Selfoss - 08.05.2014, Page 12
Fánar og veifur í úrfali
Er með mesta úrval fána á landinu,
ef hann er ekki til ! búum við hann til.
Við Grunnskólann í Hveragerði eru
lausar stöður sérkennara á elsta stigi
og umsjónarkennara á mið- og yngsta
stigi. Einnig vantar okkur íþróttakennara
tímabundið vegna fæðingarorlofs frá
9. september – 9. desember 2014.
Gerð er krafa um kennsluréttindi og góða hæfni í mann-
legum samskiptum.
Grunnskólinn í Hveragerði er vel staðsettur í grónu og
glæsilegu bæjarfélagi. Einkunnarorð skólans eru: viska,
virðing og vinátta og við leggjum metnað í að áhrif þeirra
séu augljós í daglegu starfi. Skólinn flaggar Grænfánanum
og er að stíga sín fyrstu skref sem þátttakandi í verkefninu
Heilsueflandi grunnskólar.
Upplýsingar um störfin veitir Fanney Ásgeirsdóttir, skóla-
stjóri, fanney@hveragerdi.is og í síma 483-4350.
Skólastjóri
Vöruval góð
verslun í
alfaraleið
Ný tilboð vikulega
Heimsendingarþjónusta
Opið frá 7:30-19
virka daga og
10-19 um helgar
8. maí 2014
Nú er vorið komið og þá vilj-um við vera meira úti við en yfir veturinn. Þá er gott
að hafa einfaldan mat og endilega
eitthvað grænt með sem minnir á
vorið og sumarið.
Það er þægilegt að setja allt í eitt
form inn í ofn. „Allt í eitt form“
þýðir á matreiðslumáli að hráefni og
krydd er sett saman í form sem oftast
fer í ofn. Bragð af ólíku hráefni og
kryddi blandast saman og verður oft
mjög braðgott og lystugt.
Það er yndislegt að borða fisk á
mánudögum. Eftir helgar er einnig
oft til ýmislegt í kæliskápnum sem
þarf að klára svo það skemmist ekki.
Sérstaklega grænmeti sem þolir ekki
langa geymslu.
Langa er mjög góður matfiskur
sem hentar vel í ýmsa rétti. Ég bauð
upp á löngu með grænmeti í ofni á
mánudaginn.
Ég byrjaði á að léttsjóða rótar-
grænmeti. Það voru til venjulegar
kartöflur, ½ sæt kartafla, gulrætur og
rófubiti. Þetta fór í kartöflupottinn
og aðeins saltað. Soðið í 10-15 mín-
útur eftir því hvað bitarnir eru stórir.
Rétt í lokin bætti ég við stilkum af
brokkólí (sem er talin ofurfæða fyrir
miðaldra konur sbr. DV í morgun
06.05.2014).
Á meðan grænmetið sauð sneiddi
ég niður einn lauk og lét hann mýkj-
ast í olíu á pönnu ásamt tveimur
pressuðum hvítlauksrifjum. Síðan
bætt ég við spínati (sem var ekki al-
veg ferskt lengur) og aðeins saltað.
Það er svo skemmtilegt að sjá hvernig
spínatið skreppur saman á pönnunni.
Í eldfast smurt form var sett á botn-
inn léttsoðið rótargrænmeti, síðan var
löngunni í bitum raðað ofan á. Yfir
hana var kreistur safi úr ½ sítrónu
og einnig smá sítrónupipar. Næsta
lag var laukurinn, hvítlaukurinn og
spínatið af pönnunni. Ofan á það
fór brokkólíið. Síðast stráði ég yfir
rifnum osti og nokkrar smjörklípur
ofan á hann.
Ofninn var hitaður í 200°C og
formið sett í ofninn og maturinn
látinn malla í 20-30 mín. eftir stærð
formsins.
Í garðinum er kominn upp kerfill
(kannski of mikið) og graslaukur sem
tilvalið er að saxa og strá yfir formið
þegar það er borið fram. Það var lítið
salt sem fór í þennan rétt en sjálfsagt
er að hafa salt og pipar við höndina
ef þörf þykir.
Þetta var mjög bragðgott - rót-
argrænmetið og langan nutu svo
sannarlega allra bragðgæðanna og
smjörklípurnar sáu til þess að hin
„ýmsu brögð“ bráðnuðu saman og
síðan í munni manns.
Gangi ykkur vel og verði ykkur að
góðu. Kveðja, KS
12
FISKUR Í VORSKAPI
Að hætti hússins
Kristjana Sigmundsdóttir
kristjanasig@simnet.is
Stokkseyr-
ingar yfirtaka
framboð?
8 Stokkseyringar eru á fram-boðslista Bjartrar framtíðar í sveitarstjórnarkosningun-
um. Oddviti listans er Viðar
Helgason af Stokkseyri og meðal
annarra úr þorpinu er Sigurgeir
Hilmar, leikari mm. Hann er í
heiðurssæti listans og skartar eft-
irtöldum titlum: forfallakennari
og álfa- og tröllafræðingur.
Handverks-
sýning félags
eldri borgara
í Hvolnum,
Hvolsvelli
Hinn árlegi handverks-markaður félags eldri borgara í Rangárvalla-
sýslu verður haldinn í Hvolnum,
Hvolsvelli, helgina 10. - 11. maí
nk. Opið verður bæði laugardag
og sunnudag frá kl.13:00 - 17:00
Sýningunni NÚTÍMA-
KONUR lýkur 11. maí
í Listasafni Árnesinga
- Grafíkfélagið með dagskrá klukkan 16.
Mjög góð aðsókn hefur verðið á sýninguna NÚ-TÍMAKONUR, þar sem
sjá má verk eftir Björgu Þorsteins-
dóttur, Ragnheiði Jónsdóttur og
Þorbjörgu Höskuldsdóttur.
Verkin endurspegla starfsferil og
virkni þeirra. Verkin eru ýmist frá
áttunda áratugnum eða nýleg verk og
verkfærin eru ýmist olíu- eða akríllit-
ir, grafíktækni eða kolateikningar.
Uppvaxtarár listakvennanna voru
árin eftir heimsstyrjöldina síðari.
Við blasti ný heimsmynd. Alþjóð-
legir straumar í bókmenntun, mynd-
list og fatatísku bárust til landsins.
Konur hlutu aukið frelsi; pólitískt,
menntunarlega, fjárhags- og kynferð-
islega og til varð hin nýja kvenna-
hreyfing sem nefnd hefur verið önnur
bylgja femínisma.
Félagið Íslensk grafík, sem einnig
gengur undir nafninu Grafíkfélag-
ið, mun verða með stutta dagskrá
í safninu síðasta sýningardaginn kl.
16. Björg og Ragnheiður voru báðar
stofnfélagar þegar Íslensk grafík var
endurreist árið 1969. Báðar áttu þær
mikilvægan þátt í útbreiðslu íslenskr-
ar grafíkur.
Á myndinni má sjá gesti hlýða
á spjall Hildar Hákonardóttur um
sýninguna síðast liðinn sunnudag
en þá ræddi hún og leiddi hugann
að tíðaranda áttunda áratugarins og
stöðu kvenkyns listamanna þá og nú.
SELFOSS-
SUÐURLAND
kemur næst út
22. maí