Málfríður - 15.10.2009, Blaðsíða 25
ið Ísdans og virðist falla nemendum vel í geð. Annað
framtak hefur reynst vinsælt hjá nemendum og ekki
síður foreldrum. Nú til dags er vandfundinn sá
unglingur á Íslandi sem ekki ver drjúgum hluta sól
arhringsins fyrir framan tölvuskjá. Í unglingadeild
Norðlingaskóla hefur nú verið tekin sú ákvörðun
að stefna á að námsefni í öllum námsgreinum verði
aðgengilegt á Netinu. Þegar þessi orð eru rituð eru
náttúrufræði og enska komin lengst í þessari þróun
en hinar greinarnar munu fylgja í kjölfarið eftir því
sem líður á veturinn. Allar hlustunaræfingar í ensku
og verkefni tengd þeim eru komnar á heimasíðu
skólans og næsta skref er að setja inn orðaforðasíð
ur og málfræðisíður. Á námsefniskynningu á dög
unum heyrðust foreldrar hvísla sín á milli að nú
væri gaman að geta sest á skólabekk aftur og hangið
í tölvunni öll kvöld!
Framtíðin
Ráðgert er að Norðlingaskóli flytji starfsemi sína í
nýtt húsnæði, að minnsta kosti einhvern hluta þess,
á haustmánuðum 2010 en það er nokkuð á eftir upp
runalegum áætlunum. Má fastlega búast við því að
flutningarnir hafi í för með sér að kennarar skólans
neyðist enn og aftur til að finna sér nýjar leiðir, bæði
í kennslunni og einnig um skólann. Við skulum hins
vegar vona að það hendi okkur aldrei að finna hina
einu réttu leið.
MÁLFRÍÐUR 2
• Greinar þurfa að berast ritstjórn Málfríðar á tölvutæku
formi.
• Myndir af höfundum svo og annað myndefni þarf að
berast á pappír eða tölvutæku formi sem psd, tiff, eps
eða jpg skrár í minnst 300 dpi upplausn.
• Vegna birtingar Málfríðar á Netinu þurfa höfundar
að veita samþykki fyrir birtingu greina sinna með því
að fylla út sérstakt eyðublað höfunda sem finna má á
vefsíðu ritstjórnar á Netinu og senda það síðan í pósti
eða faxa til ritstjórnar.
• Áskrifendur Málfríðar geta breytt póstföngum sínum
vegna aðsetursskipta o.s.frv. með því að senda tölvu
póst beint til Ástu St. Eiríksdóttur hjá Kennarasambandi
Íslands (KÍ). Netfang: asta@ki.is.
• Ósk um nýja áskrift þarf að berast til viðkomandi félags
tungumálakennara eða einhvers í ritstjórn Málfríðar.
Sama gildir um lok áskriftar.
Leiðbeiningar um frágang greina og mynda
Birting greina
Þeir sem óska birtingar greina í tímaritinu Málfríði eru beðnir um að snúa sér til ritstjórnar.
••