Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.11.2014, Blaðsíða 40
Tíska *Sænska verslunarkeðjan H&M ætlar, hinn6. nóvember næstkomandi að gefa útstóra og fallega myndabók með yfirlits-myndum af verkum stórra tískuhúsa semhannað hafa línur fyrir verslunarkeðjuna.Bókin verður í takmörkuðu upplagi ogkemur sama dag og hönnuðurinn Alexand-
er Wang frumsýnir línu sína fyrir versl-
unarkeðjuna.
H&M gefur út myndabók
H
var kaupir þú helst föt? Ég kaupi eflaust langmest í Zöru hvort sem það er
hér á landi eða erlendis og held mikið upp á & Others Stories og COS. Þar
fyrir utan er búðavalið mjög fjölbreytt og ég kaupi bara það sem mig langar
í sama hvaðan það er.
Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð? Þegar ég var yngri var tískuhúsið Balmain í
miklu uppáhaldi en núna get ég ekki gert upp á milli Pheobe Philo, Isabel Marant, Al-
exander Wang og Stellu McCartney.
Hver er flottasta búð sem þú hefur komið í? Ég man ekki eftir neinni í augnablikinu
en fannst þó ótrúlega gaman að labba Rodeo Drive og kíkja í fínu búðirnar þar.
Manstu eftir einhverjum tískuslysum sem þú tókst þátt í? Þau hafa verið ófá enda
tekið ýmis tímabil. Ég var stórglæsileg 16 ára skinka sem átti kort á ljósastofu og fór
úr á lífið í skærbleikum náttkjól úr H&M, ætli það hafi ekki verið það versta.
Hvaða tískublöð eða tískublogg lest þú? Ég les mikið dönsk blöð eins og Costume og
Cover en þar fyrir utan glugga ég í öll þessi helstu og NUDE Magazine fer aldrei
framhjá mér.
Þegar kemur að bloggum þá fylgist ég náið
með Pernille Teisbæk og mörgum bloggurum,
fyrirsætum og öðrum flottum tískufyrirmyndum á
instagram.
Hvað er nauðsynlegt í snyrtitöskuna? Eitthvað
sem gerir húðina fallega. Persónulega gæti ég
ekki verið án Chanel Tan de Soleil og nota það
óspart allan ársins hring.
Áttu þér uppáhaldsflík eða fylgihlut? Ég keypti
mér Céline-sólgleraugu í byrjun sumars
sem hafa ekki farið að nefinu á mér síðan.
Mér þætti óþægilegra að vera án þeirra en símans.
Hvaða vetrartísku ætlar þú að tileinka þér? Það er
fátt þægilegra en þykk prjónapeysa og hvað þá prjóna-
buxur í stíl.
Haustlitirnir heilla mig alltaf og ég get keypt mér
endalaust af yfirhöfnum svo þykkur shearling-jakki og
ný kápa verða þær yfirhafnir sem ég mun bæta við í
skápinn þetta haustið ásamt helling af prjónuðu.
Hver var fyrsta hönnunarflík sem þú keyptir þér?
Givenchy Pandora taska sem ég keypti í einhverju
óðagoti í London.
Skyndikaup en mögulega ein þau bestu enda
hef ég notað hana óspart.
Hvað heillar þig við tísku? Tíska gleður mig,
það er gaman að fylgjast með henni þróast og
breytast með hverri árstíðinni sem og að sjá fólk
túlka hana á mismunandi vegu.
Fallegar flíkur og fylgihlutir eru listaverk.
FALLEGAR FLÍKUR OG FYLGIHLUTIR ERU LISTAVERK
Rakel Matthea heillast af
haustlitunum og ætlar að
fá sér nokkrar prjóna-
flíkur fyrir veturinn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gaman að
fylgjast með
tískunni þróast
RAKEL MATTHEA DOFRADÓTTIR HEFUR LENGI HAFT ÁHUGA Á
TÍSKU. RAKEL STUNDAR NÁM Í MARGMIÐLUN VIÐ MARGMIÐL-
UNARSKÓLANN EN SAMHLIÐA NÁMI STARFAR HÚN SEM TÍSKU-
RITSTJÓRI VEFTÍMARITSINS NUDE MAGAZINE.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Rakel versl-
ar mest í
Zöru.
Fallega
Pandora
taskan frá
Givenchy.
Rakel segir
óþægilegra að
vera án sólgler-
augnanna sinna
en símans.
Fallegt prjóna-
sett úr vetrar-
línu Stellu
McCartney.
Rakel segist
ekki geta verið
án Chanel Tan
de Soleil.
Rodeo Drive í
Beverly Hills.