT
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Tónlist Fundað verður hjá ríkis-
sáttasemjara að nýju í dag.
Brennisteinsmengun vegna eld-
gossins í Holuhrauni fór mest
upp í um 800 míkrógrömm nærri
Mývatni og í Reykjahlíð í gær.
Samkvæmt skilgreiningum getur
slíkt hlutfall í andrúmsloftinu far-
ið illa í viðkvæma.
Líkt og í gær má búast við gas-
mengun norður af gosstöðvunum
í Holuhrauni, frá Vopnafirði vest-
ur að Tröllaskaga í dag. Nokkuð
stífur vindur var á svæðinu í gær
sem gerði það að verkum að
mengunin náði ekki að safnast
fyrir í lægðum í landslaginu í
eins miklum mæli og oft áður.
vidar@mbl.is
Brennisteinsmeng-
un berst í norðurátt
frá gosstöðvum
Morgunblaðið/RAX
Eldgos Gasmengunin fór yfir norðanvert
landið í gær og verður þar einnig í dag.
Nátengd form menningarefnis sitja
ekki við sama borð við skattlagningu
hér á landi. Þannig eru bækur og
tónlist í neðra þrepi virðisauka-
skatts, en kvikmyndir og sjónvarps-
efni í efra þrepi. Þetta segir í um-
sögn Félags rétthafa í sjónvarps- og
kvikmyndaiðnaði (FRÍSK) um
frumvarp til breytinga á lögum um
virðisaukaskatt sem liggur fyrir Al-
þingi.
Í umsögninni eru rakin mörg
dæmi um mismunun í skattlagningu
eftir tæknilausnum og fyrir-
komulagi. Afnotagjöld sjónvarps-
stöðva falla í neðra þrep vask-
kerfisins, en myndefni eftir pöntun
(VOD) í efra. Telur félagið að þetta
séu leifar frá þeim tíma þegar svo-
kölluð línuleg dagskrá var eina út-
sendingarformið. Núverandi fyrir-
komulag feli í sér mismunun
sambærilegrar starfsemi.
Þá er bent á að um 25 prósent
heimila hér á landi kaupi þjónustu
Netflix og BSKYB en hvorugt fyrir-
tækið borgi hér virðisaukaskatt eða
önnur gjöld. Þá sé ekki að sjá að
sjónvarpsþjónustan Google Play eða
tónlistarveitan Spotifty, sem báðar
eru á markaði hér, standi skil á
virðisaukaskatti. Þetta skekki veru-
lega samkeppnisstöðu félagsmanna
FRÍSK.
Kvarta yfir ósann-
gjarnri samkeppni
FRÍSK gagnrýnir vask-kerfið