Málfríður - 15.10.2011, Side 19
Sumarnámskeið Félags frönskukennara á Íslandi var
haldið í La Rochelle í Frakklandi dagana 6. – 10. júní.
15 félagar skráðu sig á námskeiðið sem verður að telj-
ast góð þátttaka hjá félagi sem telur 43 félagsmenn.
Í lok síðasta árs gerði stjórn félagsins, í samvinnu við
EHÍ., könnun meðal félagsmanna varðandi sumarnám-
skeið ársins 2011. Niðurstöður úr þeirri könnun sýndu
að flestir félagsmenn vildu sækja námskeið erlendis og
helst í Frakklandi. Hvað viðfangsefni varðar þá höfðu
flestir áhuga á námskeiði um efni tengt máli, máltil-
einkun og kennslufræði.
Með þessar upplýsingar að leiðarljósi hóf stjórnin
að undirbúa námskeið og óska eftir tilboðum frá nám-
skeiðshöldurum víðsvegar í Frakklandi. Áhugaverðasta
tilboðið kom frá stofnun sem nefnist Institude d‘études
françaises (IEF) í La Rochelle í Frakklandi. IEF er stofn-
un sem rekin er innan Viðskiptaháskólans í La Rochelle
og hefur sérhæft sig bæði í frönskunámskeiðum fyrir
erlenda stúdenta og endurmenntunarnámskeiðum
fyrir frönskukennara.
Námskeiðið okkar bar yfirskriftina „Méthodologie
FLE“ eða „Kennsluaðferðir í frönsku sem erlendu
máli“. Aðalleiðbeinendur voru þau Philippe Oguet
og Frédérique Babin sem bæði hafa langa reynslu af
frönskukennslu. Meðal þess sem við fengum að kynn-
ast var hvernig hægt er að virkja betur nemendur og
þá óþrjótandi auðlind sem þeir eru í kennslustundum.
Hver nemendahópur er í raun einhvers konar „micro-
cosme“ eða smækkaður heimur, og með því að gefa
hverjum nemanda færi á því að tjá persónuleika sinn
verður hann bæði virkari og ófeimnari við að tjá sig.
Sem dæmi um þetta kom Philippe Oguet með hug-
mynd að fyrstu kennslustund þar sem ísinn er brotinn
með því að hver nemandi er beðinn um að fara upp
að töflu og skrifa þær þrjár sagnir sem honum finnast
mikilvægastar í lífinu. Þannig endurspegla nemendur
lífsviðhorf sín sem síðan geta orðið tilefni umræðna
og gefur nemendum færi á að kynnast betur. Auk þess
geta þessar sagnir orðið viðfangsefni tungumálanáms-
ins: Hvaða nafnorð má draga af þeim? Hver eru and-
heiti o.s.frv. Einnig er hægt að biðja nemendur um að
skrifa á töfluna þrjú lýsingarorð sem lýsa best að þeirra
mati uppáhaldsdýrinu þeirra. Hinir nemendurnir eiga
svo að sjálfsögðu að reyna að geta upp á hvaða dýr
þetta er og hvort nemandinn eigi eitthvað sameigin-
legt með þessu dýri. Auk þessa sýndi Philippe okkur
hvernig hægt er að nota bókmenntatexta, dægurlaga-
texta og leikræna túlkun til að virkja nemendur í
frönskunáminu.
Hjá Frédérique Babin fengum við að kynnast því
hvernig hægt er að nýta vettvangsferðir til frönsk-
unáms. Frédérique sendir nemendur sína í upplýs-
inga- og könnunarleiðangra þar sem þeir eiga að leita
að ákveðnum upplýsingum. Þessi leit gefur tilefni til
samskipta við heimamenn. Þannig fá nemendur aukna
þjálfun í samskiptum um leið og þeir fræðast um menn-
ingu viðkomandi svæðis. Til dæmis fara nemendur
hennar á matarmarkaðinn með það verkefni að fræðast
um þær vörur sem þar eru á boðstólum og fengum við
slíkt verkefni í La Rochelle. Eins fórum við í vettvangs-
ferð út í eyjuna Ré sem liggur rétt fyrir utan La Rochelle
og er vinsæll ferðamannastaður. Þar var okkur skipt í
hópa, og fólst verkefnið í að finna svör við ákveðnum
spurningum varðandi eyjuna og menninguna þar.
Hljóp mikið kapp í hópana um að verða fyrstir til að
ljúka verkefninu og mátti sjá íslenska frönskukennara
skáskjóta sér á milli búða, hótela og veitingastaða til að
finna svörin. Þó að slíkar vettvangsferðir myndu líklega
ekki vera mjög gagnlegar hér heima þá hafa þær aug-
ljóst gildi í námsferðum til Frakklands. Að þessu verk-
efni loknu leigðum við okkur reiðhjól og heimsóttum
saltframleiðanda sem sýndi okkur hvernig saltnám fer
fram á eyjunni en salt er einmitt ein helsta náttúruafurð
hennar. Aldargamlar aðferðir eru notaðar til að nema
salt úr saltvinnslutjörnum og fengum við að kynnast
öllu ferlinu við framleiðslu þess. Frédérique fór einnig
með okkur í heimsókn til bóksala í la Rochelle sem
fræddi okkur um nýútkomnar skáldsögur og höfunda
þeirra, hvaða bækur seldust mest og hvaða bækur
hefðu fengið bókmenntaverðlaun. Þetta var ákaflega
gagnlegt því að það getur verið erfitt að fylgjast með
því sem er að gerast í bókmenntalífinu þegar maður býr
ekki í landinu og þarna fengum við góðar ábendingar
varðandi bókakaup.
Það var almennt álit þátttakenda að námskeiðið
hefði bæði verið vel heppnað og hagnýtt. La Rochelle;
„borgin hvíta“, eins og hún er oft kölluð, skartaði líka
sínu fegursta og tók vel á móti okkur þessa daga í
júní.
Nordiske Sprog og Kultur
Nordplus auglýsir nýja menntaáætlun 2012–2017
Styrkir til menntasamstarfs og tungumálaverkefna
Næsti umsóknarfrestur er 1. mars 2012
Fylgist með fréttum og skráið ykkur á póstlista á síðunni:
www.nordplus.is
MÁLFRÍÐUR 19
Sumarnámskeið
frönskukennara
í La Rochelle í júní 2011
Eyjólfur Már Sigurðsson
er forstöðumaður Tungumála-
miðstöðvar Háskóla Íslands
Eyjólfur Már
Sigurðsson.