Selfoss - 13.03.2014, Síða 2
Samkvæmt lögum VMS skal kjósa um þrjá aðalmenn og
einn varamann á aðalfundi 2014. Í stjórn sjúkrasjóðs skal
kjósa þrjá aðalmenn og einn til vara. Framboðsfrestur er
tvær vikur eða til kl. 16.00 fimmtudaginn 27. mars 2014.
Framboðum skal skilað á Þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna
á Suðurlandi, Austurvegi 56 Selfossi fyrir þann tíma.
Kjörstjórn
Verslunarmannafélag Suðurlands
Auglýsir eftir framboðum til stjórnarkjörs félagsins og stjórnar
sjúkrasjóðs
Samkvæmt lögum VMS skal kjósa um þrjá aðalmenn og einn vara ann á aðalfundi 2014. Í stjórn
sjúkrasjóðs skal kjósa þrjá aðalmenn og einn til vara. Framboðsfrestur er tvær vikur eða til kl. 16.00
fimmtudaginn 27. mars 2014. Framboðum skal skilað á Þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna á
Suðurlandi, Austurvegi 56 Selfossi fyrir þann tíma.
Kjörstjórn
Verslunarmannafélag Suðurlands
auglýsir eftir fra boðum til stjórnarkjörs
félagsins og s jórna sjúkra jóðs
2 13. MARS 2014
Það ber ekki mikið á því í samfélagsumræðunni að kennarar í framhaldsskólum landins séu að leggja upp í verkfall. Skólamál eru ekki hátt skrifuð. Ólíkt höfumst við að. Í Svíþjóð eru þing-
kosningar í september. Þar skora fræðslumálin hæst þegar almenningur
er spurður hvað skipti mestu um úrslit kosninganna. Hér ríkir engin
sátt. Kannski má segja að þjóðin öll sé í andmælum. Austurvöllur dregur
til sín fólk sem ekki unir ómöguleikunum sem viðhafðir eru sunnan
undir Jóni Sigurðssyni.
Sú var tíðin að laun framhaldsskólakennara og alþingismanna voru
álíka há. Þá var mælikvarðinn sá. Hvað hefur breyst? „Kennarar krefjast
engra ofurlauna,“ segir Gylfi Þorkelsson, formaður Kennarafélags FSu.
Gerðar eru kröfur til einstaklingsmiðaðrar þjónustu af kennurum og
öðru starfsfólki í framhaldsskólunum. Starfið hefur breyst mikið á um-
liðnum árum. Eða frá því að fjölbrautaskólar risu í hverjum landshluta.
Þeir opnuðu ungu fólki leiðir og þau eldri sáu langþráða drauma rætast.
Þetta gerðist að mestu á áttunda tug síðustu aldar. Og var bylting.
Íslenska aðferðin reyndist haldgóð til að byrja með. Til dæmis þurfti ekki
endanlega námskrá fyrir framhaldsskólann nema að hluta til. Hugurinn
bar menn hálfa leið. Nú hefur okkur hins vegar borið af leið. Við þurfum
ný mið, nýjar vörður til að vísa okkur veginn. Stefnan hlýtur að verða sett
á háleitari markmið um góða skóla. Til þess þarf vel menntað starfsfólk
sem er sátt við sinn hlut. Kennarar telja launin ekki sambærileg við kjör
annarra háskólamenntaðra starfsmanna hjá ríkinu. Ef þetta reynist rétt er
þetta væntanlega sá grunnur sem ríki og kennarar þurfa að ná sátt um.
Hvernig hægt er að brúa þetta bil er verkefni samningsaðila.
Þorlákur Helgi Helgason
Nemendur á
leið út úr skólunum.
LEIÐARI Evrópusambandið -
bjargráð úr blindgötu
„Stýrivextir á Íslandi eru nú um 6%
og þykja lágir í sögulegu samhengi, svo
dapurleg er vaxtasaga landsins. Stýri-
vextir á evrusvæðinu eru nú 0,25%.“
Gerræðisleg fyrirætlan ríkisstjórn-
ar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks
um að slíta aðildarviðræðum við
Evrópusambandið hefur beint
sjónum sem aldrei fyrr að þessu
mesta hagsmunamáli síðari tíma á
Íslandi og hvað er í húfi. Líkt og
Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi for-
sætisráðherra, hefur ítrekað bent
á í greinaröð í Fréttablaðinu snýst
aðild að Evrópusambandinu um
grundvallarhagsmuni þjóðarinnar.
Nefnilega þá að við getum ekki
búið við norræna velferð með grískri
framleiðni.
Til að skjóta stoðum undir efna-
hags landsins og byggja upp var-
anlegan stöðugleika þurfum við
sterkan gjaldmiðil og lága viðvar-
andi vexti. Eina færa leiðin að þessu
markmiði sem um leið endurreisir
og tryggir efnahagslegt fullveldi
okkar er aðild að ESB og upptaka
evru.
Aðrar leiðir eru blindgötur og
villuljós, líkt og þverpólitísk gjald-
miðlanefnd komst að í fyrra. Val-
kostirnir eru tveir; áframhaldandi
rekstur á verðlítilli, hávaxta krónu í
höftum eða upptaka evru í gegnum
aðild að ESB.
Í tvo áratugi höfum við búið við
aukaaðild að ESB í gegnum EES
samninginn sem er meingallað fyr-
irkomulag. Á því er mikill lýðræðis-
halli og ekki möguleiki á aðgengi að
því sem mestu skiptir fámenna þjóð;
myntsamstarfi.
Eða heldur einhver að það sé til-
viljun að Færeyingar eru með sína
krónu fastreyrða við þá dönsku
sem er aftur bundin við evru og
áður þýskt mark? Auðvitað ekki.
Hagkvæmni og hagsmunir fólksins
í löndunum ráða. Fyrir vikið búa
þjóðirnar við stöðugan gjaldmiðil,
enga verðtryggingu og lága vexti.
Eitt dæmi um það mikla bjarg-
ráð fyrir vaxtakúguð íslensk heimili
sem upptaka evru er: Stýrivextir á
Íslandi eru nú um 6% og þykja lágir
í sögulegu samhengi, svo dapurleg
er vaxtasaga landsins. Stýrivextir á
evrusvæðinu eru nú 0,25%. Til að
taka annað dæmi úr álfunni þá eru
sömu vextir 0,5% í Bretlandi.
Hreinn ávinningur
af upptöku evru
Nú eru húsnæðislán landsmanna í
kringum 1200 milljarðar króna. Í
skýrslu fjármálaráherra til Alþing-
is árið 2012 kemur fram að 10%
niðurfærsla allra húsnæðislána
kostar um 130 milljarða króna, en
310 milljarða miðað við 25% niður-
færslu. Stærsti hluti þess kostnaðar
myndi falla á Íbúðalánasjóð, eða 67-
167 milljarðar eftir atvikum. Inn-
lánsstofnanir bæru 40-99 milljarða
og lífeyrissjóðir 18-44 milljarða.
Vítahringur verðfalls á gjaldmiðli
og hækkunar húsnæðisskulda verður
ekki rofin nema með upptöku eða
fasttengingu við evru. Nú getur hver
og einn mátað vaxtamuninn á því
að borga 6% vexti eða 1-2% á hvort
heldur er lán sín eða heildarlán allra
landsmanna. Þannig er hægt að sjá
í hendi sér hreinan ávinning af því
einu að taka upp evrópska vexti í
stað þess vaxtaokurs sem fylgir verð-
lítilli ör-mynt í höftum og verðbót-
um. Ábatinn hleypur á hundruðum
milljarða fyrir þjóðarbúið í heild
sinni.
Afnám verðtryggingar og yfirfær-
sla í óverðtryggð lán í íslensku um-
hverfi er engin lausn. Heldur hrein
og klár blekking að í því felst bjarg-
ráð af nokkru tagi. Vextina borgum
við hvort sem þeir eru greiddir um
hver mánaðarmót eða dreift á lengri
tíma. Enda hefur það ofur-loforð nú
þegar verið svikið, rétt eins og flata
niðurfærslan á skuldunum.
Rétt til að draga fram eina stað-
reynd þá gengur um á netinu mynd
sem sýnir að 26 milljón króna hús-
næðislán á Íslandi kostar að lokum
466 milljónir en á Norðurlöndunn-
um í kringum 50 milljónir. Munur-
inn er allt að því tífaldur.
Um þetta snýst krafan um að
klára aðildarviðræðurnar við ESB
og fá að kjósa um kláraðan samn-
ing. Krafa um að losna úr hlekkjum
krónunnar og búa við sambærileg
lífskjör og best þekkjast þar sem
verðmætasköpun samfélagsins hvíl-
ir á traustum gjaldmiðli og lágum
vöxtum.
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrver-
andi þingmaður og ráðherra.
Leyndardómar Suðurlands
dregnir fram í dagsljósið.
26. mars verður hulunni svipt af leyndu djásni sem Suður-land býr yfir. Það eru Samtök
sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og
Markaðsstofa Suðurlands sem standa
fyrir kynningarátakinu sem standa
mun fram að 6. apríl. Opnaðar verða
ýmsar gáttir: hótel bjóða allt að því
ókeypis gistingu, matvælaframleið-
endur, samtök, félög , fyrirtæki og
einstaklingar breiða út faðminn.
Markmiðið er að kynna sem mest
af Suðurlandi og fá sem flesta gesti
til að heimsækja Suðurland. „Hér
er kærkomið tækifæri til að lengja
ferðamannatímabilið og koma öll-
um leyndardómum Suðurlands á
framfæri,“ segir Magnús Hlynur
Hreiðarsson, kynningarfulltrúi ver-
kefnisins. Þegar hafa margir gefið
sig fram til að taka þátt. Það verð-
ur ókeypis í strætó um allt héraðið
þannig að auðvelt verður að sækja
landshlutann heim. Hægt er að fylgj-
ast með framvindu verkefnisins á
heimasíðu SASS, www. sudurland.is
og á fésbókarsíðu þess: Leyndardóm-
ar Suðurlands. Fólk með hugmyndir
er hvatt til að setja sig í samband við
Magnús Hlyn á netfangið mhh@
sudurland.is eða í síma 480-8200.
ÞHH Ofurhetjur og prinsessur í Eyjum
Öskudagurinn tókst mjög vel í Grunnskóla Vestmannaeyja,
nemendur komu nánast allir í bún-
ingum og meira að segja margir
framliðnir mættu í skólann. Gaman
var að sjá hversu fjölbreyttir bún-
ingarnir voru en eins og oft áður bar
mikið á ofurhetjum og prinsessum
hjá nemendum í 1. – 5. bekk. Í til-
efni dagsins var blandað saman leik
og kennslu, nemendur í 1. – 7. bekk
slógu köttinn úr tunnunni. Mikil
stemning myndaðist hjá nemendum
á meðan slegið var.
Eftir hádegið hópuðust nemend-
ur svo í bæinn til að syngja fyrir
starfsmenn hinna ýmsu fyrirtækja.
Skemmtilegt var hve mörg fyrirtæki
tóku virkan þátt í deginum með okk-
ur. Ólöf og Anna Rós
Björgvin G. Sigurðsson