Hafnarfjörður - Garðabær - 09.08.2013, Blaðsíða 2

Hafnarfjörður - Garðabær - 09.08.2013, Blaðsíða 2
2 9. ágúst 2013 Vel heppnaður Járnmaður Þríþrautakeppnin Herbalife hálfur járnmaður var haldin í júlí af Þríþrautardeild Sundfé- lags Hafnarfjarðar, 3SH. Fjöldi fólks tók þátt og heppnaðist mótið vel. Þetta var í sjötta sinn sem keppnin var haldin á Íslandi og er sú lengsta sinnar tegundar. Hákon Hrafn Sig- urðsson sigraði í karlaflokki og Birna Björnsdóttir í kvennaflokki. Það er óhætt að segja að starfið hjá 3SH sé viðburðarríkt. Á morgun, laugardag verður meistaramót Ís- lands í tímakeppni haldið. Keppt er á hjólum og er kepnnisleiðin 20 kíló- metrar á Krísuvíkurveginum. Keppt verður í mörgum aldursflokkum og vegleg verðlaun verða veitt. Mótið hefst kl 17 og má nálgast nánari upp- lýsingar á heimasíðu félagsins, 3sh.is. LHÞ Ólöglegar framkvæmdir stöðvaðar af bygginga- fulltrúa Við eftirlit á Blómvangi kom í ljós að breytingar standa yfir á einbýl- ishúsi, þar sem fyrirhugað er að gera tvær íbúðir inní húsinu og eina íbúð í bílskúr. Um er að ræða brot á lögum um mannvirki nr. 160/2010, 9. grein. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir eiganda skylt að stöðva fram- kvæmdir án tafar og veita tilhlýð- andi upplýsingar um málið. Nýtt svæðisskipulag kostar Hafnarfjörð 4.4 milljónir Stjórn SSH, samtaka sveitarfé- laganna á höfuðborgarsvæðinu, hefur kynnt kostnað við gerð nýs svæðisskipulags fyrir bæjarráði Hafnarfjarðar Hlutdeild Hafnarfjarðar í kostnað- inum er kr. 4.414.399 eða 13,07%. Bæjarráð lýsir yfir áhyggjum vegna Flens- borgar skóla Bæjarráð Hafnarfjarðar lýsir veru- legum áhyggjum sínum ef til þess kemur að skerða þurfi þjónustu við nemendur í Hafnarfirði og skora á mennta- og menningarmála- ráðherra að beita sér fyrir því að skólanum verði gert fjárhagslega kleift að sinna nemendum sínum í samræmi við lög og reglugerðir. Vísað er í skýrslu Ríkisendur- skoðunar þar sem fram kemur að skólinn hafi verið rekinn með halla undanfarin ár. Þá hafi skólameistari boðað niðurskurð í starfseminni í blaðaviðtali og þar með yrði þjón- usta við nemendur skert á næsta skólaári. STUTT OG LAGGOTT Ný kynslóð sólarkrema Lækjargötu 34 • Hafnarfirði • Opið þriðjudaga kl 14 - 18 Sími 565 0500 • 897-1923 Swiss Nature fást á vefsíðunni www.scincare.is eða í k Ábendingar um efni í blaðið sendist á netfangið: hafnarfjordur@vedurehf.is Velferðarráðherra hafnar erindi Hafnarfjarðar- bæjar um að fá húsnæði St. Jósefsspítala til eignar -beðið eftir svörum frá ráðherrum um framtíð húsanna Velferðarráðherra hefur hafnað beiðni Hafnar-fjarðarbæjar um að fá afhent húsnæði St Jósefsspítala. Bæjaryfir- völd kynntu hugmyndir sínar um nýtingu húsnæðisins í þágu bæjarbúa en ráðherra telur sig ekki hafa heim- ild til að afhenda eignirnar á þeim forsendum sem lagðar voru til grund- vallar í erindi bæjaryfirvalda. Í erindi bæjaryfirvalda var gert ráð fyrir því að Suðurgata 44, Kató, yrði rifið, lóðin seld og svæðið yrði skipulagt að nýju og Hafnarfjarðarbær myndi eignast spítalann. Í bréfi bæjarstjóra til velferðarráð- herra kemur fram að Hafnarfjarðar- bær óski eftir því að fá húseignirnar sem tilheyrðu St Jósefsspítala án endurgjalds og yrðu þær nýttar í þágu nærumhverfisins. Hugmyndir bæjaryfirvalda eru að nýta húsnæðið sem menningarhús, Héraðsskjalasafn yrði stofnað, Tónlistarskólinn fengi aðstöðu í húsinu, Tónlistardeild Bókasafns Hafnarfjarðar yrði flutt þangað og einnig yrði þar vinnustofa fyrir listamenn og kaffihús. Í svarbréfi ráðherra kemur fram að hann telur sig ekki hafa heimild til að afhenda Hafnarfjarðarbæ þessar eignir á þeim forsendum sem fram koma í erindi Hafnarfjarðarbæjar og var erindinu því hafnað. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri, segir að bæði fjármála- og velferðarráðherra hafi verið send bréf þar sem óskað er eftir upplýs- ingum um hvaða áform séu varðandi nýtingu hússins . Ríkissjóður á 85% í húsunum og því 15% í eigu Hafnar- fjarðarbæjar. Ekki hafa borist svör frá ráðuneytinu né svör við beiðni bæjarins um að formlegar viðræður verði hafnar. Hákon Hrafn sigurðsson sigraði í karlaflokki. Mynd: Egill Ingi Jónsson sigurvegari í kvennaflokki var Birna Björnsdóttir. Mynd: Egill Ingi Jónsson Álftanes: Víum ehf bauð lægst í bíla- stæði við Álftanesskóla Víum ehf bauð lægst í endur-nýjun bílastæða við Álftanes-skóla en 8 tilboð bárust í verkið þar af tvö yfir kostnaðaráætlun. Tilboðin voru: Fjarðargrjót ehf. kr. 24.395.454 Víum ehf. kr. 24.210.350 Loftorka hf. kr. 27.089.200 Bjössi ehf. kr. 25.991.500 SS verktakar ehf. kr. 29.952.100 Rein sf kr. 24.910.820 Jákvætt ehf. kr. 26.617.810 Fagverk ehf. kr. 26.548.000 Kostnaðaráætlun hljóðaði uppá kr. 26.626.300. Bæjarrráð samþykkti að fela bæj- arverkfræðingi að leita samninga við Víum ehf. sem var með lægsta tilboðið. Skattadrottning og skattakóngur Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis, greiðir hæstu opinberu gjöldin í hópi einstaklinga í Hafnarfirði en hún er númer fjögur á lista Ríkis- skattstjóra yfir hæstu gjaldendur á landsvísu. Númer 5 á listanum er Garðbæingurinn Sigurður Örn Ei- ríksson, tannlæknir og er hann því skattakóngur Garðabæjar. Ólafur Björnsson, Hafnarfirði er í 9. sæti listans og í því 12. er Finnur Reyr Stefánsson, fjárfestir, Garðabæ. Sigurbergur Sveinsson, kaupmaður í Fjarðarkaupum vermir það 13. Ólöf Vigdís Baldvinsdóttir, fjárfestir í Garðabæ er í 18. sæti og Helgi Vil- hjálmsson í Góu í því 20. Ágúst Sig- urðsson, eigandi Stálskipa, Hafnarf- irði er í 19. sæti listans guðbjörg Edda Eggertsdóttir er skattadrottning Hafnarfjarðar

x

Hafnarfjörður - Garðabær

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hafnarfjörður - Garðabær
https://timarit.is/publication/1080

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.