Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.11.2014, Blaðsíða 48
Viðtal
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.11. 2014
Í
slenska reggísveitin AmabAdamA
gefur út í næstu viku sína fyrstu
breiðskífu, Heyrðu mig nú, hjá Re-
cord Records. Hún átti sumarsmell-
inn í ár, „Hossa, hossa“, sem er
ekki ofsögum sagt að hafi heillað alla frá
tveggja ára til 82 ára. Bókstaflega allir
sungu með bros á vör: „Láta’allt gossa,/
hrista bossa,/ég vil sjá tungukossa,/kveikja’
í kroppum ástarblossa,/allir saman hossa
hossa.“ Salka Sól Eyfeld og Steinunn
Jónsdóttir eru söngkonur sveitarinnar en
þær eiga margt sameiginlegt og óhætt er
að segja að þær séu báðar listrænar og
fjölhæfar.
„Ég ólst upp í Vesturbænum og svo í
Kópavogi. Ég var allan grunnskóla og
menntaskóla í mjög miklum tómstundum.
Ég var í kór frá því að ég var fjögurra
ára hjá Möggu Pálma, ég var alltaf í
dansi og útskrifaðist úr menntaskóla af
nútímadansbraut, var í Listdansskóla Ís-
lands. Síðan var ég að læra á víólu í tólf
ár og lærði einsöng,“ segir Steinunn, sem
fékk síðan áhuga á leiklist og kvikmynda-
gerð. Hún fór í nám í kvikmyndafræði við
Háskóla Íslands en á eftir að skrifa loka-
ritgerðina. „Ég ætlaði að skrifa hana í
sumar en þá fengum við plötusamning,“
segir Steinunn en það má sannarlega
segja að hjólin hafi snúist hratt hjá
hljómsveitinni að undanförnu.
Steinunn og Salka hafa kynnst mjög
vel eftir að þær byrjuðu saman í hljóm-
sveitinni. Þær segja að það sé nánast
ekkert sem þær séu ósammála um og
lýsir Salka þeim sem sálarsystrum.
Salka ólst líka upp í Vesturbænum og
í Kópavogi. Hún segist samt vera minna
í dansinum „en meira í tónlistinni“ skýt-
ur Steinunn að. Salka segist hafa sungið
mikið sem barn og tónlist hefur alltaf
leikið stórt hlutverk í hennar lífi. Hún
spilar tónlist, hlustar á tónlist og hefur
kynnt sér tónlist mikið frá öllum hliðum,
sem kemur sér vel í starfi hennar sem
útvarpskona á Rás 2. Þar vakti hún fyrst
athygli í Sumarmorgnum með Dodda litla
og er núna við hljóðnemann síðdegis í
Popplandinu.
Safnar hljóðfærum
Salka safnar hljóðfærum og telst til að
hún eigi um 25 hljóðfæri og segist geta
„gutlað“ á þau flest. „Ég held það sé
ekkert hljóðfæri sem ég hef lagt frá mér
án þess að kunna eins og eitt lag á það,“
segir hún.
Eina hjóðfærið sem hún spilar ekki á
er sekkjapípa en þar spilar skortur á að-
gengi stærra hlutverk en annað. „Það er
víst bara einn maður á landinu sem á
sekkjapípu. Mig vantar að hafa uppi á
þessum manni,“ grínast hún.
Hljómsveitin AmabAdamA hefur verið
til frá árinu 2011 og er stofnuð upp úr
annarri sveit sem Magnús Jónsson, eða
Gnúsi Yones, var forsprakkinn í, Gnúsi
Yones & The Crackers. Núverandi mynd
sveitarinnar hefur hins vegar ekki verið
til nema í rúmt hálft ár en Salka gekk
til liðs við sveitina í mars.
Það eru tíu í sveitinni og þau eru þrjú
í framlínunni, Gnúsi, Steinunn og Salka,
sem syngja öll. Steinunn og Gnúsi eru
jafnframt par og eiga saman rúmlega eins
og hálfs árs gamlan son, Jón Braga.
Gnúsi hefur líka verið lengi í tónlist en
hann er ennfremur þekktur fyrir veru
sína í rappsveitinni Subterranean. Auk
þess að vera helsti lagahöfundurinn og
eiga marga texta tók Gnúsi plötuna upp
og hljóðblandaði.
„Það voru mikil mannaskipti og hljóm-
sveitin var í fæðingu í svolítið langan
tíma,“ segir Steinunn en fyrir um ári
komu hljóðfæraleikararnir inn og síðan
Salka nokkru síðar.
Eru báðar Reykjavíkurdætur
Söngkona hætti í sveitinni en um það
leyti sáu þau Sölku taka lag með reggí-
sveit á MH-balli og sáu að hún myndi
smellpassa inn. Salka var til í slaginn og
tímasetningin var góð. Steinunn og Salka
þekktust hins vegar fyrir þetta en þær
voru saman í rappsveitinni Reykjavík-
urdætrum. Þær eru ekki virkar Reykja-
víkurdætur en gefa þó ekki titilinn upp á
bátinn. „Einu sinni Reykjavíkurdóttir, allt-
af Reykjavíkurdóttir. Svona eins og í
skátunum,“ segja þær.
Þær segja Reykjavíkurdætur skemmti-
legan félagsskap, sem snúist líka um að
virkja konur. Dæturnar eru líka allar með
húðflúr, öfugan þríhyrning með punktum
uppi á, sem er tákn fyrir kvenlega orku.
„Við vorum að spila á tattúráðstefnu og
fengum borgað með tattúi,“ segir Stein-
unn.
Það er að minnsta kosti nóg af fram-
bærilegum konum í hljómsveitinni en
óhætt er að segja að það hafi verið
skortur á kvenfyrirmyndum í rappi.
Sjálfar eru þær fyrstu íslensku reggí-
söngkonurnar en það hafa verið nokkrar
rappkonur.
„Mér finnst mikilvægt að vera fyrir-
mynd,“ segir Salka og rifjar upp að þeg-
ar hún var táningur og langaði að læra á
gítar hafi verið skortur á þannig fyrir-
myndum. „Hera var sú eina sem var að
spila og syngja á þessum tíma og hún
hafði áhrif á mig. Ég vona innilega að
Reykjavíkurdætur og AmabAdamA geti
verið fyrirmyndir einhverra,“ segir hún en
reggívígið er að minnsta kosti fallið með
þeim tveimur.
Steinunni finnst líka mikilvægt að vera
fyrirmynd og finnst leiðinlegt að upplifa
það sem henni finnst vera afturför í fem-
ínisma síðustu ár. „Það er búið að afbaka
hugtakið femínismi mjög mikið. Ungir
krakkar virðast halda að það sé eitthvað
allt annað en það er; að það sé eitthvert
karlahatur.“
Henni finnst líka sorglegt að horfa upp
á fordómana gagnvart innflytjendum og
öðrum trúarbrögðum í þjóðfélaginu og að
það sé til stjórnmálaflokkur sem ali á
ótta þessa fólks. Skemmst er að minnast
moskumálsins og góðs gengis Framsókn-
arflokksins í borgarstjórnarkosningunum í
kjölfarið. „Ég trúi því varla að við séum
á þessum stað í dag og það ríki svona
mikil þjóðernishyggja,“ segir Steinunn.
„Þetta er algjört ábyrgðarleysi,“ segir
Salka.
Báðar minnast þær á kommentakerfin
en þar virðist oft grassera lægsti sam-
nefnari samfélagsins og margir láta ljót
orð falla. „Með samfélagsmiðlum er þetta
allt svo ótrúlega breytt. Ég reyni að
halda mig frá því en dett stundum inn í
að lesa kommentin. Hvaðan kemur þetta
fólk? Það er ekki í kringum mig,“ segir
Salka og endurspeglar áreiðanlega það
sem margir hafa hugsað.
Pólitískir textar
Það ætti því ekki að koma á óvart að
textarnir hjá hljómsveitinni séu pólitískir.
„Við erum ekkert að skafa utan af því
sem við erum að segja,“ segir Steinunn.
Textinn við „Hossa, hossa“ sker sig þá
kannski aðeins úr þótt hann sé vissulega
um mikilvægt málefni en það er gott fyr-
ir sálina að dansa og það þurfa allir að
hafa ást í lífinu. Á væntanlegri breiðskífu
er sungið um allt milli himins og jarðar
með áherslu á hið síðarnefnda. Nýjasta
lagið sem er í spilum með sveitinni heitir
„Gaia“ og er einmitt óður til jarðarinnar.
Textann skrifaði Gnúsi og vitnar Salka í
eina línuna: „Því ef við klúðrum þessu
hvert förum við þá?“
Þær eru báðar náttúruverndarsinnar og
segjast bara vona að við séum ekki búin
að klúðra þessu en hljómsveitin spilaði á
styrktartónleikum í vikunni fyrir nímenn-
ingana sem voru dæmdir í Gálgahrauns-
málinu.
„Hossa, hossa“ gaf sveitinni vissulega
gott start. „Við vorum búnar að vera að
spila lagið með Reykjavíkurdætrum og
AmabAdamA og það var alltaf tekið rosa-
lega vel í það. Eftir að lagið varð vinsælt
tók maður eftir að við fengum meiri at-
hygli og það var farið að sækjast eftir
okkur á stærri gigg og kannski öðruvísi
en við hefðum annars fengið,“ segir Stein-
unn.
„Við vorum búin að vera að spila þetta
á tónleikum og bjuggumst við góðum við-
tökum,“ segir Salka en þær útskýra að
markhópurinn hafi orðið annar og lagið
höfðað til stærri hóps en þær bjuggust
við.
„Við vorum með annað lag sem við ætl-
uðum að setja í spilun fyrst. En okkur
fannst svo gaman að búa þetta lag til og
spila það að við ákváðum að byrja á því,“
segir Salka.
Reggí virðist höfða til Íslendinga en
hjómsveitin Hjálmar hefur notið mikilla
vinsælda um árabil. Ojba Rasta er síðan
nýrri sveit sem hefur látið að sér kveða
að undanförnu og síðan sló AmabAdamA í
gegn í sumar. Akurinn hefur því verið
plægður og búið að þjálfa reggíeyra Ís-
lendinga, bæði í útvarpi og svo einnig
með danskvöldum sem haldin eru undir
nafninu Reykjavík Soundsystem sem
AmabAdamA tengist.
Einlægar
sálarsystur
SALKA SÓL EYFELD OG STEINUNN JÓNSDÓTTIR ERU LISTRÆNAR OG FJÖLHÆFAR
SÖNGKONUR REGGÍSVEITARINNAR AMABADAMA. ÞÆR EIGA MARGT SAMEIGINLEGT,
FINNST MIKILVÆGT AÐ VERA FYRIRMYNDIR, HVETJA TIL GAGNRÝNINNAR HUGS-
UNAR OG ERU EKKERT AÐ SKAFA UTAN AF HLUTUNUM.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Ljósmynd: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is
* Það er svo mikil mötun í samfélag-inu. Það er alltaf verið
að troða einhverju ofan í
okkur, hvað við eigum að
gera og hvernig við eig-
um að vera.