Selfoss - 13.03.2014, Blaðsíða 10
13. MARS 2014
Þegar Lilla var lítil átti hún heima í stóru hvítu húsi. Þetta hús var
verksmiðjuhús. Þar vann pabbi
hennar, oftast á stóra rennibekknum,
en stundum í steypiríinu.
Núna er Smiðjan orðin að safni,
það eru 100 ár síðan hún var stofn-
uð. Á efri hæðinni bjó fjölskyldan,
sem voru tveir bræður og mamman,
sem átti fjós og hlöðu, tvær kýr sem
hétu Freyja sem var stór kýr með
falleg horn, sem Lilla á núna og Bú-
bót sem var undan henni. Það er að
Freyja var mamma hennar. Stundum
voru líka tveir kálfar. Svo voru tveir
hænsnakofar, sem voru mjög líkir til
að sjá, eins og hús sem eru byggð í
görðum handa krökkum.
Það er einmitt um hænsnin sem
þessi saga er. Það voru margar hænur
en oftast tveir hanar, sem voru mjög
fallegir. Þegar hænurnar sváfu, sátu
þær á prikum. Svo voru varpkass-
ar með glereggi í til að verpa við.
Þegar hanarnir voru búnir að stíga
í vænginn við hænurnar, í eiginlegri
merkingu þá koma þeir á fleygi-
ferð að hænunum sem verður þess
valdandi að það geta komið ungar
úr eggjunum.
Svo var það ein hæna sem Lillu
þótti sérstaklega vænt um. Eggin úr
henni voru auðþekkt, einn daginn
hættu eggin úr þessari hænu að
koma.
Lilla tók eftir að hún fór alltaf inn
í hálfopinn bakarofn á gamalli elda-
vél úr skipi, sem var undir gluggan-
um á steypiríinu. Þetta gekk svona
lengi, þar til Lilla fór að gá. Og hvað
haldið þið að hún hafi séð, nema
egg, öll alveg eins. Síðan lá hænan
langan tíma á eggjunum og kom
aðeins stöku sinnum til að borða
og drekka.
Einn daginn kom hún svo
labbandi með halarófu af ungum,
öllum eins og hún.
10
Einmánuður
Það er alltaf gaman að velta fyrir sér gömlum tímum. Það er svo mikil speki í gömlum
sögum og spádómum sem byggðu á
eftirtekt, þekkingu og virðingu fyrir
náttúrunni. Einnig trú á ýmsa þætti
sem okkur eru framandi í dag.
Nú þarf ekki að hugsa mikið – bara
að gúggla það.
Mér finnst skemmtilegt að skoða
sagnir um einmánuð sem er næsti
mánuður eftir gamla tímatalinu. Þá
leitar maður á vefi eins og Vísinda-
vefinn og Wikipediu.
Á Vísindavefnum er eftirfarandi.
http://www.visindavefur.is/svar.
php?id=58565
Einmánuður er síðasti mánuður
vetrar og tekur við af góu. Hann hefst
á þriðjudegi á bilinu 20.–26. mars
og stendur þar til harpa tekur við á
bilinu 19.–25. apríl. Nafnið kemur
fyrir þegar í fornum bókmenntum,
meðal annars í Skáldskaparmálum
Snorra-Eddu. Þar segir um skiptingu
ársins (1949: 239):
„Frá jafndægri er haust, til þess er
sól sezt í eykðarstað. Þá er vetr til
jafndægris. Þá er vár til fardaga. Þá
er sumar til jafndægris. Haustmánuðr
heitir inn næsti fyrir vetr, fyrstr í vetri
heitir gormánuðr, þá er frermánuðr,
þá er hrútmánuðr, þá er þorri, þá
gói, þá einmánuðr, þá gaukmánuðr
ok sáðtíð, þá eggtíð ok stekktíð, þá
er sólmánuðr ok selmánuðr, þá eru
heyannir, þá er kornskurðarmánuðr.“
Páll Vídalín lögmaður greinir frá
einmánuði í bók sinni um skýringar
við fornyrði lögbókar og segir (1849–
1854: 576):
„Það sýnist mér líkast, að ein-
mánuður heiti svo að því, að hann
er þá einn eptir vetrarins, en tví-
mánuður, af því þá eru tveir eptir
af sumrinu.“
Tvímánuður var fimmti mánuð-
ur sumars (22.–29. ágúst). Páll
Vídalín segir enn fremur (577):
„Eins get eg að tvímánuður
hafi sitt nafn fengið til varnaðar
búmönnum, að þá væri tveir ein-
ir mánuðir til vetrar, og bæri því
nauðsyn til, að gæta sumarút-
réttínga. Einmánuður þar í mót til
huggunar í vetrarstríði bænda, að
sumarið færi þá í hönd að einum
mánuði liðnum.“
Á Wikipetiu er enn meiri fróð-
leikur.
http://is.wikipedia.org/wiki/Ein-
m%C3%A1nu%C3%B0ur
Einmánuður er sjötti mánuður
ársins í gamla norræna tímatalinu
og síðasti vetrarmánuðurinn. Hann
hefst á þriðjudegi í 22. viku vetrar,
eða 20. til 26. mars. Elstu heimild-
ir um einmánuð eru úr Bókarbót
frá 12. öld og Skáldskaparmálum
Snorra Eddu frá 13. öld. Hann
ásamt gormánuði, þorra og góu
eru einu mánaðarnöfnin í gamla
norræna tímatalinu sem koma fyrir
í fleiri en einni heimild. Líklega er
nafnið dregið að því að hann var
síðasti mánuður vetrar líkt og orðið
eindagi sem þýðir síðasti dagur.
Fyrsti dagur einmánaðar er helg-
aður piltum eins og harpa stúlk-
um og þorri og góa húsbændum
og húsfrúm og víðast kallaður
yngismannadagur. Áttu stúlkur þá
að fara fyrstar á fætur til að taka á
móti einmánuði og veita piltum
glaðning.
Heitdagur
Venja var að haldnar væru þrjár
samkomur á ári í hverjum hrepp
til að ræða sameiginleg mál eins og
fátækratíund og fjallskil. Ein var að
hausti önnur á lönguföstu og þriðja
eftir vorþing. Á Norðurlandi var
samkoman á föstunni haldin fyrsta
dag einmánaðar og hann nefndur
heitdagur en þá var einkum safnað
heitum fyrir fátæka.
Árin 1741-45 fóru þeir Ludvig
Harboe og Jón Þorkelsson Thorcilli-
us í eftirlitsferð til Íslands að undir-
lagi Jóns og með samþykki danskra
stjórnvalda og í framhaldi lögðu
þeir til ýmsar breytingar á helgi-
dagahaldi á landinu. Var þá heit-
dagur eitt af því sem aflagt var með
konunglegri tilskipun 29. maí 1744
og norðlendingum skipað að flytja
hann yfir á næst sunnudag er fólk
kæmi almennt til messu. Var það
með þeim rökum að ekki tíðkaðist
þessi siður annarstaðar í Danaveldi.
Norðlendingar rituðu konungi ítar-
lega greinargerð og bænarskjal árið
1755 um að fá að halda deginum en
því var hafnað.
Nokkur skipti var reynt að endur-
vekja einmánaðarsamkomu á Norð-
urlandi upp úr aldamótunum 1900
og dæmi eru líka þekkt að fólk sendi
fátækum nágrönnum sínum mat á
þessum degi þegar harðæri var.
Tími til vorverka
Séra Björn Halldórsson í Sauðlauks-
dal (f. 1724 d. 1794) skrifaði í riti
sínu Atli sem kom fyrst út í Hrapps-
ey 1780, um vorverk í Einmánuði að
ef vorgott væri þá væri hentugur tími
að stífla vatn, sem veitast skal yfir
land svo vatnið standi þar á meðan
vorleysing er mest. Það átti að vera
vegna þess að það grugg, sem setur
sig undir leysingavatnið á meðan
það stendur yfir landinu væri betra
en nokkur áburður.
Eins að sá sem vill ná grjóti upp úr
jörð, því sem upp úr stendur, hann
géri það þá þegar jörð er hálfa alin
þíð ofan til eða nokkuð minna. Þá
væri það bæði lausast og ylti líka á
klakanum svo erfiðið yrði minna.
Veðurfar
Ekki er mikið um veðurspár tengdar
einmánuði utan að trúað var að ef
fyrsti dagur einmánaðar vari blautur,
boðaði það gott vor. Gæti það tengst
ofangreindri lýsingu Björns. Er til
vísubrot um það:
Þurr skyldi þorri,
þeysöm góa,
votur einmánuður,
þá mun vel vora.
Nú er bara að sjá til hvað verður?
KS
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • sími 580 3900 • www.fastus.is • opið mán - fös 8.30 - 17.00
F
A
S
TU
S
_E
_0
5.
03
.1
4
Ráðstefnu- og fundarstóll
Tryggðu þér og gestum þínum öruggt
sæti, með vönduðum og þægilegum
stólum á góðu verði.
Nú með 20% afslætti.
Verð kr. 14.000,- m.vsk.
meðan birgðir endast
Veit á vandaða lausn
20%
afsláttur
ÖrsÖgur LiLLu í smiðju (3)
Gjald – en ekki
af Íslendingum
Flestir Sunnlendingar eru hlynntir gjaldtöku af ferða-mönnum. Þó ekki af Ís-
lendingum. Þetta hefur komið
fram í könnun SASS meðal Sunn-
lendinga. Landeigendur að Geysi
haf a frestað gjaldtökunni þar sem
fjármálaráðherra hefur lagt fram
lögbannskröfu. Í henni er þess kraf-
ist að bannað verði að innheimta
sérstakt gjald af ferðamönnum.
Landeigendur hafa árangurslaust
reynt að fá fund með ráðherra um
gjaldtökuna.