Hafnarfjörður - Garðabær - 03.10.2014, Blaðsíða 2

Hafnarfjörður - Garðabær - 03.10.2014, Blaðsíða 2
2 3. OKTÓBER 2014 LAGNALAGINN, PÍPARINN ÞINN Fagmennska • Snyrtimennska • Áreiðanleiki • Traust Kannaðu málið og bókaðu tíma núna www.lagnalaginn.is /lagnalaginn Sími : 774-7274 (7-PÍPARI) Stjórnendur hótuðu starfsfólki uppsögn nýtti það andmælarétt: Bílstjórum Strætó hótað brottrekstri Byggðasamlagið Strætó hefur gert kröfu um að allir bíl-stjórar sem starfa hjá fyrir- tækinu fallist á að myndbandsupp- taka verði í vögnunum. „Starfsmenn hafa andmælarétt en nýti þeir sér hann leiðir það til starfsmissis, “ segir í bréfi sem nýlega var sent til vagn- stjóra Strætó. Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó segir við Reykjavík vikublað að það myndi einfaldlega ekki ganga upp ef einhverjir starfsmenn yrðu undanþegnir myndavélakerfinu. „Þetta er náttúrulega mjög illa orðað bréf svo ekki sé meira sagt,“ segir Halldór Snorri Gunnarsson, starfsmaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, sem jafnframt furðar sig á því að stjórnendur Strætó hafi ekki beðið starfsmenn afsökunar á þessari framkomu, enda þótt þeir hafi síðar fengið sendar frekari út- skýringar frá fyrirtækinu. Starfsandinn hjá fyrirtækinu þykir slæmur og hefur Starfsmannafélagið fengið fjölmargar kvartanir. Sjá ítarlega umfjöllun bls. 10-11. Öðlast trú á eigin getu „Hugmyndafræði Klifsins snýst í grunninn um það að efla hvern og einn einstakling til að hafa trú á eigin getu. Það geta allir lært en mikilvægast af öllu er að nýta þá þekkingu sem hver og einn býr yfir og virkja eigin sköp- unarkraft. “ segir Ágústa Guðmunds- dóttir sem ásamt Ástu Sölvadóttur rekur Klifið, skapandi fræðslusetur í Garðabæ. Sjá umfjöllun bls. 6. Ríkisstjórnin sendir Hafnarfirði 60 milljóna króna reikning: „Sláandi tölur fyrir okkur“ Guðjón Árnason, verkefn-isstjóri á Atvinnumiðstöð Hafnarfjarðar segir tölur um fjölda þeirra sem gætu lent á framfæri bæjarins verði tímabil at- vinnuleysisbóta stytt um hálft ár, vera sláandi. „Þetta eru sláandi tölur fyrir okkur, “ segir hann í tölvupósti sem hann sendi bænum. Fram kemur í frumvarpi til fjárlaga næsta árs að ríkisstjórnin vill stytta tímabil atvinnuleysisbóta um hálft ár, úr þremur árum í tvö og hálft. Hörð gagnrýni kom fram hjá bæjarfull- trúum í Hafnarfirði í síðasta tölu- blaði bæjarblaðsins Hafnarfjörður/ Garðabær. Alvarlegar athugasemdir Guðjón Árnason áætlar í tölvupósti sínum að búast megi við því að 30-40 manns muni leita eftir framfærslu hjá félagsþjónustu Hafnarfjarðar- bæjar nú strax í janúar, verði þessar hugmyndir að veruleika. „Svo má sjá að á árinu 2015, ef af þessu verður og ekkert breytist, munu 173 ljúka bótarétti sínum en 143 ef bótatímabil verður óbreytt, “ segir hann einnig í tölvuskeytinu. Fjölskylduráð Hafnarfjarðar gerir einnig alvarlegar athugasemdir við hugmydnir ríksistjórnarinnar. „Ekk- ert samráð var haft við sveitarfélögin auk þess sem fyrirvari vegna þessa er nær enginn. Beinn kostnaður sveitarfélagsins af þessum aðgerðum er áætlaður 57 milljónir á næsta ári. Fjölskylduráð leggur því áherslu á að ríkisvaldið leggi til mótvægisaðgerðir vegna þessara aðgerða og fjármagni þær, m.a. í formi virkniúrræða fyrir þennan hóp en að öðrum kosti dragi þessi áform til baka. Aðrir tapa María Grétarsdóttir, bæjarfulltrúi M-lista fólksins í Garðabæ, segir að ríkið sé að varpa framfærslu þessa fólks af sér og yfir á sveitarfélögin. „Þessari breytingu verður þó ekki mætt með hærra útsvari til sveitar- félaganna, heldur gengið út frá fram- færsluskyldu sveitarfélaga samkvæmt félagsþjónustulögum. Framfærsla sveitarfélaga er mishá, þ. e. ekki er bundið í lög hver upphæð framfær- slu er, heldur ákveður sveitarfélagið það sjálft og í flestum tilfellum er upphæðin lægri en atvinnuleysis- bætur, þannig að mjög líklegt er að sú fjárhæð sem þessi hópur hefur til ráðstöfunar lækki við þetta. Þessi breyting er því íþyngjandi fyrir þessa einstaklinga sem og fyrir sveitarfé- lögin og byggir auk þess á pólitískri hugmyndafræði eins og hún er á hverjum tíma hjá stjórnvöldum. Sá eini sem græðir á þessari aðgerð er ríkissjóður – aðrir tapa. “ Flutningur Fiskistofu frá Hafnarfirði til Akureyrar: Austurvöllur vakni af Þyrnirósardraumi Manni sýnist augljóst að þessi byggðasjónarmið af hálfu ráðherrans standist vart skoðun, “ sagði Rósa Guðbjarts- dóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í umræðum um flutning Fiskistofu til Akureyrar í bæjarstjórn á miðvikudag. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar sam- þykkti þá einróma að skora á sjávar- útvegsráðherra og ríkisstjórnina alla, að taka aftur ákvörðun um að flytja Fiskistofu til Akureyrar. Engin málefnaleg rök Á fundi bæjarstjórnar voru lagðar fram ýmsar tölulegar upplýsingar sem bæj- arfulltrúar töldu að hefðu ekki komið fram en væru nauðsynlegar í málinu, auk þess sem ráðherra og stjórnvöld hefðu engin málefnaleg rök sett fram fyrir flutningnum. „Þegar ákvörðun um flutning op- inberra stofnana, og þá starfa á milli landshluta, er tekin verður að gera þá kröfu að fyrir liggi málefnaleg rök. Svo er ekki um að ræða í þessu tilviki. Þau byggðasjónarmið sem vísað hefur verið til af hálfu ráðherra standast ekki skoðun samkvæmt upplýsingum sem bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar hafa aflað sér, “ segir meðal annars í samþykkt bæjarstjórnarinnar. Ekki bara Hafnarfjörður Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Vinstri grænna, sagði að aðgerð ríkisstjórnarinnar væri „ógn við fjölbreytni í atvinnulífi í bænum“. Hún nefndi einnig lokun St. Jósefsspít- ala og nýlegar fréttir um flutning fleiri stofnana, líkt og Barnaverndarstofu, af höfuðborgarsvæðinu og út á land. Hún lagði til að þessi mál yrðu tekin upp á vettvangi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, því ekki dyrði einungis að bæjarstjórn Hafnarfjarðar stæði ein í þessum málum. Þá óskaði hún eftir því að ályktun bæjarstjórn- arinnar yrði send til ríkisstjórnarinnar allrar og allra þingmanna, ekki aðeins þingmanna kjördæmisins „Og vonandi verður þetta til þess að menn vakni af þessum Þyrnirósardraumi þarna við Austurvöll. “ Efst á dagskrá Gunnar Axel Axelsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, sagði að þetta væri ekki einkamál eins ráðherra og að málið snerist í sjálfu sér ekki aðeins um hag Hafnarfjarðar og Fiskistofu, heldur einnig „þá stefnu ríkisstjórnarinnar að flytja skuli störf út á landsbyggðina hvað sem tautar og raular“. Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri upplýsti að hann hefði reynt að ná fundi ráðherra í vikunni en ekki haft erindi sem erfiði. Þá lagði hann til að á næsta fundi með þingmönnum kjör- dæmisins yrði þetta mál efst á dagskrá. Hækkandi virðisaukaskattur á bækur: Minna til fyrir bókasöfnin „Þetta rýrnar um fimm prósent, þanng að ég reikna með að við kaupum þá fimm prósentum minna af öllu efni, “ segir Anna Sig- ríður Einarsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Hafnarfjarðar. Í frumvarpi til fjárlaga næsta árs er lagt til að neðra þrep virðisaukaskatts verði hækkað úr sjö prósentum í tólf. Tillagan hefur sætt mikilli gagnrýni. Anna Sigríður bætir því við að þetta geti haft ýmis samfélagsleg áhrif. „Við reynum að laða að unga fólkið og þá sérstaklega unga drengi sem gengur illa með lesturinn, “ segir Anna Sig- ríður. „Kannanir sýna að börn, sem hafa gaman af að lesa bók, eiga auð- veldara með námið og það hjálpar þeim oftar en ekki í lífinu almennt. Þá er lesturinn líka samfélagslega bætandi samkvæmt könnunum. Þeir sem lesa mikið eiga auðveldara með að setja sig í spor annarra og lestur eykur greind og félagsþroska, “ bætir hún við. Bókasafn Hafnarfjarðar fær um níu milljónir króna í dag til að kaupa bækur og áskriftir. Einnig fær safnið 2,5 milljónir króna að auki til kaupa á blöðum og tímaritum, auk þess sem sérstök framlög fara í kaup á myndum, tónlist og slíku. Safnið er rekið með framlögum frá Hafnarfjarðarbæ. Bæjarblaðið Hafnarfjörður/Garða- bær óskaði viðbragða bæjarfull- trúa í Hafnarfirði og Garðabæ við þessum fyrirætlunum stjórnvalda. Viðbrögð Hafnfirðinga voru birt í síðasta tölublaði, en María Grét- arsdóttir er eini bæjarfulltrúinn úr Garðabæ sem hefur svarað fyrir- spurn blaðsins. Tölur Hafnar- fjarðarbæjar * Atvinnuleysi í Hafnarfirði var að meðaltali árið 2013 4,7% saman- borið við 3,5% á Akureyri. * Atvinnulausir í Hafnarfirði sem eru með háskólapróf voru 118 en 62 á Akureyri í ágúst 2014. * Stöðugildum hjá ríkinu fækkaði í Hafnarfirði um 126,8 á milli áranna 2007 og 2013, eða um 20,4%. Á sama tíma fækkaði þeim um 57,2 stöðugildi á Akur- eyri, eða sem nemur 5,4, %. * Stöðugildi á vegum ríkisins á Akureyri voru 1.004 árið 2013 samanborið við 495 stöðugildi í Hafnarfirði. * Verði af flutningi Fiskistofu til Akureyrar mun fækka um 57,5 stöðugildi til viðbótar við þau 126,8 störf sem fækkaði um milli áranna 2007 og 2013 í Hafnarfirði. Bæjarstjórn greiðir einróma atkvæði um að skora á ráðherra að skipta um skoðun.

x

Hafnarfjörður - Garðabær

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hafnarfjörður - Garðabær
https://timarit.is/publication/1080

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.