Morgunblaðið - 21.11.2014, Side 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2014
Hagnaður Íslandsbanka eftir skatta á fyrstu
níu mánuðum ársins nam 18,2 milljörðum
króna, en hann var 15,4 milljarðar á sama tíma-
bili í fyrra. Þá var arðsemi eigin fjár eftir skatta
13,8% en 13,4% í fyrra. Hlutfallið hélst svipað á
milli ára þrátt fyrir að eigið fé bankans hefði
hækkað um 14% á milli ára, úr 160 milljörðum
króna í 181 milljarða.
Hreinar þóknanatekjur jukust á milli ára,
voru 8,5 milljarða á fyrstu níu mánuðum þessa
árs en voru 7,6 milljarðar í fyrra.
Kostnaðarhlutfall lækkaði úr 58,4% í 54,4%
en eiginfjárhlutfall hækkaði lítillega á milli ára,
var 29,4% á fyrstu níu mánuðum ársins en var
28,4% á sama tímabili í fyrra.
Loks hafa heildareignir bankans aukist um
7,5% frá áramótum. Þær námu 866 milljörðum í
árslok 2013 en voru 931 milljarður í lok októ-
ber.
Sé sérstaklega litið til síðasta ársfjórðungs
nam hagnaður eftir skatta 3,5 milljörðum
króna, samanborið við 4,2 milljarða á sama
tímabili í fyrra. Arðsemi eigin fjár á fjórð-
ungnum lækkaði á milli ára, úr 10,6% í 7,9%.
Hreinar þóknanatekjur hækkuðu um 16% frá
sama tímabili í fyrra, voru 2,8 milljarðar í ár en
2,5 milljarðar á sama tímabili í fyrra. Heildar-
eignir jukust um 3% á fjórðungnum, úr 908
milljörðum í 931 milljarð.
„Fyrstukaupalánum“ vel tekið
Íslandsbanki kynnti á ársfjórðungnum svo-
kölluð fyrstukaupalán en það eru fasteignalán á
sérkjörum fyrir þá sem kaupa húsnæði í fyrsta
skipti. Að sögn Birnu Einarsdóttur bankastjóra
hafa 75% þeirra viðskiptavina Íslandsbanka
sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð um þessar
mundir sótt um fyrstukaupalánið. Áhugi á lán-
unum sé mikill og mikið um fyrirspurnir.
Birna segir í tilkynningu að afkoma á fyrstu
níu mánuðum ársins sé í samræmi við áætlanir.
„Það verður þó áframhaldandi áskorun að
styrkja grunnreksturinn með kostnaðaraðhaldi
og auknum tekjuvexti. Við höfum lagt áherslu á
að auka hagkvæmni í rekstri en lækkun á
stjórnunarkostnaði var 6,4% milli ára. Útlán til
viðskiptavina hafa aukist um 54 milljarða króna
á þessu ári.“
Bankaskattur 9 milljarðar
Íslandsbanki mun greiða 2,4 milljarða króna í
sérstakan bankaskatt á árinu, sem er tíma-
bundinn skattur til fjögurra ára til að fjár-
magna leiðréttingu húsnæðislána. Fyrirsjáan-
legt er að heildarkostnaður Íslandsbanka
vegna skattsins mun nema um 9 milljörðum
króna á tímabilinu, sem mun ljúka í ársok 2016.
„Mikilvægt er að þetta verði tímabundin
skattheimta eins og kynnt hefur verið,“ segir
Birna. „Aukin skattheimta skekkir mjög sam-
keppnishæfni íslenskra banka við erlendar fjár-
málastofnanir í þjónustu við stærri fyrirtæki
landsins.“ brynja@mbl.is
Hagnaður 3,5 milljarðar á fjórðungnum
Morgunblaðið/Ómar
Áhugi Birna Einarsdóttir bankastjóri segir
mikinn áhuga á lánum til fyrstu íbúða kaupa.
Íslandsbanki skilaði 18,2 milljarða hagnaði fyrstu 9 mánuðina Afkoma lakari á þriðja ársfjórðungi
Í dag verður opn-
að fyrir umsókn-
ir í frumkvöðla-
keppnina
Gulleggið 2015
og er það liður í
Alþjóðlegu at-
hafnavikunni
sem Klak Innovit
hefur umsjón
með á Íslandi.
Keppnin var fyrst haldin árið
2008 og hefur alið af sér fjölda
sprotafyrirtækja sem sum hver eru
orðin að þekktum fyrirtækjum hér
á Íslandi. Í fyrra var metþátttaka,
en þá komu inn 377 hugmyndir en
alls hafa 1.703 hugmyndir borist í
keppnina frá upphafi. Dæmi um
eldri þátttakendur eru Clara, Me-
niga, Pink Iceland, Remake Elect-
ric, Videntifier, Róró og Gracipe.
brynja@mbl.is
Opnað fyrir
umsóknir í
Gulleggið
Sprotar Control-
ant vann Gulleggið.
Hagnaður Eimskips á þriðja fjórð-
ungi ársins var 7,5 milljónir evra, eða
sem svarar 1,1 milljarði króna, og
jókst um 2,4 milljónir evra eða 48,0%
frá sama fjórðungi í fyrra.
Rekstrartekjur voru 119,6 millj-
ónir evra, eða 18,5 milljarðar króna,
og jukust um 6,1 milljón evra eða
5,3% frá sama tímabili 2013. Hagn-
aður fyrir fjármagnsliði, afskriftir og
skatta (EBITDA) nam 12,6 milljón-
um evra, eða tæpum 2,0 milljörðum
króna, og hækkaði um 0,5 milljónir
evra eða 4,2% á milli ára.
Á fyrstu níu mánuðum ársins var
hagnaður Eimskips 11,3 milljónir
evra eftir skatta, eða sem svarar 1,7
milljörðum króna, og jókst um 1,7
milljónir evra eða 17,3% á milli ára.
Rekstrartekjur voru 332,8 milljónir
evra og jukust um 5,8 milljónir evra
eða 1,8%. EBITDA-hagnaður var
29,7 milljónir evra og jókst um 0,5
milljónir evra eða 1,8% á milli ára.
Flutningsmagn í áætlunarsiglingum
á Norður-Atlantshafi jókst um 8,4%
og í frystiflutningsmiðlun um 12,6%.
Heildareignir í lok september
námu 336,7 milljónum evra, eða lið-
lega 52 milljörðum króna, og var
eiginfjárhlutfall 64,0%.
Gylfi Sigfússon, forstjóri, segir í
tilkynningu til Kauphallar að þriðji
ársfjórðungur 2014 sé besti fjórð-
ungur félagsins frá árinu 2009 hvað
varðar rekstrartekjur, EBITDA og
hagnað eftir skatta. „Bætt afkoma
skýrist aðallega af auknu
flutningsmagni til og frá landinu,
einkum vegna flutninga á bifreiðum,
byggingarvörum og makríl.“ Jafn-
framt skýrist vöxturinn af auknu
magni í frystiflutningsmiðlun og
aukinni hagkvæmni í siglingakerf-
inu, að sögn Gylfa.
Afkoma Eimskips
batnar milli ára
Þriðji ársfjórð-
ungur sá besti frá
árinu 2009
Morgunblaðið/Ómar
Eimskip Gylfi Sigfússon segir aukið
flutningsmagn skýra bætta afkomu.