Selfoss - 27.02.2014, Side 6

Selfoss - 27.02.2014, Side 6
27. febrúar 20146 Ríkið verður að fara hysja upp um sig buxurnar ... og bæta inn í þennan málaflokk, segir Magnús Jónasson restrarstjóri Hraunbúða í Vestmannaeyjum Við fjölluðum í síðasta blaði um rekstur dvalar- og hjúkrunarheimila á Suður- landi. Tónninn er svipaður. Þörfin er brýn. Þjóðin eldist. Fleiri ná því stigi að banka upp á þegar aldurinn færist yfir. En stefnan er sú að fólk dvelji sem lengst á heimilum sínum. Þjónustan færist inn á heimili hvers og eins. Þetta hefur m.a. í för með sér að þörfin á hjúkrunarrými vex sérstaklega þar sem fólk fer ekki að heiman fyrr en heilsu hrakar mikið. Forstöðumenn og sveitarstjórar hafa svipaða sögu að segja. Greiðsla frá ríkinu er hvergi nærri nóg til að standa undir rekstri. Magnús Jónasson í Vestmannaeyjum tekur í þann streng um rekstur Hraunbúða : daggjöld eru langt í frá þau sem þau þyrftu að vera. Ef ekki kæmi til að Vestmannaeyjabær greiðir mis- muninn, væri heimilið komið í þrot. Hraunbúðir er dvalar- og hjúkr- unarheimili fyrir aldraða í eigu Vest- mannaeyjabæjar. Húsið er að verða fertugt. Var gefið til Eyja í kjölfar eldgossins 1973 og hófst starfsemi þar 5. október 1974. Heimilið var í fyrstu dvalarheimili, en 1987 fékkst leyfi fyrir hjúkrunar- og dagvistar- rýmum við stofnunina. 1) Hver er/eru rekstraraðili/-aðilar - og rekstrarform? Svar: Vestmannaeyjabær á og rekur Hraunbúðir að öllu leyti. 2) Hvað eru mörg hjúkrunar- og dvalarrými á ykkar stofnun (og skipt- ingu)? Svar: 28 hjúkrunarrými + 1 hvíldar- rými og 8 dvalarrými. Síðan erum við með 10 dagvistarrými. 3) Eru rúm fyrir hvíldarinnlagnir - og þá hversu mörg? Svar: Já - eitt 4) Hverjir eru helstu rekstrarþættir? Og innbyrðis hlutföll? Svar: Laun og launatengd gjöld 67,5% Matur oþh 10,3% Lyfjakostnaður 5,3% Húsnæðiskostnaður 7,9% Fjarmagnskostnaður 3,1% Annað 5,9% 5) Hvernig stendur reksturinn í ljósi umræðunnar? Hugsanlega aðrar skuldbindingar eins og lífeyrissjóðs- og endurnýjun húsnæðis. Svar: Reksturinn stendur illa - dag- gjöld eru langt í frá þau sem þau þyrftu að vera. Ef ekki kæmi til að Vestmannaeyjabær greiðir mis- muninn, væri heimilið komið í þrot. Meðgreiðsla Vestmannaeyjabæjar á sl ári nam nálægt 35 millj.kr. og þannig hefur safnast upp mikil skuld við bæinn á undanförnum árum. Lífeyrissjóðsskuldbindingar eru verulegar, en vegna þess að Vest- mannaeyjabær reksur Hraunbúðir fer allt slíkt í gegnum bæjarkerfið. Vestmannaeyjabær hefur lagt út í 40-50 millj. kr. endurnýjun á hús- næði – utanhúss - á undanförnum árum, þannig að húsnæðið er í góðu lagi svo langt sem það nær, þar sem húsnæðið er nú um 40 ára gamalt og barn síns tíma. Afar nauðsynlegt er að fara út í stækkun og breytingar á núverandi húsnæði, þ.s. biðlisti fyrir innlögn bara lengist og lengist. 6) Hefur verið niðurskurður? Hver hefur hann verið og á hverju bitnar hann/á hvaða liðum? Eru uppsagnir á starfsfólki í gangi eða verða þær boð- aðar miðað við að óbreyttar aðstæður? Svar: Ekki hefur verið farið í beinan niðurskurð, en öllu haldið í lágmarki hvað varðar kostnað. Mönnun má ekki vera minni án þess að skerða þá þjónustuna. Engum hefur þó verið sagt upp, en reynt að takmarka ráðn- ingar í þau störf sem losna. Ráðamenn Vestmannaeyjabæjar hafa verið heimilisfólki á Hraun- búðum (og reyndar eldri borgum bæjarins) mjög vinveittir og látið bæinn leggja út verulega mikið af fjármunum, langt umfram skyld- ur, til þess að heimilisfólkinu og öðrum eldri borgurum í Eyjum geti liðið sem allra best, enda á það svo sannarlega skilið. – Þetta er fólkið sem byggði upp Eyjarnar, sem við nú njótum góðs af. 7) Hvað teljið þið brýnast að gera til að koma rekstri í viðunandi horf - til að bæta rekstur? Svar: Það er aðeins eitt svar við þessari spurningu – Ríkissjóð- ur VERÐUR að leggja meira fé í þennan málaflokk svo hægt sé að uppfylla þær skyldur sem RÍKIÐ leggur heimilunum á herðar. Enda er þessi rekstur alfarið á hendi ríkissins – það er ekki annarra að greiða þann kostnað – skv. lögum. 8) Upphæð daggjalda til ykkar stofn- ana. Svar: Hjúkrunarrými kr: 22.850 pr. sólarhring. Dvalarrými kr: 11.135 pr. sól- arhring. Dagvistarrými kr: 4.800 pr. dag 9) Hvernig sjáið þið fyrir ykkur rekstur slíkra heimila - t.d. í ljósi þess m.a. að hlutur aldraðra af íbúafjölda mun hækka enn frekar. Svar: Það hefur verið stefna heil- brigðisyfirvalda að aldraðir eigi að geta búið eins lengi í sínu húsi sem hægt er og er það góðra gjalda vert – en hvað þýðir það – einfaldlega að með því er verið að færa kostn- að af ríkinu á bæjar/sveitarfélögin. Engin heildarstefna er þó til varð- andi þetta, því ef svo væri yrði ríkið að greiða mun meira en það gerir í dag og skirrist því við að koma slíkri heildarstefnu til framkvæmda. Við í Eyjum búum við það að vegna Eldgossins 1973 heftur minni- hluti íbúa hér talist til eldri borgara, því mun færra eldra fólk flutti til baka eftir gos, en það yngra. Þetta er nú að breytast hratt og því þyngist róðurinn hér mun hraðar en víðast hvar annarsstaðar. Af þessum sökum er mjög brýnt að hér verði tekið til hendinni varðandi fjölgun, bæði rýma hér á heimilinu og einnig að bæta inn fleiri kostum s.s. þjónustu- íbúðum o.s.frv. 10) Annað - sem þið viljið koma að. Svar: Margt og mikið væri hægt að skrifa um þennan málaflokk, en í svona stuttu svari gefst ekki tækifæri til þess. EN nr. 1. 2. og 3. verður ríkið að fara að hysja upp um sig buxurnar og bæta inn í þennan málaflokk – annað bara gengur ekki. Með Eyjakveðju Vestmannaeyjum 17.febr. 2014. Magnús Jónasson, rekstrarstjóri. GEYSIR HAUKADALUR Verslunin á Geysi í Haukadal óskar eftir starfsfólki í allar deildir fyrirtækisins. Við leitum að duglegum einstaklingum með góða þjónustulund til að vinna með okkur á ört vaxandi vinnustað. • Mikil tækifæri í boði , framtíðarstörf og sumarstörf • Vinnutími og starfshlutfall eftir samkomulagi • Umsóknir berist á netfangið: heida@geysir.net Spennandi atvinnutækifæri á Geysi Magnús Jónasson restrarstjóri. Setið út á sólpalli í dýrðar veðri.

x

Selfoss

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.