Hafnarfjörður - Garðabær - 09.08.2013, Blaðsíða 4
4 9. ágúst 2013
Stórtíðindi úr handboltaheiminum:
ÍH mætir til leiks í handboltanum á ný
– stjórnin óskar eftir stuðningi Hafnfirðinga við félagið
Handknattleiksdeild Íþróttafé-lags Hafnarfjarðar (ÍH) var endurreist fyrr í sumar og
verður með lið á Íslandsmótinu sem
hefst þann 20. september næstkom-
andi. Félagið hefur ekki starfrækt
handknattleiksdeild síðan árið 1999.
Liðið spilar í 1. deild og sjá þeir Ás-
geir Gunnarsson og Árni Stefán Guð-
jónsson um þjálfun liðsins. Formaður
handknattleiksdeildar ÍH er Sævar Már
Gústavsson og segir hann að deildin
hafi nú þegar hafið samstarf við hand-
knattleiksdeild FH um leikmannamál.
Leikmenn í 2. flokki Fimleikafélags-
ins munu æfa undir merkjum FH/ÍH.
Vel hefur gengið að fá leikmenn til liðs
við félagið og hópurinn er að skýrast.
Má þar nefna að Þorkell Magnússon,
Bjarki Jónsson og Sigurður Örn Arnar-
son munu spila með félaginu í vetur en
þeir voru allir á mála hjá FH á síðasta
tímabil.
Vilja verða þriðja liðið í
Hafnarfirði til frambúðar
Sævar segir að takmarkið í vetur verði
að ýta við rótgrónum liðum í deildinni
og stefnan er sett á að vera í miðri deild
eða ofarlega. ,,Við viljum verða þriðja
liðið í Hafnarfirði til frambúðar,‘‘ segir
Sævar. Heimavöllur ÍH er íþróttahúsið
við Strandgötu. ,,Það var búið að út-
hluta tímum við íþróttahúsið en við
erum að vinna í því að komast þar að
með okkar æfingar,‘‘ segir Sævar. ÍH
á aðild að Íþróttabandalagi Hafnar-
fjarðar (ÍBH) og segir Sævar að hliðra
þurfi til svo æfingaaðstaðan sé nægileg
fyrir félagið.
Við erum að koma með lið sem mun
ýta undir að Hafnarfjörður sé hand-
boltabærinn og okkur finnst eðlilegt
að heimaleikir ÍH fari fram í höfuð-
vígi handboltans í Hafnarfirði,‘‘ bætir
Sævar við.
Mikil spurn eftir liði eins
og ÍH
Íþróttafélag Hafnarfjarðar var
stofnað árið 1983. Félagið var stofnað
utan um handknattleiksdeild félags-
ins en knattspyrnudeild var stofnuð
við félagið árið 1996. Hvatinn að
endurreisn deildarinnar var að gefa
handboltamönnum, sem af ýmsum
ástæðum hættu að spila handbolta,
tækifæri til að spila á ný. Ungir hand-
boltamenn sem vegna náms, barneigna
eða annarra aðstæðna geta ekki lengur
stundað æfingar sex sinnum í viku geta
þess í stað æft þrisvar til fjórum sinnum
í viku. Einnig gefur þetta eldri hand-
boltamönnum gott tækifæri sem vilja
áfram spila handbolta en æfa sjaldnar.
,,Við sem stóðum að því að endur-
reisa handknattleiksdeildina vorum
allir í handboltanum sjálfir en duttum
út. Það hefur verið mikil spurn eftir
liði eins og ÍH, bæði frá leikmönnum
og frá handboltahreyfingunni. Þetta
verkefni mun án efa efla handbolta-
hreyfinguna í Hafnarfirði,‘‘ segir Sævar.
Ennfremur segir Sævar að brotfall
úr íþróttinni sé of mikið og mun ÍH
nýtast vel til að minnka brottfallið
og þannig styrkja undirstöður hand-
knattleiks á Íslandi í heild sinni.
Óska eftir stuðningi hafn-
firskra velunnara hand-
boltans
Sævar segir að mikill hugur sé í fé-
lagsmönnum ÍH, sama hvað á gengur.
Nýtt blómaskeið er framundan hjá ÍH
og leikgleðin og samheldni hópsins
er höfð í fyrirrúmi. ,,Uppgjöf finnst
ekki í orðabók félagsins," segir hann.
Handknattleikdeild ÍH þarf á styrktar-
aðilum að halda til að standa undir sér
og óskar stjórn handknattleiksdeildar
ÍH eftir góðum stuðningi hafnfirskra
velunnara handboltans.
,,Svona klúbbur gengur ekki án
velunnara. Ef við sem Hafnfirðingar
viljum geta sagt með stolti að við búum
í höfuðvígi handboltans á Íslandi þá
þarf þetta verkefni að ganga upp. Ég
hvet alla Hafnfirðinga til að styðja við
félagið með hvaða hætti sem er,‘‘ segir
Sævar að lokum. LHÞ
HAFNARFJÖRÐUR / gARÐAbæR
16. TbL. 3. ÁRgANgUR 2013
Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@
fotspor.is. framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is. auglýsingastjóri:
Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@
fotspor.is. Ritstjórar: Hólmfríður Þórisdóttir, sími 699 0450, netfang: holmfridur@vedurehf.is, Sigurður Þ
Ragnarsson netfang: hafnarfjordur@vedurehf.is, Ljósmyndaar: Þórir Snær Sigurðarson, sími 615 2049,
Þórður Ingi Bjarnason, sími 822 0068, Blaðamenn: Linda Hrönn Þórisdóttir, Þórir Snær Sigurðarson. Umbrot:
Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 13.500 eintök. dreifing: Póstdreifing. Veffang: fotspor.is
Fríblaðinu er dreiFt í 13.500 e intökum
í allar íbúðir í HaFnarFirði / Garðabæ
Það eru góð tíðindi að Íþróttafélag Hafnarfjarðar, ÍH hafi verið vakið upp af værum blundi. Þótt Hafnfirðingar státi af tveimur bestu hand-knattleiksliðum landsins þá er alltaf rými fyrir fleiri til viðbótar. Segja
má að ÍH sé eins og litli bróðir risanna tveggja, FH og Hauka. Hjá ÍH eru
nefnilega ekki ströngustu kröfur um æfingar og ástundun eða eins og formaður
félagsins orðar það hér í blaðinu að hvatinn að endurreisn deildarinnar hafi
verið að gefa handboltamönnum, sem af ýmsum ástæðum hættu að spila
handbolta, tækifæri til að spila á ný. Ungir handboltamenn sem vegna náms,
barneigna eða annarra aðstæðna geti ekki lengur stundað æfingar sex sinnum
í viku geta þess í stað æft þrisvar til fjórum sinnum í viku. Einnig gefi þetta
eldri handboltamönnum gott tækifæri sem vilja áfram spila handbolta en
æfa sjaldnar.
Það er von aðstandenda félagsins að bæjarbúar styðji vel við bakið á liðinu
og þeim skilaboðum er hér með komið á framfæri.
Furðulegar útihátíðir
Það er með ólíkindum að á hverju ári á þessum árstíma skuli berast fréttir
af ofbeldisglæpum sem framin eru á þessari eða hinni hátíðinni. Ef það er
ekki á Eldborg þá er það á Akureyri eða Vestmannaeyjum eða hvar þar sem
fjöldinn kýs að safnast saman. Furðu vekur að aðstandendur slíkra hátíða
lýsi svo yfir í kjölfarið að viðkomandi hátíð hafi farið vel fram. Í ljósi þess
hversu mörg fíkniefnamál koma upp á hverju ári á hátíðum sem þessum
þá vekur það ýmsar spurningar um með hvaða hugarfari fólk sækir slíka
mann„fagnaði“. Og ekki síður, hvað þarf til að mönnum þyki hátíð hafa farið
úrskeiðis? Maður spyr sig?
Lifið heil
Hólmfríður Þórisdóttir
Litli bróðir
mætir til leiks
Leiðari
Hvað veistu um bæinn þinn eru laufléttar spurningar um Hafnarfjörð og sögu hans.
Svar á bls 14
HVAÐ VEISTU UM BÆINN ÞINN? ?Spurningin í þessu blaði er:Hvað er Helgafell, bæjarfjall Hafnfirðinga hátt? HaFnarFJörður / garðabærkemur næSt út FöStudaginn
23. ÁgúSt
BÆKUR 2013
grípandi saga um framandi heim
Það fylgir því alveg sérstök tilfinn-ing þegar sílesandi bókaormur
dettur niður á framúrskarandi bók.
Ekki síst þegar lesandinn á ekki von
á neinu sérstöku, ákveður að gefa bók
smá séns en heillast á stundinni af
seiðandi texta og frábærri sögu.
Þannig er sögunni Flekkuð rétt
lýst. Kápan er fjarri því aðlaðandi og
alls ekki söluvænleg. En umbúðir eru
eitt og innihald annað. Hér er sagt frá
Jamilet, ungri stúlku í Mexíkó sem
flýr yfir landamærin til Bandaríkj-
anna í von um betra líf og dreymIr
um að hitta lækni sem getur fjarlægt
valbrá á baki hennar sem af ýmsum
er talin merki djöfulsins. Hún kynnist
eldri manni á geðveikrahæli sem segir
henni magnaða sögu með óvæntum
endalokum.
Í sögunni fylgir lesandinn herra
Peregrínó eftir á ferðalagi hans um
Jakobsveginn á Spáni til Santiago
og áhugaverðum persónum sem eru
með honum í för. Hinsvegar er sagt frá
tilraun Jamilet að laga sig að lífinu í
Bandaríkjunum, sambúð hennar við
móðursystur sína og samskipti hennar
við jafnaldra sinn.
Frásögnin er grípandi og spennandi
í senn og auðvelt er að heillast af sögu-
umhverfinu og persónunum.
Það er full ástæða til þess að mæla
með þessari lesningu. Þessa dagana
þegar mikið magn bóka kemur úr þá
getur þýðingin verið upp og ofan er í
þessu tilfelli er þýðingin afbragðsvel
heppnuð.
Hólmfríður Þórisdóttir
Flekkuð
Eftir Ceciliu Samartin
Þýðandi Nanna B Þórsdóttir
Vaka- Helgafell
Þorkell Magnússon og Bjarki Jónsson sem hafa gengið til liðs við félagið
árni stefánsson fræðslustjóri HsÍ og
sævar Már gústavsson, formaður
handknattleiksdeildar ÍH. Myndin
er tekin þegar þátttökubeiðnin um
að leika í 1. deild var send inn