Hafnarfjörður - Garðabær - 09.08.2013, Blaðsíða 12

Hafnarfjörður - Garðabær - 09.08.2013, Blaðsíða 12
B.Sturluson ehf • Sala á atvinnutækjum • Vagnhöfði 9 110 Reykjavík • 577 11 89 – 774 11 88 • www.trucks.is Hafðu samband og fáðu tilboð í tækið sem þig vantar. Traust og góð þjónusta. Sérhæfum okkur í sölu og innflutningi á vinnuvélum, vörubílum og dráttarvélum. Vantar þig nýtt eða notað atvinnutæki ? Krókur Krókur á Garðaholti er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Í Króki eru varðveitt gömul húsgögn og munir. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis Menningar- og safnanefnd Garðabæjar á Garðaholti Opið hús frá kl. 13 - 17 alla sunnudaga í sumar. 9. ágúst 201312 HeiLSUáRið 2013 með SiGGU í HReSS mATUR OG LífSSTíLL markmiðin eru jafn mismun- andi eins og við erum mörg Eins mörg og við erum, eru markmiðin okkar mismunandi. Einn vill tæta af sér nokkur kíló, annar vill hlaupa lengra á skemmri tíma, næsti vill bæta á sig vöðvamassa, þarnæsti ætlar að breyta lífsstílnum til að líða betur osfrv. Til að ná markmiði sínu þarf að hafa áætlun. Áætlun sem byggir þig upp og er stígandi í átt að takmarkinu sem stefnt er að. Hlauparinn þarf fjöl- breytni í þjálfuninni til að staðna ekki og álagið þarf að vera hæfilegt í hvert sinn. Þannig kemur bætingin smátt og smátt og án áfalla. Áætlunin fer alveg örugglega oft útfyrir þægindara- mmann og það þarf að leggja mikið á sig og fórna einhverju. Það sama má segja þegar tæta á af sér óvelkomin aukakíló. Einhverjir sitja uppi með aukakíló eftir sumarið og vilja losna við þau sem allra fyrst. Þá gildir það sama og með æfingaplanið. Það þarf áætlun sem byggir upp og er stígandi í átt að takmarkinu sem stefnt er að. Það þarf fjölbreytta fæðu og hæfilega mikið í hvert sinn. Þannig leka kílóin af smátt og smátt án áfalla. Áætlunin fer alveg örugglega oft út fyrir þægindarammann og það þarf að leggja mikið á sig og fórna einhverju. Ekki svo ólíkar áætlanir og má yfir- færa á flest allt annað sem setja á mark- mið um. Kapp er best með forsjá og hugurinn þarf að vera í réttum takti svo allt fari vel. Oft er það þannig að hugurinn er kominn langt á undan og búinn að hlaupa maraþon og losa við 10 kíló á einni nóttu og óþolinmæðin og úthaldsleysið fer með allt saman. Ef þú segir já við færri aukakílóum þarftu að segja nei við því sem er fitandi. Heilsukveðja, Sigga Þessi bragðgóða uppskrift er úr bókinni Partíréttir sem kom út hjá Bókafélaginu fyrir skömmu. KJÚKLINGAVÆNGIR 10 kjúklingavængir 2 hvítlauksrif, marin 2 msk. engifer, rifið 4 msk. sojasósa 4 tsk. kanilduft 4 msk. hunang 1 tsk. salt. Blandið hvítlauk, engiferi, sojasósu, kanildufti, hunangi og salti vel saman og veltið kjúklingavængjunum upp úr leginum. Látið vængina liggja í leginum í kæli í að minnsta kosti 1. klst. og hrærið í blöndunni annað slagið. Grillið við háan hita í 15- 20 mínútur og snúið vængjunum nokkrum sinnum á meðan á eldun stendur. Einnig er gott að baka vængina í eldföstu móti í ofni í um 20 mínútur við 220 gráður. LAUKHRINGIR 1 laukur, stór 1 dl hveiti salt og pipar hvítlauksduft 3 dl súrmjólk 1 eggjahvíta 2 dl brauðmylsna ólífuolía, til að pensla með. Hitið ofninn í 210 gráður. Skerið laukinn í um ½ sm þykkar sneiðar. Kryddið hveitið með salti, pipar og hvítlauksdufti, eða öðru því kryddi sem ykkur hentar. Hrærið súrmjólk og eggjahvítu vel saman. Veltið laukhringjum fyrst upp úr hveitiblöndunni og dýfið síðan í súrmjólkurhræruna. Látið leka vel af og veltið þeim síðan upp úr brauð- mylsnunni. Raðið á bökunarplötu sem þakin hefur verið bökunarpappír og bakið í 25 mínútur. AVÓKADÓSÓSA 1 avókadó, vel þroskað 2-3 msk. grísk jógúrt 2 hvítlauksrif, marin 1 msk. sítrónu- eða límónusafi grófmalaður pipar. Maukið avókadó, gjarnan með töfrasprota, en það er smekksatriði hve mikið það er maukað. Hrærið gríska jógúrt, hvítlauk, sítrónusafa og pipar saman við. KanilKryddaðir KjúKlingavængir, lauKhringir og avóKadósósa bragðsterkir kjúklingavængir og laukhringir með góðri sósu er allt sem þarf í gott partí. Kanilduft er kannski ekki algengt þegar kjöt er kryddað en það gefur mjög sérstakt og gott bragð. Kanilkryddlögurinn sem hér er gefin uppskrift að er vel þess virði að prófa. Vængirnir verða sérlega meyrir og ljúffengir. Parketslípun sólpallaslípun | parketlagnir 551 1309 / 690 5115 golflist@golflist.is | www.golflist.is 99% RYKFRÍTT

x

Hafnarfjörður - Garðabær

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hafnarfjörður - Garðabær
https://timarit.is/publication/1080

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.