Morgunblaðið - 21.11.2014, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2014
Þorkell Fjeldsted,
bóndi í Ferjukoti í
Borgarfirði, lést síðast-
liðinn þriðjudag eftir
erfið veikindi, 67 ára að
aldri. Þorkell stundaði
um árabil netaveiðar í
Hvítá og kom upp
sögusafni um veið-
arnar.
Þorkell var fæddur
28. ágúst 1947. For-
eldrar hans voru Krist-
ján S. Fjeldsted, bóndi
í Ferjukoti, og Þórdís
Þ. Fjeldsted, íþrótta-
kennari og húsfreyja.
Þorkell var búfræðingur frá
Bændaskólanum á Hvanneyri og
síðan bóndi í Ferjukoti og á Ferju-
bakka frá 1970. Stundaði hefðbund-
inn búskap. Netaveiðar í Hvítá voru
ríkur hluti af búskapn-
um og lagði Þorkell
rækt við þær eins og
forfeður hans höfðu
gert.
Hann tók um árabil
virkan þátt í fé-
lagsmálum í Borg-
arhreppi og Borg-
arfirði. Hann átti
meðal annars sæti í
hreppsnefnd Borg-
arhrepps og var for-
maður skólanefndar
Varmalandsskóla.
Hann var í mörg ár
fréttaritari Rík-
isútvarpsins og umboðsmaður fyrir
Álafoss.
Eftirlifandi eiginkona Þorkels er
Heba Magnúsdóttir. Þau eignuðust
fimm börn.
Andlát
Þorkell Fjeldsted, bóndi
í Ferjukoti í Borgarfirði
Hæstiréttur hefur staðfest sýknu-
dóm í meiðyrðamáli sem Egill Ein-
arsson höfðaði á hendur Inga Krist-
jáni Sigurmarssyni fyrir ærumeið-
andi aðdróttun. Hæstaréttur
klofnaði í málinu, en meirihlutinn
segir að tjáning Ingvars hafi verið
innan marka þess frelsis sem honum
er tryggt í stjórnarskrá.
Tveir þriggja hæstaréttadómara
staðfesta dóm Héraðsdóms Reykja-
víkur sem féll í nóvember í fyrra.
Einn skilaði hins vegar sératkvæði,
en hann segir að ummæli Ingvars
hafi falið í sér grófa aðdróttun um að
Egill hefði gerst sekur um grafalvar-
legt refsivert afbrot. Hann féllst því
á kröfu um ómerkingu ummælanna
og telur rétt að Ingvar greiði Agli
200.000 kr. í miskabætur.
Egill höfðaði meiðyrðamál á hend-
ur Inga sem teiknaði ókvæðisorð á
mynd af Agli og birti á Instagram. Í
stefnunni var þess krafist að Ingi
yrði dæmdur til refsingar fyrir æru-
meiðandi aðdróttanir með því að
hafa breytt ljósmynd af Agli þannig
að hann teiknaði kross á hvolfi á enni
hans, skrifaði „aumingi“ þvert yfir
andlit stefnanda og „fuck you rapist
bastard“ sem myndatexta og birti
ljósmyndina þannig breytta á In-
stagram, 22. nóvember 2012.
Héraðsdómur Reykjavíkur sýkn-
aði Inga af meiðyrðum í garð Egils í
dómi sem féll 1. nóvember 2013. Eg-
ill áfrýjaði málinu til Hæstaréttar.
Við munnlegan málflutning fyrir
Hæstarétti sem fór fram í lok októ-
ber, sagði Valtýr Sigurðsson, lög-
maður Inga, að virðing Egils hefði
ekki beðið hnekki við birtingu mynd-
ar af forsíðu Monitors. Þetta hefði
aðeins verið dropi í hafið í þeim ólgu-
sjó sem Egill hefði kosið að róa í í
gegnum tíðina.
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson,
lögmaður Egils, sagði við málflutn-
inginn að Ingi hefði deilt myndinni
með rúmlega 100 milljónum notenda
á Instagram. „Héraðsdómi tekst að
skilja það með þeim hætti að myndin
hafi bara verið birt fyrir lokuðum
hópi fólks. Það er mér algjörlega
óskiljanlegt hvernig héraðsdómur
komst að þessari niðurstöðu,“ sagði
Vilhjálmur.
Skálduð persóna
Haukur Guðmundsson, lögmaður
Inga Kristjáns í héraði, sagði í ræðu
sinni að umrædd mynd hefði ekki
verið af Agli heldur af Gillz. „Um-
mæli um skáldaðar persónur varða
ekki við lög. Það er ekki hægt að
meiða æru Bogomil Font,“ sagði
Haukur. Á þetta féllst lögmaður Eg-
ils alls ekki. „Hann taldi sig þess um-
kominn að saka stefnanda [Egil] um
nauðgun og kalla hann aumingja og
antikrist. Og aftaka hans fór fram án
dóms og laga. Og það er enginn ann-
ar en stefndi [Ingi Kristján] sem get-
ur borið ábyrgð á birtingu og dreif-
ingu þessarar ljósmyndar.“
Morgunblaðið/Rósa Braga
Meiðyrðamál Egill Einarsson og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður.
Hæstiréttur
staðfesti sýknu
Dómur klofnaði í meiðyrðamáli Egils
Meiðyrðamál
» Hæstiréttur staðfesti sýknu-
dóm yfir Inga Kristjáni Sigur-
marssyni fyrir ærumeiðandi
aðdróttun.
» Dómurinn klofnaði í afstöðu
sinni og einn þriggja dómara
vildi sakfella Inga Kristján.
» Lögmaður Egils sagði mynd-
inni hafa verið deilt meðal 100
milljóna notenda.
„Fjölgun ferðamanna og álag á
ferðamannastaði á sunnanverðu
landinu sem og á Keflavíkurflugvöll
hefur náð þolmörkum. Um þetta
eru flestir sammála og því er brýnt
að leita lausna til framtíðar. Lands-
hlutasamtök, atvinnuþróunarfélög
og markaðsstofur á Norður- og
Austurlandi sem og á Vestfjörðum
hafa tekið höndum saman við að
berjast fyrir annarri gátt inn í land-
ið.“ Þetta kemur fram í sameig-
inlegri yfirlýsingu tíu hagsmuna-
aðila, atvinnuþróunarfélaga og
landshlutasamtaka á svæðinu sem
nær yfir Vestfirði, Norðurland og
Austfirði. Er þar skorað á stjórn-
völd að beita sér tafarlaust fyrir
breyttri stefnu hvað millilandaflug
um Ísland varðar og opna þegar í
stað aðra gátt inn í landið.
Bent er á að nú þegar stefnt sé að
allt að 15 milljarða uppbyggingu á
Keflavíkurflugvelli virðist ljóst að
stefna stjórnvalda sé að byggja þar
upp einu millilandagátt landsins.
Þetta skjóti skökku við þegar litið
sé til þróunar á undanförnum árum.
„Stjórnvöld verða að búa vara-
flugvelli Keflavíkur á Akureyri og
Egilsstöðum þannig úr garði að þeir
uppfylli kröfur um þjónustustig
vegna aukinnar umferðar, auk þess
sem öryggi sjúklinga á stórum
svæðum er stefnt í uppnám vegna
skorts á viðhaldi flugvallarmann-
virkja, eins og nýlegt dæmi frá Al-
exandersflugvelli sannar,“ segir
þar.
Einnar gáttar stefna skaðar
Landshlutasamtök, atvinnuþróunarfélög og markaðs-
stofur skora á stjórnvöld að opna aðra gátt inn í landið