Hafnarfjörður - Garðabær - 03.05.2013, Síða 4
4 3. maí 2013
HAFNARFJÖRÐUR / gARÐAbæR / vogAR
10. TbL. 3. ÁRgANgUR 2013
Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@
fotspor.is. framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is. auglýsingastjóri:
Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@
fotspor.is. Ritstjórar: Hólmfríður Þórisdóttir, sími 699 0450, netfang: holmfridur@vedurehf.is, Sigurður Þ
Ragnarsson netfang: hafnarfjordur@vedurehf.is, Ljósmyndaar: Þórir Snær Sigurðarson, sími 615 2049,
Þórður Ingi Bjarnason, sími 822 0068, Blaðamenn: Linda Hrönn Þórisdóttir, Þórir Snær Sigurðarson. Umbrot:
Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 13.500 eintök. dreifing: Póstdreifing. Veffang: fotspor.is
Fríblaðinu er dreiFt í 13.500 e intökum
í allar íbúðir í HaFnarFirði / ÁlFtanesi / Vogum
Þá eru þær afstaðnar, blessaðar kosningarnar. Ljóst er að ekki eru allir á alls sáttir með niðurstöðurnar og telja þeim allt til foráttu, kjósendur séu heimskir, þjáist af minnisglöpum og siðferði þeirra sé verulega
ábatavant. Að minnsta kosti var slík gífuryrði víða að finna á fésbókinni
á sunnudagsmorgun er (sumir) vinstri menn á Íslandi vöknuðu upp við
vondan draum. En svona virkar lýðræðið, meirihlutinn ræður og hinir verða
bara að sætta sig við niðurstöðurnar. Áberandi var í ræðum forystumanna
stéttarfélaganna 1. maí að krafa sé gerð um að kosningaloforðin verði efnd.
Kjarasamningar margra stétta renna út næsta vetur og vænta má þess að mikil
pressa verði á verulegar kjarabætur almennings sem hefur tekið á sig launa-
skerðingar og aukinn framfærslukostnað síðustu árin. Öruggt er að landinn
bíður þess nú í ofvæni að kjörin verði leiðrétt og við taki betri tíð með blóm
í haga. Almenningur hefur beðið eftir nauðsynlegum leiðréttingum og það
er nú eða aldrei að standa við stóru orðin.
Eins furðulegt og það nú er þá er liðið hátt á annað ár síðan Hæstiréttur skar
uppúr með að ekki væri heimilt að krefjast vaxta afturvirkt á gengistryggð
lán. Samt eru lán þessi innheimt af fullum þunga og ekkert gefið ekkert. Ein
þeirra mistaka sem fráfarandi ríkisstjórn gerði var að setja ekki lög um að öll
sambærileg lán skyldu falla í sama flokk. Það tækifæri var ekki nýtt og þess í
stað eru dómstólar landsins fullir af fólki sem eru að reyna að sækja rétt sinn
með ærnum tilkostnaði og tímasóun.
Þess er óskandi að næsta ríkisstjórn láti það vera eitt af sínum fyrstu verkum
að setja lánamálin í forgang og eyða óvissu sem þessari sem allra fyrst.
Lifið heil
Hólmfríður Þórisdóttir
Betri tíð með blóm í haga?
Leiðari
Hvað veistu um bæinn þinn eru laufléttar spurningar um Hafnarfjörð og sögu hans.
Svar á bls 14
HVAÐ VEISTU UM BÆINN ÞINN? ?Spurningin í þessu blaði er:Hvað heitir lista- og menningarhátíð Hafnarfjarðar og hvenær er hún haldin?
Ástjörn Hafnarfirði:
Öll umferð
óheimil
1. maí
- 15. júlí
Frá og með miðvikudeginum, 1. maí til og með 15. júlí er öll umferð gangandi fólks
óhemil um friðlandið kringum
Ástjörn í tengslum við fuglavarp á
þessum tíma við tjörnina. Þetta er
árviss lokun en friðlýstum svæðum
er almennt lokað yfir varptímann.
Ástjörn og svæðið umhverfis hana
var friðlýst árið 1978. Í desember
1996 var verndarsvæðið stækkað
með stofnun fólkvangs við Ástjörn
og Ásfjall umhverfis friðlandið.
Ástjörn er einstætt náttúrufyr-
irbæri sem á sér enga hliðstæðu í
næsta nágrenni hins nær samfellda
þéttbýlis höfuðborgarsvæðisins.
Tjörnin og svæðið umhverfis hana
einkennist af mjög auðugu gróður-
og dýralífi. Þar er t.d. að finna eina
flórgoðavarpið á Suðvesturlandi en
tegundinni hefur fækkað til muna
frá því sem var á fyrri hluta 20. aldar
og er flórgoði alfriðuð tegund og á
válista. Í tjörninni er mikið smá-
dýralíf sem er þó lítt rannsakað.
Dimmisjón í Flensborg
Furðuverur sáust á sveimi um Hafnarfjörð í síðustu viku þegar nemendur dimmiteruðu frá
Flensborgarskólanum og þá var gleðin
við völd. Nú hefur alvaran hinsvegar
tekið við en vorprófin hófust í skólanum
í gær.
Hreinsunardagar Hafnarfjarðar
byrja á mánudaginn
Árlegir hreinsunardagar í Hafnarfirði standa yfir dagana 6.-7. Maí og eru
allir hvattir til að leggjast á eitt og gera
bæinn okkar snyrtilegan fyrir sumarið.
Þá fara starfsmenn þjónustumið-
stöðvar Hafnarfjarðar um bæinn og
fjarlægja garðaúrgang sem settur hefur
verið út fyrir lóðamörk.
Að hreinsunardögunum loknum
þurfa bæjarbúar sjálfir að sjá um að
koma garðaúrgangi til endurvinnslu-
stöðva SORPU og Gámaþjónustunnar.
550 kepptu í Víðavangshlaupi Hafnarfjarðar
Víðavangshlaup Hafnarfjarðar fór fram á sumadaginn fyrsta, á Víðistaðatúni.
Keppendur voru tæplega fimm-
hundruð og fimmtíu í 14 flokkum,
fjölmennast var í yngstu flokkunum.
Birgir Gilbertsson var fyrstur í mark
í flokkum 15 ára og eldri karla.
Margrét Rósa Hálfdanardóttir var
sjónarmun á undan systur sinni
Sylvíu Rún Hálfdanardóttur í
flokkum 15 ára og eldri kvenna.
Á meðan á hlaupinu stóð var kalt
veður og vindur. Frjálsíþróttadeild
FH sá um framkvæmd hlaupsins.
Verðlaun voru gefin af Hafnar-
fjarðarbæ allir keppendur fengu
verðlaunapeninga og fyrstu í mark
í hverjum flokki fengu verðlauna-
bikara.
Keppni var hörð og góð í öllum
flokkum, fyrstu í hverjum flokki voru
eftirtalin:
Karlar 15 - 20 ára
Ólafur Tryggvi Magnússon 13:00
Gabríel Óskar Halldórsson 13:18
Konur 15 - 20 ára
Margrét Rósa Hálfdanardóttir 9:06
Sylvía Rún Hálfdanardóttir 9:06
Erla Guðbjörg Hallgrímsdóttir 9:18
Birgitta Lind
Karlar 21 árs og eldri
Birgir Gilbertsson 9,02
Þorvarður Jónsson 10:31
Ásbjörn Jónsson 10:33
Hjörtur Howser
Konur 21 árs og eldri
Alma Brown
Eyrún Ósk Jónsdóttir
Piltar 13 - 14 ára
Hinrik Snær Steinsson
Stúlkur 13 - 14 ára
Þórdís Eva Steinsdóttir
Andrea Anna Ingimarsdóttir
Hrafnhildur Ólafsdóttir
Piltar 11 - 12 ára
Friðleifur Kristinn Friðleifsson
Baldur Sverrisson
Tómas Bragi Starrason
Stúlkur 11 - 12 ára
Helena Ósk Hálfdánardóttir
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
Birgitta Rún Árnadóttir
Piltar 9 - 10 ára
Dagur Þór Hafþórsson
Auðunn Gauti Auðunsson
Baldur Örn Þórarinsson
Stúlkur 9 - 10 ára
Vigdís Pálmadóttir
Arna Sigurðardóttir
Andrea Marý Sigurðardóttir
Hnokkar 7 - 8 ára
Andri Classen
Dagur Óli Grétarsson
Sigfús Hrafn Þormar Garðarsson
Hnátur 7 - 8 ára
Elísa Lana Sigurjónsdóttir
Sól Mixa
Alexía Mixa
Hnokkar 6 ára og yngri
Egill Jónsson
Baldvin Viðarsson
Arnar Valur Valsson
Hnátur 6 ára og yngri
Rakel Eva Bjarnadóttir
Rut Sigurðardóttir
Sandra Logadóttir
Þær vermdu fyrstu sætin í stúlknahópnum 13-14 ára : Þórdís Eva Steinsdóttir
1. sæti andrea anna Ingimarsdóttir 2. sæti og Hrafnhildur Ólafsdóttir 3.sæti
Sigurvegarinn í 13-14 ára hópi pilta:
Hinrik Snær Steinsson.
Ársreikningur Sveitarfélagsins Voga 2012 lagður fram
Hagnaður bæjarsjóðs
192,2 milljónir króna
Rekstrarniðurstaða A hluta bæjarstóðs reyndist jákvæð
um 179,8 m.kr. samkvæmt
endurskoðuðum ársreikn-
ingi sveitarfélagsins. Þetta
er mun betri staða en
áætlun gerði ráð fyrir, en
hún hljóðaði upp á neikvæða
rekstrarniðurstöðu sem nemur 36,3
m.kr. Rekstrarniðurstaða A og B hluta
er jákvæð um 192,2 m.kr., en áætlun
gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu
uppá 24,8 m.kr.
A-hluti er starfsemi sveitarfélagsins
sem byggir nær eingöngu á skattfé en
til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð
starfsemi.
Hin bætta rekstrarafkoma bæj-
arsjóðs ræðst fyrst og fremst að
áhrifum fjárhagslegrar
endurskipulagningar
Eignarhaldsfélagsins
Fasteignar ehf. sem lauk
í upphafi árs 2013. Leig-
ugreiðslur voru leiðréttar
aftur í tímann, auk þess
sem uppgreiðsluverðmæti
eigna lækkaði umtalsvert.
Samkvæmt efnahagsreikningi eru
eignir sveitarfélagsins (A og B hluti)
2.432 milj.kr. í árslok, skuldir og skuld-
bindingar samtals eru 1.470 m.kr..
Bókfært eigið fé í árslok er 962 m.kr.
Eiginfjárstaða sveitarfélagsins batnaði
um 192 m.kr. á árinu og hækkaði úr
31% í 40% borið saman við árið 2011.
Samkvæmt sjóðsstreymi var veltufé frá
rekstri jákvætt um 28,7 m.kr. í A-hluta,
en 54,8 m.kr. í A og B hluta.
Mynd: Þórður Ingi