Hafnarfjörður - Garðabær - 09.08.2013, Blaðsíða 6
9. ágúst 2013
Frumkvöðlastarf í umhverfismálum
grænfáninn afhentur í sjötta
skipti í leikskólanum norðurbergi
Í byrjun júnímánaðar var mikið um að vera í leikskólanum Norð-urbergi. Árleg sumarhátíð var
haldin á veglegan hátt og Grænfáninn
var afhentur í sjötta sinn. Leikskólinn
Norðurberg var fyrsti leikskólinn á
landinu til að fá fánann afhentan og
hefur því mikið frumkvöðlastarf í um-
hverfismálum átt sér þar stað. Anna
Borg Harðardóttir, leikskólastjóri hefur
stýrt verkefninu ötullega frá upphafi og
fræddi blaðamann meira um starfið í
Norðurbergi.
Allir starfsmenn virkjaðir
Anna Borg segir að byrjað var að vinna
að umhverfismálum í Norðurbergi árið
1996. Ári seinna fékk skólinn þróunar-
styrk frá Mennamálaráðuneytinu til
að vinna að þróunarverkefni um um-
hverfismennt í leikskóla. Það var fyrsta
verkefni sinnar tegundar í leikskólum
hér á landi.
,,Þetta verkefni lagði grunninn að
þeirri umhverfisstefnu sem rekin er í
leikskólanum í dag,‘‘ segir Anna. Auð-
veldlega gekk að fá starfsmenn í lið
með sér og ekki voru margar hindranir
í upphafi. Anna segir að áhugi starfs-
manna hafi aukist eftir því sem þeir
fengu meiri fræðslu, upplýsingar og
tækifæri til að ræða hlutina.
,,Allir voru virkjaðir til að marka
umhverfisstefnuna, ekki bara fáir út-
valdir. Þetta skipti öllu máli og skiptir
enn að allir telji sig eiga hlutdeild í
stefnumótun og verða því ábyrgari fyrir
vikið að fylgja stefnu leikskólans eftir,‘‘
bætir Anna við.
Útikennsla, flokkun og
átthagafræði
Umhverfismenntunin í Norðurbergi
er í stöðugri þróun að sögn Önnu og
verður svo um alla framtíð. Stefnan í
umhverfismálum er skýr og starfandi
er umhverfisráð sem fundar einu sinni
í mánuði. Einnig er umhverfisráð
barna starfandi en í því ráði eru elstu
nemendur skólans. Hlutverk ráðsins
er að fara yfir ákveðna þætti sem snúa
að umhverfismálum og sinna eftirliti
á öllum deildum leikskólans.
Margt hefur þróast frá því mark-
visst var byrjað að vinna að um-
hverfismálum við skólann. Allir
matarafgangar fara í ,,Svanga Manga‘‘
sem er sérstök tunna sem er á hverri
deild. Svangi Mangi á helst alltaf að
vera svangur og börnunum er kennt
að skammta sér hæfilega á diskana
svo sem allra minnst fari til spillis. Í
garðinum eru stærri moltutunnur sem
matarleifar eru settar í til moltugerðar.
Allt heimilissorp er flokkað og hugað
er sérstaklega að umbúðum og flutn-
ingaleiðum þegar verslað er inn. Allir
nemendur skólans fara reglulega í úti-
kennslu og læra átthagafræði auk þess
sem elstu börnin fara í skógarferðir í
Skógrækt Hafnarfjarðar. Regnvatnið
er nýtt sérstaklega í útileikjum og úti-
eldun er við eldstæði leikskólans.
,,Við erum í sífelldri þróun og
möguleikarnir eru endalausir í fram-
tíðinni,‘‘ segir Anna.
,,Það sem við getum gert
inni, getum við gert úti‘‘
Anna segir að umhverfisstefnan fléttist
eðlilega inn í daglegt líf barna og starfs-
manna í Norðurbergi. Allir flokka,
molta og setja að lokum heimilissorpið
í endurvinnslugám sem stendur á lóð
leikskólans.
,,Útikennslan verður sífellt sterkari
þáttur í starfinu og í skólanum gildir
viðhorfið; það sem við getum gert
inni, getum við gert úti,‘‘ segir Anna.
Starfsmenn eru sífellt að finna nýjar
leiðir til að auðga útikennsluna og má
sjá glöggt merki um það við Lund sem
er deild fyrir elstu börn skólans. Þar
er búið að koma upp útikennslustofum
með seglþaki á milli trjánna sem skýlir
fyrir veðri. Opið eldstæði er á staðnum
og þrífótur, pottar og pönnur eru til
staðar.
Mikill kraftur og áhugi er hjá
starfsmönnum leikskólans að elda
meira og oftar úti yfir vetrartímann.
Starfsmenn á yngri deildum munu
koma meira að útieldun næsta vetur
og hefur það verið sett inn í starfsá-
ætlun skólans.
Grænfáninn hjálpar til við
að gera betur í dag en í
gær
Eins og fram hefur komið var Norð-
urberg fyrstur allra leikskóla til að fá
Grænfánann afhentan og var það árið
2003. Upphaflega var fáninn hugsaður
fyrir öll önnur skólastig en leikskóla-
stigið. En öflugir starfsmenn Norður-
bergs sönnuðu fyrir Landvernd, sem
heldur utan um verkefnið, að fáninn
ætti fullt erindi í leikskólum. Með
þessu frumkvöðlastarfi var brautin
rudd fyrir aðra leikskóla að fara sömu
leið.
,,Grænfáninn er frábært verkfæri
sem heldur okkur við efnið og hjálpar
okkur að innleiða nýjar leiðir í bættum
háttum í tengslum við umhverfið okkar
nær sem fjær. Hann hjálpar okkur að
viðhalda stefnunni og gera betur í dag
en í gær. Norðurberg er stolt af Græn-
fánanum og ætlar sér að flagga honum
um ókomna framtíð,‘‘ segir Anna.
Starfsmenn Norðurberg eru bjart-
sýnir á að gera enn betur í nánustu
framtíð og dýpka umhverfismenntun-
ina með börnunum enn meira. ,,Við
viljum sýna ábyrgð með því að skila
Móður Jörð í betra ásigkomulagi en
við tókum við henni,‘‘ segir Anna að
lokum. LHÞ
6
Frá afhendingu grænfánans á dögunum, Anna Borg Harðardóttir ávarpar gesti.
átthagafræði er kennd í útikennslu við skólann.
Veglegt eldstæði er notað í útieldun-
inni.