Selfoss - 13.03.2014, Qupperneq 12
Vöruval góð
verslun í
alfaraleið
Ný tilboð vikulega
Heimsendingarþjónusta
Opið frá 7:30-19
virka daga og
10-19 um helgar
Gastækin frá AGA og
HARRIS hafa þjóna›
Íslendingum um árabil
G A S V Ö R U R • R A F S U ‹ U V Ö R U R • Ö R Y G G I S V Ö R U R • S L Í P I V Ö R U R
BÍLDSHÖF‹A 14 • 110 REYKJAVÍK • SÍMI 587 7000 • WWW.GASTEC.IS
OERLIKON er einn
stærsti rafsu›uvíra-
framlei›andi í Evrópu.
Gæ›i og gott ver›.
ALLT TIL MÁLMSUÐU
OG MÁLMSKURÐAR
KITin 1900 HF TIG
KITin
320 MIG
PEARL 180 MIG/MAG
AÐEINS 10 KG
Úrval rafsuðuvéla
frá KUHTREIBER og GYS
NEOPULSE 270 MIG
Fjórhjólalagerinn
Stapahrauni 7 • 220 Haf • S. 588 3355
www.4h.is
Eigum til reimar í miklu
úrvali í flestar gerðir
snjósleða og fjórhjóla.
Fjórhjólalagerinn
Stapahrauni 7 • 220 Hfj • Sími 588 3355
www.4h.is
Mikið úrval auka og varahluta
í flestar gerðir hjóla.
13. MARS 2014
Gleðin við völd í Hveragerði
Í Grunnskólanum í Hveragerði var gleðin við völd eins og í flestum skólum landsins þennan öskudag.
Börnin voru í margskonar gerfum.
Fjöldi starfsmanna var uppábúinn
í tilefni dagsins, meðal þeirra sem
sást til var Pocahontas, nunnur,
superwoman og svo var sjálfur Bat-
man í starfsmannahópnum.
Gangasöngur var sérstaklega
skemmtilegur þennan dag. Nemend-
ur og starfsfólk skemmtu sér stórvel
við söng og svokallaða „smádansa. „
Einnig voru nemendur á miðstigi
að vinna að Comeniusarverkefni með
nemendum í Noregi, á Englandi og á
Írlandi með aðstoð Skype. Búningar
og gervi nemenda, kennara og stjórn-
enda GÍH vöktu því mikla kátínu hjá
nemendum ytra.
Foreldarfélagið sá svo um skemmt-
un í íþróttahúsi bæjarins þar sem
meðal annars kötturinn var sleginn
úr tunnunni.
Heimild: Sævar Þór Helgason.
12
FISKUR Á LÖNGUFÖSTU
Eftir bolludag og sprengidag rennur upp langafasta sem byrjar á öskudag og stendur
fram að páskum. Það er gömul trú
að öskudagur ætti sér átján bræður
og veðurfar næstu átján daga eftir
öskudag yrði líkt og var þann dag.
Það var óttalegur hraglandi á ösku-
dag – svo að nú er bara að bíða og
sjá til.
Á öskudag var gott að borða fisk
eftir baunirnar. Þessi fiskréttur
minnir á Miðjarðarhafið, vorið og
birtuna. Hann er líka góður fyrir þá
sem eru að spara kolvetnin og eru
fullir af samvikubiti eftir bolluátið
og baunirnar.
Basilíka er mikilvæg í þessum rétti.
Hún er mjög skemmtileg kryddjurt
sem hægt er að rækta innandyra í
góðum glugga. Hægt er að nota hana
þurrkaða en þá hefur hún misst mik-
ið bragð og er alls ekki sama kryddið
og þegar hún er fersk. Hún passar
mjög vel við tómata og hvítlauk í
matargerð.
Á Wikipedia, frjálsa alfræðiritinu
http://is.wikipedia.org/wiki/Ba-
sil%C3%ADka er skemmtilegur
fróðleikur um basilíku.
Basilíka á mikinn þátt í menningu
ýmissa landa, hvort sem hún er notuð
til matar eður ei. Í upprunalandi sínu,
Indland, er basílíka talin vera helg
jurt. Þar er sagt að sérhver Hindúi
skuli leggjast til hinnar hinstu hvílu
með basilíkublað á brjóstinu sem er
aðgöngumiði hans að himnaríki [2].
Í Indlandi hefur hún líka verið höfð
í réttarsölum og menn látnir sverja
sannleikseið fyrir framan jurtina [3].
Í Grikklandi á orðið basilíka upp-
runa sinn. Það kemur af gríska orðinu
(basileus) sem þýðir kon-
ungleg (planta) og gegnum söguna
hafa Grikkir borið mikla virðingu fyr-
ir plöntunni. Sagan segir að basilíka
hafi vaxið kringum gröf Jesú þar sem
hann reis upp aftur. Þess vegna er basi-
líka nú notuð þegar vatn er blessað við
grískar réttrúnaðarkirkjur og oft eru
lifandi basilíkuplöntur hafðar kring-
um altarið. Í Grikklandi til forna var
basilíka tákn haturs. Þjóðsaga segir
að basílíka yxi aðeins ef henni væri
sáð meðan sá sem sáði henni æpti og
öskraði og að lokum mátti einungis
höfðinginn tína plöntuna .
Á Ítalíu er basilíka hins vegar jurt
ástarinnar. Þar settu menn basilíku-
grein í hárið til að sýna ást sýna og til
að öðlast gæfu í ástarmálum. Í Róm
til forna var basilía nefnd í höfuðið á
dreka að nafni Basilíkus og eina leiðin
að verjast árása hans var að borða
basilíku daglega. Bæði í Rúmeníu og
Mexíkó er basílíka einnig tákn ástar.
Á fyrrnefnda staðnum gengu menn
með basilíkublað í vasanum til að
stefnumót yrðu gæfurík. Í Rúmeníu
gengu menn hins vegar enn lengra og
gáfu unnustu sinni basilíku þegar þeir
vildu trúlofast henni.
Ég fann þennan góða fiskrétt á
einum af mínum eftirlætis matar-
vefjum.
http://www.tasteline.com/
Gratíneraður fiskur.
400- 600 gr. fiskur að eigin vali
(langa, keila eða steinbítur passa
vel í þennan rétt)
3.dl. rjómi (matreiðslurjómi)
2. msk. fiskikraftur (fond hummer
frá Oscar)
2 dl. rifinn ostur
1 msk. þurrkað oregano
Handfylli af saxaðri ferskri basilíku
Tómatar
Hvítlaukur (má sleppa)
Salt og pipar
Stillið ofninn á 200°C. Þeytið
saman rjómann, kraftinn, kryddið
og rifna ostinn. Smakkið til með
salti og pipar.
Skerið fiskinn í stykki og setjið
í botninn á olíusmurðu eldföstu
formi. Hellið kryddblöndunni
yfir. Skerið tómata í báta eða kirsu-
berjatómata í tvennt og raðið ofan
á. Bakið í ofni í 35 mín.
Best er að hafa brokkólí og /eða
blómkál sem hefur verið snöggsoðið
í saltvatni eða gufusoðið. Gott salat
er líka nauðsynlegt með.
Gangi ykkur vel og verði ykkur
að góðu.
Kveðja, KS
βασιλευς
Að hætti hússins
Kristjana Sigmundsdóttir
kristjanasig@simnet.is