Málfríður - 15.10.2011, Blaðsíða 16
• Starfsmenn/kennarar hafa aflað sér nýrrar
reynslu og þekkingar. Þeir hafa leitað nýrra
lausna og líkur eru á að leitað verði eftir sam-
vinnu við aðra í svipuðum sporum sem aftur
leiðir til frekari þróunar og þekkingaröflunar.
• Nemendur hafa möguleika á að stunda nám með
vinnu hvar á landi sem þeir búa. Bætt mennt-
unarstig í sveitar eða bæjarfélagi getur af sér
atvinnuskapandi tækifæri og eykur líkur á að
samfélagið blómstri.
• Loks má ætla að ný nálgun í kennslu sem gefur
góða raun leiði til frekari framfara og nýjunga á
fræðasviðinu.
Þessi grein birtist í ársriti Stofnunar Vigdísar Finnboga-
dóttur Á Milli Mála 1. árg. 2009.
að ræða þar sem kjarninn var kraftmiklir nemendur,
einbeittir í þeirri ætlun sinni að ljúka tilskildum ein-
ingafjölda til að fá þau réttindi sem fylgdu. Ekki er
gefið að jafngóður kjarni myndist í öllum hópum og þá
reynir á útsjónarsemi og lagni við að halda nemendum
við efnið.
Hverju hafa þessi námskeið skilað? Og er ástæða
til að halda áfram á sömu eða svipaðri braut? Þegar
vel tekst til með nýbreytni í kennslu má ætla að ávinn-
ingurinn komi fram á mörgum sviðum:
• Í greininni (dönsku) hefur nýr möguleiki verið
prófaður, ísinn er brotinn og reynsla fengin.
Aukin breidd hefur skapast í námsframboði og
greinin hefur væntanlega verið gerð aðgengileg
fyrir fleiri nemendur en ella.
Comeníus styrkir tungumálakennara og ýmis konar
evrópsk samstarfsverkefni
Endurmenntun kennara: Comeníus styrkir kennara á leik, grunn- og
fram haldsskólastigi til að sækja endurmenntunarnámskeið, ráðstefnur eða
námsheimsóknir til Evrópu í allt að 6 vikur.
Umsóknarfrestir eru þrisvar á ári. Fyriri sumarnámskeið 2012 er 14. janúar næsti
umsóknarfrestur.
Evrópsk samstarfsverkefni: nemendaskipti, skólaverkefni, Comenius regio og
námsefnisgerð. Undirbúningsstyrkir eru veittir til að koma verkefnum á fót.
Umsóknarfrestur er til 21. febrúar.
Evrópsk aðstoðarkennsla – tækifæri í tungumálakennslu
Verðandi aðstoðarkennarar starfa í 3-8 mánuði við skóla og þeir frá styrki frá
sínu heimalandi.
Umsóknarfrestur er til 31. janúar 2012.
www.comenius.is
Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB, Háskólatorgi, 101 Reykjavík. s. 525 5853
Nánari upplýsingar teva@hi.is,
16 MÁLFRÍÐUR